Vísir - 07.07.1971, Side 5
*
Heiðursmennirnir fimm, sem
KSl heiðraði í gærkvöldi. Talið
frá vinstri Jón Magnússon,
Sveinn Zoéga, Björgvin Schram,
Einar Björnsson og Frímann
Helgason. Ljósm. BB — ►
Knattspyrnusamband
íslands var stofnaö 26.
marz 1947 og í gær-
kvöldi var þúsundasti
stjórnarfundurinn hald-
inn aö Hótel Sögu að við
| stöddum stjórnarmönn-
I> um og um fjörutíu gest-
j um — sumum langt að
komnum — og jafnframt
heiðraði kona með nær-
veru sinni í fyrsta skipti
stjórnarfund hjá KSÍ.
Albert Guðmundsson, formaö-
ur KSÍ, setti fundinn og minnt-
ist fyrst Ragnars Eárussonar,
sem er nýlátinn, en Ragnar átti
sæti 1 stjórn KSÍ um langt ára-
STJORNARFUNDUR KSI
bii, og sat í stjórn, þegar hann
lézt. Þá var hann einnig formaö-
ur Fram og vann knattspyrn-;
unni mjög. Albert bað viöstadda
að rísa úr sætum.sínum í minn-
ingu Ragnars Lárussbnar.
Pá bauð Albert gesti vel-
komna og þá sérstaklega Björg-
vin Schram, sem lengst allra
hefur verið formaður KSÍ, og
Jónas Friðriksson og konu hans
Valgerði Gunnarsdóttur, Berm-
uda, sem stödd eru hér á landi,
en þau hjónin greiddu mjög götu
íslenzka landsliðsins, þegar það
keppti á Bermuda-eyjum.
Þá var tekið fyrir fyrsta mái
á dagskrá þessa þúsundasta
stjórnarfundar —• verðlaunaaf-
hending fyrir meistarakeppni
KSÍ. Formaður knattspyrnu-
deildar Fram, Hiimar Svavars-
son, veitti móttöku stórum verð
iaunagrip og afsteypu af honum
til eignar, sem Aibert Guðmunds
son afhenti honum — og jafn-
framt fékk þjáífari liðsins, Juð-" '
mundur Jónsson, og síðan leik-
mennirnir allir viðurkenningu —-
verðlaunapening. Þá rakti Al-
bert hina miklu sigurgöngu
Fram undanfarið.
Þá gat Albert þess að Guð-
björn Jónsson, fyrrum landsliðs
maður dómari og knattspyrnu-
þjálfari, hefði oröið fimmtugur
nýlega, en stjórn KSÍ barst ekki
vitneskja um þennan merkis-
dag í Iííi Guðbjörns fyrr en seint
um kvöldið á afmælisdaginn —
Albert Guðmundssón setur 1000. fund stjórnar KSÍ. Til
vinstri er Valgerður Gunnarsdóttir frá Bermuda — fyrsta
konan, sem setið hefur ástjórnarfundi hjá KSÍ.
Fékk KSÍ því ekki tækifæri til
að heiðra Guðbjörn þá, en hann
var boðaður á þennan fund og
afhent silfurmerki KSÍ. Þá bað
Albert Jönas Friðriksson að
taka á moti sl'ffurmerki sam-
■‘bandsThs, sem viðurkenningu tii '
þeirra hjóna fyrir frábærar mót
tökur á Bermuda.
Gullmerki KSÍ
Þá gat Albert þess, að KSÍ
hefði skipað nefnd til að endur-
skoða viðurkenningar KSÍ,
og komst hún að þeirri niður-
stöðu, að ekki bæri að breyta
þeim. KSÍ veitir silfurmerki og
gullmerki, en jafnframt gull-
merkinu fylgir orða, sem er
æðsta heiðursmerki KSÍ, en þá
orðu ber aðeins að nota við há-
tíöleg tækifæri. Fimm menn
voru sæmdir gullmerkinu og
orðunni á fundinum, en formað-
urinn gat þess, aö ölluin þeim,
sem hefðu hiotið gullmerkiö
yrði send orðan.
Björgvin Schram hiaut fyrstur
þeirra orðuna og - í ]>ví sam-
bandi sagði Albert að með því
að veifa honum fyrstum manna
þessa orðu kæmi fram hve KSÍ
mæti hann mikils og hin ómetan
legu störf hans í þágu KSÍ og
knattspyrnuhreyfingarinnar í
landinu.
Þá var Jóni Magnússyni næst
afhent orðan, en 17. jantiar sl.
varð hann sextugur. Jón hefur
um langt árabil átt sæti í stjórn
ICSÍ og sagði formaðurinn, að
hann hefð; unnið þar ómetanleg
störf — og enginn hefði haft
meira samband við knattspyrn-
una úti á landsbyggöinni en
Jón Þá hlutu orðuna þrir kunn
ir forustumenn úr Val.,,Einar
Björnsson, sem lengst alira hef-
ur verið formaður KRR, Frí-
mann Helgason, sem unnið hef
ur mikii störf f þágu íslenzkrar
knattspyrnu sem knattspymu-
maður, forustumaður og biaða-
maður eins og Einar Björnsson,
og Sveinn Zoéga, sem iengi var
í stjóm KSÍ, formaöur KRR og
Vals. öllum þessum fímm mönn
um voru þökkuð ómetanle.g
störí þeirra með langvinnu lófa
taki viðstaddra.
Þakkaði stjórn KSÍ
Björgvin Schram tók næstur
til máls á þessum 1000. stjórnar
fundi, þakkaöi' stjórn KSÍ hið
myndarlega hóf. Það væri vel
Vió ..eig@»dj, ug .m^rgt merki-
legt hefur gerzt á þéssum stjórn
arfundum. Fáir vita það betur
en Björgvin, sem setið hefur á
áttunda hundrað stjórnarfundi.
Þá óskaði hann núverandi
stjórn KSI til hamingju með
mikla grósku og velgengni i
starfi, og sagði það vel til fund
' ið aö veita siíka oröu með gull-
merkinu. Kvaðst Björgvin hafa
fengið slíka viðurkenningu frá
öllum knattspyrnusamböndum á
Norðurlöndum — en sú íslenzka
væri hin glæsilegasta.
Þá tók Frímann Helgason j
einnig ti:l máis — þakkaöi viður
kenninguna — og beindi síðan
oröum s'inum aðallega ti] hinna
ungu meistaraflokksmanna
'Fram, sem sátu fundinn. Rakti
hann nokkuð .^ypphaf knatt-
sþyrnufeíils' •síns-t.'fi léttan og
skemmtilegan há'ft/eiris og hon-
um er lagið — lífsnautn þá, sem
hann hefði hlotið í knattspyrn-
unni, og þá þakkiætisskuld,
sem hann stæði í viö hana. —
Hann kom einnig inn á fleirí
svið og hvatti hina ungu menn
ti[ dáða.
Að lokum tók Albert Guð-
mundsson til máls, þakkaði
ræður, og ræddi síðan eitt og
annað í sambandi við knatt-
spyrnuna. Síðan sleit hann þess-
um þúsundasta stjórnarfundi
KSÍ sem hafði verið hin ánægju
legasta kvöldstund. — hsím.
Björgvin Schram flytur þakkarræðu sína — fremst eru meist
araflokksmenn Fram.