Vísir - 24.04.1971, Síða 9
I I ’ ) ■ '* r * ■ * r
; L‘ ' i i
r' > í )
V í SIR . Laugardagur 24. apríl 1971.
Flóttamannasöfnanin: Takmarkið er 10 milljónir
Hjálpum flóttamönnunum
til að hjálpa sér sjálfír
„Þessi fjársöfnun er ekki til þess að framfleyta iðjuleys-
ingjum í Afríku. Þeir peningar, sem safnast, verða notaðir
til að aðstoða flóttamenn í Afríku, einkum í Súdan og
Eþíópíu tíl að koma undir sig fótunum. Þeim verður hjálpað
til að eignast landskika og þak yfir höfuðið, þeim verður
séð fyrir útsæði og nauðsynlegum tækjum til að rækta
jörðina, og eftir fyrstu uppskeruna standa vonir til að þeir
verði orðnir sjálfbjarga.“
Þetta sagði Stefán Hirst,
framkvæmdastjóri Flóttamanna-
ráðs íslands, þegar fréttamaður
Vísis ræddi við hann um fjár-
söfnun þá, sem fara á fram á
sunnudag.
„Það er takmark okkar að
koma inn á hvert heimili á öllu
íslandi,“ sagði Stefán. „Um allt
land. í hreppum, kauptúnum
og kaupstöðum, hefur verið
komið á fót söfnunamefndum.
Þessi söfnun er sameiginlegt
átak Nöröurlandanna undir
handleiðslu i; hjálþarstofnunar
Sameinuðu þjóðariná. Það verk-
efni, sem verið er að reyna að
leysa, er áð koma upp 11 bama-
skólum í Súdan og Eþíópíu,
fyrir utan aðra aðstoð við
flóttamenn. Til þess ama er á-
ætlað aö þurfi um 50 milljónir
króna.**
Einn sígarettupakki
á mann
„Hvað gerirðu ráð fyrir, að
Islendingar leggi fram mikið af
þeirrj upphæð?“
„Ég trúi ekki öðru en okkur
takist að safna um það bil tíu
milljónum. Sú upphæð mundi
gera mikið gagn, og okkur ætti
ekki að muna verulega um
hana, ef þess er gætt, aö hún
svarar nokkum veginn til þess,
að hvert mannsbam á landinu
legði fram andvirði eins sígar-
ettupakka.
Annars vonum við, aö margir
verði til þess að láta fé ríflega
af hendi rakna, og þaö sakar
ekki að geta þess, að samþykkt
hefur verið, að öli framlög sem
nema þrjú hundruð krónum éða
meira megi draga frá til skatts.
En þeir, sem söfnunina annast
munu að sjálfsögðu gefa kvitt-
anir fyrir því fé, sem þeir veita
móttöku."
„Hafa þeir, sem gefa fé í
þessa söfnun einhverja trygg-
ingu fyrir því, að þetta fé lendi
í höndum þeirra, sem hafa raun-
vemlega þörf fyrir það?“
„1 Súdan og Eþíópíu hefur
flóttamannastofnun Sameinuðu
þjóðanna gæzlu- eða trúnaðar-
menn á staðnum, sem fylgjast
í 14du grein Mannréttindayfirlýsingar S.þ. segir: „Allir eiga
rétt á að leita og njóta hælls frá ofsóknum í öðrum löndum.“
Fjársöfnunin á morgun er tækifæri
hvers þeir meta þessa mannréttlnda;
tU^aö.sýna
Þeir, sem gefa 300 krónur eða meira, til söfnunarinnar fá
gjafir sínar undanþegnar skatti.
með því, að Öllu fé verði sem
bezt og skynsamlegast varið.“
„Eru brögð að því, að meðal
flóttamanna séu menn, sem lita
á aðstoðina sem kærkomna
leið til að sleppa við að sjá fyrir
sér sjálfir?“
„Eflaust era einhverjir ævin-
týramenn innan um, en þaö
breytir á engan hátt þeirri
staðreynd, að í þessum löndum
er ástandið meðal flóttafólks á-
takanlegra en svo, að því verði
með orðum lýst.
1 Súdan liggur við að segja
megi, að borgarastyrjöld geisi
milli svertingja og Araba, sem
hafa náð undirtökunum. Um
172 þúsund manns hafa flúið
úr landi. til Eþíópíu, Kongó eða
Miðafríkulýðveldisins. Frá
Eþíópíu hafa flúið um 31 þús-
und manns. ílestir til Súdan, en
f Eþíópíu er miki’ ólga vegna
sjáfsíæðisbaráttu þeirra. sem
búa f þeim hluta landsins, sem
heitir Eritrea."
FJársöfnun meðal
emstaklinga
„Væri ekkj eðlilegra, að ís-
ienzka ríkið legði fram fé til að
styrkja þetta málefni i stað
þess að afla peninga með fjár-
söfnun meðal almennings?"
„Island leggur fram árlega
fjárhæð til að styrkja starfsemi
hjálparstofnunar Sameinuðu
þjóðanna, en föst framlög að-
ildaríkja S.þ. nægja engan veg-
inn tii að standast kostnaðinn
af öllu hjálparstarfinu. Þess
vegna er leitað beint til borg-
aranna. En íslenzka rikisstjóm-
in hefur gengið á undan með
góðu fordæmi og gefið 800 þús-
und krónur í þessa fjársöfnun."
„Eru ekkj mörg aðkallandi
verkefni óleyst hér á íslandi,
áður en farið er að senda stór-
fé úr landi til hjálpar öðrum
þjóðum?“
„Eflaust þyrfti margt að lag-
feera hér á landi, en ég veit
ekkj til þess. að hér ríki neyð-
arástand á neinu sviði. Saman-
borið við það fólk, sem okkur
langar til að hjálpa, lifum við
sannarlega í vellystingtim
praiktuglega. Neyðin, sem rikir
vtíða f Afriku er meiri en svo,
að við getum með nokkru móti
gert okkur von um að skilja
hana tii hlítar.“
Ljúkum upp fyrir
söfnunarfólki
„Hvenær hefst svo fjársöfn-
unin?“
„Það er misjafnt hvenær
verður hafizt handa á hinum
einstöku stöðum. í Reykjavfk
hefst söfnunin klukkan hálfsex,
17.30, og það verður farið í
hvert hús. Við vonum, að það
verði tekið vel á móti okkur,
og þess gætt, t.d. f fjölbýlis-
húsum, að söfnunarfólkið kom-
ist inn tii að geta barið upp á
f einstökum ibúðum. Og við
stefnum ekki aðeins að því að
koma á heimilin. heldur höfum
við líka í huga að koma við á
skemmti- og samkomustöðum,
svo að söfnunin fari ekki fram-
hjá neinum.“
„Hvað ætlar þú sjálfur að
gefa mikið 1 söfnunina, Stefán?"
„Ég fer ekki að segja frá þvi
opinberlega.“
„Þú gefur að minnsta ykosti
þrjú hundruð krónur og færð
skattafrádrátt?"
„Já, ég fæ örugglega skatta-
frádrátt." — ÞB
fítsv:
Ami Stefánsson, dyravörðun —
„Já, það er sjálfsagt að gefa f
þessa söfnun“.
Einar Öm Bjamason, Mýnesi:
— „Já, mér finnst sjálfsagt að
gefa. Það er ekki gott að vera
flóttamaður, það er sjálfsagt að
rejma að hjálpa þessu fólki“.
TÍSB SPTB'
— Ætlið þér að gefa í
flóttamannasöfnunina?
Pétur Guðjónsson: — „Já. Þetta
er voðalegt vandamál með
þessa flóttamenn. Það eru
alltaf að verða uppreisnir —
þyrfti raunar að skjóta saman
og senda geðlækni handa sum-
um stjómmálamönnum“.
Elísabet Bjarnadóttir, ganga-
stúlka á Landspftalanum: —
„Já, ég gef yfirleitt í svona
safnanir".
Eriing Guðmundsson, rafvirki:
— „Það gæti farið svo, ef kom-
ið verður heim til mín með
söfnunarbauk, þá gef ég eitt-
hvað“.