Vísir - 28.08.1970, Blaðsíða 3
fVÍSiIR. Föstudagur 28. ág£stT970.
3
í MORGUN ÚTLÖNDÉ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND
Umsión: Gunnar Gunnarsson.
Nixon ber upp tíllögu við Isruel
— sáttastarfi miðar seint i New York
i ísraelsmenn og Egyptar
íákærðu hverjir aðra fyrir
ibrot á 90 daga vopnahlénu
sem gildi tók 7. ágúst sl.
ísraelsmenn halda því enn
fram að Egyptar haldi á-
fram að færa til eldflaugar
sínar við Súezskurðinn —
koma þeim í betri vígstöðu
og Egyptar klaga ísraels-
menn fyrir mikla liðsflutn
inga sín megin skurðarins
og alls konar annan undir-
búning, svo sem vegagerð
og skotgrafagröft.
í Tel Aviv sagði bandaríski þing
maðurinn George Murphy við
fréttamenn bandarísku fréttastof-
unnar UPI að Ciolda Meir hefði lát
ið í það skína við sig, að hún væri
ánægð með nýjasta boöskap Nix-
ons sem Murphy bar henni. Ekki
er vitað hvað Nixon hefir nýjast
til máíanna aö leggja, en Murphy
gekk þegar á fund Goldu Meir er
hann kom til Tel Awiv frá Washing
ton og sat síðan og ræddi við hana
f 45 mínútur. Sem fyrr segir er
ekki vitað um innihald tillögunn-
ar, en álitið er að Nixon hafi heit-
ið Israelsmönnum friðsamiegri
iausn á þessari deiiu.
1 Kaíró sagði egypzki upplýsinga
málaráðherrann, Múhammeö Hass
an Heykai, aðalritstjóri stjórnar-
málgagnsins að sáttaviðræður þær
sem dr. Gunnair Jarring stjómar nú
séu dæmdar til að mistakast. —
Heykal, sem er nánasti vinur og
samstarfsmaður Nassers segir í leið
ara blaðs síns, A1 Ahram í gær að
sennilega munu Israelsmenn ekki
svara friðarum'leitunum Jarrings,
né heldur muni þeir vísa þeim frá.
Þá leggur Heykal áherzlu á fyrri
kröfur Araba um að Israelsmenn
dragi sig alveg til baka frá her-
numdu svæðunum, þannig að landa
mærin verði þau sömu og fyrir sex
daga stríðið. Hins vegar kveðst
Heykal vera þess fullviss að það
muni ísraelsmenn ekki gera.
Þungt í afrískum leiðtogum
á fundinum í Addis Abeba
Utanríkisráðherra Kenya,
Njogo Mungai sagði á ráðherra
fundinum í Addis Abeba, en þar
eru samankomnir fulltrúar allra
Afríku-lýðveldanna að stefna
Breta og Frakka gagnvart Suö-
ur-Afrfku myndi leiða af sér 6-
stjórnlegt ófremdarástand og
jafnvel aukið kynþáttahatur.
Sagði utanríkisráðherrann að
vopnasala Frakka og Breta til
Suður-Afríku myndi ekki ein-
asta auka á kynþáttaaðskilnaö
og aðstæður í Suður-Afríku,
heldur einnig um allan heim.
Bretamir með sína hefð-
bundnu viröingu fyrir lögum,
réttarfari og lýðræði og Frakkar
með sínar frelsis- og borgara-
legu hefðir geta ekki verið á-
horfendur í þeim harmleik sem
ríkisstjómir þeirra eru að færa
á svið, sagði Njogo Mungai.
Mungai sagði að lokum að
öll ríki ættu að fordæma vopna
sölu Breta og Frakka til Suður-
Afríku.
AGNEW í
PHNOM PENH
— leyniviðræður við Lon Nol
• Bandaríski varaforsetinn
Spiro Aknew kom til Phnom
Penh í morgun, höfuðborgar
Kambódíu. Agnew flaug beint
frá Saigon og mun eiga leyni-
legar viðræður við Lon Nol, áð
ur en hann heldur til Bang-
kok. Til Phnom Penh kom vara-
forsetinn beint frá Saigon eftir
að hafa stanzað 24 klukkutíma í
Suður-Víetnam.
Mikill viðbúnaður var í Phnom
Penh í morgun er von var á flugvél
varaforsetans, einkum á fiugvell-
inum. Öryggisverðir vom hvar-
vetna á vappi, því menn óttuöust
að stuðningsmenn Sihanouks
kynnu að freista að gera Agnew
skráveifu nokkra. Er Agnew var
genginn frá boröi, gættu bandarísk
ir öryggisverðir vélarinnar sem sjá
aidurs augna sinna. Er grennslazt
var fyrir í morgun, var ekki hægt
að fá uppgefið hvar Agnew mundi
halda til meðan hann dvelur í Kam
bodíu. Eflaust verður dvöl hans
stutt, en hann á eftir að koma til
Bangkok af þeim stööum sem hann
átti að heimsækja í þessari Asu-för
sinni.
Koma Agnews til Phnom Penh
kom mörgum á óvart, og sögðu sum
ir aö þangað hefði alls ekki verið
fyrirhugað að senda hann, enda hafi
Lon Nol alls ekki verið á flugvellin
um til að taka á móti varaforsetan
um er flugvél hans lentl, enda hafi
vélin verið búin að fljúga i einn
klukkutíma áður en henni var snú-
ið af braut og beint til Phnom
Penh.
Peter Fechter var skotinn til bana er hann reyndi að flýja yfir múrinn þann 17. ágúst 1962. Þama
mótmæla Berlínarbúar athæfi austur-þýzkra hermanna er þeir lagfæra múrinn og færa hann nær
mörkunum.
Berlínarmúrinn rofinn
á nokkrum stöðum
— simasamband te
A- og V
Fréttin sem bírtist í Hamborg-
arblaðinu „Die Welt“ í gær um
líkur á frekari samskiptum milli
borgarbúa Berlínar yfir múrinn,
vakti mikla athygli, og í gærkvöldi
kom borgarstjórinn í Vestur-Berlín
til viðtals við þýzku fréttastofuna
„Frjáls-Berlín‘‘ og sagði borgar-
stjórinn, Klaus Schuetz, að Die
Welt hefði fréttina eftir nokkuð
áreiðaniegum heimildum 03 hefði
borgarstjóm Vestur-Berlínar átt
leynilegar viðræður við ráðamenn
Austur-Berlínar og kornizt að sam
kið upp aftur milli
- Berlinar
komulagi um að hinir 2,1 milljón
íbúar Vestur-Berlínar skuli innan
tíðar fá leyfi til að heimsækja Aust
ur-Berlín, en þurfi til slíkra heim
sókna að hafa nafnskírteini stimpl
að og greiða ofurlítinn toll við
borgarhlutamörkin.
Vestur-Berlínarbúar hafa ekki
haift leyfi ti;l að fara yfir í aust-
urhluta borgarinnar síðan áður en
múrinn var byggður.
Klaus Sdhuetz sagði einnig að
aftur yrði tekið upp símasamband
milli borgarhlutanna, en það var
rotfið áriö 1952.
Múrinn verður rofinn á nokkr-
um stöðum og gerðir sérstakir gang
vegir fyrir Vestur-Berliínarbúa að
fara um yfir til austurhlutans og
sagði Die Welt reyndar að þegar
hefðu framkvæmdir hafizt við að
gera þessa gangvegi.
Die Welt sagði að þessar aögerð
ir við borgarhlutamörkin bentu til
að sjórn Vestur-Þýzkalands hefði
jafnvel í hyggju að viðurkenna
Austur-Þýzkaland innan skamms,
en talsmaður stjórnarinnar [ Bonn
neitaði að kannast hið minnsta
við hvaðan Die Welt hefð; þessa
frébt.
Kóleran útbreidd-
ari en haldið var
Kólerufaraldurinn sem fyrst
varð að karmi vart sunnan til
í Sovétríkjunum, er orðinn alvar
legra vandamál en almennt var
búizt við í fyrstunni að hann
yrði.
Frá Genf berast nú þær fréttir
að ástandið sé talsvert miklu alv
arlegra en ríkisstjómir þeirra
landa sem faraldurinn hefir herj
að á vilja vera láta. Aðeins tvö
lönd, Israel og furstadæmið
Dubai við Persaflóann hafa opin
berlega tilkynnt kólerutilfelli,
en fjöldi landa er aldrei hefir til
kynnt um kólerutilfelli, hefur
beðið um fljótvirka aðstoð.
Barátta gegn kóleru á alþjóðleg-
um grundvelli er því aðeins fram
kvæmanleg, að ábyrgir aðilar 1
löndum sem faraldur herjar á, til-
kynni um faraldurinn, en ekkert
er leyfilegt að gera, ef kólerufar-
aldurinn er tilkynntur eftir ein-
hverjum öðrum leiðum en opinber-
um.
Kona ein kom til Israels frá
flóttamannabúðum handan landa-
mæranna og tóku læknar hana og
athuguðu. Skömmu síðar tilkynnti
ísrael sitt 16. kólerutilfelli á ísra-
elsku —. eöa hemumdu svæði ísra-
elsmanna, segir Reuter. Tvær aðr-
ar manneskjur voru lagðar inn á
sjúkrahús í Tel Aviv, en heiJbri"ðis
eftirlit í Israel er mjög strangt, og
fyilsta hreinlætis brýnt fyrir möon
um og leiöbeiningar gefnar i blðð
um og útvarpi.