Vísir - 11.06.1971, Qupperneq 4
4
VISIR. Föstuaagur 11. jum 1971
SÓL-
BRÚN
ÁN
SÓLBRUNA
Lindsay hf.
Sumargistiheimiliö
Kvennaskólanum
Blönduósi
Siöastliðið sumar var starf-
rækt gistiheimili í Kvennaskól-
anum Blönduósi. Þeirri starf-
semi verður haldið áfram í sum-
ar, og al'lri tilhöigun hagað á
svipaðan hátt.
Gistiheimilið tekur tii starfa
föstudaginn 18. júnf og verður
opið fram í september, og býður
ferðafólk velkomið, til iengri eða
skemmri dvaiar. Auk venjulegs
gistirýmis, er gestum gefinn
kostur á að nýta sinn eiginn
ferðaútbúnað. Margvíslegar veit-
ingar eru fram bornar fvrir þá
sem þess óska: svo sem
morgunverður, smurt brauð,
kaffi og kökur, máltíðir fyrir
hópferðafólk, með fyrirfram
pöntunum. Sigurlaug Eggerts-
dóttir veitir sumargistiheimilinu
forstöðu, sem og síðastliðið sum-
ar.
Ný stjórn Lands-
virkjunar
Samkvæmt 8. gr. Iaga um
Landsvirkjun nr. 59 frá 1965
skal stjórn Landsvirkjunar skip-
uð sjö mönnum. Rennur kjör-
tími núverandi stjórnar út hinn
30. þ. m., og hafa eignaraðilar
Landsvirkjunar, rfkið og Reykja-
víkurborg, nýlega kjörið eftir-
talda menn f stjórn fyrirtækis-
ins til næstu 6 ára:
Kjömir af sameinuðu Alþingi:
Aðalmenn: Ámi Grétar Finns-
son, hæstaréttarlögmaður, Bald-
vin Jónsson, hæstaréttarlögmað-
ur, Einar Ágústsson, alþingis-
maður.
Varamenn: Steinþór Gestsson,
alþingismaöur, Emanúel Morth-
ens, forstjóri, Þorkell Bjarnason,
ráðunautur.
Kjörnir af borgarstjórn
Reykjavíkur:
Aðalmenn: Geir Hallgrímsson,
borgarstjóri, Birgir ísl. Gunnars-
son, hæstaréttarlögmaður, Guö-
mundur Vigfússon, f. v. borgar-
fulltrúi.
Varamenn: Aðalsteinn Guð-
johnsen, rafmagnsstjóri, Gísli
Halldórsson, arkítekt, Guðmund-
ur Magnússon verkfræðingur.
Samkvæmt samkomulagi ríkis
stjórnarinnar og borgarstjórnar
Reykjavíkur hefur dr. Jóhannes
Nordal, seðlabankastjóri, verið
skipaður formaður stjómarinnar
fyrir sama kjörtímabii og pró-
fessor Árni Vilhjálmsson vara-
formaður,
Efna til kosninga-
getraunar
Hjálpar og sjálfboðaliðasam-
tök alls konar eru óþreytandi
við að afla sér fjár til starfsemi
sinnar á ýmsan hátt. Getraunir
íþróttafélaganna hafa verið
meðal vinsælustu fjáröflunar-
leiða jæssara samtaka meðal al-
mennings og bað er kannski
þaðan, sem Björgunarsveitin
Stakkur í Keflavík og Njarðvík
fékk hugmyndina að því að efna
til kosningagetraunar. Aðalvinn-
inginn hlýtur sá, sem kemst
næst endanlegum atkvæðatölum
allra flokka í Reykjaneskjör-
dæmi.
Söluverð getraunaseðlanna er
fimmtíu krónur, en 20% af and-
virði seldra seðla verður varið
ti'i vinninga. Aukavinning, frug-
ferð til útlanda, hlýtur sá, sem
kemst næst heildarkjörsókn i
kjördæminu.
16 nýir staðlar
Iðnaöarmálastofnun íslands
gaf um miðjan marz s.l. út 16
ný staðlafrumvörp og auglýsti
þá jafnframt í fjölmiðlum eftir
athugasemdum og gagnrýni við
þau með skilafresti til 1. júní.
Frumvörp þessi eru:
Gluggaumslög. Heftigötun.
Sement hluti 1 & 2. Mátkerfið.
Byggingarmát. Hönnunarmát.
Innréttingar, eldhús. Gluggar úr
tré Skilgreiningar heita Glugga-
efni, gæöakröfur. Gluggahlutar.
Stærðir glugga og einangrunar-
glers. Byggingarstig. Stærðar-
ákvörðun fbúða. Tækniteikning-
ar. Flutningapallar. Fiskkassar.
Verið er að vinna úr þeirri
gagnrýni er barst og búa staðal-
frumvörpin til prentunar sem
staðla. Vilji einhverjir, sem síð-
búnir hafa verið með gagnrýni
koma henni á framfæri eru þeir
hvattir til þess að skila henni
strax til Iðnaðarmálastofnunar
Islands, Skipholti 37, Reykjavík.
I
V
HELLU
ofNinn
ÁVALLT I SÉRFLOKKl
HF. OFNASMIÐJAN
Einholti 10. — Simi 21220.
17. júní
Blöðrur, 5 tegundir og rellur, 3 tegundir.
Heildverzlun
Péturs Péturssonar
Símar 21020 og 19062.
Kona óskast
til matreiðslustarfa 5 daga vikunnar. Vlnnii-
tími frá kl. 8.30—14.00. Uppl. í síma 23457.
i tlLCliHi í HíUT
AUGLYSIÐ I VISI
VÍSIR í VIKULOKIN
er orðin 360 síðna litprentuð bók í fallegri möppu,
sem inniheldur allt sem viðkemur konunni og
heimilinu.
VÍSIR í VIKULOKIN
fylgir aðeins til fastra áskrifenda.
Vönduð mappa getur fylgt á
kostnaðarverði.
VÍSIR í VIKULOKIN
er afgreiddur án endurgjalds frá byrjun
til nýrra áskrifenda.
(nokkur tölublöð eru þegar uppgengin)