Vísir - 21.06.1971, Síða 5

Vísir - 21.06.1971, Síða 5
i/ l'-S IX. Mánudagui 21. júní 1971. Höröur Ragnarsson, lengst til hægri, sendi knöttinn til Friðriks bróður síns og hann skorar fyrir Keflvíkinga. A myndinni til hægri hefur Steinar Jóhannsson komizt f gegn, en markvörður Akureyringa kemur höndum á knöttinn, svo úr varð homspyma. Keflvíkingar enn á skotskénum Keflvíkingar sigruðu Akureyringa á heimavelli sínum í gær með fjórum mörkum gegn engu, sem hljóta að teljast nokkur tíðindi, þar sem Framarar, sem nýlega unnu ÍBK, máttu prísa sig sæla, að ná öðru stiginu af Akureyring um fyrir helgi. Þótt sýnilega sé um tnikla fram- för hjá Keflvíkingum að ræöa, þá er það ekki lykillinn að þessum stóra en fyllilega verðskuldaða sigri, heldur af hinu, að Akureyr- ingar voru með alla daufasta móti. Ég man ekki til þess að hafa séð þá leika jafn flatt, ef svo má að orði komast, enginn beinlínis léleg- ur, né heldur ógnandi. ef frá er skilinn Skúli Ágústsson, sem aldrei dró af sér, hvorki í vörn né sókn og varð þrásinnis að. hlaupa í stöður samherja sinna, sem vilitust úr þeim í hraða leiksins. Eins og markatalan gefiv til kynna, var sóknarleikur norðan- manna máttlaus. Þeir eftirlétu Kefl vikingum alveg miðjuna, enda við ramman reip að draga, þar sem fyrir voru þeir Gísli og Magnús Torfasynir, Magnús reyndaT aðeins fyrri hálfleikinn. Sú aðferð að setja allt traust á hraða Kára Árnasonar virtist fyrirfram dauðadæmd, vegna þess hve auðvelt ÍBK vörninni r Fram og I.B.V. í kvöld í kvöld fer fram fyrsti leikurinn í sumar á Laugardalsvellinum í 1. deild. Mætast þar þau tvö lið, sem hafa sýnt hvað skemmtilegasta knattspyrnu að undanförnu — Fram, sem enn hefur ekki tapaö ;eik í mötinu, og reyndar ekki í vor, og Vestmannaeyjar. Leikurinn hefst kl. 8.30 og má búast við skemmtilegri viðureign. reyndist að leika hann rangstæðan. Eftir þennan skell verða Akureyr- ingar að huga vandlega að sóknar- leiknum, ef ekki á iila að fara fyr- ir þeim í deildinni. Þrátt fyrir mörk in fjögur, verður ekki með sanni sagt að aftasta vörnin hafi átt slak- an lerk. Linnulaus sóknarþunginn sem á henni hvildi, hlaut að sliga hana, samfara fáséhri skotiagni Keflvíkinga. Hið endurskipulagða lið Keflvik- inga ætlar sýnilega ekki að leita neins afturhvarfs í varnarleiksað- ferðina. Eins og í seinasta leik var það sóknarleikurinn, sem var látinn gilda, með sömu uppskeru, fjórum mörkum. í fyrri hálfleik, gegn norð- angjólunni, sóttu Keflvíkingar ali- fast að marki iBA, en tókst illa að nýta góð færi, mest fyrir það, sem telja má eina gallann við sóknar- leikinn, að fara skrefinu lengra með knöttinn nær marki, eftir að færi hefur skapazt, skrefi, sem géfur vamarmanninum svigrúm til að bægja hættunni frá. Þetta henti bæði Steinar Jóhannsson, Ólaf Júl- iusson og siðast en ekki sízt Magn- ús Torfason, sem þrívegis var kom- inn í dauðafæri, — þar af einu sinni, svo að segja á marklinu, en hinn ágæti markvörður ÍBA, Árni Stefánsson, bjargaði á elieftu stundu. Á 39. mínútu tókst Kefl- vikingum fyrst að skora. Gisli Torfason varpaði knettinum inn í markteig. Knötturinn snart höfuð eins varamarkmanns og breytti um stefnu og féll beint á rist Steinars Jóhannssonar, sem átti i rauninni ekki annars úrkosti, en að spyrna á markið geysiöflugu skoti, sem hafnaði uppi undir þverslá, í netinu, 1:0. 1 s. h. gerðu Kefivíkingar þær breytingar á liði sínu, að Hörður Ragnarsson kom í stað Magnúsar Torfasonar En eins og samvinna Magnúsar við Gísla bróður sinn, var til fyrirmyndar f f. h. var sam- vinna Harðar við Friðrik Ragnars- son, en þeir em einnig bræður, ekki siðri. Á 3. minírtu var mikið umrót í vítateig Akureyringa, en Friðrik tókst að spyrna til Harðar, sem sendi knöttinn auðveldlega í netið. Á 12. mínútu, höfðu þeir bræður hlutverkaskipti við að skora 3ja markic’S. Hörður seriofl knöttinn tií Friðriks, sem skoráði af stuttu færi. Friðrik, sem verið hefur með daufara móti í undanförnum leikj- um, virtist komast f mikinn ham við þessi mörk, enda haföj hann ekki sagt sitt síðasta orð í leiknum. Á 18. minútu, fékk hann knöttinn úti við hliðarlínu, einlék í áttina að vítateigshorni og skaut af um 30 metra færi, skáskoti, sem hafnaði í bláhomi marksins fjær. Eitt falleg asta mark, sem sézt hefur á vell- inum í Keflavík. Tvívegis tii loka, máttu Akureyringar, sem skiljan- lega höfðu misst móðinn, teljast heppnir að fá ekki á sig mörk til viðbótar, þegar Guðni Kjartansson, skallaði — og Hörður Ragnarsson skaut í stöng. Auk þeirra Keflvíkinga, sem fyrr eru nefndir, áttu þeir Einar Gunn- arsson og Vilhjálmur Ketilsson góð- an leik í vöminni. Á Þorstein Ólafs son reyndi skiljanlega lítið. Ástráð- ur var hins vegar allt of fljótfær í bakvarðarstöðunni Ólafur Júlíus- sön 'var með dwifara móti, en þó hættulegur. Eini Ijósi bletturinn fyrir norðan menn í þessum leik var sá, að þjálfari ÍBK, er Akureyringur- inn Einar Helgason, sem nú stefndi liði sínu í fyrsta sinn gegn sínum fyrrverandi lærisveinum og félög- um. Fáir verða spámenn í sínn heimalandi. Dómari leiksins var ungur Vest- mannaeyingur, Þorsteinn Eyjólfs- son, sem lítillega hefur komið við sögu I-deildar sem slíkur, Skilað hann verkefni sínu ágætlega. Hon um urðu á, eins og gengur og ger- ist, lítilsháttar skyssur, en í öllurK mikilvægum atriðum voru úrskurð ir hans réttir. Einnig voru línu verðirnir mjög vakandi og ákveðn- ir. -emm sagöi Þorbjörn Kjærbo, sem sigraöi i Bridgestone- keppninni • J Þessi sigur kom mér sjáífum • eiginlega dálitið á óvart, sagði J hinn kunni golfleikari Þorbjörn • Kjærbo og sigurvegari í Bridge- • stonekeppninni, sem fram fór á J golfvellinum í Leirunni um helg- • ina. Ég held, bætti hann við, J að sigurinn hafi komið félögum • mínum nokkuð á óvart líka. • Vegna þess hve lítinn tím.a ég 2 hef haft til æfinga undanfarin • tvö ár. Ég stend í húsbyggingu 2 — og hef verið afskrifaðuT sem • líklegur sigurvegari, en úr hef- • ur rætzt fyrir mér i þýðingar- 2 mestu mótunum. • 2 Að þessu sinni sigraði ég með 2 10 hö.cpum umfram skæðasta • keppinautinn, sem var Ólafur Bjarki. Hann lenti í erfiðleiku í sandgryfju, þar sem mér vegn- aði betur. Annars tel ég Leiru- völlinn vera orðinn þann bezta á öllu landinu, eftir stækkun þá, sem lokið var við í síðustu viku og setur hann í sama flokk og þá velli erlendis, sem gera kröfu til alhliða kunnáttu golfleikar- ans. Það er að segja bæði í löng- um og stuttum höggum. Völlurinn er orðinn 3000 metr ar og það fjölbreytilegur, að nú veitir ekki af þeim 14 gerðum ábalda. sem hver kylfingur er talinn þurfa að nota við hinar ýmsu aðstæður á fullkomnum veili. Áður þurfti ekki að grípa til nema tæplega helmings þess- ara áhalda á Leiruvellinum. Ég gætti þess vel i keppninni að láta óskhyggjuna ekki hlaupa með mig í gönur, heldur meta aðstæður hverju sinni. Leika í fullu samræmi við rökhyggju- vitið. Það var happadrýgst á- samt þessum stóra velli, sem kom betur út fyrir mig, en keppi nauta mína, -emm. Bridgestone-keppnin. 1. Þorbjörn Kjærbo GS. 2. Ól- afur Bjarki GR, 3 Björgvin Hólm. Camel-keppnin, (með forgjöf). 1 Ólafur Á. Þorsteinsson, 2. Svan. Friðgeirsson, 3. -Tón Þór Ólafsson.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.