Vísir - 26.03.1971, Blaðsíða 1
Sjónvarpssendingar og
talsamband um gervi-
hnött innan fárra ára?
— sjá bls. 9
Biðja um 43,9% hækkun
iðgjalda bifreiðatrygginga
— hækkuðu um 35°Jo siðasta vor — hækkun
varla réftlætanleg án meifa sannfærandi
gagna, segir i skýrslu til FIB
Tryggingafélögin hafa
nú sótt um leyfi til ríkis-
stjómarinnar til hækkun
ar tryggingaiðgjalda. —
Þar vegur þyngst á met-
unum beiðni um 43,9%
hækkun á iðgjaldi á-
byrgðartrygginga bif-
reiða, sem allir bifreiða-
eigendur em skyldir til
að taka. Félögin bera fyr
ir sig miklar kostnaðar-
hækkanir m.a. á vara-
hlutum, slysabótum —
vegna aukinnar velmeg-
unar og slæma rekstrar
afkomu ábyrgðartrygg-
inga undanfarin ár.
Umsóknin um hækkunina var
send heilbrigðis. og trygginga
málaráðuneytinu til meðferðar,
en að því er Páll Sigurðsson,
ráðuneytisstjóri sagði i viðtali
við Vísi í morgun, hefur ráðu-
neytið ekki enn aðstæður til að
leggja mat á slíka beiðni og
var umsóknin því send Efnahags
stofnuninni.
Mjög erfitt mun vera að meta
réttmæti beiöni tryggingafélag-
anna. Þannig er t. d. talið, að
stöðvun bílafjölgunar, sem varö
eftir gengislækkunina 1968 hafi
valdið tryggingafélögunum
nokkrum erfiðleikum, þar sem
tryggingafélögin hafa notið þess
hingað til að greiða bætur orð-
inna tjóna meö iðgjöldum sí-
fjölgandj bifreiðatrygginga. Með
stöðvun bílafjölgunarinnar kom
því þarna nokkur hnykkur á
„kúrfuna", sem ætla mætti að
jafnaðist nú aftur með vaxandi
bifreiöafjölgun. Hins vegar fer
ekki á milli mála, að tilkostnað
ur tryggingafélaganna hefur far
ið mjög vaxandi, enda hafa þau
hækkaö iðgjöldin töluvert undan
farin ár eða t. d. um 35% vorið
1970 34.8% vorið 1969 og 24%
1968.
í skýrslu, sem gerð var fyrir
Félag fsl. bifreiðaeigenda um
síðustu áramót, var komizt að
þeirri niðurstöðu, að hækkun ið
gjalda væri varla réttlætanieg
nema tii kæmu meira sannfær-
andi gögn, en þá voru fyrir
hendi. Þar var fundið út, að
hækkun tilkostnaðar vegna
tjóna og reksturs tryggingafé-
Iaganna hefði oröiö um
25—29% frá 1969 til 1970, en
iðgjöldin hækkuðu um 34.8%
vorið 1969 eins og áður segir.
—VJ
Dæmdur
myrta
til að greiða ekkju hins
1,5 milljónir króna
DÓMUR var nýlega kveðinn
upp í borgardómi í máli, sem
ekkja Jóhanns heitins Gísla-
sonar höfðaði gegn Gunnari
Frederiksen til bóta fyrir
mann hennar, sem Gunnar
skaut til bana á heimili þeirra
hjóna 9. maí 1968.
Höfðaði ekkjan, Vilborg Krist-
jánsdóttir, mál á hendur Gunnari
snemma árs í fyrra og krafðist
næstum 4 miljóna króna bóta fyrir
sig og börn sín fjögur.
Gunnar Frederiksen, sem dæmdur
var í sakadómi Reykjavíkur í 16
ára fangelsi fyrir vígið, var dæmd-
ur til þess að greiða ekkjunni og
börnum hennar í bætur kr. 1,5
’milljónir — auk 7% vaxta frá 9.
maí 1968. En málflutningslaun
munu greiðast úr ríkissjóði.
Stefndi, Gunnar Frederiksen,
áfrýjaði dómnum til 'hæstaréttar.
- GP
„Öðru vísi mér áður brá“, verður sjálfsagt mörgum ömmunum og öfunum að orði, er þau líta augum kjól- og peysufatakiædda
Verzlunarskólanema spásserandi í fullum skrúða um borgina í dag.
Valgarður Frímann
Játar að
hafa myrt
konu sína
Við yfirheyrslu hjá bæjarfógeta
á Seyöisfirði í gær, viðurkenndi
Valgarður Frímann að hafa orðið
konu sinni Kolbrúnu Ásgeirsdóttur
að bana með hnífi. Var játning
hans mjög ruglingsleg og aúðsjáan-
legt að hann var ekki fyllilega með
réttu ráði, þó að af honum hafi
bráð öðru hverju.
Tveir starfsmenn rannsöknar-
lögreglunnar vinna nú að frekari
rannsókn málsins austur á Seyðis-
firði, þeir Njörður Snæhólm og
Ragnar Vignir.
Við yfirheyrslu . lýsir Valgarður
ástandi sínu þannig, að hann hafi
verið eins og hann svifi ofar öllu
jarðnesku. Hann hefði reynt að
mæta konu sinni á miðri leið, en
afleiðingarnar orðið mjög siæmar.
Börn þeirra hjóna voru yfirheyrð
í gær, en vitnisburður.heirra leiddl
ekkert nýtt í ljós. — JH
Kolbrún Ásgeirsdóttir
Peysufataball
í diskótehi
• Það var mikill pilsaþytur í
miðbænum í morgun er
peysufataklæddar verzlunar-
skólameyjar fóru um göturnar
með kjólklædda skólabræður
sína við arm sér. „Við erum
að flýta okkur svo mikið, að
viö megum ekkert vera að því
að stilla okkur upp fyrir mynda
töku“ afsökuðu þau sig með.
Kváðust þau eiga eftir að spáss
éra svo margar ferðir um rúnt-
inn og hylla svo margar styttur
í bænum áður en þau ætluðu
sér að fara upp í Verzló og
taka i „spaðana“ á kennurunum.
í hádeginu sögðust þau svo
ætla að borða saman fínan mat
á fínum stað, og svo aftur f
kvöld i Las Vegas og þar hafa
þau svo hugsaö sér að skemmta
sér eitthvað fra'm yfir jniðnætti
við söng og annan gleðskap. —
Hvernig ætli það sé að dansa
diskófek-dansana í þessum
skrúða? — ÞJM