Vísir - 24.04.1971, Blaðsíða 10
V i S IR . Laugardagur 24. apríl 15#71.
| i KVÖLD | I DAG | IKVÖLD || i DAG i Í KVÖLD B
»■—"■'■ a—i!a—JP — -E3P!—---------** Mmmmnmmrr i— miwJEí
ÁRNAB HEILLA •
Þann 27/2 voru gefin saman i
hjónaband í Landakots'kirkju ung-
fnú Sivava Guðmundsdóttir og
Alexander Andres. Heimili þeirra
er að Grensásvegi 56.
(Studio Guðmundar).
Lítiö á. smjör, egg, plöntufeiti
og plöntusmjörlíkið IRMA kom
með e.s. ísland. Smjörhúsið, Hafn
arstræti 22, sími 223.
Vísir 24. apríl 1921.
Messur •
Langholtsprestakall. Fermingar
guðsþjónusta kj. 10.30. Séra
Sigurður Haukur Guðjónsson. —
Altarisganga veröur miðvikudag-
inn 28. kl. 8.30.
Neskirkja. Barnasamkoma kl.
10.30. Ferming kl. 2. Séra Frank
M. Halldórsson.
Æskulýösstarf Neskirkju. Fund
ur fyrir pilta 13—17 ára mánu-
dagskvöld kl. 8.30. Opið hús frá
kl 8. Séra Frank M HaWdörsson
ÁsprestakalL Messa kl. 11.30
í Laugarásbíói. Barnasamkoma
kl. 11 á sama stað. Séra Grímur
Grimsson.
Hallgrímskirkja. Fermingar-
guðsþjónusta kl. 11. Séra Ragnar
Fjalar Lárusson.
Kirkja Óháða safnaðarins. Ferm
ing og altarisganga kl. 10.30 ár-
degis. (Þvt miður er aðeins rúm
fyrir vandamenn fermingarbarn-
anna í kirkjunni). Séra Emil
Björnsson.
Kópavogskirkja. Guösþjónusta
kl. 2. Séra Gunnar Árnason.
Dómkirkjan Ferming kl. 10.30
Ferming kl. 2. Séra Ólafur Skúla-
son.
Búst.aðaprestakall Barnaguðs-
þjónusta kl. 10.30. Fermingarguðs
þjónusta í Dómkirkjunni kl. 1030
og 2. Séra Ólafur Skúlason.
Laugarneskirkja. Messa kl.
10.30. Ferming og altarisganga.
Séra Garðar Svavarsson
Háteigskirkja. Fermingarguðs-
þjónusta kl. 11. Séra Jón Þor-
varðsson.
Fermingarguðsþjónusta Grens-
ássóknar kl. 2. Séra Jónas Gísla-
son
Templarahöllin. Þórstnenn
leika og syngja í kvöld til kl. 2.
Sunnudagur: Félagsvist og dans
á eftir, Þórsmenn leika og syngja
til kl. 1.
FUNDIR m
Hjálpræðisherinn. Sunnudagur:
kl. 11, helgunarsamkoma. KI.
14, sunnudagasköli kl. 20.30,
hjálpræðissamkoma foringjar
og hermenn taka þátt með
söng og vitnisburðum og ræðu.
Allir vel'komnir.
Félagsstarf eldri borgara í
Tónabæ. Mánudaginn 26. april
hefst félagsvist kl. 2 e. h. —
Miðvikudaginn 28. apri! verður
opið hús frá 1.30 -5.30 e, h.
KFUM m
Á morgun: Kl. 10.30 fjh. Sunnu
dagaskólinn við Amtmannsstig.
Drengjadeildirnar Kirkjuteigj 33,
Langagerði 1 og í Félagsheimil-
inu við Hlaðbæ í Árbæjarhverfi.
Barnasamkomur í barnaskólanum
við Skálaheiði í Kópavogj og í
vinnuskála F.B. við Þórufell í
Breiðholtshverfi (bíl'ferð frá
barnaskólanum kl. 1.15).
Kl. 1.30 e.h. Drengjadeildirnar
við Amtmannsstíg og drengja-
deildin við Holtaveg.
Kl. 8,30 e.h. Almenn samkoma
í húsi félagsins við Amtmanns-
stíg. Unglingadeildir annast sam-
komuna. Séra Frank M. Halldórs-
son talar. Ungt fólk syngur og
tekur til máls. Allir velkomnir,
en ungu fólki sérstaklega boðið.
Blssðaskákin
TA—IR
Svart: TaHfó*a« Revkiavíkur
Leifur Jósteinsson
Biöm Þorsteinsson
ABCDEFGH
| # I
X i Éé . S m *
f. v 114 |SS
!:al Q • ■ !
|f| m&m fWy.
i '■ -s-
f ii
H f 1 m#
A B C D E E G H
Hvítt Taflfélag Akureyrar
Gunnlaugur Guðmundsson
Sveinbjöm Sigurösson
Benedikta Ingibjörg Benedikts-
dóttir, Mávahlíð 48, ]ézt 16. april,
84 ára að aldri, Hún verður jarð-
sungin frá Fossvogskirkju kl. 1.30
á mánudag.
Tómas Martein Andreaisen, Há-
vegi 5, Kópavogi, lézt 16. april,
82 ára að aldri. Hann verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju kl. 3
á mánudag.
Grímur Kristbergsson, bakari,
Skjaldbreið, Njarðvf'k, lézt 19. apríl
74 ára aö aldri. Hann verður jarð-
sunginn frá FríkiTkjunni kl. 3 á
mánudag.
Skiphölj Ásar leika og syngja
í kvöld og á morgun.
Tjarnarbúð. Lokað vegna einka
samkvæma.
Silfurtnnglið. Torrek leika f
kvöld.
Lækjarteigur 2. Hljómsveit Jak-
obs Jónssonar og Tríó Guðmund
ar leika í kvöld til kl. 2. Sunnu-
dagur: Rútur Hannesson og félag-
ar og Trfó Guðmundar leika.
Glaumbær. Dansiei'kir laugar-
dag og sunnudag.
Þórscafé. Gömlu dansarnir i
kvöld. Polka kvartettinn leikur.
Röðull. Hljómsveit Magnúsar
Ingimarssonar leikur, söngvarar
Þuríður Sigurðardóttir, Pálmi
Gunnarsson og Einar Hólm.
Hótel Loftleiðir. Hljómsveit
Karls Lilliendahl leikur, söngkona
Linda C. Walker. Tríö Sverris
Garðarssonar leikur í kvöld og á
morgun.
Hótel Borg. Opið í kvöld og á
rnorgun. Hljómsveit Ólafs Gauks
Ieikur, söngkona Svanhildur.
Hótel Saga. Ragnar Bjarnason
og hljómsveit leika og syngja í
kvöld og á morgun.
Leikhúskjall»rinn. Opið f kvöld
og á morgun. Tríó Revmis Sig-
urðssonar leikur.
Sigtún, Opið í kvöld og á
morgun, Haukar leika og syngja
bæði kvöldin.
Lindarbær. Opið i kvöld. Hljóm
sveit hússins leikur gömlu dans-
ana til kl, 2.
Ingólfscafé. Gömlu dansarnir í
kvöld. Hl.jómsveit Þorvalds
Björnssonar leikur. Sunnudagur:
Bingó kl. 3.
TILKYNNINGAR •
Kvenfélag Breiðholts. Þær fé-
lagskonur, sem geta aðstoðað við
Flóttamannasöfnunina sunnudag-
inn 25. apríl, e nhafa enn ekki
látið skrá sig, hringi vinsamlega
í Guðlaugu f síma 33221 eða
Birnu i sima 38309. — Stjómin.
Sveinn Sæmundsson, stjórnandi
þáttarins „f sjónhending“.
UTVARP SUNNUDAG
KL. 10.25:
„Stórmerki-
legur maður"
„I þessum þætti ætla ég að
tala við stórmerkilegan mann“,
sagði Sveinn Sæmundsson, stjórn
andi þáttarins „í sjónhending",
þegar Vísir spurðist fyrir um
það, hvern hann myndi ræða við
að þessu sinr.i. „Maðurinn heitir
Jón Þórðarson og er 93 ára og
afskaplega ern“. hélt Sveinn
áfram. Jón er ættaður austan úr
Hreppum og var hann þar í
vinnumennsku. Að sögn Sveins,
fiutti hann til Reykjavíkur árið
1906, en þá v'ar hann oröinn fjöl-
skyldumaður, Hann sagði enn
fremur að Jón hefði unnið bæði
til lands og sjávar. Og í þensu
spjalli sínu við Svein segir hann
m. a. frá sjósókn. Sveinn ságði
að saga Jóns. væri bæöj lötig og
skemrntileg og að hann mvmdi
taja við hann næstu 2 — 3 sunnu
dagana.
SJÓNVARP LAUGARDAGSKVÖLD KL. 21.25:
Gary Cooper og Walter
Brennan í
laugardagsmyndinni
Laugardagsmynd sjónvarpsins
aö þessu sinni nefnist „York lið
þjálfi“ (Sergent York). Myndin er
bandarísk og var gerð 1941. —
Myndin er byggð á ævi sveita-
pilts frá Tennessee. Piltur þessi
vann frækilegt afrek á vfgvelli
í Frakklandi í heimsstyrjöldinni
fyrri. Samkvæmt upplýsingum
sem blaðið fékk hjá sjónvarpinu,
hefur mynd þessi fengið eitthvað
af verölaunum. Með aðalhhitverk
in í myndinni fara: Cary Coop-
er og Walter Brennan. Leikstj.
er amerfskur, Howard Hawks,
og hefur' hann leikstýrt fjölda
mynda að sögn sjónvarpsmanna.
Má þar til dæmis nefna „Eldor-
ado“ og „Hatari“.
Barry Foster í hlutverki Harry Jordan í brezka sjónvarpsleikrit-
inu „Skýrslan um Harry Jordan“.
Dauöasyndirnar sjö eru á dag
skrá sjónvarpsins á sunnudags-
kvöld. Leikritið sem flutt verður
að þessu sinni nefnist „Skýrslan
um Harry Jordan". Myndin er
byggö á leikriti eftir Jean Bene-
dette. Samkvæmt upplýsinguin er
Vísir aflaði sér hjá sjónvarpinu,
fjallar leikritið um þetta: Ungur
maður sem er atvinnulaus, fer
inn á veitingastað, Þar hittirhann
gamla konu. Hann fer að ræöa
við hana. Kemst konan þá að því
aö hann er atvinnulaus. Hún
býður honum vinnu við risafyrir
tæki í London. Þegar hann er
farinn að vinna j)ar, fara ýmsir
undarlégir atburðir að gerast.
Unga manninn leikur Barry Fost-
er, konuna á veitingastaðnum rerk
ur Isabell Jeans. Með önnur hlut
verk í leikritinu fara: Eira Heath,
Carleton Hobbs og Georgs Clay-
ton. Þýðandi er Kristrún Þörðar-
dóttir.