Vísir - 15.05.1971, Blaðsíða 8
8
VfSIR. Laugardagur 15. maí 1971.
VISIR
Otgefandi: Reykjaprent Bf.
Framkvæmdastjórl: Sveinn R. Eyjótfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Augiýsingar: Bröttugötu 3b. Slmar 15610 11660
Afgreiösla- Bröttugötu 3b Simi 11660
Ritstjóri: Laugavegi 178. Slmi 11660 (5 ilnur)
Askriftargjald kr. .195.00 á mánuði innanlands
í lausasölu kr. 12.00 eintakiö
Prentsmiöia Vtsis — Edda ht.
Bjargið sem ekki brestur
f>að leyndi sér ekki á síðasta alþingi, að kosningar
voru skammt undan. Flokkar stjómarandstöðunnar
og einstakir þingmenn þeirra reyndu að gera hosur
sínar grænar við kjósendur með frumvörpum, tillög-
um og hvers konar kröfum um auknar framkvæmdir
og umbætur í öllum greinum þjóðfélagsins. Þarna fór
fram kapphlaup og yfirboð, sem vart áttu áður sína
líka, og erum við þó orðin ýmsu vön í þessu efni.
Nú líður að kosningum, aðeins einn mánuður eftir
þangað til kjósendur fá að kveða upp dóm sinn um
flokkana og stefnur þeirra. Spár um úrslit kosninga
eru alltaf hæpnar og með vissu verður aldrei neitt
sagt fyrr en talið hefur verið upp úr atkvæðakössun-
um. En hjá því getur ekki farið, að þeir sem eitthvað
hugsa um þjóðmálin í alvöru og láta sig nokkru varða,
hvernig Iandinu er stjórnað, geri sér hugmyndir um
úrslit kosninga og eftir þeim líkum, sem að þeirra
dómi eru skynsamlegastar.
Enginn sem íhugar þessi mál án allra fordómp og
einstrengingslegrar flokkshyggju, getur kómizt hjá
þeirri ályktun, að mjög alvarlegt ástand mundi skap-
ast, ef núverandi stjómarflokkar misstu þingmeiri-
hlutann. Stjórnarandstaðan er svo sundruð innbyrðis,
að ólíklegt verður að telja, að þeir flokkar gætu mynd-
að starfhæfa ríkisstjórn Stjórnarflokkamir hafa
reyndar hvorugur gefið nokkrar yfirlýsingar um á-
framhaldandi samstarf eftir kosningar. Fomstumenn
beggja hafa tekið fram, að þeir væm algerlega ó-
bundnir í því efni, en haldi þeir meirihlutanum, yrði
það vart skilið á annan hátt en þann, að meirihluti
þjóðarinnar vildi samstjóm þeirra áfram. Það væri
líka verðskulduð traustsyfirlýsing, því að í þessari
ríkisstjóm hefur verið heilli og betri samvinna en í
nokkurri annarri samstjórn, sem setið hefur á ís-
landi.
Ríkisstjóm, sem rnynduð yrði af Framsókn og
kommúnistum væri þegar í upphafi dauðadæmd.
Þarf ekki annað en líta til baka og rifja upp samstarf
þeirra í vinstri stjóminni frægu til þess að sannfær-
ast um það. í raun og vem er það algert neyðarúrræði
fyrir lýðræðisflokkana að taka kommúnista með sér
í stjóm, þótt Ólafi Thors tækist á undraverðan hátt
að halda þeim í skefjum í nýsköpunarstjóminni. Þess
ber og að gæta, að núverandi foringjar kommúnista
em enn ólíklegri til að reynast samstarfshæfir en fyr-
irrennarar þeirra.
Andstæðingar Sjálfstæðisflokksins hafa reynt að
ala á því eftir megni, að innan hans ríki mikið ósam-
lyndi og valdastreita. Hið sanna er þó, að Sjálfstæð-
isflokkurinn gengur allra flokka samstilltastur til
kosninga nú sem fyrr og þjóðin má treysta á ömgga
forystu hans í íslenzkum þjóðmálum enn sem fyrr.
Hann er bjargið, sem ekki brestur. Hinir em allir
meira og minna klofnir og sjálfum sér sundurþykkir.
Alþjóðlegt sam-
starf í vega- og
umferðarmálum
Fjárveitingar til vegagerðar og til viðhalds vegum munu nema frá
1 og upp í 3 prósent af heildar þjóðarframleiðslu OECD-landanna.
Hvað viðkemur umferðaröryggi hinsvegar, sýna tölur úr slysaskýrsi
um, að árlega verða bara í Bandaríkjunum einum 60,000 dauðaslys,
2.000.000 tilvik meiðsla og fjárhagslegt tjón er talið nema nær 12
milljónum dollara. — Sambærilegar tölur í 16 OECD-ríkjum Evrópo
á árinu 1966 voru 66.000 dauðsföll og 1.900.000 slasaðir.
— Bæði fjármunirnir og svo fjöldi einstaklinga, sem í húfi em, telj-
ast í stjamfræðilegum stærðum.
Jafnframt hefur orðið stöðug fjölgun bíla á vegum þeirra 17Evrópu
landa, sem aðild eiga að ECMT (Evrópuráði samgöngumála). Ár-
leg aukning hefur numið frá 8 til 10 prósent. — í Bandaríkjunum
er búizt við því, að f jöldi skráðra ökutækja verði kominn í námunda
við 120 milljónir árið 1980, ef svo heldur áfram, semhorfir.
jþessar samandregnu staðreynd um efnum í dag hrekkur hvergi
ir tala sínu máli um, hví- nærri til, eins og ástandiö ber
líkir ofboðslegir efnahags-, fé- með sér, og mönnum er ljóst,
^jflj^og jgyflyfr hgÆsmui^r, ^^t^efla þarf vísindin í þess
< TíifcasuásikyTÍl^ettu öll aðiid
arríki OECD, nema ísland, á
laggirnar sérstakt ráð yfir sam
st _
gumál., tiessi*. aljgherjar úUj
sla umferðar á vegum hef
ur leitt af sér stórkostleg vanda
mál í vega-gerð og umferðar-
öryggi — og augu manna hafa
opnazt fyrir því, að til úrlausn
ar þessum vandamálum þarf að
lyfta grettistaki.
eiginlegar rannsóknir í vega-
málum árið 1968. Það átti að
starfa fyrstu þrjú árin að því að
safna saman upþlýsingum um
reynslu og vísindalegar rann-
yggismálin, og rannsóknir á því
sviði beinast ekki eingöngu að
útbúnaði ökutækja, heldur einn
ig að gerð vega og hegðun vegfar
enda og ökumanna. Á vegum
ráðsins vinna einstakar nefndir
að hverjum þætti fyrir sig. —
Sérstök nefnd að gerð brúa, og
önnur að gerð vega, sú þriðja
kannar möguleika til betrum-
bóta á gatna- og vegalýsingu
o. s. frv.
Þess gætir nú þegar, að ríkis
Þótt menn hafi byggt gatnakerfi af mestu framsym, þá líöa ekki morg ár, áöur en
veröur ónógt aftur í þeim löndum, þar sem aukning ökutækja nemur um 10% á ári.
Og mönnum er jafnframt að
verða ljóst, að því grettistaki
verður varla bifað, nema meö
sameiginlegu átaki fleiri þjóða.
Það blasir við, að jafnþýöingar
mildar, sem ákvarðanir, póli-
tískar eða efnahagslegar, um
vega- og umferðarmál eru, þá
veröa þær að grundvallast á áö
ur gerðum visindalegum athug
unum og upplýsingasöfnun. —
Þekking manna og tækni i þess
sóknir, sem löndin bjuggu yfir
hvert fvrir sig. Jafnframt átti að
vinza úr það hagnýtasta, og síö
an að miðla á milli þjóða fróð
leiknum, sem safnazt hefði á
hendur ráðinu. Og ákveöið hef-
ur veriö aö ráðið starfi áfram
að minnsta kosti fjögur ár til
viðbótar, og vinni að auknu al-
þjóða samstarfi i vegagerð, um
ferðar- og öryggismálum.
Sérstök áherzla er lögð á ör-
stjórnir einstakra Ianda hafa
nýtt sér þær upplýsingar, sem
ráöið hefur lagt fram að lokn-
um athugunum sínum. Þannig
leiddu rannsóknir ráðsins á áhrif
um áfengis og jyfja á hegöun
ökumanná til þess, að leitt var
í lög í allmörgum löndum bann
við akstri með áfengismagn í
bióði. sem næmi meira en
0,08%.