Vísir - 29.04.1970, Page 3
VÍSIR . Miðvikudagur 29. apríl 1970,
3
í MORGUN ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND I MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsjón: Haukur Helgason
Rússneskir flugmenn í Egyptalandi
— að sögn Israelsmanna
ÍSRAELSMENN fullyrða,
að fiugmenn frá Sovétríkj-
unum séu komnir til Eg-
yptalands og fljúgi sovézk-
um þotum af MIG-gerð.
Segir í fréttinni, að rúss-
nesku flugmennimir hafi
nú þegar flogið þessum
flugvélum í könnunarferð-
um við Súezskurð og senni
lega muni þeim ætlað að
taka þátt í bardögum með
egypzkum flugmönnum.
Hins vegar liggi enn ekki
fyrir neinar sannanir um
þátttöku þeirra í loftorrust
um við ísraelsmenn.
Eins og menn rekur minni til,
hótuðu Rússar fyrir nokkru íhlutun
1 stríðinu við Súezskurð, ef Nixon
Bandaríkjaforseti léti af því verða
mwwwv.v
að afhenda ísrael vopn. ísraels-
menn óskuðu eftir Phantom-þotum
frá Bandaríkjunum og hafa nú feng-
ið nokkrar þeirra. Hins vegar vildi
Nixon ekki að svo stöddu afhenda
Israel jafn margar herþotur og þeir
báðu um.
Samkvæmt þessum fréttum frá
ísrael hafa Rússar nú gert alvöru
úr hótun sinni og ekki aðeins af-
hent Egyptum æ fleiri MIGjher-
þotur, heldur látið þá hafa flug-
menn til að fljúga þeim.
Bæði Israelsmenn og Egyptar
skýrðu í morgun frá loftárásum viö
Súezskurð. Kváðust Egyptar hafa
.....;......
t S ' '^l
............................................................................. ................ ................................. ......... ■ „ '.......................................... .............................v,,...v.;í
Phantom. Nixon afhenti ísrael hluta pöntunarinnar.
Verðfallið heldur áfram
— NIXON mun ávarpa þjóðina
O Verðfallið hélt áfram á
verðbréfamarkaði í Banda-
ríkjunum og víðar í gær.
— Nixon Bandaríkjaforseti
hefur boðað, að hann muni
ávarpa þjóðina í sjónvarpi
vegna þessa uggvænlega
máls.
Fall gengis verðbréfanna náði
einnig til London og Tókíó og ann-
arra markaða, þótt það væri þar
mun minna en i Bandaríkjunum.
Er nú niikill óhugur í mönnum og
verður sumum hugsað til kreppu-
áranna fyrir stríö, en það var þá
einmitt hrun á verðbréfamörkuðum
í Bandarikjunum, sem var upphaf
hinnar miklu skriðu í þann tíð.
Menn voru vongóðir i gærdag
fyrst eftir opnun kaupþinga, en þá
hækkaði gengið lítið eitt. Fljótlega
tók það þó' enn að falla.
Sérfræðingar telja óvissuna i
efnahagsmálum Bandaríkjanna og
stjórnmálum valda þessu, og benda
á Kambódíumálið sem dæmi um
nær óleysanlegt pólitískt vandamál
forsetans. Eitt megininntakið i
stefnu Nixons er Víetnamiseringin
svonefnda, heimköllun bandarískra
hermanna frá Indó-Kína. En hvað
verður þá um þessi ríki, svo sem
Kambódíu og Laos?
skotiö niður tvær flugvélar af I Styrjöldin við Súezskurð færist
ísrael. sífellt í aukana efUr þvl sem vopn
aðila eflast.
MIG frá Sovétríkjunum.
KARATESKÓLAR
BERJAST
— Einn maður drepinn
■ Rifrildi á milli karate-skóla Barlzt var með hnífum, spjót-
leiddi nýlega til morðs. James um, höggsverðum og samurai-
Koncevic dró langt samuraí-
sverð úr kviði sínum — og lézt.
Þetta var í Chicago. Inni í húsi
karate-skólans Black Cobra
börðust nemendur og kennarar
þriggja karate-skóla upp á líf
og dauða.
Handtekinn var John Keehan,
sem kallar sig „lífshættulegasta
mann á „jörðu“ eða „Dante
greifa“. Keehan stýrir karate-
skóla, sem kenndur er við
Dante. Hann og félagar hans
komust inn í Cobruskólann með
þvf að segjast vera frá lögregl-
unni. Sýndi Keehan stjörnu lög-
reglustjóra og ruddist inn.
sverðum. Inn á milli heyröust
karateh'róp.
Jerome Greenwald, tvitugur
kennari var sakaöur um morö.
Hann kvaðst hafa banaö James
Koncevic í sjálfsvörn. Hefði
hann verið grimmdarlega barinn
og varið sig með sveröi.
Fyrir tveimur árum fékk
„Dante greifi“ skilorðsbundinn
fangelsisdóm. Hafði hann reynt
að sprengja f loft upp karate-
og judoskóla Chicagoborgar,
sem hann kvað hafa skuldað sér
peninga fyrir kennslu.
Andkommúnistaríki
Asíu á ráðstefnu
GREINILEGT er, að kommúnistar
munu engan þátt eiga í fyrirhug-
aðri ráðstefnu um Kambódíumálið.
Kína og Noröur-Víetnam, sem báð-
um hafði verið boðið að senda full-
trúa, hafa algerlega hafnað aðild.
Segja þau, að þessi ráöstefna sé
i runnin undan rifjum bandariskra
I heimsvaldasinna og til þess eins
ætluð að styöja við bakið á þeim
i framferði þeirra í Kambódíu og
víðar.
Nú er ákveðiö, að ráðstefnan
verði í Jakarta í Indónesíu hinn 14.
maí. Tuttugu ríkjum var boðið þátt
taka, og eru þá meðtalin Kína,
Noröur-Víetnam og Norður-Kórea,
sem enn hefur engu svarað.
Mikiö magn vopna hefur nú ver-
iö flutt frá Suður-Víetnam til Kam-
bódíu, en Kambódíumenn telja það
hvergi nægja. Hafa þeir enn óskað
eftir vopnum frá Formósu, Indó-
nesíu og fleiri rikjum. Bandaríkja-
stjórn hefur enn ekki fallizt á bein-
ar vopnasendingar úr birgðum
Bandaríkjahers.
Aðkast ai páfa
♦ Mikill mannfjöldi hlýddi á páfa, er hann heimsótti Sardiníu fyrir
nokkrum dögum. Hins vegar geröust þar atburðir, sem varla
heföu verið hugsanlegir fyrir skömmu, er hópur manna tók að
kasta grjóti að páfa og mannfjöldanum, er á hann hlýddi. —
Myndin sýnir, er lögreglumenn í borgaralegum fötum höfðn
hendur í hári eins uppþotsmanna. Hans heilagleiki veirður nú
fórnariamb óróans í heiminum eins og aðrtr.