Vísir - 29.04.1970, Blaðsíða 2
*
HEYERDAHL ætlar aftur
yfir Atlantshafið
Etur kappi við h'ófuðskepnurnar á frumstæðum papýrusbát,
þrátt fyrir misheppnaðan leiðangur í fyrra
Thor Heyerdahl hefur ekki
lagt árar i bát, þótt endi hafi
verið bundinn á ferð hans í papýr
Y inkvennabréf
usbátnum „Ra“ yfir Atlantshaf
i fyrra, þegar stormur eyðilagði
bátinn. — Hann ætlar að reyna
enn á ný.
Heyerdahl, sem varð heims-
frægur fyrir ferð sína á flekan-
um „Kon-Tiki“ og vakti aftur á
sér athygli í fyrra við tilraunina
með „Ra“, ætlar að leggja upp í
ferðalag á „Ra 2.“ einhvem fyrsta
daginn í maí-mánuði. Kona hans,
Yvonne, hefur skýrt frá þvi, aö
hann fari frá Marokko yfir At-
lantshafið, en ætlunin sé sú aö
ná landi í Vestur-Indíum.
Það verður sama áhöfn á nýja
papýrusbátnum, eins og í hin-
um misheppnaða leiðangri á „Ra
l.“ Thor Heyerdahl fékk fjóra
Indíána á eyju einni i Titicaca-
vatni í Bólivíu til þess að smíða
fyrir sig bátinn, og er hann byggð
ur eftir öðrum lögmálum en „Ra
1."
Það, sem fyrir Heyeröahl vak-
ir með þessari háskasiglingu, er
aö sanna, að Forn-Egyptar hafi
getað siglt til Ameríku á papýr-
usbátum sínum. Að hans áliti
hafa Aztek-Indíánarnir í Mexí-
kó sótt hugmyndir að pýramída-
byggingum sínum til egypzkrar
menningar.
„Ra l.“ hafði verið á siglingu
yfir hafið í 51 sólarhring, þegar
áhöfnin varð að yfirgefa bátinn
960 km austur af Barbados-eyju.
Þeir höfðu lent í stormi og rek-
ald rauf gat á bátinn, en hákarla-
ger kom í veg fyrir allar tilraun
ir til viðgerða á hafi úti.
Heyerdahl gerir ráð fyrir að
„Ra 2.“ sé bæöi sterkbyggð-
ari og eins hraðskreiöari en fyrir
rennari hans.
Jackie Onassis
seljast eins og
heitar lummur
— Verðið frá krónum fjörutiu og fimm
þúsund til sjötiu þúsund
Sóknari New York greip í
x taumana fyrir síðustu helgi, þeg-
ar tilraun var gerð til þess aö
selja bréf, sem Jacqueline Onass-
is hafði skrifað eigin hendi.
Þetta er í annað sinn á þrem
mánuðum, sem ríkissaksóknarinn
hefur látið slíkt til sín taka, en
ennþá hefur ekki verið upplýst,
hver eöa hverjir stálu bréfunum
fjórum, sem bjóöa átti upp í
febrúar.
Þau' skrifaði Jacqueline Kenne-
dy til Roswells Gilpatricks, fyrr-
verandi vamamálaráðherra USA,
en hið innilega orðalag bréfanna
vakti feiknaathygli eftir að eitt
New York-blaðanna birti inni-
haid þeirra.
Eftir að skaðinn var skeður,
var lagt hald á bréfin, og opin-
ber tilkynning var gefin út um að
bréfunum hefði verið stolið úr
peningaskáp Gilpatricks, sem
starfar sem lögfrasðingur í dag.
Enn hefur ekki verið gefin út
ákæra á hendur manninum, sem
grunur féll fyrst á, en hann hafði
um skeið starfað hjá Gilpatrick,
þótt hann væri kominn úr þjón-
ustu hans, þegar þama var
komið sögu. Bréfin vom skrifuð
á ámnum 1963—1968.
Þetta nýja bréf, sem skaut upp
kollinum fyrir síðustu helgi, hef-
ur einnig verið birt að efni til í
dagbHiðum, en það hafði
verið skrifað til innrömmunar-
verkstæðis með fyrirmælum um
sérstaka innrömmun myndar af
þeim Kennedy-hjónunum, sem
átti að vera. brúðargjöf hennar til
forsetans.
En nú hefur lögreglan lagt hald
á þetta bréf eins og hin, að kröfu
Jacqueline Onassis. í fyrstu virð-
ist sem því hafði verið stolið úr
innrömmunarverkstæðinu af af-
greiðslustúlku.
Ekki hefur þetta dugað til
þess að fæla aðra uppboðshald-
ara frá að bjóða upp bréf með
eiginhandarskrift Jackie. Þvert á
móti! Þau seljast eins og heitar
lummur.
Það eru helzt vinkvennabréf,
sem á markaðnum eru. Á föstu-
dag seldust á uppboði, sem hald
ið var á Waldorff Astoria-hótal-
inu, f jögur bréf á 45.000 til 75.000
krónur. Tvö bréf skrifuð af
John F. Kennedy heitnum for-
seta, seldust á tæpar 40.000 kr.
og rúmar 60.000 kr.
Sagt er að Jacqueline Onassis
hafi dregið heldur úr bréfaskrift-
um sínum, síðan hún giftist
skipakóngnum. Hún neitar meira
að segja að skrifa undir reikn-
inga . nýlenduvöruverzlunarinnar.
Áður hafði hún fengið nóg af öll-
um greinunum og bókunum, sem
þjónustustúlkur og ráðskonur úr
Hvita húsinu höfðu skrifað um
kynni sfn af forsetafrúnni.
Enda munu víst svipaðir erf-
iðleikar vera farnir að láta á sér
kræla hjá Lyndon Baines John-
son og Lady Bird, síðan þau
fluttu úr Hvita húsinu.
Papýrusbáturinn „Ra l.“, sem Thor Heyerdahl ætlaði sér að sigla yfir Atlantshafið og með
því sýna fram á, að Forn-Egyptar hafi getað siglt til Ameríku, en hann álítur að pýramídar
Aztek-Indíánanna í Mexíkó hafi verið - gerðir undir áhrifum egypzkrar menningar. Nú er „Ra
2.“ tilbúinn til þess að reyna það, sem „Ra 1“ mistókst í fyrra.
Jón kom í bæinn í dag
og auðvitað fór hann beint að spila Bowling og kúluspil i
TÓMSTUNDAHÖLLINNI
á horni Laugavegar og Nóatúns