Vísir - 02.04.1970, Side 6
6
VÍSIR , Fimmtudagur 2. apríl 1970.
á eldhús-
innréttingum, klæða-
VEUUM ÍSLENZKT
fSLENZKAN IÐNAÐ
íviíííí-ivi-x'iíií'ií
SKJALA- OG LAGERSKÁPAR
%•:•:
M
J. B. PETURSSON SF.
ÆGISGÖTU 4 - 7 gc 13125,.13126
AXMINSTER býSur kjör við allra hcafi.
GRENSASVEGI 8
SIMI 30676.
Fimm skrýtnir náungar birtust skyndilega úti á ísnum á tjörninni I gærdag, slógu upp
jöklatjaldi og áðu þar — alls óafvitandi um þá forvitni, sem þeir vöktu hjá vegfarendum
á FríkirkjuvegL
það varð umferðarteppa á
Fríkirkjuveginum í gærdag
þegar fimm skrýtnir náungar
birtust skyndilega úti I Tjamar-
hólmanum og slógu upp tjaldi.
„Aprílgabb!" sögðu. einhverjir
og virtu með tortryggni fyrir
sér jöklafaraútbúnað fimmmenn
inganna, sem rpistu tjaldið upp
á augabragöi og byrjuðu æfð-
um höndum að brjóta gat á Is-
inn.
Þetta voru greinilega samæfð
ir náungar, en einn skipti verk
um. Meöan gatið var brotið á ís-
inn, kveikti annar bál og byrjaöi
að steikja pylsur, en þriðji kom
með færi og renndi því strax
og gat fékkst á ísinn. Fjórði sett
ist og tók aö færa inn einhverja
skýrslu I virðulega bók.
Aprílgabb, eða ekki aprílgabb.
Við urðum að fá úr því skorið
hvað eiginlega væri á seyði, og
snerum okkur að manninum,
sem verkaskiptingunni stjómaði
í snarhasti var kynt bál og
tekið til við að steikja pyls-
ur.
„A1 abbal abbalúbbulá!" og
mikið handapat og þungar á-
herzlur fylgdu ræðunni. Hvers
• lenzka var nú þetta eiginlega?
En þá kafnaði allt I dmnum
Iítillar flugvélar, sem sveif yfir
tjamarhólmann og varpaði nið-
ur böggli á ísinn og virtist hann
Þeir pjökkuðu gat á ísinn og
lýstu niður í vatnið með vasa
ljósi, en...
fimmmenningunum ætlaður,
sem voru ekki höndum seinni aö
bjarga honum I hólmann. Þó
náðu nærstaddir að sjá, að pakk
inn var merktur CCCP, sem er
keimlíkt rússneskri skammstöf-
un.
Leiðangursstjóri gat gert ein-
hverjum skiljanlegt, að þetta
væru Rússar (einhverjir sáu þá
þó koma út úr húsi Æskúlýðs-
ráðs), sem væru að undirbúa
Grænlandsför. Afar merkilegur
vísindaleiöangur til könnunar á
hæfni górilluapa til að takast á
hendur fjalla- og svaðilferðiry
haflsauönum! Apinn er, sko,
svo vel hærður frá náttúmnnar
hendi! Pakkinn? Jú, I honum
var heilavökvi úr mönnum til að
sprauta I apana, svo þeir gætu
hugsað sjálfstætt! — „Ekki
meira að segja! Topp síkrit! Al-
gert leyndó!" babiaði leiðangurs
stjóri, sem var einkennilega lík-
ur Katli Larsen, góðkunnum
Reykvíkingi .
Lítil flugvél sveff lágt yfir
tjarnarhólmann og varpaði
niður pakka, sem forvitnir
fengu rétt að sjá að var m.a.
merktur CCCP.
th