Vísir - 21.05.1971, Blaðsíða 16
Föstudagur 21. maí 1971,
Flyfja Kópavogs-
menningu tii
Reykjavíkur
Réttarhöldin, ópera þeirra Gil-
berts og Sullivan var vinsæl í flutn-
ingi Samkórs Kópavogs á dögun-
um, svo og önnur söngverk innlend
og erlend, sem flutt voru á tón-
ieikunum. Var uppselt á þrjár söng-
skemmtanir kórsins, — og nú á
að fara með ,,prógrammið“ til
?.eykjavíkur. Á morgun, laugardag,
verður Samkórinn með tónleika í
Gamla bió og hefjast þeir kl. 15.
— JBP
Anna ekki eftirspuml riassra:
eftir 11 lesta bátum i
Finnst yður Reykja-
vík hreinleg borg?
„Það hefur aldrei áður verið
önnur eins eftirspurn í þessari
stærð báta — ellefu smálesta
bátum. — Það liggja núna hjá
okkur pantanir, sem við verðum
fram á mitt næsta ár að sinna,“
sagði Þorbergur Ólafsson, fram-
kvæmdastjóri Bátalóns hf. í
Hafnarfirði.
Tvö undanfarin ár hefur skipa
smíð'astöðin Bátalón unnið aðallega
að smíði báta af þessari stærð
og vart annað eftirspurn.
„Við erum þó venjulega meö
svona sex báta í smíöum í einu,
en smíðatíminn er svona til jafn
aðar 3]/2 til 4 mánuðir við hvem
bát,“ sagði Þorbergur framkvæmda
<g>stjóri.
,,Hver bátur er útbúinn 5—6
rafdrifnum handfæravindum, með
lanuspili togútbúnaði, radar, dýptar
mæli og svo auðvitað venjulegum
öryggisútbúnaöi, eins og gúmbjörg
unarbát o. s. frv. — En svona
bátar koma til með að kosta kring
um 3 milljónir króna,“ sagði Þor-
bergur.
Útgerð þessara báta ku hafa
komið vel út, og einkanlega þykir
þessi stærð hentug til rækjuveiða.
— Eins og lánamálum er háttað
f dag. hafa útgerðarmenn mögu-
leika á lánum upp í állt að 80%
af kaupverðinu, en bátarnir eru
allir smíðaöir samkvæmt fyrirfram
gerðum samningum, þar sem greidd
ur er hluti kaupverðsins til stað
festingar á kaupunum. — En til
Þarna er unnið að því að smíða einn hinna vinsælu, litlu trébáta I Hafnarfirði.
Tíu í lóðahreinsun
— og hafa ærinn starfa
„Það eru nú um tíu manns,
sem starfa við lóöahreinsun, og
þeir hafa allir nóg að gera,“
•sagði Pétur Bannesson hjá
hreinsunardeild þorgarverkfræð-
ings í viðtali við Vísi í morgun.
Fá 700 þús. kr.
fyrir hljómleikana
— Deep Purple skemmtir i Laugardalsh'óll
Það er ekki lengur neinum blöðum um það að fletta, aðl
brezka pop-hljómsveitin Deep Purple komi hingað til hljóm-
leikahalds. Allir samningar þar að lútandi hafa nú borizt'
undirritaðir í hendur Ingibergi Þorkelssyni, sem unnið hefur I
að því að fá hljómsveitina hingað. |
Kemur hljómsveitin til Reykjavíkur með einkaflugvél áí
þjóðhátíðardegi okkar fslendinga og kemur fram á hljómleik-1
um í Laugardalshöllinni að kveldi hins 18., sem er föstudags- J
kvöld.
Fyrir leik sinn tekur Deep Purple rúmar 700 þúsund krón-
ur, en 500 krónur kostar aðg ' nniði að hljómleikum þeirra.
Hefst aðgöngumiðasalan einhvern síðustu daga þessa mán-(
aðar. _ I>JM,
„Síöustu d'aga er eins og fólk
hafi va'knað til meðvitundar um,
að víöa er hægt að fegra umhverf
ið meö því að taka til hendinni.
Þessir tíu menn, sem vinna við
lóöalhreinsunina, skipta bænum í
hverfi. og athuga þá staði, 'þar
sem umgengninni er áfátt, og
síðan eru sendir menn á staðina
til að hreinsa til. Og það getur
kostað drjúgan skilding að fá þá í
heimsókn.“
Hreinsunarherferð Vísis hefur
hlotið ákaflega jákvæðar undirtekt
ir hjá almenningi. Fjölmargir hafa
hringt til blaðsins með kvartanir
sínar út af sóðalegri umgengni,
og mikill áhugi virðist vera á því
aö gera það stórátak, sem þörf er
á, í hreinsunarmálum.
Pétur Hannesson sagöi enn
fremur, að hreinsunardeildin vissi
af mörgum stöðum í borginni, þar
sem hreinsa þarf til. „Eigendum
ilia hirtra lóða er gefinn kostur
á því að snyrta til á eignum sín-
um, en ef þeir daufheyrast við, þá
eru sendir menn til að taka af
beim ómakið — gegn gjaldi.
Ástandið, sem víöa er slæmt, er
þó hvergi eins bágborið og viö
ýmsar nýbyggingar,“ sagði Pétur.
..Jafnvel nýbyggingar i eigu ríkis-
ins eru skammarlega illa hirtar."
—ÞB
’kaupa slíks báts þarf útgeröarmað
ur að vera viðbúinn að leggja af
eigin mörkum fram kr. 600 þús.
„Á 2 undanförnum árum erum
við búnir að afhenda 17 báta af
þessari stærð, ennfremur eru 5
bátar núna í smíðum og samninga
höfum við þegar gert um smíði
8 báta til viðbótar," sagði Þor-
bergur.
Um þessar mundir starfa milli
50 og 60 manns viö Bátaión hf.
Annað aðalverkefni skipasmíöa-
stöðvarinnar er smíði tveggja ca.
70 smál. stálskipa fyrir Indverja, en
smíði þeirra er þegar langt komin.
Verða bátarnir með mexíkönsku
Iagi, frambýggðir og útbúnaöur
þeirra sniðinn eftir veiði'háttum
Mexíkana við rækju- og humar-
veiðar.
„Við hófumst handa við smíði
þeirra í júlí í fyrra, en ráðgert var,
að þeir yröu tilbúnir í júní núna.
Hugsanlega verða áframhaldandi
samningar um smíði fleiri siíkra
báta fyrir Indverja, en þó ekki
fyrr en þeir hafa gengið úr skugga
um. hvernig þessir tveir reynast
þeim,“ sagði Þorbergur fram-
kvæmdastjóri að lokum. — GP
Frombjóðendur
tii viðfais á
hverfaskrifstofum
„Hvaða augum líta frambjóðend-
urnir efstu mál á baugi í dag? —
Er þeir sammála kjósendum sín-
um?“ — Úr skugga um þetta geta
íbúar hinna ýmsu hverfa borgar-
innar gengið í dag og næstu daga.
Á hverfaskrifstofum Sjálfstæðis-
flokksins verða frambjóðendur D-
listans til viðtals við almenna
kjósendur í dag milli kl. 5 og kl. 7.
Þar verða þeir til skrafs og ráða-
gerða alla daga framvegis, nema
laugardag og sunnudga.
Þessa nýbreytni tóku frambjóð-
endur D-listans upp í næstsíðustu
borgarstjórnarkosningum, og mælt-
ist það vei fyrir, þegar borgarar
gátu þannig fyrirhafnarlítið náð
fuhdum við frambjóðendur sína
Og skýrt þeim frá viðhorfum sínum.
— GP
islandsmótið
sýnt á óhorfenda-
töflu
Af þéttsetnum áhorfendabekkj-
um fylgdust menn með fyrstu um-
ferð sveitakeppni ís'.andsmótsins í
bridge, sem hófst ‘i gærkvöldi.
Leikirnir voru sýndir á sýningar-
töflu, en sömu spil voru sp'iluð á
öllum boröum, svo aö áhorfendur
fengu fylgzt með úrslitum hvers
leiks, jafnóðum og hvert hinna 32
spila var spilað.
Sex sveitir heyja úrslitabarátt-
una um íslandsmeistaratitilinn, og
fóru leikir þeirra þannig í gær:
Sveit Skúla Thorarensen frá Kefla-
vík vann sveit Guðmundar Guö-
laugssonar frá Akureyri, 20—0.
Sveit Stefáns Guðjohnsens frá
Reykjavík vann sveit Þórarins
Hallgrímssonar frá Egilsstöðum,
20---í-3. Sveit Hjalta Elfassonar frá
Reykjavík vann sveit. Jóns Arason-
ar frá Reykjavík, 17—3.
í annarri umferð í kvöld etja
kappi saman sveitir Guðmundar og
Hjalta — Þórarins og Jóns —
Skúla og Stefáns.
■ Tvær umferðir verða spilaðar á
morgun og sú s'fðasta á sunnudag,
en mótið fer fram í Domus Medica.
— GP
Olafur Jóhann Jónsson, læknir:
— Nei, þaö get ég ekki sagt.
Ekki þegar á heildina er litið.
Hvímleiðastur þykir mér hinn
mikli óþrifnaður á auðum svæð-
um. Það er ekki einu sinni hægt
að taka sér ánægjulega göngu-
túra fyrir þeim óþrifnaði, sem
viðast blasir við.
Gísli Wíum, vélstjórnamemi: —
Já, er þaö nú ekki svona frekar?
Það er óneitanlega slæm um-
gengni 'i kringum mörg íbúðar-
hús og fiskverkunarstöðvamar
á Granda, en svona yfirleitt er
umgengnin í lagi, finnst mér.
Sverrir Þórólfsson, skrifstofu-
maður: — Ég er nú tiltölulega
nýfluttur til Reykjavíkur, en
þaö sem ég hef séð af hreinlæt-
inu finnst mér ekkert frábært.
Sérstaklega mættu verksmiðjur
hreinsa í kringum sig.
Anna Agnarsdóttir, saumakona:
— Nei, ekki svo mjög hreinleg.
Aðallega finnast mér úthverfin
óhreinleg og eins umhverfi
vérksmiðja. Svo held ég að
Reykvíkingar séu upp til hópa
sóöar, þeir gera t.d. of mikið
að því að fleygja rusli úr bíl-
um á ferð.
Sigríður Austmann, hjúkrunar-
kona: — Nei, ekki svo viðun-
andi sé. Lóðir í kripgum margar
ibúðir í úthverfum eru alltof
víða einn ruslahaugur. Svo er
fólki of tamt að fleygja rusli
hvar sem vera skal.
■1
Garðar Jónsson, starfsmaður hjá
Eimskip: — Það er svo sem
vfða pottur brotinn, en miðað
við margar borgir erlendis,
eins og t.d. í Englandi, er Rvík
snyrtileg. Við höfum líka, sem
betur fer tekið Kaupmannahöfn
okkur mikið til fyrirmyndar.
Það eru helzt húsbyggjendur
sem þyrftu að skammast sín,
eða að minnsta kosti girða sóða-
skap sinn af meðan á byggingar-
framkvæmdum stendur.