Vísir - 21.06.1971, Blaðsíða 3

Vísir - 21.06.1971, Blaðsíða 3
V í SIR. Mánudagur 21. júní 1971. I MORGUN UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND i MORGUN UTLÖND I MORGUN UTLÖND Umsjön: Haukur Helgasun Fedossejev spurður spjönmum úr — Bretar og Bandaríkjamenn fá svör um hernaðalegar hliðar sovézkra geimvísinda Einn af fremstu eeimvís- indamönnum Sovétríkj- anna Anatolij Fedossejev er sennilega háttsettasti og „fróðasti“ Sovétborgarinn sem beðið hefur um hæii sem pólitískur flóttamaður á Vesturlöndum síðasta aldarfjórðung. Fedossejev er nú spurður um hernaðar legar hliðar starfs hans við geimvísindi. Vestrænir Hætt við stríði — milli Indlands og Pakistan Indverjar og Pakistanir ásökudu hverjir aðra í gær fyrir árásir á landamærunum. Pakistanir hafa tvisvar á einni viku mótmælt árás um á landamæraverði sína. Ind- verski vamamálaráðherrann sagði, að indverska stjómin vildi komast hjá styrjöld við Pakistani, en stjóm Pakistans hefði skapað ástand sem bæti Ieitt til stríðs. Indversk fréttastofa segir, að her- menn frá Pakistain hafi skotið af sprengjuvörpum á indverskt land, 64 kílómetrum frá borginni Kal- kútta í gær. Kona og barn hafi særzt. Indverjar hafi svarað skot hríðinni og þaggað niður í byssum Pakistana. Síðan sökuðu Pakistanir Indverja um skothríð á sitt land. Þá hafi f jór ir borgarar særzt, þegar Indverjar hafi skotið af sprengjuvörpum í Rajshashi-héraði og ráðizt á landa mæraverði meö vélbyssuskothríð og handsprengjum. Maðurinn bak v/’ð „lekann" Bandaríska stjórnin segir, aö þessi maður, Daniel Ellsberg fyrrum raðgjafi hermálaráðuneytisins, sé sá, er hafi látið blaðið New York Times fá leyniskýrslur um Víetnam. New York Times og síð- an blaðið Washington Post hafa undanfariö birt útdrátt úr mikl- um leyniskiölum, þar sem greint er frá mörgu um Víetnammálið, sem ekki var áður almennt vitað um. Skýrslan hefur komið sér illa fyrir marga fyrrverandi leiðtoga Bandaríkjanna, ekki sízt Johnson fyrrverandi forseta. munu verða fróðari, eftir að hann hefur svarað spurningum þeirra. Fedossejev flýði, þegar hann var sendur í sovézkri sendinefnd til að vera viðstaddur flugsýninguna í París í byrjun þessa mánaðar. 1 fyrstu spurðist ekkert til hans en í síðustu vi'ku komst hann á laun til Bretlands. Brezk stjórnvöld skýrðu frá þvf í gær, að honum hefði verið veitt dvalarleyfi í Bretlandi. Hann er sagður vera „einhvers staðar í út- hverfi í London“, og væntanlega er um hann vopnaður vörður til að hindna að honum verði rænt af löndum hans. Brezka leyniþjónustan er byrjuð að yfirheyra Fedossejev um starf hans að sovézkum geimvfsindum, einkum um Luna og Sojus-ferðim ar. Sumir telja, að upplýsingar, er hann gefur, muni þegar í stað ganga til bandansku leyniþjónustunnar. Bandaríkjamenn munu einkum vi'lja fá svör við þremur spurning- um: í fyrsta lagi þeirri spuminigu, hvenær Sovétríkin ætli að senda menn til tungilsins. í öðru lagi, hvort þeir hafi ráðagerðir um aö senda menn til Marz, og loks, að hvaða leyti eru tilraunir þeirra með Saljut og Sojus og geimstöð hem aðarlegs eðlis. Er unnt að nota geim stöðvar tíl að fýlgjast með banda rísku Polariskafbátunum? Einn Rússi, sem flýði til Vestur- landa fyrir fimm árum, sagði f gær, að Fedossejev kynni að hafa flúið vegna þess hversu mikil spenna sé rfkjandi í geimvísindum f Sovét- ríkjunum. Þá er sagt að Fedossejev sé ástfanginn af brezkri stúlku. 4 Johnson er nú í eldlínunni. LEYNISKÝRSLAN: Fulbright og McGovern saka Johnson um fals Muskie vill herinn frá Vietnam fyrir árslok — Johnson svarar fyrir sig Edmund Muskie, sem er líklegastur frambjóðandi demókrata við næstu for- setakosningar, sagði í gær að ríkisstjóm Nixons ætti að skuldbinda sig til'að kalla alla hermenn heim frá Víetnam fyrir árslok. Muskie segir, að etoki verði unnt að endurvinna traust almennings, sem hafi farið forgörðum, eftir að leyniskýrslur um Víetnam hafa ver ið birtar, nema því aðeins að rfkis- stjórnin ákveði að kalla herinn heim fyrir ákveðinn tíma. „Meöar rfkisstjómin neitað að á- kveða timann munu milljónir Bandaríkjamanna minnast fortíðar innar og efast um allar fuMyrðingar stjómvalda", segir Muskie. Hann hvatti ríkisstjórnina til þess að hætta við al'lar tilraunir sfnar ti'l að stöðva dagblöðin í að birta skýrsilumar. Ef ekki mætti birta þær, mundu affltof margir Banda- ríkjamenn álíta, að stjórnvöild hefðu ennþá „meira að fela“ en þau í rauninni hefðu. Hvemíg svo sem aðstæður væm í rauninni, þá væri það versta, sem fyrir gæti komið, að „enn stærri alda vantrausts risi gegn ríkisstjóminni“ í Víetnammál inu. George McGovem öldungadeild- armaður, sem sækist eftir aö verða frambjóðandi demókrata í næstu forsetakosningum, sagöi í gær að leyniskýrslurnar sýndu að John- son fyrmm forseti hefði blekkt þjóðina árið 1964. 1 kosningabaráttunni 1964 gerði Johnson gys að keppinaut sinum, Goldwater, því að republikaninn Gcnldwater mælti með sprengjuárás um á Norður-Víetnam og auknu her liði Bandaríkjamanna f Víetnam. — „En þetta var einmitt það, sem ríkis stjóm Johnsons ætlaði að gera“, sagði McGovern. „Það kom í Ijós að Johnson vildi eins og Gold- water auka stríðiö en allir vissu, hvar þeir höfðu Goldwater en ekki Johnson.'* McGovem segir að ríkisstjórn Nixons ætti að fjarlægja leynistimp ilinn að skýrslunum og leyfa birt- ingu þeirra. Þeir hlutar sem hafa verið birtir, hafa ekki skaðað ör- yggi Bandaríkjanna. „Það er ekki birtingin, sem skapar hættu, heldur tilraunir til að stöðva birtinguna", sagði MoGovern. William Fulbright öldungadeiidar maður, sem var formaður utanrílí- isnefndar deildarinnar i stjómartíð Johnsons, sagði í brezka útvarpinu, að hann sæi nú, að hann hafi farið villur vegar á þeim tíma. Hann hafi lagt of mikinn trúnað á yfirlýsingar Johnsons, en Johnson hafi farið meö blekkingar. Johnson fyrrum forseti segir, að það hafi verið sín stærstu mistök í Víetnammálinu, að hann hafi beð- iö í 18 mánuði, áður en hann sendi fleiri hermenn á vfgvöfflinn. Þetta segir í tímaritinu Time í dag, og ér þetta svar Johnsons við ásökun um, sem hann hefur orðið fyrir, eft ir að hiluti af leyniskjölum um Víetnam hefur verið birtur í tveim ur blöðum. Engin sérstök heimild er borin fyrir þessum ummælum, en sagt, aö Johnson telji einnig, að hann hefði átt að beita ritskoöun til að koma í veg fyrir að óvinurinn fengi jafnóðum upplýsingar um, hvað Bandaríkin ætluðu > sér að gera í Víetnam. Tfmaritið segir að Jbftn son hafi viljað halda leyndú, ao hann ætlaði að „færa út“ Víetnam stríðið, og því hafi hann á sfnum tíma ekki skýrt þjóðinni frá staö- reyndum heldur sagt allt annaö en hann hugsaði, en fvrir þaö er John son nú harðast gagnrýndur.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.