Vísir - 15.05.1971, Síða 16
Hörð árás gerð á saka-
Hvernig nýtist
menntun
kvenna í
atvinnuiífinu?
— Raubsokkar svara á
fundi 'i Kópavogi
Menntun kvenna og nýting henn
ar í atvinnulífinu, hvaða áhrif böm
á barnaskólaaldri hafa á þátttöku
kvenna í atvinnulífinu eru meðal
þeirra atriða, sem starfshðpur rauð
sokkahreyfingarinnar í Kópavogi
hefur rannsakað. Rannsóknin var
framkvæmd með skoðanakönnun,
sem beindist aðallega að þörf á
da'gvistunarstofnunum fyrir börn i
Kópavogi. Könnunin var gerð með
aðstoð Þorbjarnar Broddasonar
'élagsfræðings.
Sagt verður frá niðurstöðum
rannsóknarinnar á opnum fundi í
Félagsheimili Kópavogs 'i dag kl.
fjögur. —SB
Gömlu göturnar
fá líka malbik
Ung, tilvonandi listakona vinnur hér að uppsetningu á framlagi sínu til sýningarinnar í skálanum
á Miklatúni_
Laugardagur 15. maí 1971.
dómara vegna árásarmáls
fórnarlambiö hafi engar skaða-
bætur fengiö . . .“ Ber hann
fulltrúa sakadómara, Sverri
Einarsson, mjög þungum sök-
um. Segir, að hann hafi ofsótt
sig varpað í fangelsi, neitað
sér særðum um læknishjálp og
ber þau ummæli upp á fulltrú-
ann, að hann hafi sagt: „Viö
vildum helzt að Haraldur Ómar
hefði verið drepinn." Jafnþung
um sökum ber hann sakadóm-
arann í málinu, Ármann Krist-
insson, og segir: „Sjaldan mun
dómari jafnblygðun'arlaust hafa
hallað réttu máli.‘‘ Ber hann
dómaranum á brýn að hafa
stungið upplýsingum undir
stól.
Telur Haraldur, aö það hafi
verið að ráði fulltrúans að
læknir Hegningarlhússins, Krist-
ján Hannesson, hafi ekki vilj-
að sinna honum, „særðum eft-
ir lfkamsárásina.“ Ekki fyrr en
fangaverðir voru farnir að ótt
ast um líf hans og prestur hafði
en lífi á Landakotsspítala," seg-
ir Haraldur f bæklingnum, sem
hann hefur sent ásamt beiðni
um réttarrannsókn til dómsmála
ráöuneytisins. Segist hann hafa
beðið sKkt tjón á heilsu sinni,
að hann hafi orðið að leita
lækninga í Svíþjóö. Hjá ráðu-
neytisstjóra dómsmálaráðuneyt-
isins fékk fréttamaður Vísis
þær upplýsingar, að erindi
mannsins væri í athugun og
enn hefði ekki verið tekin á-
kvörðun um, hvað úr yrði.
Þeir aðilar, sem Haraldur ber
svona þungum sökum, hafa eng
ar ráðstafanir gert til að bera
hönd fyrir höfuð sér.
„Að vísu hafði ég ekki heyrt
af þessu. en maður er ýmsu
misjöfnu vanur úr starfinu og
hættur að kippa sér upp við
slíkt orðið," sagði Ármann
Kristinsson. „Orð manns, sem
flúöi land, þegar yfir honum
voföi hugsanleg ákæra fyrir
skírlífisbrot, eru líklega flest-
um mönnum léttvæg."
—GP
— Grjótaþorpið malbikað þessa dagana
„Þetta hefur veriii vandræðastað
ur þetta Grjótaþorp“, sagði gatna
málastjóri Vísi f gær, „það er
a!lt orðið malbikað þarna f kring og
dýrt að senda veghefla þangað nið
ureftir til að halda þessu sléttu. Við
ákváðum því að rykbinda þetta
með því að setja þunnt malbikslag
1 þessar götur, Grjótagötuna oé
Mjóstrætið.
Nei — náttúruvemdarmenn hafa
ekki haft neitt við þetta að athuga,
held ég. Þetta er nú svo þunnt lag
og ég held að malbikið raski ekki
náttúrunni neitt. Og ef menn ætla
að grafa eftir bæjarstæði Ingólfs,
þá tefur malbikið ekki.“ Gatnamála
stjóri sagði, aö samkvæmt aðal-
skipulagi myndi Grjótaþorpiö brevt
ast mjög. „Suöurgatan á að liggja
þarna í gegn, og það verður því
mikið rifið í burtu. Göturnar sem
þarna eru núna verða þá aðeins mjó
Malbikun á þrengstu götum Reykjavíkur,
nefnda.
Maður, sem varð fyrir árás á heimili sinu
fyrir rúmum 2 árum krefst réttarrannsóknar
gegn sakadómara og fulltrúa sakadóms
Maður, sem varð fyrir
líkamsárás í okt. 1968,
hefur farið þess á leit við
dómsmálaráðuneytið, að
fram verði látin fara rétt
arrannsókn gegn saka-
dómaranum, sem f jallaði
um árásarmálið, gegn
fulltrúa sakadómara,
sem vann að rannsókn
þess og gegn trúnaðar-
lækni Hegningarhúss-
ins.
Ber maðurinn þessa aðila
þungum sökum í bæklingi. sem
hann hefur látið prenta á ís-
lenzku í Svíþjóð, þar sem hann
heldur til, enj bæklinginn hefur
hann sent hingað heim.
í okt. 1968 réðust þrír ungir
menn inn á heimili Haralds
Ómars Vilhelmssonar og veittu
honum aðför. Hlaut hann
nokkra áverka, en mennirnir
virtust ekki annað erindi hafa
ætlað sér en berja á mannin-
um. •
Tveir mannanna voru dæmd-
ir til 9 mánaða fangelsis, en
einn var sýknaður. — Kom
fram, að þeir töldu sig hafa
átt harma að hefna á mannin-
um sem orð lék á að legði
lag sitt við drengi og unga
pilta í ósæmilegum tilgangi.
Fullyrðir Haraldur li bækl-
ingi sínum, „að sekur maður
hafi verið sýkjiaðu*^,...^. sak-
laus maður dæmdur b eirtæ’
Grjótaþorpinu svo-
HIi
Hundrað sýna í nýja salnum
Þaö mun láta nærri aö um
hundrað manns sýni verk sín á
sýningu, sem verður opnuö í
Myndlistarhúsinu á Miklatúni í
■ dag. Þessi fjölmenni hópur hefur
stundað nám í dagskóla Mynd-
lista- og handíðaskólans í vetur
og „þaö er fyrst og fremst hann
sem ber þetta uppi“, sagði Hörð
ur Ágústsson skólastjóri í við-
tali við Vísi í gær. Nemenda-
fjöldi skólans í vetur hefur þó
verið öllu meiri, en nær 500
manns hafa stundað nám í skól
anum alls.
Nemendasýningin, sem opnuð er
í dag er nú í fyrsta sinn í skál-
anum á Miklatúni, sem er óklár-
aður þó. „Það er mikið hagræði
fyrir okkur hér í.skólanum aö fá
að sýna þar,“ segir Hörður „það
hefur verið svo mikil vinna við
neméndasýningarnar, sem hafa
veriö í skúlanum sjálfum, að taka
allt niður og tæki og efni hafa
farið til spiilis, auk þess sem skól
inn er óheppilegur til sýnjnga. Það
er betra að setja þetta upp V einn
sal.“
Þá sagði Hörður að tilgangur sýn
ingarinnar væri að gefa heildar-
mynd af starfi skólans, dagskóla,
kvöldskóla og námskeiöum, „að
vekja athygli á því, sem við erum
að reyna að byggja upp hér.“
Nemendasýningin er opin alla
næstu viku og er aðgangur ókeypis.
—SB
Veðrsð viku á usidan tímnym!
Fimmtudagurinn síðasti var
merkilegur að því leyti, að hann
var fyrsti dagurinn í maímánuði
í Reykjav'ik, sem hiti hefur kom
izt rétt undir meöaliag. Alla
aðra daga hefur hitinn verið
eina til tvær gráður yfir meöal-
hitann og hlýnað ört þannig,
að veðrátta hefur verið viku á
undan tímanum, eins og Knútur
Knudsen veðurfræðingur sagöi
í viðtali við Vísi í gær. Knútur
sagði ennfremur að svona frá-
vik frá meðalhitanum f marga
daga væri fremur óvenjulegt.
I gærmorgun var greinilegt
að heldur hafði hitinn færzt
niður fyrir meðallag, en Esjan
var hvít niður i miðjar hl'iðar.
Klukkan sex var hiti 2—4 stig
á landinu, hægviðri og ekki
gerir Veðurstofan ráð fyrir að
hvessi á togarann í ísafjarðar-
djúpi þannig að björgun ætti
að geta haldið áí?am næstu
daga. —SB