Vísir - 28.08.1971, Blaðsíða 2
MERCA
Sú fall-
egasta
í sumar
Elsebeth Nörrung er ekki nema
17 ára — og í norðannepjunni
hér norður viö Dumbshaf, getum
við víst verið viss um, að þessi
barmfagra stúlka hugsar ekki
hingað í fásinnið og nepjuna eitt
andartak — því ef hún geröi það,
þá brosti hún ekki svona blítt —
hún myndi kannski gapa af undr
un yfir því, að á eylandi voru
skuli engin almennileg baðströnd
finnast — engin ber stelpa nálægt
sjó, Bara grásleppukarlar á vorin
og sauðkindin á haustin. Ungfrú
Nörring lét birta þessa mynd af
sér í síðdegifiblaðinu B.T. í Kaup-
mannahöfn, og lesendur völdu
hana fegurstu stúlku sumarsins.
SPURNINGAR, SEM KOMA
UPP UM PERSÓNULEIKAÞINN
Persónuleikapróf eru nú notub, þegar valið
er úr hópi umsækjenda um starf
Hópferðir
Margar stærðir hópferðabíia
) alltaf til leigu.
BSÍ
(
; Umferðarmiöstöðinni.
Jailmi 22300
'Hvort vilduð þér frekar vera,
erkibiskup eða herforingi?
>ér gæti fundizt þessi spurning
út i hött, e? þú hefðir fyrst og
fremst áhuga á því að verða póst
méistari. Engu að síður eru menn
spurðir svipaðra spurninga, ef
þeim dettur í hug aö sækja um
starf á pósthúsi.
1 sambandi við starfsmannaval
eru persónuleikapróf sífellt að ná
meiri útbreiðslu. Algengasta per-
sónuleikaprófið sem lagt er fyrir
umsækjendur um störf er kallað
16 PF.
Það lítur út svipað og venju-
legt prófblað, og á því eru næst-
um 200 spurningar á borö við
þessa: „Ég reiðist sjálfum mér oft
tíkaflega mikið út af smámunum".
Dæmigert
Til að svara spurningunum merkir
umsækjandinn í einhvern af þrem
ur reitum: „Já, Nei eða Mitt á
milli".
Aðrar dæmigerðar spumingar
eru þessar:
„Ég er sífellt að segja brand-
ara.“
„Helzt vildi ég leika mér við
börn allan liðlangan daginn.“
„Helzt vildi ég vera götusóp-
ari.“
„í fjörugum samræðum vildi
ég helzt hlusta."
Svörin við spurningunum tvö
hundruö eiga að gefa til kynna
eitthvað um 16 meginþætti per-
sónuleikans. og þess vegna heitir
prófið 16 PF.
Meðal þessara meginþátta má
telja, hvort maður er opinskár
eða dulur, gáfnafar, tilfinninga-
jafnvægi ákveðni, glaðværð eða
súra varfærni, þvingandi sam-
vizkusemi eða það áð vera þraut
góður á raunastund, feimni eða
framhleypni, seiglu eða uppgjöf
tortryggnileysi, hvort maður á
gott með að láta sér lynda við
fólk, hvort maður er praktfskur
og venjulegur eða hugmvndarík
ur og óvenjulegur, sjálfsöruggi
eða öryggisleysi. hvort maður pr
reiðubúinn að breyta til eða full
ur af íhaldssemi.
Meginþættirnir eru fleiri og
flóknari en þeir sem hér hafa
verið taldir, og persónuleikaprófið
á að segja mikið til um hvernig
þeir eru. Samt er persónuleika-
prófið engan veginn fullkomið.
Kynferðismá'um kemur það ekki
nálægt, nema kannski með spurn
ingunni: „Yfirleitt er ég skemmti
legasti maðurinn í öllum parti-
um“.
C9
ari vill
verða
forseti
Banda-
ríkjanna
Hann er kallaður „Dizzy“ —
því að hann getur látið áheyr-
endur sina sundla, þegar hann
leikur fyrir þá.
Sumir segja. að Dizzy sé nú
farið að svima, því að hann held
ur þvi fram, að hann vilji verða
forseti Bandaríkjanna. Hann heit
ir Dizzy Gillespie og er heims-
þekktur jass-leikari.
Þó taka ekki allir alvarlega
þessar ráðagerðir hans, þvi að
jass-kóngurinn er þekktur fyrir
hin furðulegustu uppátæki.
Hann sagði nýlega í sjónvarps
viðtali í Bandaríkjunum: „Nixon
vill fá mig til að ferðast um
heiminn sem nokkurs konar mús-
ík-ambassardor Bandarfkjanna.
Ég vil heldur vera forseti. Ætli
ég taki ekki þátt í kosningabar-
áttunni á næsta ári. Ég býst við
að ég fái mörg atkvæöi hjá ungu
kynslóðinni."
Þetta er reyndar ekki í fyrsta
skipti, sem Dizzy Gillespie bland
ar sér í stjórnmál, Árið 1968 fór
hann í mikla kosningaherferð og
vildi verða forseti. Helztu stuðn
ingsmenn hans voru stúdentar í
Kaliforníu og New York, sem
vildu gjarnan fá hann fyrir for-
seta.
En hann hætti viö allt saman,
þegar gamanið stóð sem hæst.
Þá gaf hann þá útskýringu, að
trú sín bannaði sér að blanda
sér í stjórnmál, því aö Gillespie
er Bahá'í.
„Eiginlega ætti ég heldur ekki
að reykja,“ segir hann, „né
drekka — en þaö geta ekki allir
verið dýrlingar.“
Nú velta menn því fyrir sér,
hvart GiIIespie hefur skipt um
trú, eða hvort hann er bara að
gera að gamni sínu. Mönnum
finnst það síðarnefnda líklegra. •