Vísir - 15.09.1970, Síða 1
■ Þriðjudagur 15. september 1970. — 209. tbl.
Hávaðinn ekki frá Hábæ
//
— b'itlalýður spilar allar nætur við Leifsstyttuna
SVAVAR í Hábæ hringdi í Vísi í
morgun og sagði að hann væri
fullkomlega saklaus af að valda ó-
næði í hverfinu þar umhverfis Há-
bæ, en sem kunnugt er hafa nokkr-
ir íbúar þar Iagt fram kvörtun til
borgarráðs vegna ónæðis frá veit-
ingahúsinu. Svavar sagði, að það
væri einhver kona, sem ofsækti
sig og hefði alla tíð gert síðan hann
hóf rekstur hússins þama og væri
sú frú hin versta viðureignar. Sagði
Svavar, að konan gerði sér ekki
grein iyrir því að hávaðinn þaraa
Neitar að ski/a barni
aftur til umráðanda þess
Sálfræðingur liklega sendur frá Reykjavik til
að kanna deilu austur á f jörðum vegna barnsins
Kona ein á Vopnafirði
hefur í sex vikur gert
ítrekaðar tilraunir til að
ná aftur barni sínu, sem
fólk á Seyðisfirði hefur
frá henni tekið án nokk-
urs löglegs réttar. Allar
tilraunir konunnar hafa
verið árangurslausar.
Konan hefur leitað aðstoöar
yfirvalda til að ná rétti sínum,
en yfirvöldin hafa aðeins
mælzt til þess við fólkið á Seyð
isfirði, að það afhendi lögleg-
um umráöanda bamið aftur, en
daufheyrzt hefur verið við
þeim tilmælum.
Konan á Vopnafirði fékk dótt
urdóttur sína til fósturs fyrir
milligöngu barnaverndarnefnd-
ar í Kóparv. fyrir 2. mán. leyfðd
hún telpunni að heimsækja föð-
urforeldra sína á Seyðisfirði í
vikutíma. Þegar sá tími var lið
inn, hringdi hún til þess að
grennslast fyrir um barnið. Var
þá konunni sagt að barnið fengi
hún ekki aftur. Var konunni
ennfremur sagt að barnið vildi
ekki til hennar fara, og barniö
því til áréttingar sent í símann
og látið lýsa því yfir við ömmu
sína, að það vildi ekki hjá henni
vera.
Konan (þ.e. löglegur umráð-
andi barnsins), leitaði þá á náð
ir bamaverndamefndar Kópav.,
sem bað fulltrúa barnavemdar-
nefndar á Seyðisf. að tala við
fólkið sem heldur baminu. Það
var gert og eftir þær viðræður
mæiist barnavemdamefndin á
Seyðisfirði eindregið til þess að
barni'ð veröi látið vera kyrrt.
Hafa nú G vikur ldðið svo, að
fólkið á Seyðisfirði heldur barn-
inu án lagategs réttar og er
ekki annað fyrirsjáanlegt en
margir mánuðir geti enn liöið
áður en amma barnsins á Vopna
firðj fær það aiftur, ef hún þá
fær það no-kkum tím-a, vegna
þess að eftir langan tíma þykir
kannski of seint að fara að
raska högum bamsins.
Vísei-r leitaðd eftir upplýsing-
um tdl Ólafs Guðmundssonar,
fulltr. barnaverndarnefndar í
Flugvél Fragtflugs kom í morgun hlaðin rafmag nsvörum frá AEG, — um helgina fór hún hlaðin
fiski til Belgíu. (Ljósm. Vísis).
Gkeaýr fískur út — raf-
tæki fíutt heim
Flugið er sífellt að verða stærri
aðili í sambandi við vöruflutninga
landa á milli. Islendingar eru með
á nótunum eins og fyrri daginn. Um
helgina fór flugvél Fragtflugs utan
með glænýjan fisk. beint af mið-
unum að kalla, og var farmurinn
seldur á ágætu veröi á morgunmark
, aði í Belgiu. í morgun kom vélin
hcim hlaöin rafmagnstækjum frá
AEG, alls 13.5 tonn. Fiskflutning-
| ar, einkum á ýmsum fisktegundum,
sem lítt eða ekkert eru unnar hér
heima svo sem skötubörð og háf-
ur, ásamt flatfiski, verða væntan-
lega áberandi í flutningi Fragt-
flugs í vetur til útlanda.
Nánar er rætt við Áma Guð-
jónsson, stjómarformann Fragt-
flugs og Einar Sigurðsson útgerð-
armann um þessa nýstárlegu flutn-
inga. — SJÁ BLS. 9.
Kópaiv. og kvað hann senndl. að
sálfræðingur yrði sendur til
Seyðisfjarðar að ræða við baim-
ið. En það yrðj efkki gert fyrr
en í fyrsta lagi eftir viku, er
fjallað hefði verið um málið á
íundum oig metnar skýrsílur
bamaverndamefndan-na á Seyð-
isprði og Vopnafirði, en von
var á skýrsflu frá Vopnafirði í
dag. — GG
Prófkjörslistinn
í Reykjnvík
Kjörmefnd Sj álf'Stæð isflokksins í
Reykjavfk bintj f gær list-a þeirra,
sem verða í framboði við próifkjör-
ið 27. og 28. september. Listinn er
þannjig skipaður:
Auður Auðuns, frú. Birgir Kjar-
an, hagfræðingur. Bo-gi Jóh. Bjarna
son, lögregluvarðstjóri. Eltert B.
Schram sfcrifstofustjóri. Geir Hail-
grímsson, borgarstjóri. Geirþrúður
H. Bemhöft, ellimálafuiltirúi. Guð-
jón Hansson, öikukennari. Guð-
mundur H. Garðarsson, viðsfcipta-
fræðinigur. Gunna-r J. Friðriksson,
iðnrekandi Gunnar Thoroddsen,
fymverandj hæstaréttardóniard,
Haraldur Ásgeirsson, verkfræöing-
ur. Hilmar Ólafsison arkitekt.
Hjörtur Jónsson, kaupmaður, Hörð-
ur Einarsson, héraðsdómisiögmaður,
Ingóllfur Pinnboigason, húsasmifða-
meistari, Jóhann Hafistein, försæt-
isráðherra. Jón Þ. Kris-tjánsson,
verkstjóri. Ólafur Bjömsson pró-
ftessor. Páíl S. Pálsson, hæstarétitar-
lögmaðu-r. Pétiu-r Sigurðsson, sjó-
maður. R-agnar Júillíusson, skóla-
stjóri, Ragnhildur Helgadóttir, hús-
móðir, Runólfur Pétursson. iðn-
verkamaður, Svei-nn Skúiason,
verzlunarstjóri. Þorsteinn Gdsla-
son, skipstjóri.
um nætur kæmi ekki frá sér, heíd-
ur væru það einhverjir síðhterðir
bítlar, sem væru með hávaða, gít-
arspil og brennivinsdrykkju við
Leifsstyttuna aBar nætur, „þannig
var þetta þegar ég bjó hér f hús-
inu áður en ég opnaði," sagði Svav-
ar, „og ég benti lögreglunni á það
þá þegar, að konan hundelti mig
með óhróðri.“ Kvaðst Svavar hafa
fuiian hug á að reka þetta fðlk í
burtu með aðstoð lögreglunnar og
vildi einnig benda fólki á að hans
hús væri hið eina í borginni, sem
lokaði öll kvöld klukkan 23.30.
„Þannig að ekkl stafa næturlættn
frá mér,“ sagði hann, „en ég skal
flytja mig með mina starfsemi ef
þeir geta útvegað mér annað hús-
næði.“ — GG
Lögreglan kannar
hnshknup-
mennskunn
sem framkvæmdastjóri
Las Vegas kveðst
geta gefíð
upplýsingar um
• Ekki . þarf framkvæmda-
stjóri Las Vegas, Ingimund-
ur Magnússon, að ki'arta lengur
ýfir áhugaleysi lögreglunnar
gagnvart þeim atriðum, sem
hann hefur fram að færa varð-
andi eiturlyfjanotkun Reykja-
víkuræskunnar.
Ingimundur fékk nefnilega boð
um að mæta til viðræðu við full-
trúa lögreglustjóra, Kristin Ólafs
son dag, en Kristinn hefur eitur-
Iyfjamálin í sínum verkahring og
hefur hann nú mikinn áhuga á að
ræðq við Ingimund um þá fimm
aöila, sem framkvæmdastjórinn
sagði í viötali við Vísi f gær, aö
hann væri reiöubúinn að benda á
og fullyrða, að seldu hash.
Ekki kvaðst fuiltrúi lögreglu-
stjóra vilja neitt um mál þetta
fyrr en viðræður hans við Ingi-
mund hefðu farið f-ram, en tók
það fram, að sér væri ókunnugt
um þau tilvik þar sem Ingimundur
kvaðst hafa staðið þrjá af gestum
Las Vegas að notkun hash.
Ingimundur kvaö ástæðuna fyrir
því, að hann hefði ekki kært þessa
þrjá aðila til lögreglunnar vera
þá, að gestimir hafi ekki veriö með
fíknilyfin á sér og hann þvf álitið,
að erfitt yrði að sanna nokkuð á
þessa seljendur fíknilyfjanna.
- ÞJM
Japanir bjóða Fl vörn
gegn flugvélaræningjum
íslenzkir flugfarþegar hafa litið
orðið varir við vandræði af völd-
um tíðra flugvélarána. Það var þó
á laugardaginn var, að farþegar til
íslands með Flugfélagsþotunni urðu
að skilja eftlr 20 töskur á Lund-
únaflugvelli, en tollþjónar fara nú
mjög nákvæmega yfir allan farang-
ur, sem að þeim berst og anna oft
ekki að rannsaka allar töskur sam-
dægurs. Sagði Óli Smith, að tösk-
umar 20 hefðu skilvislega komið
daginn eftir og ekki valdið neinum
vandræðum. Sumir farbeganna
hefðu naumast vitað af þessu.
Hér á landi hafa menn litlar á-
hyggjur haft af flugvélaránum, en
þó eru flugfélögin viðbúin að grípa
til ráðstafana þeirra sem tækar
eru. Nýlega barst Flugfélagi Is-
iands í hendur japanskur upplýs-
ingabfeklingur um varnartæki gegn
flugvélaræningjum. Óli sagði að
þetta japanska tæki hefði verið selt
til ýmissa stórra erlendra flugfé-
iaga svo sem Air France og Pan
Am. Þetta væri málmleitartæki,
sem virkaði þannig, að ef farþegi
væri með málmhlut á sér á stærð
við vasahníf blikkaði eitt ljós, ef
máimhluturinn væri ívið stærri,
t. d. eins og skammbyssa, þá færu
tvö ljós af stað og það þriðja ef
um verulega þungan hlut væri að
ræða. Tækinu er komið fyrir f dyra
umbúnaði flugvélar — og reyndar
hvar sem vera skal.
Óii kvað fremur ólíklega að þetta
tæki yrði kevpt hingað til lands, en
ef af því yrði myndu fslenzku flug-
félögin hafa samráð um málið. Ann
ans kvaðst hann vongóður um að
einhverjar þær ráðstafanir yrðu
gerðar á alþjóðlegum vettvangi
sem stöðvuðu þessa öldu flugvéla-
rána — og bjóst alls ekki við að
fargjöld yrðu hækkuð vegna auk-
ins tryggingakostnaðar. —GG