Vísir - 14.08.1970, Síða 7
VÍSIR . Föstudagur M.'ágúst *970.
LESENDUR
HAFA
ORÐIÐ
□ Hotel eða hótel
AS skriíar: I
„Mikið skelfing kann ég ffla
vJ5 ritSiátttnn á nafni nýja
hóteisins okkar, Hótel Esju, sem
amars virðist mesta þjóöþriifa-
fyrrrtæki. Á húsinu stendur
Hoteá í staðinn fyrir hótel. Er
þetta spamaðaratriðí, eða yfir-
□ Góð breyting á
getraunavinningnum
„Mig langar til þess að lýsa
yfir ánaegju minni með skipt-
ingu verðlaunanna í knatt
spyrnugetraununum. f>að eru á-
reiðanlega margir, sem mundu
taka undir það með mér. —
Þessir auknu möguleikar á því
að hreppa vinning verða áreið-
anlega til þess að auka vinsæld
ir getraunanna, en það gat ver
ið gremjulegt að vera kannski
annar með jafnmargar réttar á-
gizkanir og vinnandmn, en fá
ekki krónu fyrir.“
Getraunaspilari.
□ Enn um augað
á Hagatorgi
Annar Melabúi hefur kveðið
sér hljóðs um „Augað“, sem
staðið hefur á Hagatorgi síðan
á listahátíðinni:
„Mér er ómögulegt að sjá,
hvað „Melabúa", sem skrifaði
í Vísi á dögunum, finnst svona
skemmtflegt eða faMegt við
hrollvekjuna, sem staðið hefur
á Hagatorgi. — Sjálfum finnst
mér hryllilegt að hugsa til þess,
að einihverjir skuli óska þess, að
glyrna þessi veréi látin standa
áfram. Það er nóg að þurfa að
ttmbera svona nokkuð í nokkra
mánuöi, þótt ekki þurfi maður
aö hafa þerman ófögnuð fyrir
augunum árum saman. — 1
guðsbænum takið ekki of mikið
mark á því, þótt einhverjum
emurn finnst þetta svona fall
egt. Við erum áreiðanlega fleiri,
sem viijum það burt.“
Annar Melabúi.
Tja, svona er misjafn smekk
ur mannanna. — En það hefur
áður komið fram, að „Augað“
á ekki að standa til frambúðar,
og þessi Melabúi getur huggað
sig við það, að hann þarf ekki
að „umbera“ Iistaverkið mikið
lengur.
□ Tóbaks- og
eldspýtnakaupandi
skrifar okkur um viöskipti sín:
„Skrítið er þáð, hve verðlag
á tóbaki og eldspýtum getur
verið misjafnt í verzlunum. —
Sumir kaupmenn hækka verðið
á vindlingapakkanum, svo að
það standi á heilum tug. Og
einn kaupmann veit ég um, sem
seldi búntið af eldspýtum ekki
alis fyrir löngu, þegar skortur
var á eldspýtum í verzlunum,
á kr. 25.00.
Mig langar að fræðast uni
jrað, hvort sala á tóbaksvam-
ingi og eldspýtum sé háð verð
lagsákvæðum.“
Tóbaks- og eldspýtna-
kaupandi.
Jú, það er hún. Áfengis- og
töbaksverzlun rikisins gefur út
verðlista yfir vörur, sem kaup-
menn selja frá henni, og eru
þeir bundnir af þeim verðlista.
Til þess-að verðið geti verið það
sama um allt land, greiðir
ÁTVR flutningskostnaðinn af
þessum vamingi. Veitingahús
geta þó Iagt á þetta þjónustu-
gjaW-
Tóbaks- og eldspýtnakaup-
andi ætti að snúa sér til verð-
lagsstjóra með upplýsingar sín
ar og vekja athygli hans á þess
wn verzlunarháttum. Slikur
verzhmarmáli lieyrir undir verð
fagseffirfitið.
□ íslenzkar kappreiðar
í sjónvarpið
„Þeir eiga þakkir skilið i
íþróttaþætti sjónvarpsins fyr-
ir tilraunir sínar til aukinnar
fjölbreytni í þáttúnum eins og
á þriðjudaginn. — En í staðinn
fyrir veðreiðar í Svíþjóð, finnst
mér þeir geta eins vel sýnt okk
ur myndir af íslenzkum kapp-
reiðum og hestamannamótum.
Það hlýtur að vera. gott sjón-
varpsefni og liggja vel við
hendi að taka þaö. — Reið-
mennska er líka fslenzk íþrótt,
og Jiað nagira að segja töluvert
vinsæl — aö minnsta kosti ekki
siður en frjálsar íþróttir."
Hestamaður.
□ Enga íþróttasíðu!
„Hvernig er það með ykkur
þarna á Vfsi? Er ekkert að ger-
ast hér í kringum okkur, innan
lands sem erlendis annað en
íþróttaviðburðir? Dag eftir dag
jægar ég kaupi blaðið og ætla
að fara að lesa eitthvað frétt
næmt, þá eru að minnsta kosti
tvær og stundum þrjár siður
lagðar undir einhver íþrótta-
hopp!
Þótt ég sjáVfur hafi aíls eng
an áhuga á íþróttum og viti þvi
næsta Mtið um slíkt, þá hef ég
hins vegar ekki getáð komizt
hjá því að ffrétta af slaWegri
frammistöðu þessara manna
sem gefa sig f það að keppa
„fyrir hönd þjóðarinnar" við út-
lendinga. Og er það kannski
frétt ef einhverjir strákar sem
hafa gaman af að sparka boltá
eða hoppa yfir þverslá i ákveð-
inni hæð, láta í minni pokann
fyrir erlendum peyjum með
svipuð áhugamál? Ég leyfi mér
að efast um það.
Visir góður. Þið getið a-ldrei
birt nægilega mikið fréttaefni,
jafnt af innlendum sem erlend-
um toga, og ég legg til að þið
hættið þessu klóri um íþrótta-
skak smádrengja og telpna úr
öllum landshornum. Sjálfsagt
hafa margir gaman af því að
lesa eitthvað um íþróttir, en ég
trúi því ekki að fólk lesi um
gang einhvers knattspyrnuleiks
í Hafnarfiði eða á Langanesi.
Íþróttasíðan ætti að skipta um
nafn og heita íþróttahornið!
Með kveðju og þökk fyrir
annars skemmilegt blað
„lestrarhestur“.
HRINGIÐ í
SÍMA1-16-60
KL13-15
0 Le-iðrétíing
I Vísi í fyrradag urðu okkur
á pennaglöp. Siðast í frétt á
baksiðu segir að útsölur rhyndu
verka sem kjarabót fyrir kaup-
menn, ef verðlag væri frjáfet í
landinu. Þarna á auðvitað að
standa kjarabót fyrir kaupend-
ur. Orð þessi voru þannig rangt
höfð eftir Sigurði Magnússyni
hjá Kaupmannasamtökunum, og
biðjuim við hann velvirðingar.
0 Einnig dúxar í
bréfaskólanum
Á vorin kemur jafnan mikið
flóð upplýsinga í blöð og útvarp
um skólauppsagnir og ýtarlegar
upplýsingar um dúxa (einkunna
hæstu menn hvers skóla) f hin-
um ýmsu skölum. Einn er sá
skóli og hreint ekki sá minnsti,
sem gleymist í þessum upptaln-
ingum. Það er Bréfaskóli SÍS og
ASÍ. Við vissum það t. d. ekki
fyrr en þeir í bréfaskólanum
hafa einnig sína dúxa. Valgarð-
ur Frímann frá Seyðisfirði varð
dúxinn á skólaárinu 1969, fékk
10 fvrir bókfærslu. Stigahæstur
varð Grétar H. Birgis, Hraunbæ
14. Hann náði 380 stigum í níu
námsgreinum. Það er hæsta
stigatala nemenda við skólann
svo vitað sé. Elzti nemandinn
hins vegar var Valdimar Björn
Valdimarsson. Hann er 82 ára og
stundaöi spænsku.
Bréfaskólinn er raunar meö
stærstu skólum landsins: Á ár-
inu 1969 bættust 873 nýir nem-
endur við skólann, en alls nutu
1365 aðilar námsgagna skölans
á árinu.
0 41.8% og 59.3%
aukning hjá
Loftleiðum
Mikil aukning hefur orðrð á
aflri starfsemi Loftleiða ,í sum-
ar, eftir að félagið fékk þotur í
sína þjónustu. Loftleiðir fluttu
hvorki meira né minna en
105.277 farþega fyrstu sex mán-
uði þessa árs og er þaö 41.8%
aukning frá fyrra ári. Þrátt fyr-
ir verulega mtkið sætaframboð
með tilkomu þotanna hefur sæta
nýtingin batnað um 4,3 pró-
sentustig eða í 69.1%.
Enn meiri aukning hefur orð-
ið á farþegaflutningum Inter-
national Air Bahama. Fyrstu
sex mánuði ársins voni flutitir
23.636 farþegar á móti 14.836
á sama tíma í fyrra, þ. e. aukn-
ingin varð hvorki meira né
minna en 59.3%. Fimm ferðir
á viku eru famar á mríli Lux-
emborgar og Nassau á Bahama-
eyjum.
Gúmmístrákur
Þessi strákur vakti verö-
skuldaða athygli, á skátamóti,
sem nýlega var haldið, enda eru
þaö ekki allir, sem geta bundið
á -sjálfan sig. hnút ,(og senni-
lega langar fáa til þess). Þaö er
eins og þessi strákur sé úr
gúmmíi, han getur látið tærn-
ar snúa fram eða aftur að vild
hverju sinni og farið í gegnum
sjálfan sig aftur á bak og áfrám
o. s. frv. o. s. frv. o. s. frv. o. s.
frv. o. s. frv.
0 Nýlr sendiherrar
Nýskipaðir sendiherrar Grikk-
lands og Sambandslýðveldisins
Þýzkalands, John A. Sorokos,
ambassador, og Karl Rowold,
ambassador, afhentu nýlega for-
seta íslands trúnaðarbréf sín í
skrifstofu forseta i Alþingishús-
inu, að viðstöddum utanrfkisráð-
herra.
Síðdegis þágu sendiherramir
heimboð forsetahjónanna að
Bessastöðum ásamt nokkrum
fleiri gestum.
0 Gaf Húsavíkur-
kirkju 81 þúsund
Gjalfir manna eru sjaldnast
mælikvarði á efxxahag þeirra.
Þeir eru a.m.k. fáir, sem álíta
Fannýju Geirsdöttur í Hring-
veri á Tjörnesi efnakonu, en
hún gaf Húsavíkdrbirkju 81.000
kr. peningagjöf á dögumim.
Þetta er ekki í fyrsta s'kipti, sem
Fanný lætur fé af hendi rafena
til kirkjunnar. Síðast í fyrra gaf
hún kirkjunni nokfera peninga-
upphæð. — VJ
BÍLASKOÐUN & STILLING
Skúlagötu 32
HJÚLASTILLINGAR
M 0 T O.R ST.I L.L IN G A fl L JÓSASTILLINGAR
Láf001la i tima. 4
Fljá^^^ örugg þjónusta. I
13-100
V
í-
x
<
'
Einstaklingar — Félagasamtök — Fjölbýlishúsaeigendur
ÞAU ENDAST V0N ÚR VITI WHLTON-TEPPIN
Ég kem heim til yðar með sýnishom og geri yöur ákveðið verðtilboö á stotuna, á herbergin,
á stigann, á stlgahúsið og yfirleitt alla smærri os stærri fleti
ÞAÐ KOSTAR EKKERT AÐ HRINGJA I SÍMA 31283 EN ÞAÐ BORGAR SIG.
DANIEL KJARTANSSON
Slmi 31283