Vísir - 13.02.1971, Síða 2
Sterkur
svipur
Margrét og
Tony á
Barbados
Snowdon lávarður skrapp Mar-
grétarlaus til Barbadoseyja fyrir
rdmlega hálfum mánuði, en loks-
ins tók Margrét sig til og flaug
í venjulegum ferðamannaklassa
frá London til Barbados — hún
heilsaði manni sínum á flugvellin-
«im, fleygði sér um hálsinn á hon-
um og lokaði augunum (hrærð?
glottandi reið? Lítur nú út
fyrir að allar hjónabandserjur
lægi á næstunni og vel taki að
viðra á þau háæruverðugu Tony
og Meg.
Hefur enginn tekið eftir því
hvað Golda Meir og Lyndon B.
Johnson eru lfk? Og þama sjáið
þið það lesendur góðir, og dæm-
ið nú sjálfir.
Margrét og Tony á flugvelli á
Barbados.
?5Eg gæti drepið
Paul Temple44
Christine Rudas.
Richard Harris
klekktó á Crosby
Lögreglumaðurinn Paul Temple
og kona hans, Steve, virðast vin-
sæl meðal íslenzkra Utvarpshlust-
enda — eða a. m. k. íslenzkra
útvarpsmanna. Sömuleiðiis eru hjú
þessi vinsæl í brezka sjónvarp-
inu. Á hverju sunnudagskvöldi
um þessar mundir, gefst brezkum
almenningi kostur að líta hin ráð-
snjöllu lögregluhjón giíma við
einhverja glæpagátuna.
Ros Drinkwater, heitir leikkona
sú. sem leikur Steve. Steve er
eiginkona af fyrstu gráðu. Gasa-
lega elskuleg á yfirborði og 1
framkomu slétt og felld og stund-
um pínulítið fyndin. Hana getur
sem sagt hver venjulegur karlmað
ur þolað. Og við fyrstu sýn ku
Ros Drinkwater vera af sömu
gerð.
Biaðamaður einn átti um daginn
stutt spjall við ungfrú Drykkjar-
vatn: — Hún var klædd svartri
maxi-kápu og hafði við hlið sér
agnarlítinn rottuhund f bandi. Sá
skreiddist laumulega upp í kjöltu
hennar meðan þau drukku te
og spjölluðu. En þar meö er
ekki lengur hægt að bera þær
saman Ros og Steve. Til dæmis
hefur Drinkwater þurft að puða
öll sín 27 ár af öllum mætti
til að ná einhverjum frama á
hvíta tjaldinu. Hún er ógift og
fædd í Glasgow.
Langaði í sviðsljósið
Allt frá barnæsku langaði
hana að veröa leikkona. Byrjaði
fyrst sem aðstoðarkona ljósa-
meistara, þegar West Side Story
var færð upp f Gla-sgow, „og þar
var ég alltaf að flækjast innan
um dansarana. Á endanum rak
ballettmeistarinn augun í mig,
horfði á mig um hríð og skipaöi
mér síðan að hypja mig í bailett-
skóla“.
Og Ros fór að ráðum hans.
„Um eitt skeið hafði ég með
höndum sjö störf til þess að
geta borgað ballettskólann. „Hún
byrjaði á morgana klukkan 6
með því að skúra veitingastaö,
og á kvöldin þvoði hún o’g bónaði
bíla með kunningja sínum. Þegar
ballettskólanum lauk fór hún á
leiklistarskóla í Glasgow. Áður
en henni tókst að krækja sér
f hlutverk Steve, ha'fði hún leik-
ið í 33 sjónvarpsleikritum.
Leiðindamaður,
Paul Temple
„Ég leik langoftast sköss. Síð-
asta hlutverk mitt áður en ég
fékk Steve, var hlutverk nektar-
dansikonu frá Glasgow. Hlutverk
mjög svo ólíkt lögreglukonunni".
Ungfrú Drykkjarvatni geðjast
alis ekki að Steve — og gagn-
rýnir hana hiklaust, enda á sú
kona fátt sameiginlegt með rauð-
sokku eins og Drinkwater. „Ég
var sko engin kvenréttindakona,
en ég varð það strax og ég byrj-
aði aö leika Steve. Ég hef reyndar
ekki enn gengið f kvenréttinda-
hreyfinguna, en mér finnst furðu
legt með þessa leikritahöfunda
nú til dags, sem lausir ganga inn
í allar sjónvarpsstöðvar að þeir
framleiða aldrei eiginkonur, nema
einhverjar steingeldar geðluðrur,
gjörsamlega skotheldar. Steve er
ekki mannleg vera. Hún hefur
ekki áhuga á öðru en maganum í
sér og hvemig hún kemur fram.
Hún er hugmynd karlmanns um
hvernig kona (eiginkona) skuli
vera. Hún er vera, sem notalegt
er að hafa einhvers staðar kring-
um sig. Og j>að er þessi karl-
mannshugmynd um eiginkonu,
sem hefur opnað augu mfn fyrir
stöðu konunnar f heiminum. Nefni
eitt dæmi: Ég er að basla við að
kaupa hús, og finn nú hve erfitt
það er fyrir einstæðingskonu
að njóta tiltrúar sem fullgildur
viðskiptamaður. „Hefurðp ein-
hvem karlmann til að ábyrgjast
þetta?“ spyrja þeir. niig ... rétt
eins og peningar konu séu ekki
í fullu gildi!“
En Ros Drinkwater vildi samt
ekki fyrir nokkum pening standa
í sporum Steve: ,,Ég yröi brjáluð
að lifa hennar lífi. Það hlýtur að
vera mjög leiðinlegt, tilbreytingar
laust að lifa í þessum „fyrirmynd-
arheimi". En ég væri víst aíla
vega næsta fyrirlitleg eiginkona.
Ég gæti aldrei setið heima og
fægt gólfin. Og ef ég væri gift
Paui Temple, mundi ég drepa
hann í fyrstu viku hjónabandsins
— bara til þess að Mfga upp á
hlutina".
En hvað finnst ungfrú Drykkjar
vatni um Francis Matthews, þann
er fer með hlutverk Paul Temple
f sjónvarpsþáttunum? — ,,Ég held
ekki upp á manngerðir eins og
hann ... sem er kannski ágætt,
þar sem við þurfum að eyða svo
miklum tíma saman".
Enn ein „falleg ung stúlka“
hefur fallið í kjaft ljónsins. Og
„ljónið“ er írski fyllirafturinn og
leikarinn Richard Harris. Harris
er 38 ára. Hún, sem nú ræðir um,
er 24 ára og fædd í Ástralíu,
heitir Christine Rudas. Fyrir viku
flaug hún til Holiywood til þess
að koma þar fram fyrir Richards
hönd, en mynd sem hann stjórn-
aðj „Bloomfield" hefur verið til
nefhd, reyndar ásamt fleiri mynd
um, f sambandi við „Goiden
Globe verðlaunin".
Richard Harris hitti Christine
Rudas fyrir nokkrum dögum og
áður en 2 mínútur voru liðnar
var hann búinn að ræna henni
frá kærasta hennar, sem er 19
ára stráklingur Duke Crosby að
nafni sonarsonur Bings gamla
Crosby. Ekki voru nema 3 mánuð-
ir síðan skepnan Harris flengd-
ist um allar jarðir með lítilli
stúlku að nafni Linda Hayden, og
sú sagði um hann: „Richard er
„súper" náungi, hann er svo lífs-
glaður og ég er ofsalega hrifin
af honurn." Nú er það ungfrú
Rudas sem segir: ,,Ég verð aö
segja það — ég elska Richs“d.
Hann gerir mig tryllta það er
svo æsandi að vera með honum.
Fyrst sá ég hann í afmælis-
veizlu hjá vinkonu minni,
Söndru Gleeson. Hún er sko trú-
lofuö Dermot, bróður Richards.
Richard var í veizlunnj og mér
fannst hann svo hræðilega hrukk-
óttur og gamall — hann er lika
orðinn 38 ára. En svo hittumst
við öll 4, Dermot, Sandra, Rich-
ard og ég daginn eftir vfð morg-
unverðarborðið, og þá fyrst
kynntist ég honum eitthvað. Hann
hafði æsiieg áhrif á mig. Núna
fer ég fyrir hann til Hollywood
og svo til Kanada, þar sem ég
verð eitthvað við fyrirsætustörf,
en Richard er núna á Spáni að
gera kvikmynd og ég ætla svo
sannarlega til hans, þegar ég
verð búin í Kanada. Og ég ætla
að vera hjá honum alveg þangað
til í apríl. þegar vinnunni við kvik
myndina verður lokiö. Ef við
viljum þá ennþá vera saman,
setjumst við sennilega að ein-
hvers staðar“.
Richard skildi nýlega við leik-
konuna Elizabeth Rees-Williams,
og hafði þá um hjónabandið þau
orð, að hann myndi aldrei láta
hlekkjast í slíkrj ólánsstofnun
framar. — „Og ]>að ætla ég ekki
heldur að gera“. segir hin ást-
fanga Ruds. „ifiér 'fyndist és
vera þá bundin í báða skó. Níl
get ég gert það sem mig fýsir.
Mér líkar frelsið ... og það er
það sem Riohard þolir hjá mér“.
Hún leikur Steve Temple í brezka sjónvarpinu. I útgáfu ís-
lenzka hljóðvarpsins fara þau Gunnar Eyjólfsson og Helga
Bachmann með hlutverk lögregluhjónanna.