Vísir - 11.06.1971, Blaðsíða 5

Vísir - 11.06.1971, Blaðsíða 5
r', 5 Nýr leik- stjóri hjc Manch. Utd. sigraði KR örugglega á Islandsmótinu i gærkvöldi Það var ekki mikil reisn yfir leik gömlu keppinaut- anna, KR og Vals á Mela vellinum í gærkvöldi. Bar- izt var um þýðingarmikil stig fslandsmótsins í 1. deild og í þeirri baráttu hafði Valur betur — sigraði með íveimur mörkum gegn Sænskt met í hástökki í gær settj Janne Dahlgren nýtt, sænskt met V hástökkj, stökk 2.19 metra í fyrstu tilraun á móti í Kristineberg. Hann reyndi næst við 2.21 m. en felldi. Gamla met- ið var 2.18 m. og áttu þeir Kenneth Lundmark og Bo Jonsson það. engu. Verðskuldaður sigur betra liðsins í leiknum og eftir að Valur hafði skorað sitt fyrsta mark í honum var sem úrslit væru ráðin eða að minnsta kosti lítil von til þess, að KR gæti jafnað. En þrátt fyrir þennan sigur hefur I maöur á tilfinningunni, að Valslið- i ið geti sýnt svo miklu betrj leik. Takmark í knattspyrnu er að skora mörk. Það skiptir ekki máli hver skorar — svo fremi sem mörkin eru skoruð. En i sambandj við það kemur fram kvilli í Valsliðinu. Ég-ismi á talsvert háu stigi. Eina hugsun nokkurra leikmanna vircjist vera „Ég ætla SJÁLPUR að skora — ÉG ætla að gera þetta og gera hitt“. Það eru einkum hinir kunnari leikmenn liðsins, sem haldnir eru þessum sjúkdómi — landsliðsmenn- irnir Hermann Gunnarsson, Jó- hannes Eðvaldsson og Ingi Björn Albertsson. Iðulega reyna þeir að leika á tvo tii þrjá mótherja til þess að koma fram áformi sínu og missa þá o-ftast knöttinn, þegar samherjarnir eru allt f kring orðn- ir friir. Takist þjálfara liðsins aö lækna þehnán kviila — eða, að minnsjta. kosti ,að hefta hann veru^ lega — Kef'ég 'trú á að‘'Váls-' liðið geti orðiö skemmtilegast Vs- lenzkra liða — jafnvel bezt. Liðið hefur svo mörgum góðum mönnum á að skipa og með samvinnu þeirra innbyrðis í leikjunum gæti Vaisiið- ið vissulega orðið stórlið á íslenzk- an mælikvarða. En snúum okkur að leiknum. Þegar á 3. mín. sást hvers Valsliðið er megnugt. Á skemmtilegan hátt — með stuttum sendingum — brut- ust þeir Ingi Björn og Hermann í gegn um vörn KR og Hermann fékk knöttinn i dauðafæri, en brást þá og spyrnti framhjá marki, sem er óvenjulegt hjá honum f slíkri stöðu. En því miður fyrir Valsliðið var þarna aöeins sýnt hvað Vals- liðið getur gert — slík samvinna sást varla eftir þetta í leiknum þö Leeds fær ekki að leika á heimavelli í 3 vikur! Aganefnd enska knattspyrnu- sambandsins úrskurðaði í gær, að Leeds mætti ekki leika á heimavelli þrjár fyrstu vikurnar á næsta keppnistímabili, sem hefst um miðjan ágúst. Auk þess var félagið dæmt i 500 punda sekt og framkvæmda- stjórinn Don Revie og formaður félagsstjórnar alvarlega áminnt- ir. Orsök þessa dóms er leikur- inn gegn WBA í vor, þegar mikil ólga varö á leikvellj Leeds eftir hinn umdeilda sigur WBA sem varð til þess, að fangelsi Leeds fylitust. Revie réðist rnjög á dómara leiksins opinberlega og sagði hann hafa eyðilasu fyrir sér níu mánaða vinnu. Með þessu sýnir aganefndin, að hún tekur hart á misbresti, sem á sér stað á meðan á leikj- um stendur og eftir þá. Leeds má ekkj leika leikina fjóra, sem liöið á á þessu 3ja vikna tíma- bili gegn Úlfunum. Tottenham, Newcastle og C. Paiace á veili, sem er innan við 12 mílur frá Leeds, en allar i’ikur, að þeir verði háðir á leikvelli Hudders- field, sem er 15 mílur frá Leeds. Þá var Liverpool einnig í gær dæmt í 7500 punda sekt vegna þess að Jiðið notaði varalið sitt gegn Manch. City í 1. deildar leiknum 26. aprfl í vor, nokkr- um dögum áður en iiðið átti að leika til úrslita gegn Arsenal í bikarkeppninni. Þetta er önn- ur mesta sekt, sem um getur á enskt knattspyrnulið. Vorið 1969 var Derby dæmt í t’iu þús- und punda sekt og dæmt fra bátttöku í borgarkepnnin'ni vegna mistaka í santbandi við bókhald félagsins. hins vegar fyrsta mark liösins væri skorað eftir góöa samvinnu. Lítið markvert skeði siðan langan leikkafla og það var ekki fyrr en á 26. mín. að færi skapaðist. Sig- urþór Jakobsson spyrnti þá fram- hjá ntarki Vals og það sýndi, að KRingar gátu einnig verið hættu- legir. Betur kom það í ljós nokkru síðar, þegar Baldvin hljóp af sér Va’.svörnina — lék á Sigurð mark- vörð, en náðj svo ekki aftur knatt- inum og hann rann framhjá opnu markinu, galtómu. í síðarj hálfleik lék Valur undan sunnangolunni og yfirtók þá leik- inn að .miklu leyti. Þegar á. 5. mín. tokst liðinu að skora, fallegt mark. Valsmenn léku þá SAMAN — knötturinn fór frá Inga Birni til Þóris Jónssönar, sem kom inn eftir hléð, og hann sendi strax á Jó- hannes við vítateiginn. Jóhannes spyrntj viðstöðulaust og knötturinn söng í netinu. Aftur dæmi um þaö hvað Valur GETUR gert. Nokkrum m'in. síðar komst Ingi Björn frír að markinu — ætiaði að vippa knett- inum yfir Magnús, en tókst ekki og Magnús greip . knöttinn. Hermann stóð aleinn tvo metra frá og horfði á. Sending, og knötturinn heföi hlotið að lenda í marki. Um miðjan hálfleik kom smá- fjörkippur KR. Baldvin komst í gegn, Sigurður Ðagsson varði hörkuskot hans. Knötturinn hrökk til Sigurþórs, sem spyrnti á mark, en á m.arklínunni var Sigurður Jónsson fyrir og bjargaöi. Rétt á eftir spyrnti Hörður Markan rétt framhjá Valsmarkinu. En síðan tók Valur aftur við. Þórir Jónsson skoraði þar sem hann fékk knött- inn frír inn f markteig eftir inn- kast Bergsteins. Þetta var á 29. j mín. og sigur Vals í höfn. Nokkr- | um sek. ’ á eftir komst Hermann j frír í gegn, en Magnús varði srlæsi- j lega hörkuskot hans. — þsim. j □ Hesmsmet \ kringíu Bandarikjamaðurinn Jay Sil- vester setti nýtt heimsmet i kring u kns'tj á móti i Ystad í Svíþjóð Hann kastaði 70.04 metra á móti þar. vann Noreg 3:1 Norska landsliðið, sem lék við ísland í Bergen á dögunum, var aft- ur 5 eldlínunni sl. miðvikudag. f Evrópukeppni landsliða og lék þá gegn Búlgaríu i Osló. Úrslit urðu þau, aö Búlgarar sigruðu með 4—1 og eina mark norsþa liðsins skoraði Odd Iversen, atvinnumaður, sem leikur með belgísku liði, en hann var hinn eini í liöinu, sem ekkj lék gegn íslandi, auk markvarðarins Kjell Kaspersen, sem kom inn á síðustu stundu vegna meiðsla Naftorsen. Norðmenn eru eftir atvikum á- nægðir með úrslit leiksins — eink- um með leik norska liðsins í síðari hálfleik. Búlgarar skoruðu öll mörk sín á síðustu 17. mín. f. h. — en norska markið kom í þeim síðari. Staðan í riðlj Noregs er nú þannig: Búlgarar 3 2 1 0 8:2 5 Frakkland, 2 1 1 0 4:2 3 Ungverjal. 3 1 1 1 4:5 3 Uoregur 4 0 1 3 4:11 1 Noregur á eftir að leika við Frakklandj 8. september á heima- velli, en Ungverja í Búdapest 27. október. Jafntefli hjá Svium og Italiu Svíþjóö og Ítalía gerðu jafntefli í landsleik I knattspyrnu í fyrra- dag, sem háður var i Stokkhólmi. Sænska liðið sótt; mun meira í leiknum og hefði verðskuldað sig- ur. Leikurinn var liður í Evrópu- kennni ’andsliða oa hefur ítalska ’iðið nú alla mö<>uleika á sigri — i eftir tvo leiki á heimavelli. • Staðan er þannig: ’talía 4 3 I 0 7:2 7 Svíbjóð 4 2 2 0 3:1 6 Austurriki 3 1 0 2 5:4 z írland 5 0 1 4 3:11 1 Frægasti framkvæmdastjóri i ensku knattspyrnunni Sir Matt Busby hjá Manch. Utd., lét í gær af störfum sem liðsstjóri hjá fé- lagiriu og var Frank O’Farrell ráð- inn V hans stað. Sir Matt verður þó áfram aðalframkvæmdastjóri Manch. Utd., en mun ekki hafa nein afskipti af deildaliði félags- ins Frank O’Farrell var hér á ár- um áður kunnur leikmaður hjá West Ham. Hann réðist síðan til Torquay sem framkvæmdastjóri og það félag efldist mjöf undir stjórn hans. En 1969 réöist hann til Lei- cester, en kom of seint tit þess að bjarga liðinu frá falli niður í 2. deil. Hins vegar kom hann Leicester i úrslit bikarkeppninnar, en félagið tapaði fyrir Mandi. City á Wembley 1—0. Leicester-liðið styrktist mjög undir stjóm hans og vann í vor aftur sæti sitt í 1. dei'ld. Búlgaría Þórir Jónsson með knöttinn frír inn í markteig KR og rennir honum fratnhjá Magnúsi Guómundssyni, markverði og I KR-markið. VALUR getur miklu meiru

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.