Vísir - 06.03.1971, Blaðsíða 7

Vísir - 06.03.1971, Blaðsíða 7
V 1 S I R . Laugardagur 6. marz 1971. $R. BRYNJÓLFUR G1SLASON: Hvert ætlarðu ? Uin íslenzka þjóðkirkja hefur helgað æsku þessa lands einn sunnudag í árinu, fyrsta sunnudag í marz. Yfirskrift þessa dags í ár er stutt, aðeins tvö orð: H'vert ætlarðu? >að er spurt um stefnu, hvert liggur leið þín ungi maður, hver verð- ur vegferð þín, hivar ertu stadd- ur, þegar kemur að leiðarlokum, hvað ber fyrir augu, þegar þú lítur yfir farinn veg? Þú ert ung- ur, þú átt alia framtfðina fyrir þér, þér finnst óþarfi að spyrja, of snemnit En ferðalagið ræðst af heimanbúnaðinum, leiðarlokin ákvarðast af því, að hverju hafi verið stefnt í uipphafi. í einhverri fiægustu ræðu, sem nokkru sinni hefur verið haldin. Fjallræðunni, er taiað um tvö hús, annað byggt á sandi hitt á bjargi. Og það kom óveður mikið, og það húsið féll, sem byggt var á sandinum, húsið á bjarginu stóð af sér öll veður. Þar er með mannsævina eins og húsin. Grunninn þarf að vanda. Enginn byggir hús án þe£is að komast niður á fast, eirís og það er kallað. Enginn gétúr heldur byggt líf sitt á sartdi. Fyrr.eða síðar kemur að þvi, að brotalöm þess Hfs Verði svo augijós að maðurinn fær ek-ki lengúr undir þyi risið. Og þá er of seint að snúa við, of seint að gera gott úr þvi, sem illa var gert, of seint að láta það ógert. sem gert var. Kannski kemstu einhvern t'imann í þá aö. stöðu að heyra hvislað: of seint, of seint. Og hvar er þá von þin og þrá? þekldngar og tækni. Og þvi mið- ur viröist þroskj hans ekki auk- ast að sama skapi og tæknin. Maðurinn notar tækni sína ekk- ert siður í þágu hins illa en hins góða. Hún er notuð til þess aö reisa múra í stað þess að rífa þá niður. Og tæknin er köld, hún hefur ekki sál og hún hef- ur í för með sér sálarkulda. Nýlega var því iýst fjálglega í sjónvarpsþætti, hvernig vél- mennið mundi vinna öll störf mannsins .í framtíðinní. En þaö var ekki talað um, hvort mað- urinn mundi þroskast að sama skapi. Gegn þessu hefur ungt fólk um allan heim barizt. Það vill brjóta niður múrana, sem um- lykur fölkið. En það. sem mest stingur í augu, eru liinar ógeö- felldu myndir, sem þessi . bar- átta birtist í. Og þessar myndir eru andþjóðfélagslegar og flótti frá lífinu. Það geta varla kall- azt góðar baráttuaðferöir að neyta ejturlyfja. Það er að synda undan straumi og leiðir ekki til góðs. Öll barátta krefst átaka og vinnu og erfiðis, Ég las fyrir skömmu ræðu, sem, einhver frægasti skóiamaður okkar ís- lendinga flutti viö skólasetn ingu fyrir rúmum 60 árum. Þar er hann að hvetja hið unga fólk til að berjast hinni góðu baráttu og segir m. a.: „Reynið að gera skólavistina að æfingaskóla í því að gera hver öörum lífið Ijúft og ánægjulegt, um leið og þiö vinnið verk ykkar með alúð og dugnaði. Gömlu Rómverjarnir sögðu: ,,Þú skalt lifa fyrir aðra, ef þú vilt lifa fyrir sjálfan þig“, þ. e. a. s. sjálfum Joér til á- nægju. Þeir höfðu þegar séö þetta lögmál lífsins. Undarlegt lögmál. Meðan við hugsum allt eða mest um okkur sjálf. að okkur líði vel, hvað sem öörum líður, þá Hður okkur aldrei vel; en ef við hættum því og förum að hugsa mest eða allt um aðra, að láta þeim líða vel, hvað sem okkur sjálfum líður, þá fer okk- ur fyrst að líða vel sjálfum.“ Síðar í sömu ræðu vitnar hann í grfskan speking sem sagði: ..Leitum Iþeirra unaðssemda, sem koitia á eftir áreynslunni, ekki þeirra, sem á undan henni fara.“ Af framangreindum orðum Nútímaþjóöfélög eru marg- brotin og sifellt að verða flókn ari. Aukin tækni gerir það að verkum, að hver einstakur verð- ur að hafa meiri þekkingu á valdi sínu en nokkum tímann áður. Þetta gerir meiri kröfur, um leið og það veitir meirj mögu leika. Möguieikamir eru miklir. valið hlýtur því að verða erfitt því só á kvölina, sem á völina Sé bonð saman við eldra þjóð félagsástand, þá er fjölbreytni möguleikanna gífurleg. Nú er varla hægt að segja. að einhver sé á rangri hillu vegna lélegra ytri aðstæðna. Hver einstakur ætti að geta fundiö sér svið við hæfi, þar sem þroskamöguleik- ar hans fá notið sín. En allt þetta gerir meiri kröf- ur til einstaklingsins. Sam- keppnin er hörð. Þvi er snemma spurt: Hvert ætlarðu? Það verö- ur að taka ákvörðun snemma. Námið er orðið langt og enn að lengjast. Alltaf er verið að uppgötva ný þekkingarsvið, sem maöurinn þarf að hafa á sínu valdi. En þetta virðist }k> þýöa það líka, að maðurinn er að nokkru leyti fangi sinnar eigin téb Skátamessa. — Sr. Jón Einarsson í Saurbæ flytur guðsþjónustu á skátamöti f Botnsdal. Ljósm. Boggi. Æskulýðsdagur þióðkirkjunn- ar er á morgun. Kirkjusíða Vís- is er helguð efninu: Kristur og æskan. Hugvekjuna skrifar ung- ur prestur. sr. Brynjólfur Gíslason í Stafholti. Hann er f. á Kirkjubæjarklaustri 26. des. 1938, varð stúdent á Akureyri vorið 1959 og cand. theol. frá ,4. Háskóla ísl. 30. jan. 1988- Starf- aði síðan hjá félaginu Vernd i Reykjavík unz harin : vigðist til Stafholtsprestakalls í Borgar- firði 3. marz 1969. Kona hans er Áslaug Pálsdóttir bónda á Litlu-Heiðj í Mýrdal. má sjá. að ýmsir hafa komizt að raun um, að maðurinn er fyrst og fremst hann sjálfur i samfélagi arinarra manna. Og þetta var raunar líka sagt endur fyrir löngu austur í Gyðinga- landi. Að vísu ekkj alveg eins, en merkingin er hin sama: Elska skaltu náunga þinn eins og sjálf- an þig. í framhaldi af þessu svari var spurt: Hver er náungi minn? Og sem svar við þessari spurningu var sögð sagan af miskunnsama Samverjanum. Sá reyndist náungi mannsins, sem ræningjamir réðust á, sá er miskunnaði sig yfir hann. Þessi heimur okkar virðist stundum . vera fullur af árekstrum. Hrópar. hann ekki á miskunn? Á hugar- far miskunnsama Samverjans í stað haturs og ofbeldis? i I upphafj þessara hugleiðinga var spurt: Hvert ætlarðu, ungi maður? Þú átt langa leið fyrir höndum, hún verður erfið, þú þarft að berjast. Veröur það hin góða barátta? Þaö getur brugðið til beggja vona. En þú þarft ekkj að-berjast einn; Þú getur haft þann í för, sem sagöj við bræður tvo, sem voru fiskimenn á Galíleuvatni: Komið og fylgiö mér. Og þeir stóðu upp, yfir- gáfu allt og fylgdu honum. Hann vill leiða- þig, styrkja þig, vernda þig. gefa þér frið sirin, kenna þér ieitina aö hinu góða, Drottinn vor, Jesús Kristur. i

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.