Vísir - 29.04.1970, Page 5
VfSIR . Miðvikudagur 29. apríl 1970.
5
ÍSLENZKAN IDNAÐ
I VEUUM fSLENZKT
k*:-:
ííí:
Þakventlar
Kjoljárn
m
H
m
:•:•:•;!
?•:•:•:
:•>>:•
ÍSÍS
Kantjám
<•%«
;.%v.
w.s
ÞAKRENNUR
VATNSLAS
I FYLGIR
| HVERJUM
VASKI
STAÐLAÐIR
SERSMIÐl
7 * ORAS»
BLÖNDUNAR
i TÆKI
HURÐASTAL
STALVORUR
Smár fískur en ekki smæiki
Fjórir n*ennta-
skólatiemendur:
Ekki
— Nótáfiskurinn litlu stærri en netafiskurinn
segir ferskfiskeftirlitió
Ofveiði á þorski hefur verið mjög til umræðu í vetur og
spumingin um það hvort ekki sé verið að ganga of nærrí
þorskstofninum íslenzká með of mikilli sókn. .
Fiskurinn, sem borizt hefur á land í vetur er yfirleitt miklu
smærrí en fengizt hefur undanfarnar vertíðir, og nú um helg-
ipa byrjuðu nótabátar að moka upp afla á grunnsióðum við
Suðurland.
— Viö viljum mótmæla þvi
aö þetta sé smáfiskur, sagöi
Ffaraídufr Ágústsson skipstjóri á
Reyfejaborg, einum nótabát-
anna og alls engin gúanóvara
eáis og fram kom í Vísi í gær,
hékteir álít ég þetta mestu úr-
vaisvöru, sem komiö hefur á
land á vertíöinni í vetur. Viö
veiðum á svipuðum slóðum og
netabátarnir. Þetta er sams
konar fískur og þeir fá í netin.
Hins vegar fáum viö svo og svo
mikið af dauðum og morknum
fiski, sem flotið hefur úr netun-
'um svo að segja í hverju kasti.
— Þetta er að vísu horaður
fiskur og smár, sagði 'Sigurður
Friðriksson, verkstjóri í Vinnslu
stöðinni í Vestmannaeyjum, en
hann er mjög skemmtilegur i
vinnslu. Við höfum fryst mikið
af honum. Það hefur að vísu
orðið að tína eitthvað úr hon-
um í skreiö.
Samkvæmt upplýsingum
Ferskfiskeftirlitsins er hér alls
ekki um fisk undir máli að ræða
og yfirleitt litlu minni fisk en
fengizt hefur í netin í vetur.
Vísir leitaði álits fiskifræð-
inga Rannsóknarstofnunar sjáv-
arútvegsins og Jakob Jakobs-
son varð fyrir svörum, en Jón
Jónsson, forstjóri stofnunarinn-
ar, sem hefur með þorskrann-
sóknir að gera, er erlendis.
— Við erum engir lögreglu-
verðir, sagði Jakob. Mér skilst
að þessi fiskur sé allur yfir máli
og ef við ættum til dæmis aö
fara að stoppa þetta af yrði að
breyta landslögum. Menn gera
sér ekki almennt grein fyrir því
hversu smáan fisk má veiða, Iág
niarksstærð á ýsu er 31 cm. og
þorski 34 cm. Og það er fiskur
á stærð viö væná síld. — Mér
skilst að þessi fiskur, sem þeir
Tá í næturnar sé engan veginn
svo lítilil og á meðan getum við
ekkert sagt.
Jakob sagði að teknar yröu
prufur á nótafiski í Þorlákshöfn
núna til þess að fá fram aldurs
greiningu og fleira.
Magnús Magnússon, verk-
stjóri hjá Bæjarútgerðinni sagði
að þessi fiskur hefði nýtzt mjög
vel. Hann er kannski dálitið
smærri en netafiskurinn en
hann er ákaflega þægilegur i
vinnslu mun betrj fiskur að
vinna heldur en golþorskurinn,
sem þeir fengu í næturnar hér
/um árið • þolir miklu meira. —
Þetta virðist líka vel með far
ið hjá þeim, blóðgað jafnóðum,
þannig að það sem við höfum
fengið hingað hefur verið nokk-
urra tíma gamalt, þegar við höf
um fengið þaö.
Fjölskyldudeild og almenn heimilisaðstoð
nýjungar i starfsemi Félagsmálastofnunar Rvikur
„Það er mikill munur frá því er
áður vár, að stofnunin skuli kom
in að mestu í sama húsnæðið“
sagði skrifstofustjóri Félagsmála-
stofnunar Reykjavíkurborgar, Ing-
ólfur Hjartarson.
Nú um helgina tók skrifstofa
framfærslu- og félagsmála og
barnaverndarnefnd borgarinnar
öðru nafni Félagsmálastofnun
Reykjavíkur til starfa Vonarstræti
4. Húshjálpin og stahfsemi Tóna-
bæjar verður enn .til húsa í Tjarn
argötu 11.
„Er einhver nýjung í starfsem-
inni hjá ykkur?"
„Já, sú stefna, að einangra ekki
barnaverndarmálin, heldur taka
þau sem eina heild með öðrum
frarwfærslu- og félagsmálum hefur
séð dagsins ljós með þessum hús-
næðisflutningi þar sem fjallað verð
ur um málefni og hugsanlega að-
Afgreiðsla og aug-
lýsingur VÍSIS
AfgrefÖsla og auglýsingadeftd Vísis bafa vegna bruna
verið fluttar úr Aðalstræti 8 í Bröttugötu 3B (milli Að-
afstrætis og Mjóstrætis).
Dagblaðið VÍSIR
Simi 1 16 60
stoð við fjölskylduna sem heild í
fjölskyldudeild, sem dr. Björn
Björnsson prófessor veitir forstöðu
í þessu skyni hefur öllu borgar
svæðinu verið skipt í tvö heildar
hvenfi. Einnig verður starfsemi hús
hjálpar aukin með stofnun heimilis
aðstoðar, þar sem verður um að
ræða hjáip sem ekki eingöngu er
bundin við sængurkonur eða
sjúka.“ —MV—
Æskulýðs-
fylkingin
Vegna margendurtekinna til-
rauna íslenzkra dagblaða og stjórn
valda til að rekja upphaf aðgerð-
anna við Menntamálaráðuneytið 24.
sl. til ákveðinna einstáklinga og
stjórnmálasamtaka viljum við und
irritaðir taka fram:
Hugmyndin urn aðgerðina er
komin frá nemendum í MR. Nem-
endur sjálfir sáu um allan undir-
búning og skipulagningu.
Við viljum lýsa furðu okkar og
andúð á ummælum menntamála-
ráðherra í Ailþýðublaðinu og Vísi
þann 25. þ.m. Þar fer ráðherrann
með gróusögur og órökstutt fleipur
sem ekki hæfir æðsta yfirmanni
íslenzkra menntamála.
Margítrekaðar frásagnir ís-
lenzkra blaða, þar sem því er hald
ið fram að Æskulýðsfylkingin
standi að' einhverju leyti að baki
aðgerðunum í menntamálaráðuneyt
inu, eru uppspuni frá rótum og
hljótum við undirritaðir að draga
þá áiyktun af, að annaðhvort ljúgi
blöðin vísvitandi eða þau séu ekki
vönd að heimildum og kanni þær
ekki náið.
(Sent öllum dagblöðum í R-vk.)
Gestur Guömundsson
Ólatfur Sigurðsson
Þröstur Haraldsson
Gestur Ólafsson
(Allir nemendur í Menntaskólanum
í Reykjavík.)
J. B. PÉTURSSON SF.
ÆGISGÓTU 4-7 ^ 13125,13126
SKOLVASKAR
ELDHÚSVASKAR
SMIÐJUBÚÐÍN
Vie HÁTEIGSVEG -7- 212.22,
Auglýsið í Vísi