Vísir - 13.06.1970, Blaðsíða 3
VlSIR . Laugardagur 13. júní 1970.
3
1 cTMed á nótunum
Trúbrot eins og hljómsveitin verður skipuð er hún kemur fra m í Norræna húsinu, annan sunnudag. Höfundurinn Leifur Þór-
arinsson er með á myndinni. Ljósm. Ástþór
• r
Ovenjulegur flutningur á Listuhútíðinni:
Trúbrot flytur tónverk
eftir Leif Þórarínsson
Þar kemur Magnús Kjartansson fram / fyrsta
sinn með Trúbroti og syngur einsöng
Tjað eru ekki allir á sama máli
um hvaö sé list og hvað
ekki. Oft hefur viljað brenna
við að litið sé niður á popmúsik
og hún afskrifuð meö einu orði:
„bítiagarg". Sem betur fer eru
þó- til undantekningar frá þess-
um fordómum, enda hafa vissu
lega verið samin Iög, er til-
heyra þessari tegund tónlistar,
sem hafa hlotið verðskuldaða
virðingu og mörg þeirra munu
lifa áfram um ókomna tíð og
bera höfundum sínum vel sög-
una.
Listahátíðin, sem nú fer 1
hönd hefur viðurkennt tilveru-
rétt poptónlistar f verki meö
því að hafa á sinni mjög svo
virðulegu efnisskrá hljómsveit
sem stendur hvað hæst í pop-
heiminum um þessar mundir,
Led Zeppelin.
En pophljómlistarmenn koma
þó meira við sögu listahátíðar
innar, þvf sunnudaginn 21. júnf
mun verða flutt verk eftir Leif
Þórarinsson, en flytjendumir
eru engir aðrir en Trúbrot, stolt
íslenzka popsins. Þeim til að-
stoðar verður fimm manna blás-
arasveit. Tónverkið nefnir höf-
undurinn: „Brot-trú-brot“.
Eins og kunnugt er standa
fyrir dyrum breytingar á Trú-
broti óg hljóms-veitin mun koma
í fyrsta sinn fram með sinn nýja
orgelleikara á þessum hljómleik
um, en það er Magnús Kjartans
son, síðan mun hljómsveitin
taka sér mánaöar frí. Þetta um
talaöa tónverk eftir Leif Þórar-
insson tekur um tuttugu mínút-
ur f flutningi, en á þessum
hljómleikum verða eingöngu
flutt verk eftir íslenzk tónskáld.
Af þessu tilefni leit ég inn á
æfingu hjá þeim félögum sl.
fimmtudag og innti Leif Þórar-
insson eftir aðdragandanum aö
þessari hugmynd.
— Það er nokkuð langt síðan
mér kom þetta fyrst til hugar,
og ég Var að vinna a‘ð þessu
af fullum krafti, þegar þeir
höföu samband við mig frá
Listahátíðinni og fóru þess á
leit við mig að ég útne'fndi verk
eftir mig til flutnings á þessum
hljómleikum í Norræna húsinu.
Ég var með allan hugann viö
þetta viðfangsefni og taldi það
hið eina sem kæmi til greina,
þó verkið væri þá á algeru frum
stigi. Er ég færði þetta í tal
við Trúbrot reyndust þeir vera
til í tuskið, og þar með var
okkar samvinna hafin.
UMSJÓN
BENEDIKT
VIGGÓSSON
— Hefurðu kynnt þér fslenzk
ar pophljómsveitir?
— Já lítillega, en Trúbrot
voru að mfnum dómi þeir einu,
sem komu til greina, og ég hef
sannfærzt enn betur um það,
síðan við fórum að vinna að
þessu. Ég hef haft ákaflega
mikla ánægju af okkar sam-
starfi.
— Hafa Trúbrot lcomið með
einhverjar hugmyndir í sam-
bandi við útsetningar og annað?
— Það, sem ég kom með til
þeirra var eingöngu laglfna og
hljómasambönd, sfðan höfum
við unnið úr þessu í sameiningu
og æft stíft sl. hálfan mánuð.
— Hvaða texti verður fluttur
með tónverkinu?
— Það eru tvær vísur úr
kvæði eftir Jónas Hallgrfmsson,
sem hafa að inntak; spekúlasjón
ir um æsku og elli.
— Hefurðu hug á að semja
fleiri slík verk?
— Vissulega, það sem hér er
á ferðinni er tilraun til að sam
ræma ólík sjónarmið, eða það,
sem við getum kallað abstrakt
tónlist og popmúsik. Það verður
ekki annað sagt en þetta sé
ákaflega skemmtilegt viðfangs-
eifni.
— Hvemig leggst þetta í þig?
spurði ég Rúnar Júlfusson.
— Bara vel, þetta er óneitan-
lega nokkuð forvitnilegt við-
fangsefni en það hefur verið
furðuleg tilfinning að vinna að
þessu.
Ég verð að segja það, að ég
haifði gert mér allt aðrar og ólík
ar hugmyndir um Leif Þórarins
son en samstarfið við hann hef
ur verið alveg sérdeilis gott. —
Þar með kvaddi ég þá félaga og
hafði það á tilfinningunni að nú
hefði ég virkilega komizt yifir
forvitnilegt eifni fyrir þáttinn, og
mér þykir líklegt, að lesend-
ur séu mér sammála.
„Lagið hinum
EUý Vilhjálms.
Tvö lög. - Útg. SG-hljóm
plötur.
Tjað er alltaf ánægjulegt, þeg-
ar ný plata kemur á mark-
aðinn með Ellý Vilhjálms. Nú
er um að ræða tveggja laga
plötu og titillagið er hið vin-
sæla írska lag „ All kind of
everything“, sem varð hlutskarp
ast í danslagakeppni sjónvarps
stöðvanna í Evrópu, „Eurovis
ion". Keppn; þessj fer fram ár-
lega, en það var fyrst í ár, að fsl.
sjónvarpsáhorfendum gafst kost
ur á að fylgjast með úrslitunum.
Stuttu seinna var platan komin
hér í verzlanir með írsku söng
konunni, og var hennar flutning
w orðinn mjög vinsæll, er plat
an með EHý kom á markaðinn,
sem þó gekk óvenju hratt fyrir
sig miðað við fslenzka hljóm-
plötuútgáfu. „Það er svo ótal
margt“ heitir fslenzka útgáfan
af umræddu verðlaunalagi, text
inn er eftir Jóhönnu G. Erlings
son.
Útsetjari plötunnar er Jón Sig
urðsson og leggur hann megin
áherzlu á það aö líkja sem mest
eftir hinn; upprunalegu útsetn-
ingu og tekst þetta furðu vel.
Ellý syngur lagið með mikilli
prýði, en samt sem áður finnst
mér henni takast enn betur upp
í baksíðulaginu „Hvar ert þú?“,
persónulega þykir mér sú hlið
plötunnar ánægjulegri á að
hlýöa.
Hér er um að ræða amerískt
megin**
lag, „Can‘t take my eyes off
you“ upphaflega flutt af banda
ríska söngvaranum Andy Willi-
ams, virkilega fallegt lag.
Ekki er þetta í fyrsta sinn,
sem umrætt lag er sungið inn á
íslenzka hljómplötu, því það var
meðal þeirra laga, sem „Heiðurs
menn‘‘ fluttu á fyrstu plötu
sinni, er kom á markaðinn í des
ember á sl. ári. þá var það
sungið af Þóri Baldurssyni og
hét „Hvar?" textinn var eftir
Þorstein Eggertsson, reyndar er
þessi sami texti notaður hér, en
örlítið breyttúr. Hljómsveit und
ir stjórn Jóns Sigurðssonar ann
ast undirleikinn og skilar hún
sínu hlutverki með miklum á-
gætum.
••••••••••
<