Vísir - 25.11.1970, Blaðsíða 13

Vísir - 25.11.1970, Blaðsíða 13
(r í SIR . Miðvikadagur 25. nóvember 1970.----:~ý; • ovoo e'oeo®oofflt>©efreo®o®cffleos>ooœ®®ooo« Björn Ómar Jónsson vinnur þarna við „heilann“, sem sér um að allt rafkerfiðséyfirfariðá skipulagðan hátt og ekkert skilið undan. Lélegur hlutur í rafkerfinu kemst ekki undan slíkum tækjum, og gangsetning á köldum morgni á ekki að verða vandamál. Hreinn óþarfi að fá gang „Jfl, bíllinn á svo sannarlega að fara í gang, þótt eitthvert frost sé“, sagði Bjöm Ómar Jónsson, annar eigandi Lúkas- verkstæðisins f Reykjavík í gær, þegar fréttamaður ræddi við hann. Lesandi hringdi og spurði hvort ekki væri ráð að veita lesendum einhverjar upplýsing- ar um þessi efni. Hann hafði þurft sendibíl til að koma bíl sínum í gang, enda þótt frost væri Htið, — það kostar 150 krónur. Þurfi slíks oft við, þá eru peningarnir fljótir að fara. — Björn Ómar og hans menn sér- hæfa sig í rafkerfi bflsins, stiíj- ingum og öðru slfku og hafa til þess merkileg tæki, sem ekki eru lengi að þefa uppi hvað kann að reynast í ólagi. „Það er algjör óþarfi að lenda í vandræðum með bflinn eftir frostkaldar nætur. Það er margt sem hægt er að gera til að sporna við slíku“, sagði Björn Ómar. „En staðreyndin er sfl að aMt of margir gevma að láta yfirfara rafkerfiö þar til aillt er komið i óefni. Með því þarf að fylgjast vel, og þeir gætnu láta skoða bflinn tvisvar á ári, og spara með þvi bæði fé og fyrirhöfn Að öllu jöfnu eru lík umar meira á að nýr bífl fari fljótt og vel í gang, en sé þess gætt á eldri bílum að sambönd og tengingar séu í lagi, þá ætti sá gamli ekki að þurfa að vera til neinna vandræða." — Verðið þið varir við nokkra áberandi galla á um- hirðu bfleigenda á þeim hlutum sem snúa að gangsetningunni? „Mjög áberandi. Rafgeymir- inn er oft ákaflega illa staðsett- ur til að komast að honum. — Þetta leiðir til þess að þegar' geymirinn er orðinn skítugur og-., fuHur af spanskgrænu, þá aet- ur hann siálfur farið að leiða1 flt rafmagnið, enda þótt annað sé f lagi.“ — Hvað er til vamar? „Það er auðvelt að verjast slfku. HeMa sjóðheitu hitavöitu vatni vfir gevminn. Spanskgræn an rennur þá af geyminum án bess að nokkuð burfi að koma við hann meira. Gæta skal þess að nota aðeins hitaveituvatn, kfsiMinn í þvf leysir spansk- grænuna og óhreinindin af. Sé geymirinn þannig staðsett ur, að vatnið renni ekki frá hon um, eins ob t.d. í Volkswagen- Hflum verður að taka hann flr bílnum, áður en hann er hreins- aður.“ — Fari ég með bíl í mótor- stil'ingu, hvað fæ ég fyrir aur- ana? „Verkstæðiö yfirfer gangþráð bflsins, sem við köllum svo, en það er allt það sem viðkemur bensín- og rafkerfi bílsins. Far- ið er.yfir bensfndælu og blönd- ung. Þá er farið yfir rafkerfið, kveikju, platínur, kerti og kertaþræði og kveikjulok. — Mæld er hleðsla, geymir og start ari. Þetta er okkar vinnuhring- ur. Komi fram galli í einhverju ■ þessara atriða, þá er hann lag- færður á verkstæðinu, án þess að gjaldið breytist, — aðeins efniskostnaður bætist við.“ — Hvaða tryggingu hefur bfleig andinn fyrir því að þetta sé gert? „Tækin, sem notuð eru við mótorstillingar hafa vissan „vinnuhring" og f honum inni- felst að fara yfir aMa þessa hluti. Tækin sjá um það að hrinsrurinn rofni aldrei og að öM atriðin séu yfirfarin.“ Sem sagt, það er ráðlegt fyr ir bfleigandann, sem þurfti að láta sendibíl draga bfl sinn f gang, að láta bifvélavirkja yfir fara rafkerfið f tækium sinum og láta gera við bað sem þörf' er á. Séu.öiH afriði í lagi, þá á bíMinn ekki að þurfa að verða til vandræða og leiðinda, ein- mitt begar hvað þægilegasf er að hafa sinn eiginn bfl. —JBP SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT ÍSLANDS - TÓNLEIKAR í Háskólabíói fimmtudaginn 26. nóvember kl. 21.00. J Stjórnandi: Proinnsías O’Duinn.. Fiutt verður sinfónía nr. 1 cp. 12 eftir Proinnsías O’Duinn (frumflutningur) og sinfónía rer.: 3 (Hetju- !’ hljómkviðan) eftir Beethoven. Aðgöngumiðar í bökabúð Lárusar Bföndai og bóka- ,| verzlun Sigfúsar Eymundssonar. Fjölskyldutónleikar í Háskólabíói sunnudaginn 29. nóvember M. 15;00. Stjórnandi: Proinnsías O’Duinn. Kynnir: Þorsteinn Hannesson. Aðgöngumiðar til sölu f bamaskólum borgarinnar, í bökabúð Lárusar Blöndal, Skólavörðustíg 2, og við innganginn i HáskólabfóL Efnolaug Nóatúns, Nóatuni Kemísk fatahreinsun. — Gufupresstm. — Kílóhreins- un. — Vönduð viiuia. — Fljót afgreiðsía. — Reynfð viðskiptin. — Verið velkomin. — Qpiö í matartfman- um. — Næg bílastæði. Atvinna óskast Kona óskar eftir starfi strax eða um áramöti Heí6ir vélritunar- ensku- og dönskukunnáttu. Uppl. í síma 41364. Orbsending til bifreiðaeigenda FÍB bendir félagsmönnum á, að umsóknarfrestur um endurgreiðslu á hluta leyfisgjalda á bifreiðum er út- runninn 1. des. n. k. Umsóknareyðublöð fást á aðalskrifstofu félagsins og hjá umboðsmönnum. Félag íslenzkra bifreiðaeigenda, i\ _iji Eiríksgötu 5, símar 33614 og 38355. j , í? Hjsj^ -% I

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.