Vísir - 29.04.1970, Blaðsíða 9

Vísir - 29.04.1970, Blaðsíða 9
V1 SIR . Miðvikudagur 29. apríl 1970. Listahátíðin veknr mikla athygli erlendis — Fjöldi heinjsþekktra listamahna kemur fram — Búizt við fjölda ferðamanna og fulltrúum erlendra stórblaða | ^istahátíð í Reykjavík, er hald in verður hér dagana 20. júní til 1. júl'í hefur þegar vakið mikla athygli erlendis. Töluvert hefur verið skrifað um hana í erlend blöð í sam- bandi við það listafólk er hing að kemur. Flugfélögin, Lotftl.. og Flugfélag ís'lands hafa einnig kynnt hátíðina erlendis. Hafa þegar borizt nokkur hundruð miðapantanir, einkum frá Norð- urlöndunum og Stóra-Bretlandi. Er sagt, að Bretar ráði vart við kaupgleði sína. er þeir heyra lágt verö aðgöngumiðans krón ur 250, á tónleika hjá heimsfræg um listamönnum, Ifkt og Vladi- Ashkenazy, Daniel Barenboim Jacqueline du Pré og Victoria de los Angeles. „Ég er nýkominn heim“, segir Ivar Eskeland, forstj. Norræna hússins og jafnframt fram- kvæmdastjóri listahátíðarinnar í Reykjavík, er blaðið innir hann fregna af hátíðinni. „Já, heim“, endurtekur hann DANIEL BARENBOIM Daniel Barenboim er fæddur í Buenos Aires árið 1942, en flutti til Israels meö fjöl- skyldu sinni árið 1952. Hann höf píanónám kornungur hjá föður sínum, Enrique Baren boim og sjö ára kom hann fram í fyrsta skipti. Niu ára lék hann fyrst með sinfóníu hljómsveit. Hann er þekktur bæði sem frábaer píanóleikari og stjórn andi. Barenboim er hinn mesti feröagarpur og hefur haldið reglulega hljómleika í Evrópu síðan árið 1954 og Ameríku hefur hann árlega sótt heim síðan 1957, auk þess sem hann hefur ferðazt til Japans, Ástralíu og Suður Amerí'bu. Árið 1967 kvæntist hann sellóleikaranum, Jacqueline du Pré og hafa þau hjónin haldið fjöldann allan áf tón leikum saman. Við fáum nú að hlýða á þau á Listahátíð í Reykjavík. með giettni í málrómnum. „Mér líkar nefnilega svo vel hérna hjá ykkur í Reykjavík, að ég er löngu farinn að tala um borgina sem mína heimaborg". Ivar Eskeland er nýkominn úr feröalagi í sambandi við lista- hátíðina. Hann var að ganga frá samningum við norræna listafólkið er kemur. Má þar nefna sópran-söngkonuna Aase Nordmo Lövberg, sem er frá Norður-Noregi. Um Aase sögðu gagnrýnendur, er hún fyrst kom fram í hljómleikahöll háskólans í Osló, að þar hefði eigi fyrri heyrzt hugljúfari flutningur og hvarvetna hefur hún hlotið lof gagnrýnenda fyrir frábæran flutning sinn. Þá kemur Gull- berg-ballettinn norski sem tal- inn er sá bezti hér á Noröur- löndum. Dansararnir 23 munu sýna hér Rómeó og Júlíu og Everdyke er látin. Tveir af þekktustu píanóleikurum Norðurlanda, Bengt Haliberg hinn heimsfrægi sænski jasspíanóleikari og norski pa'anósni'llingurinn Kjell Bækkelund, hafa æft saman dag skrá, er þeir flytja hér og nefna „Andstæður". Þeir eru báðir þekktir fyrir frábæra tækni óg innlifun í fJutningi og I pró- grammi þeirra gefst áheyrend- um kostur á að heyrá allt frá háklassískum verkum og til þess nýjasta í jassheiminum. Olara Pontoppidan, hin fræga danska leikkona kynnir Ijóðlist síns heimalands. Marion etteatem, brúðuleikhúsið, kem- ur frá Stokkhólmi og flytur okk ur Bubba kóng. Marionettatern byggir flutning sinn bæði á leik urum og brúðum. Auk þessa fólks frá Norður- löndum koma listamenn á veg- um umboðsmanns í London. Jasper Parrott að nafni, en á hans vegum koma Vladimir Askenazy, Ðaniel Barenboim ' Jacqueline du Pré, Itzhak Perl- man. Andre •Previn og Victoria de los Angeles, en það eru þessi nöfn aðallega sem draga athygli umheims að fslandi í sambandi við fyrstu íslenzku listahátíðina og vitað er að blöð eins og The Guardiar., The Theleeraph The Observer, Sunday Times og Music and Musicians munu hafa 'fullan hug á að senda tónlistar aagnrýnendur á hátíðina, og jafnvel einn!o blaðamenn. Er því að efa, að lista- hátfðin i Revkjayfk mun verða gleði'legur viðburður fyrir þá sem starfa að ferðamálum hér á landi, bar sem hún dregur að sér ferðamenn í rfkum mæli. Við getum séð af áðurgeng- inni unntalningu, að hér er um úrvalsifólk að ræða og flest heimsþekkt á sínu sviði, Svo er samt ekki að skilia, að við Islendingar sjálfir leggium ekk- ert af mörkum til þessarar fyrstu listahátíðar okkar endá ekk; færri en 75 dagskrárliðir sem þarf að upnfvtla. Sinfónú! hliómsveit tsland:s flvtur há- tíðarforíeik. Halidór Taxness heldur ræðu. flutt verða ís- lenzk nútfmaljóð, sýning á ís- lenzkum heimilisiðnaði, íslenzk verk, er send hafa verið til Nor- um bókum og handritum. egs til dómnefndarinnar, sem í Sýning á vegum Arkitektafé- eru félagar í tónlistarfélagi Nor lags íslands „íslenzki torfbær- inn“. Þjóölög og þjóðdansar. Frumsýnt í Iðnó á Kristnihaldi undir Jökli eftir Halldór Lax- ness og Þjóðleikhúsið sýnir Mörð Valgarðsson eftir Jóhann Sigurjónsson. Auk þessa verða opnar fjölmargar myndlistarsýn ingar, bæöi íslenzkar og erlend ar á meöan hátíðin stendur yf- ir. Undirbúningurinn hefur stað- ið í rúmt ár. „Og þetta hefur alft gengið ótrúlega vel“ segir Ivar Eskeland sjálfur fram- kvæmdastjóri hátíðarinnar. Auk "'A Eskelands hefur framkvæmda- wmm VLADIMIR ASHKENAZY VJgtjjmji; Ashkenazy, rússp- eski pianósnillingurinn er kvæntur íslenzkri konu. — Hefur hann oftsinnis haldið hér hijómleika og síðan 1968 hafa þau hjón átt hér fast aðsetur. Hefur hann átt sinn þátt í því, að Listahátíð í Reykjavík getur boðiö upp á marga af bekktustu tónlistar snillingaim heims í dag. Þegar, sautján ára gam- all var As'hkenazy þekktur og viðurkenndur einleikari í heimalandi sínu, Rússlandi Hann varð fyrst þekktúr um hinn vestræna heim árið 1962 eítir að haifa hlotið 1. verðlaun f alþjóðlegri sam- keppni. Árið 1963 flutti hann með fjölskyldu sinni til London og hetfur gert vlð- reist þaöan bæði til Ameríku og Evrópu. Hann er hinn mestj ferðagarpur og hefur sótt Japan og fjarlæg Aust- urílönd heim, og leikið hefur hann i óskyldum löndum líkt og Alaska og Nýja Sjálandi. ANDRE PREVIN Hann er einn af heiðurs- stjómendum Sinfóníuhljóm- sveitar Lundúna og sá átt- undi, sem þann heiður hlýt ur á 65 ára feríi hljómsveitar innar. Andre Previn er fædd ur í Berlín áriö 1929. Hann hóf nám í píanöleik í Berlín og síðar í París. Hann flutti meö fjölskyldu sinni til Kalifomu árið 1939. Hann hefur samið yfir 30 tónverk til flutnings við kvikmyndir, og fjómm sinn um hlotið Óskars-verölaun bandarlsku akademíunnar. Á undanförnum tíu árum hef ur hann nær einungis helg aö starfskrafta sína flutningi klassískra verka og hefur stjómað flestum meiri háttar sinfóníuhljómsveitum í Ameríku. Á liðnu sumri stjómaöi Andre Previn Sinfóníuhljóm sveit Lundúna í fyrsta sinn utan Englands, er hann stjórnaðj hljómsveitinni á 14 af 22 hljómleikum, er hún hélt í Ohicago og Florida. nefndin látið hendur standa fram úr ermum við undirbúning inn og er formaður hennar Páll Líndal. Framkvæmdaráð hefur svo yfirumsjón og jafnframt á- byrgð á öllu fyrirtækinu. Þess æðsti maður er sjálfur borgar- stjórinn Geir Hallgrímsson. „Þetta hlýtur að vera dýrt fyrirtæki, Eskeland?“ „Við reiknum með 5 milljón króna kostnaði. Tekjur höfum við áætlað okkur 3% milljón króna. Þeir sem standa að baki þessu fjárhagslega em: Menn- ingarsjóður Norðurlanda, Nor- ræna húsiö, Reykjavíkurborg og rfkið.“ „Á hátíðinni er áætlað aö veita verðlaun fyrir hátíöarfor- leik. Er mikil þátttaka?“ „Við höfum fengið fjögur egs. Munu þeir velja verkið er síðan verður flutt við opnunina af Sinfóníuhljómsveit fslands í Háskólabíói.“ Það er því óhætt að segja fyr irfram að mikið verður um dýrð ir hér I höfuðstaðnum á Lista- hátíð í Reykjavík og ættu þar allir að fá eitthvað við sitt hæfi iafnt eldr,- sem yngri. Unglingana er hægt að gleöja með því að umboösmaðurinn Jasper Parrott í London er að reyna að fá hingað heimsþekkta pop-hljómsveit. I prentun er núna haldgóður bæklingur með fullkominni dag skrá hátíðarinnar og upplýsing um um listafólk það er sækir okkur heim. Honum verður dreift í 10.000 eintökum hér á Reykjavíkursvæðinu. Tvö þúsund eintökum á ensku og dönsku verður hugsanlega dreift á vegum flugfélaganna er- lendis, sem þegar hafa kynnt há tíðina nokkuö, sem miðapantan- irnar, er þegar hafa borizt sýna. Takíst jafnvel tfl og á horfist verður haldin listahátíð í Reykjavfk á tveggja ára fresti. —MV— ■ Konan, er fann kvenarmbandsúr við Hunangsbúðina. Kma er býr á Flókagötunni hringdi: „Mig langar að beina þessum línum til konu þeirrar, er fann dömuarmbandsúr fyrir utan Hunangsbúðina í Domus Medica nú fyrir skömmu. Vinkona mín var svo óheppin að týna úrinu sínu þarna. Þann sama dag hringdi ég á alla þá staði, er hún hafðj komiö á, og var mér þá tjáö aö kona nokkur hefði fundið úrið fyrir utan áðurnefnda Hunangsbúð. Nú hef ég bæði reynt að ná sam bandi við konu þessa með því að auglýsa í dagblöðunum, skrifa í Velvakanda og hringja til lögreglunnar — en ekki tek- izt. — Nú er þaö von mín að hún lesi þessar línur.“ „Lesendur hafa oröið“ munu fúslega gefa konu þeirri er fann armbandsúrið upp heimilisfang eiganda, er vafalaust yrði mjög þakklátur þar sem hér' er um dýrmæta minningargjöf að ræða. Bros duga ekki ætíð... MR. hringdi: „Ég er alveg 'hissa á hvað menntamálaráð- herra tekur léttilega á þessum mótmælaaðgerðum unga menntafólksins. Hann brosir bara í sjónvarpið að aögerðum f íslenzka sendiráðinu í Stokk- hólmj og segir að taka beri þessu með þvi hugarfari „að fyrirgefa verðj þeim, lfkt og öör um sem ekki viti hvað þeir gjöri.“ Eins brosir hann sínu blíöasta á myndum er teknar voru við það tækifæri er ungir nemendur f Víghólaskóla gáfu honum í sumargjöf gúmmfkarl. Það er ágætt aö brosa, þegar það á við Hér á það bara ekki við þar sem fuflkomin alvara er að bak, - ssum mótmælaaö gerðum unga menntafólksins. — Að sjálfsögðu ætlast þetta fólk til þess að tekið sé á þeirra vandamálum af festu og skiln- ingi, og ég er handviss um, að meirihluti þjóðar fylgir að baki. Því að hver æskir ekki eftir bættum lífskjörúm hér á þessu skeri?“ HRINGIÐ I SÍMA1-16-60 KL13-16

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.