Vísir - 06.03.1971, Blaðsíða 1

Vísir - 06.03.1971, Blaðsíða 1
r Fjallganga fyrir olla í trimntinu 61. árg. — Laugardagur 6. marz 1971. — 54. tbl. 40 50 pokar af pósti, bög<;la- póstur þar innifalinn, eru nú geymd ir á pósthúsinu þar til póstmanna- verkfallið í Englandi leysist, en þá mnn þessi póstur verða sendur af stað með fyrstu ferð. Póstm(eistari sagði í viðtali við Vísi í gær, að hann teldi, að eng- in vandræði yrðu með póst sem Með fuglinn i fanginu i islenzka sendiráðið: Kæmi til landsins frá Englandi, þeg ar verkfallið j leystist og að hann myndj -koma með fyrstu ferðum. Pósturinn, sem bíður á póst- húsinu mun vera tiitöiluJega lítið imagn þar sem beíðni hafði borizt um að póstur yrðj ekki sendur út fyrr en verkfallið leystist. — SB • • HEIM UR FRÆGDA RFOR ÍFTIR CEIRFUGLINUM — uppboðið vakti mikla athygli i London „Þetta hefur verið mikið ævintýri alveg frá upp- hafi, er söfnunin hófst á föstudaginn fyrir viku. Hreint og beint ótrúlegt. Við vorum mjög svo spenntir á taugum fyrir og á uppboðinu. Og satt að segja, þá hef ég alveg gleymt hápunkti uppboðsins, þegar við héldum að Du Pont myndi hreppa geir- fuglinn“, sagði Finnur Guðmundsson, fuglafræðing ur, er hann og Valdimar Jóhannesson, blaðamaður og geirfuglinn komu með þotu Flugfélagsins til Keflavíkur laust fyrir klukkan hálfátta í gærkvöldi. m m <*••« „Við gripum fuglinn, er hann hafði verið sleginn okkur“, sagði Valdimar „og uppboðshald arinn, Sotiheby, neitaöi að bera notkkra ábyrgð á honum, þar sem hann var nú orðinn eign Náttúrugripasafns Islands, og vildi hann eikki einu sinni fá ofckur umbúðir uitan um hann. Við urðum þvtf að vefja hann örmum og steðja með þann dýra fugl nakinn í íslenzka sendiráðið, þar sem hann var geymdur um nóttina“. Flugfé- lag Islands tók síðan að sér aö fá kassa utan um hann og ann- aðist hann að öl'Iu leyti þar til lent var á Keflav ík u rf 1 u gvel 1 i. Fékk hann meira að segja sér- stakt sæti fyrir sig í þotunni — og þuriftti ekfci að borga. Þeir Vaildimar og Finnur sögöu að ferð þeirra eftir fugl- inutn' hefði verið sevintýri lífcust. Uppboðið hjá Sotheby vakti mikla atbygli fréttastofnana „og hvar sem viö fórum um London eftir uppboðið", sagði Finnur, „kom til ofckar fólk og spurði, hvort við værum menn- irair fná íslandi, sem keyptu fuig'linn". Sögðu þeir féilagar að öll blöð, stór og smá, allt frá T>he Times og niður í slúður- blöð, hefðu getið um uppboöið hjá Soitíheby, enda var þar mangt sjaldgæfra náttúrugripa boöið upp, þótt fuiglinn hefði verið þeirra dýrastur og mest fágeeti. Hé'ldu þeir Finnur að þeirra frægðanför eftir fugilin- um hefði og vakið sérstafca at- hygli, t. d. var þeirra þrisvar gietið í fréttum útvarpsins og sjónvarpið BBC lagði boö fyrir Finn að koma í viðtal, en því miður bárust þau boð of seint. „Og verðið á geirfuglinum var Dr. Finnur með geirfuglinn. „Við tryggðuni hann strax fyrir andvirðinu“, sagði Finn- ur. laegra en við bjuggumst við, líkast ti'l vegna þess að menn haifa vitað að við ætluöum okik- ur að kaupa fuglinn". — GG Ferðafélag íslands og fþrótta- samband Islands vinna sameig inlega að göngu-trimmi, göngu- þrammi, göngu-þjálfi, eða hvað annað menn vilja kalla þá heilsu bót að ganga á fjöll. Fyrsta fjallaferðin. sannkölluð fjöl- skylduferð, verður farin í fyrra málið kl. 9.30 frá Umferðarmið- stöðinni. Haldið verður í létta gönguferð upp á Olfarsfel'l. Alls verður efnt til 46 trimmferða á vegum Ferðafélagsins til hau'stsins. Er bæklingur um göngutrimmið kominn í bóka- verzlanir og íþróttavöruibúðir. Að sögn Einars Guðjohnsens er verið að útbúa kassa, sem komið verður upp viða á fjalls tindum, sem klifnir verða. Þar mun verða gesta'bók, sem menn rjta nöfn sín í, þegar þeir hafa náð efsta tindinum. Einn vill gjarnan í Ameríkanana Einn íslendingur a.m.k. hef- ur fullan hug á að mæta banda- rfs'ku fjö'lbragðamönnunum — (wrestling), sem komu hingað í morgun og keppa og sýna á morgun og 'mánudag í Laugar- dafshöllinni. Það er ungur maður, Jón Hl'íð ar Guðjónsson, sem segist tilbú- inn að mæta þessum mönnum, enda þótt hann kunni ekki mik ið fvrir sér f þessari glímu ut an það, sem hann hefur séð á sjónvarpsskerminum. „Auðvitaö vi'l ég ekki láta drepa mig í þessu“, sagði Jón í gærkvöldi, en hann er starfs- maður við Heimakjör, ekur sendiferðabfl fyrir kjörbúðina. „Það eru margir að letja mig, en ég hef aMs ekki kastað þessu fré mér ermþá og svai$ ákveðið á Iaugardag“, sagði hann. Wrestling-ikempumar keppa á sunnudag kl. 20.30 og aftur á mánudagskvöldið kl. 20.30. Heimsmeistarar til Reykjavíkur í gærkvöldi Heimsmeistarar Rúmena komu til landsins í gærkvöldi, — og Iíklega hefur þeim fundizt mik- ið til um móttökumar, — blaöa menn, ljósmyndarar, útvarps- menn, tæknimenn öMu ægði saman, — en tilefnið var þó ekki koma þeirra, — aldrei þessu vant. Geirfuglinn var sá ,,hinn svarti senuþjófur“. Við smelltum þó mynd af liðinu og segjum frá komu þess. — Sjá bls. 5. Geirfuglinn í tollskoðun í Keflavík. Aftan við kassann er Finnur Guðmundsson — allir safngripir eru tollfrjálsir, þannig að ekki hækkar verðið þar. Frá Keflavík var fuglinum ekið í lögreglubíl * Náttúrugripasafnið við Hlemmtorg, en almenningi gefst kostur að sjá geirfuglinn í anddyri Þjóðminjasafnsins frá og meo morgundeginum og næstu viku. Sjá einnig bls. 9. Vinna lögð niður við Laxcírvirkjun Öll vinna á vegum Laxárvirkj unar var lögð niður á hádegi í gær að fyrirmælum Laxárvirkjunarstj. og um 80 manna starfslið, sem unnið hefur að Laxárvirkjunarfram kvæmdum mun halda að sér hönd um yfir helgina meðan sáttaumleit anir fara fram í Laxárdeilunni. Sáttasemjari hafði boðað fund með Laxárvirkjunarstjórn, sem átti að hefjast kl. 11 í morgun, en annar fundur með báðum deilu- aðilum hefur verið boðaður kl. 4 í dag. Búizt er við, að fundirnir standi yfir helgina og jafnvel fram á mánudag. Forsætisráðherra. Jóhann Haf- stein, mun fljúga norður lil Akur- evrar op dfia «sáttafimdina —GP IJtgerðin beri einnig ábyrgð á óhappaslysum Samkvæmt núgildandi siglinga- lögum ber útgerðarmaður aðeins ábyrgð á tjóni sem skipstjóri, skipshöfn eöa aðrir, sem vinna í þágu skips, hafa valdið í starfi sínu vegna yfirsjónar eða van- rækslu. Því er ekki um bótarétt að ræða, ef slys á skipverjum or- sakast af óhappatilvikum, náttúru- hamförum eða öðru slíku, til dæm ís ef slv.s stafar af hálku á bilfari. Fjórir þingmenn leggja til, að þessu verði breytt og lögfest svo- kölluð hlutlæg ábyrgð, en þá fær hinn silasaði bótarétt án ti'llits tíl þess, með hvaða hætti slysið varð, nema hann, hafi verið vald- ur að því. Flutningsmenn eru Friðjón Þórð arson (S), Pétur Sigurðsson (S), Jónas Árnason (Ab) og Lúðvík Jósenssioin fAbl /

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.