Vísir - 29.04.1970, Side 6
V í SIR Miðvikudagur 29. apríl 1970.
6
EINBYLISHÚS
söluverð um
3 milljónir
afi Brúarflöt 5 Garðahreppi gæti orðið yðar, ef heppnin er með.
Söluverð hússins er um 3 milljónir króna, og er það eitt af fjöl-
mörgum stórvinningum í Happdrætti DAS 1970—71. Aðrir eru
m.a. 100 bílar, íbúð í hverjum mánuði, ferðalög, og húsbúnaðar-
vinningar. Hefur nokkur efni á því að láta slíka möguleika til stór-
happs framhjá sér fara? |
FYRIRLIGGJANDI
ódýrar skilrúmsplötur 4’xlO’ — 44 mm þykk-
ar, einnig cedrus-klæðning til notkunar bæði
utan húss og innan.
Hannes Þorsteinsson
Heildverzlun, sími 24455.
Þorsteinn Thorarensen:
Hvers vegna gelur haninn?
Tjað er sárgrætilegt að koma
heim frá Noröurlöndum um
þessar mundir í það sefjunar-
fuila og öfgafulla hatursand-
rúmsloft, sem hér virðist rfkja
í garð íslenzkra námsmanna,
sem stunda nám á Norðurlönd-
um Það er þvl sárara, þar sem
ég komst l'ítillega að raun um
það í dvöl minni' erlendis, að það
er ekki mikil ástæða til að öf-
undast við þetta unga fólk út af
kjörum þess og námsaðstööu.
Þvert á móti eiga þeir við svo
mikla og ótrúlega erfiðleika aö
stríða, bæði vegna hins breytta
gengis krónunnar og síhækk-
andi framfærslukostnaðar í lönd
unum þar sem þeir dveljast, að
þeir ættu fremur skiiið ríka og
djúpa samúð fólksins heima.
Sannleikurinn er sá að þeir lifa
þar viö fátækt, húsnæðiserfið-
lei'ka og jafnvel sumir hverjir
við sult, þar sem matur í þess-
um Iöndum er einmitt svo dýr,
að þeir neyðast þó ótrúlegt sé
að spara hann við sig og sleppa
æði mörgum máltíðum. Eftir að
hafa kynnzt því undrast ég ný-
kominn heim þau viðtorögð sem
ég heyri hvarvetna hér heima
gagnvart þessu unga fólki. Alls
staðar heyrir maður hatursfullar
upphrópanir um þessa flækinga
og ræfla, sem krefjist enda-
lausra styrkja til þess að lifa
hátt, og svo verði þeir föður-
landi sfnu til svfvirðu, — hvem
, fjandann em þeir að flækjast
úti í löndum, ef þeir hafa svo
1 ekki einu sinni efni á því. Þeim
I væri nær að hætta við þýðingar-
l laust nám og og koma nú i afla-
hrotunni heim og hjálpa til við
1 ■ að flaka fiskinn. — Þeir mega
I sigla sinn sjó, sama þó þeir
l færu til Ástralíu, — og svo lýk-
ur þessum venjulegu skoðaná:'
1 skiptum á því, að þetta sé hvort
sem er allt tómur kommúnista-
lýður, og ef þeir séu eitthvað að
ybba sig, væri réttast að láta
kylfumar dynja á þeim, birta
öfn þeirra á glæpalistum og
elzt dæma þá í fangelsi, að
minnsta kosti svipta þá öllum
námsstyrkjum.
Ég get ekk; orða bundizt, að
mér blöskrar slíkur einhliða of-
stækisáróður í garð hinna ís-
lenzku námsmanna sem eiga
ekki skilið slfkar kaldar kveðj-
ur, heldur ættu menn þvert á
móti að reyna að skyggnast
dýpra í vandamál þeirra, þá
held ég að skiljist að það er eng-
in furða þó þeir mögli. Og þeg-
ar hjálparbeiðnum þeirra er
tæpast svarað og allt hjakkar f
sama farj viku eftir viku og
mánuð eftir mánuð í skilnings-
leysi og aðgerðaleysi íslenzkra
yfirvalda, er heldur engin furða,
þó smá sprenging verði í svo
sem einu sendiráði, það virðist
eina leiðin til þess að láta taka
eftir sér.
Það undarlega er að neyð
námsmanna skuli ekki hafa skil-
izt á þessum tíma örra sam-
gangna og fullkomins frétta-
burðar. Þetta er kannski eitt af
fyrirbærum nútímaþjóðfélags-
ins, vandkvæði þeirra hafa verið
skráð í skýrslur, — það varitar
ekki, það hafa verið gerðir lang-
ir talnadálkar um meðaltals-
styrk, meðaltalsfjárþörf og öll-
um þessum tölum skellt I graut
inn í elektrón'skar tölvur og
hrært í með 220 volta riö-
straumi, — en það hefur ekkert
gerzt annað en að nýir talna-
dálkar hafa streymt í stríðum
straumum út úr tölvunum, sem
eru handhægir til að mata aðrar
tölvur til að fá n'éia talna-
dálka o.s.frv. Á meðan allar
þessar reiknivélar eru f gangi
hefur ungi námsmaðurinn f
Kaupmannahöfn so'ltið af því
að hann hafði ekki peninga fyrir
mat og stúdent f Stokkhólmi
orðið að sofa eina nótt úti f
skemmtigarði af því að hann
átti ekki fyrir leigunni og var
rekinn úr húsnæði sínu.
íað var táknrænt fyrir raf-
eindata^knina, að nú rétt þegar
ég var að koma heim, sá ég í
blöðunum grein eftir Gunnar
Vagnsson formann stjómar
Lánasjóðs íslenzkra náms-
manna, er fjallaöi um þessi
vandamál og greinin ásamt mik-
i'lli töflu er virtist nýkomin glóð-
volg út úrIBM-1600 virtistsvona
no'kkum veginn alveg óskiljan-
leg fyrir hvem meðalmann. Þar
voru námsmennirnir og hin
mannlegu vandamál þeirra auð-
kennd svo: 127 L-1 100 L-2 114
L-3, 92 L-4.52-L5 57 L-6 og 13
L-7.
Það má vel vera að tölvur og
elektróniskur hugsanagangur
séu vænleg tii mikilla framfara
í veröldinni, en viö verðum
bara að gæta þess að láta ekki
hinn vesalings veinandi einstakl-
ing drukkna og sökkva niður í
talnaflóðinu. Auk talnanna þarf
lika nokkuð sem vart verður
reiknað út f jöfnum og kúrfum
og kallast samúð, skilningur og
mannleg réttsýni.
Ég hef oft áður í greinum
mínum rætt> um Alþýðubylting-
una miklu í Kína, og látið f ljós
Iitla hrifningu á þeim vitlausra
spítala með stjómleysi og
ringulreið sem einkennir hana.
En þó eru vissir þættir f henni
sem geta verið til umþenkingar
og kannski eftirbreytni. Það var
til dæmis einn liður í þeirri
hreyfingu aö hrokafullir og sof-
andi áhugalausir emtoættis-
menn skyldu sjálfir fara út á
landið og deila kjörum naeð al-
þýðunni. Það kemur fyrir að
maður getur ímyndað sér, aö
þarna mætti taka hina maó-
ísku Kinverja til fyrirmyndar.
Ég skal að vísu ekki segja um
það, hvort sá embættismaður,
sem undirritaði tölvugreinina um
kjör námsmanna, Gunnar
Vagnsson hefur sofið, en hvem-
ig væri nú samt fyrir hann að
reyna kínverska dæmið og lifa
f Stokkhólmi eins og mánaðar-
tima einungis á þeim fjármun-
um, sem námsmennirnir hafa til
að Iifa af, sem þar að auki koma
aldrei tiL þeirra fyrr en löngu
á eftir. Hvemig væri að lifa á
pylsum í hálfan mánuð og sofa
eins og eina nótt á bekk á
Tegelbacken. Kannski má emb-
ættismaðiu-inn ekki vera að
þessu, af því að hann hefur upp
á góðan og gamlan máta ein-
hverjum e fleiri embættum að
sinna hér heima. Og þó má ekki
skilja þetta svo að ég sé að ráð-
ast á þennan eina nafngreinda
mann, það má vel vera að hánn
hafi meira að segja verið betur
vakandi en aðrir, — en einhver
virðist hafa sofið. Og þá er eigi
furða þó haninn fari að gala í t
sendiráöinu i Kommandörs- )
gatan. \
Einstaklingar — Félagasamtök — F jölbýlishúsaeigendur
ÞAU ENDAST VON ÚR VITI WILTON-TEPPIN
Ég kem heim til yöar með sýnishorn og geri yöur ákveðið verðtilboö á stofuna, á herbergin,
á stigann, á stigahúsið og yfirleitt alla smærri og stærri fleti.
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ HRINGJA I SÍM A 312 8 3 EN ÞAÐ BORGAR SIG.
DANtEL KJARTANSSON
Sími 31283
Litliskógur
horni HVERFISGÖTU
og SNORRABRAUTAR
TERYLENE-BUXUR
HERRA 1090,-
HVÍTAR BÓMULLAR-
SKYRTUR 530,—
-•-
FLÚNELS DRENGJA-
SKYRTUR 170,—
Leigan s.f.
Vinnuvélar til leigu
Litlar Steypuhrœrivélar
Múrhamrar m. borum og fleygum
RafknOnir Steinborar
Vatnsdœlur ( rafmagn, benzín )
Jarðvegsþjöppur Rafsuðutœki
Vibratorar
Stauraborar
Sli pirokkar
Hitablásarar
HOFDATUNI 11 - SIMI 23480