Vísir - 21.05.1971, Side 5
5
Vl S I R . Fðstndagur 21. maí 1971.
Guðmundur varpaði
kúlunni 17.33 metra
— og Islandsmet var seft í 1000 m. hlaupi kvenna
Guðmundur Hermajnnsson, hinn
síungi kúluvarpari úr KR, vann
bezt afrekið á Vormóti ÍR í frjáls-
um íþróttum, sem háð var á Mela-
veHi í gaer, þegar hann varpaði
kúlunni 17.33 metra — bezta afrek
lir.'is i greininni í ár. Eitt íslands-
ir.-?t var sett á mótinu — Ragnhild-
ur Pálsdóttir, UMSK, hljóp 1000
metra á 3:29.1 mín. og þar sem
þetta er í fyrsta skipti, sem konur
hlaupa þessa vegalengd í keppni
hér á landi verður afrek hennar
skráð sem íslandsmet.
Annars setti leiöindaveöur mörk
B1909 varð
meistari
B-1909 frá Óðinsvéum var dansk-
ur bikarmeistari 1 gær, þegar liðið
sigraöi Kaupmannahafnarliðiö
Frem i úrslitum 1:0 á Idrætsparken
í Kaupmannahöfn. Eina mark leiks-
ins var skorað af Bent Outzen
íveimur mín. fyrir leikslok. B-1909.
tekur því þátt í Evrópukeppni bik-
arhafa í haust.
sin á mótiö og fátt var þar um
fína drætti, auk þess, sem helztu
stjörnurnar vantaði þá Erlend Valdi
marsson, sem á við meiðsli að
stríða, og Bjarna Stefánsson, sem
er í próflestri. Það var sannarlega
,,skítaveður“ á Melavellinum eins
og einn starfsmanna mótsins komst
að orði, og það eyðilagði flestar
greinar.
Af einstökum afrekum má þó
nefna, að Elías Sveinsson, I'R,
stökk 1.95 m í hástökki, Friðrik
Þór Ólafsson, ÍR, stökk 6.76 m 1
langstökki. Þorsteinn Alfreðsson,
UMSK, sigraði í kringlukasti í
fjarveru Erlends bróður síns, kast-
aði 44.86 m, og þar var annar stang-
arstökkvarinn Guðm. Jóhanns-
son, KSK, með 44.30 m. Hlaupin
eyðilögðust nær algjörlega — Val-
björn Þorláksson, Á, sigraði í 100
m á 11.9 sek. gegn snörpum mót-
vindi, Ágúst Ásgeirsson, ÍR, í 800
m hlaupi á 2:03.1 mín. og Halldór
Guðbjörnsson, KR, í 3000 m hlaupi
með gífurlegum yfirburðum —
hljóp á 9:16.4 mín. — hsím.
Loks bætti Finnur met Guð-
jflví.Fls>í ,ÖF u.ios'u/öjJí,
Fram vann
Þrótt 3-0
Fram sigraði Þrótt í Reykjavíkur-
mótinu 3—0 á miðvikudagskvöld
og er nú efst í mótinu með 8 stig
eftir 4 leiki. Fyrri há'.fleikur var
nokkuð jafn, en Sigurbergur Sig-
steinsson skoraði þá eitt mark fyrir
Fram. I s'iðarj hálfleik settu Fram-
arar meiri hraða í leik sinn og þaö
réðu Þróttarar ekki við. Kristinn
'Jörundsson skoraði tvö mörk og
er nú markhæstur í mótinu með
6 mörk. Einn leikur er eftir —
mill-i Fram og Vals og þarf Valur
að sigra til að fá aukaleik við
Fram um meistaratitjlinn.
mundar í 100 m. skriðsundi
Finni Garöarssyni, Ægi, — hin- j
um unga Akurnesingi — tókst Ioks
að baeta met Guðmundar Gísla-!
sonar í 100 m skriðsundi á Sund-;
móti 1R, sem háð var í Laugardals-
lauginni í gær. Finnur synti á
57.8 sek og og oft hefur hann
hoggið nærri metinu — jafnaði það
til dæmis tvívegis í landskeppn-
inni við íra í , fyrrasumar, synti
þá á 58.0 sek., en áreiöanlegt er,
að hann á eftir að bæta þennan
árangur mjög í sumar.
Þetta var fyrsta sundmótið í
Laugardalslaug á þessu ári og háði
slæmt veður nokkuð keppendum,
þó bára væri ekki beint á vatns-
fletinum, en kalt og hvasst var
í veðri. Met Finns og árangur
Guðmundar G'islasonar, Á, í 100
m flugsundi 1:04.9 mín. eru raun-
verulega éinu umtalsverðu afrekin,
sem unnin voru á mótinu.
Þátttaka var mjög góð eins og
ávallt á sundmótum undanfarið og
38 keppendur voru í einni grein-
inni, 50 m bringusundi sveina.
Skemmtilegust keppni var í 100 m
skriðsundi kvenna, en þar sigraði
Vilborg Júlíusdóttir á 1:09.1 mín.
og var broti úr sek. á undan Guð-
mundu Guðmundsdóttúr. Vilborg
sigraði einnig í 200 m fjórsundi á
2:46.5 mín. og var þar nokkrum
metrum á undan Guðmundu.
Finnur 'útfærði metsund sitt
mjög veþ og tíminn 57.8 sek gefur
til kynna — strax á fyrsta móti —
— að hann eigi eftir að stórbæta
metið síðar í sumar við betri að-
stæður og keppni, en hann hlaut
enga keppnj í metsundinu —
næsti maöur, ungur efnilegur
Ægis-maður, Sigurður Ólafsson
synti á 60.5 sek.
í 200 m bringusundi sigraði
Leiknir Jónsson á 2:43.2 mín. —
átta sek. lakara en íslandsmet
hans — og hafði forustu í sundinu
nær allan tímann, en Akurnesing-
urinn Guðjón Guðmundsson varð
annar á 2:44.0 mín. og Guðm.
Gíslason þriöji á 2:47.0 mín, Helga
Gunnarsdóttir, Æ, sigraði í 100 m
bringusundi á 1:24.7 m‘in. Guöm.
Magnússon, KR, í 50 m bringusundi
sveina á 4?.8 sek. og FIosi Sig-
urðsson, Æ, í 100 m bringusundi
drengja á 1:22.2 mín.
Real Madrid
Chelsea 1-1
Chelsea var nokkrum sek- j
! úndubrotum frá sigri í úrslita-
1 leik Evrópukeppni bikarhafa'
I gegn Real Madrid í Aþenu á |
1 miðvikudaginn, en mistök bezta i
I manns liðsins, Charlie Cooke,
þegar tvær mínútur voru komn-
I ar fram yfir venjulegan leik-1
| t'ima, urðu til þess, að hið i
,fræga Real-liö jafnaði. Cooke .
var þá með knöttinn og ætlaöi
I að gefa aftur til markvarðar I
(Chelsea, Peter Bonetti, en sendi ,
, knöttinn í þess stað beint fyrir
fætur Zocce, sem renndi hon- '
I um í netiö. Jafntefli varð því |
11—1 og hinn mikli verðlauna-1
I bikar, sem nokkrum mínútum
áður hafði verið borinn niður I
< að hliðarlínu á leikvellinum í |
| Aþenu, fær því ekki handhafa i
i fyrr en í kvöld, þegar liðin'
[mætast aftur 'i Aþenu.
Real — en þar lék einn af (
I gömlu kempunum, Gento 381
, ára, sem gerði garðinn frægan ,
með Puskas og di Stefanó -
' var betra liðið framan af úrslita-1
I leiknum, en það var Chelsea i
i sem skoraði fyrsta markið. Það
var á 11. mín. í s.h. og Peter ‘
' Osgood var þar að verki. Eftir (
| það var Chelsea betra liðið og |
k allt virtist benda til þess, að
Chelsea mundi hljóta sinn fyrsta '
' Evróputitil þar til Cooke urðu |
| á mistök sín og Real jafnaði. |
, Þá var framlengt í 30 mín. og
tókst hvorugu liðinu að skora,
‘ en litlu munaði á lokamínút-
| unni, þegar einum varnaleik-
jmanni Chelsea tökst aö bjarga
á marklínu. Chelsea hafði það'
‘ liö, sem gefið var upp hér á I
jsíðunni á þriðjudag, en notaði i
i báða varamenn s’ína, Baldwin
f og Mulligan, og Real setti einnig '
i inn sína varamenn í framleng-1
| ingunni.
Tveir leikir / 7.
a morgun
— leikið i Vesfmannaeyjum og Reykjavik
íslandsmótið í knattspyrnu hefst
á morgun og verða þá tveir leikir
í 1. deild — annar i Vestmanna-
eyjum milli ÍBV og Vals, en hinn
á Melavellinum í Reykjavík og
leika þar K.R. og Akureyri. Báðir
leikirnir hefjast kl. fjögur.
Á sunnudag verða einíiig tveir
leikir — hinn fyrri verður á gras-
vejlinum í Keflavík milli Fram og
frá Kópavogi, og verður hann um
kvöldið kl. 20.30,
1 Vestmannaeyjum verður einnig
leikið á grasvellinum þar, en fyrstu
leikir mótsins 1 Reykjavik munu
allir fara fram á Melavellinum,
þar sem viðgerð stendur yfir á
Laugardalsvellinum og er ekki enn
að vita hvenær hægt verður að
taka völlinn i notkun. Grasvellir
allra 1. deildar-liðanna utan
Reykjavíkur eru mjög góðir — í
Söngskemmtun
Samkór Kópavogs endurtekur söngskemmtun sína í
Gamla bíói á morgun, laugardaginn 22. maí kl. 3 e. h.
Flutt er m. a. óperan „Réttarhöldin" eftir Gilbert og
Sullivan. Einsöngvarar með kórnum: Kristinn Halls-
son, Hákon Oddgeirsson, Ruth L. Magnússon og Snæ-
björg Snæbjarnardóttir ásamt Agli Bjarnasyni og
Erlingi Hanssyni.
Aðgöngumiðar fást í bókaverzlun Sigfúsar Eymunds-
sonar, bókabúð Lárusar Blöndal og bókabúðinni Vedu
Kópavogi.
. . ----*............ • -■ ■ —*• ''o i ■ -.i" — '-'ts ítj w‘
nýliðanna í 1. deild Breiðabliks I Keflavik er völlurinn hreint frábær
ÍS og
eldur
andstæður íslenzkrar náttúru
mál og myndir eftir
Hjálmar R. Bárðarson
sérúlgáfur á islenzku og ensku