Vísir - 29.04.1970, Síða 16

Vísir - 29.04.1970, Síða 16
Ný frímerki • Nýtt frímerki verður gefið út n. k. mánudag 4. maí, Evrópu frímerki, sem kemur út sam- tfmis í flestum Evrópulöndum. Frímerkið er að verðgildi 9 kr. og 25 kr. • Nú er stutt á miili nýrra frí- merkja. 16. febrúar sl. var gef- ið út frímerki i tilefni 50 ára afmælis Hæstaréttar í 2 millj- óna upplagi. — Þá verða gefin út þrjú ný frimerki 19. júní n.k. í tilefni 50 ára afmæiis Hjúkr- unarfélagsins að verðgildi 7 kr., i tilefni iSO ára afmælis Gríms Tbomsens (15. maí) að verð- gildi 10 kr. og fríinerki í til- efni af listahátíð i Reykja- vik að verðgildi 50 kr. -vj- starfíð settu svip á „eldhúsið" frá útvarpsumræðunum i gærkvöldi • Upphlaup skólafólks, kjara- samningar og frumvörp rík isstjórnarinnar settu svip sinn á umræðurnar i „eld- húsinu“ í gærkvöldi. • Dr. Bjarni Benediktsson forsætisráðherra lagði á- herzlu á nauðsyn þess, að við flýttum okkur hægt og rös- uðum ekki um ráð fram, nú, þegar bættur efnahagur mun koma fram í kjarabótum alls almennings. Hann og aðrir fulltrúar stjórnarflokkanna vöruðu við hættunni á verð- bólgu, ef kauphækkanir gengju of langt. Bentu þeir á, að verðlag og kostnaður mætti ekki hækka hér miklu meira en í öðrum EFTA-Iönd- um, ef við ættum að vera sam keppnisfærir við þau. Hannibal Valdimarsson (SF) sagði, að verkafólk mundi nú krefjast 20 — 25% hækkunar grunnkaups og fullrar vísitölu- uppbótar á laun, auk annarra krafa, og Lúðvík Jósefsson (Ab) kvað kaupmátt umsamins tímakaups hafa hinnkaö um 16— 30% síðan haustið 1967. Dr. Gylfi Þ. Gíslason, mennta- málaráðherra, kvaö aögerðir ör- Mtils hóps skólafólks nú vera „skyldastar umbrotum sálarlífs- ins á gelgjuskeiöi". Slíkt yrði naumast aö þjóðfélagsböli, en uggvænlegt væri, að einn stjórn- málaflokkurinn, Alþýðubanda- lagið, væri enn á gelgjuskeiöi í stjórnmálum. Jón Þorsteinsson (A) kvaö Æskulýðsfylkinguna vera oröna eins konar fyrir- greiöslustofnun fyrir upphlaup af hvaða tagi sem væri. Ingvar Gíslason (F) sagði meinsemdina felast í því, aö of- beldisaðgeröir næðu betur eyr- um valdhafa og fjölmiðla en umræður. Kvað hann mennta- málaráðherra hafa verið önnum kafinn siðustu daga í bréfa- skriftum og fundahöldum með upphiaupsmönnum en hann sinnti þingmönnum í engu, þegar þeir reyndu að koma mál- um fram með friösamlegum um- ræöum. Gils Guðmundsson (Ab) sagði, að menntamálaráðherra væri „hæfileikamaöur", en hann gegndi of mörgum störfum til aö geta annað þeim öllum sem skyldi. Ólafur Jóhannesson (F) sagði, aö „botninn væri dottinn" úr stjórnarsamstarfinu. Kæmi það fram í handahófsvinnubrögðum stjórnarinnar og hringlanda- hætti. Nefndi hann þar til með- ferð verðgæzlufrumvarpsins, húsnæðismálafrumvarpsins og skattamálafrumvarpsins. Gylfi Þ. Gíslason kvað sannað, aö ýmsir Framsóknarþingmenn hefðu verið fylgjandi aðalinn- taki frumvarpsins um verö- gæzlu, en þeir hefðu ekki þorað að greiða því atkvæðj á þingi vegna ofríkis flokksforystu Framsóknarflokksins, sem heföi heldur viljað klekkja á rfkis- stjörninni en fylgja sannfær- ingju sinni. Matthías Á. Matthiesen (S) ræddi um fyrirhugaðar úrbætur á skattamálum fyrirtækja og kostj við fjárfestingarfélag. Gunnar Gíslason (S) og Ágúst Þorvaldsson (F) fjölluðu um mál- efnj bænda. Kvað Gunnar land- búnaðinn mundu hagnast á að- ild Islands að EFTA. Forsætisráðherra varpaði í ræðu sinni fram þeirri spurn- ingu, hvernig ástandið mundi nú vera, ef stjórnarandstæðingar hefðu íáðið fyrir nokkrum ár- um, mennirnir, sem böröust gegn Búrfellsvirkjun og álverk- smiöju og vildu ekki viðurkenna efnahagsvanda þjóðarinnar. Varla væri að efa. aö ástandið hefði orðiö miklum mun verra, ef þessir menn hefðu ráðiö stefnunni. — HiH. „Sá töluvert á unglingunum4 — segir yfirlæknir slysavarðstofunnar — engar kærur ennjbó vegna ryskinganna i ráðuneytinu B „Jú, hingað var komið með eina 5 eða 6 unglinga og það er óhætt að segja að það sá töluvert á þeim, einkum tveimur þeirra, sem greinilega höfðu lent í mikium Iðnaðarráðherra Dana kemur í heimsókn Iðnaðarráðherra Dana, Knud Thomsen, kemur í opinbera heim- sókn til landsins á fimmtudaginn i boði rikisstjómarinnar. Þar með er verið að giaida fyrir heimsókn Jó- hanns Hafstein, iðnaðarráðherra til Danmerkur í fyrravor. Ráðherrann mun eiga hér við- ræður við Jóhann Hafstein, iðnað- arráðherra og aðra aðila, en einnig verður hann viðstaddur vígslu Búr- fellsvirkjunar og álversins í Straumsvík. Ráðherrann mun dvelja hér til 4. maí. — vj. ryskingum. Voru þau aðallega klór- uð og marin, og nokkuð sá á hálsi eins piltanna, sagði Haukur Krist- jánss., yfirlæknir slysavarðstofunn- ar, er biaðið innti hann í morgun eftir upplýsingum um ungiingana, sem fluttir voru á slysavarðstofuna eftir ryskingar við lögregluna, er hún ruddi menntamálaráðuneytið s.l. föstudag. „Það var talað um að þetta yrði kært og skýrslurnar lagðar fram, en ég veit ekki til að þær hafi verið sóttar hingað ennþá, enda vaninn að það sé ekki gert alveg strax, þar sem erfitt er að segja um hve alvarleg meiðslin eru fvrr en eftir nokkurn tíma,“ sagði Haukur enn- fremur. Blaðiö hafði samband við rann- sóknarlögregluna, sakadóm og Bjarka Elíasson yfirlögregluþjón, en enginn þessara aðila vissi til að máliö hefði veriö kært ennþá. —þs Starfsfólk Vísis í óða önn að bjarga bókhaldi og verðmætum skjölum undan skemmdum. Bókhaldið bjargaðist sviðið út úr eldinum — kviknaði i afgreiðslu Visis og Fjalakettinum 1 Miklar skemmdir urðu, þegar I í hádeginu í gær. Brunnu þar inn- eldur kom upp í Aðalstræti 8 I anstokksmunir og innréttingar af- Skátar reka sumarhótel í Garðahreppnum Sigurgeir Óskarsson, ný„bakaður“ matsveinn og forstöðumaður hins nýja sumarhótels í Garðahreppnum að undirbúningi f eld- húsi hótelsins. • „Skátafélagið okkar í Garða hreppnum, „Vífill“ er 3ja ára gamalt og hefur nú keypt félagsheiniiii, sern við ætlum að reka sem sumarhótel. Við höf- um 8 herbergi og getuni tekið hópa í svefnnokarými. en hús- ið er 270 fermetrar“ sagði Sig- urgeir Óskarsson, skáti og ný- bakaður matsveinn, sem reka mun sumarhótel skútanna. Sagði Sigurgeir að þcir hefðu haft samband við flugfélögin og ferðaskrifstofur og gera þeir þeir ráö fvrir að útlcndingar verði meirihluti gestanna. „Húsið er nýtt og allt teppa lagt og öll aðstaða hin bezta. Loftleiðir og Eimskipafélagið hafa hjálpað okkur mikið, m.a. Iánað rúm og fleira. Við verð- um liklega fjögur sem vinnum við þetta i sumar og hér verð- ur framreiddur morgunmatur og hádegismatur. Við stefnum að því að geta opnað 15. mai“, sagði Sigurgeir að lokum. Sum arhótelið er að Hraunhólum 12 í Garöahreppi og að sjálfsögðu eru Islendingar velkomnir ekki síður en útlendingar. þs. greiðslu dagblaðsins Vísis, og skrifstofuáhöld eyðilögðust öll. • Skjöl öll, bókhaldsgögn og reikningshaid björguðust úr eldinum, svo og áskrifendaspjald- skrá og lausir fjármunir. Tjónið hef- ir ekkj verið metið, en innanstokks- munir voru vátryggðir. Eldurinn kom upp í bakherbergi, sem starfsfólk Vísis notaöi fyrir kaffistofu, en fólk, sem var að störf- um í afgreiðslunni í hádeginu varð fljótlega eldsins vart og gerði slökkviliði viðvart. Vegna þess hve húsið sjálft og innrétting þess var eldfimt, breiddist eldurinn fljótt út og komst i Fjalaköttinn. Urðu þar töluverðar skemmdir á vörubirgð- um í geymslu Silla & Valda. Aldraður maður. sem bjó uppi á lofti í Fjalakettinum komst ekki út úr herbergi sínu vegna reyks í göngum og stigum, og varð slökkvi- liðið að bjarga manninum út um glugga á herberginu og niður bruna. stiga. 10. síða

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.