Vísir - 14.09.1971, Side 5
5
VÍSIR. Þriðjudagur 14. september 1971.
sem Flugfélag Islands hefur flutt. Milljón sterlingspunda-leikmenn Tottenham í flughöfninni í Keflavík,
Ljósm. BB,
Þetta er éinn „dýrasti farmur'
TOTTENHAM IEIKUR í KVÖLD
Aliir beztu menn lidsins komu til Reykjuvíkur í gærkvöldi
Totíenham Hotspurs — millión ounda liðið — er komið til Reykjavíkur og í kvöld
fer fram stórleikurinn, sem svo margir hafa beðið eftir — Keflavík og Tottenham
í EUFA-keppninni. Alir kunnustu kappar þessa fræga liðs eru með í förinni og
þeim var fagnað vel af íslenzkum ungmennum í gærkvöldi — fyrst suður á Kefla
víkurflugvelli og síðan á Hótel Sögu. Margir fengu áritun hjá köppunum og eng-
inn var þar liðlegri en sá þeirra, sem er frægastur, heimsmeistarinn Martin Pet-
ers, sem lék við hvern sinn fingur og vildi alit fyrir alla gera.
Bill Nicholson, framkvæmdastjóri
liðsins, sagðist litlu vilja spá um
úrslitin í leiknum f kvöld. Til þess
. vissi hann of lítið í knattspyrnu
I á íslandi — en hann vissi þó, að
erkifjendur Tottenham í Norður-
||
Lundúnum, Arsenal, hafðj leikið
hér fyrir tveimur árum og fengið
harða mótstöðu hjá íslenzkum
knattspyrnumönnum. Og Alan Gil-
zean. sem er eini leikmaður Tott-
enham, sem leikið hefur hér áður
á Laugardalsvellinum — kom hing-
að með skozka liðinu Dundee 1960
— sagðist eiga góðar minningar
héðan. Þórólfur Beck vakti þá
mesta athygli íslenzku Ieikmann-
anna og sagðist Gilzean oft hafa
leikió geg'n honum á Skotlandi.
•Ekki. v.erður .hð,.Tpttenham. end-
anlega valið fyrr en s'iðar í dag —
en þar sem ekkj var vitað um nein
meiðsli hjá leikmönnum, verður
það sennilega skipað þannig: Pat
Jennings, Joe Kinnear, Cyril
Knowles, Phil Beal, Mike England,
Alan Mullery, sem er fyrirliðí á
leikvelli, Martin Peters Steve
Perryman, Martin Chivers, Ralph
Coates og Alan Gilzean — eða
skipað eins og liðiö getur sterkast
verið.
Uppstilling Keflvíkinga er þann-
ig: Þorsteinn Ólafsson, Ástráður
Gunnarsson, Vilhjálmur Ketilsson, ■
Einar Gunnarsson, Guöni Kjartans-
son, fyrirliði Gísli. Torfason, Birgir
Einarsson, Karl . Hermannsson,
Steinar Jóhannsson, Hörður Ragn-
arsson og Jón Ólafur Jónsson —
eða allir beztu menn liðsins. með
nema Friðrik Ragnarsson, sem hef-
ur verið lengi frá vegna meiðsla.
Stórleikurinn í kvöld hefst kl.
6.15 á Laugardalsvellinum og ef
allt fer að líkum verða níu brezkir
landsliðsmenn í Tottenham-Iiðinu
og þar ráðlegg ég áhorfendum að
fylgjast sérlega vel meö Martin
Peters „skugganum" í liðinu. Það
fer ekki alltaf mikið fyrir þessum
glæsilega leikmanni en staðsetning
ar hans og uppbygging er glæsileg.
Þá eru þeir ensku landsliðsmennirn
ir Mullery og Chivers meðal
Ifremstu leikmanna í sínum stöðum
í heiminum. Það verður því mikið
að sjá í leiknum i kvöld og á góð-
um degi leika fá liö betur en Tott-
enham Hotspurs. — hsím.
U. E. F. A
K. S. í.
KEFLA VlK
TOTTENHAU
Alan MuIIery
fyrirliði Tottenham.
EINSTÆÐUR KNATTSPYRNUVIÐBURÐUR
LAUGARDALSVÖLLUR, þriðjudagur 14. septe mber klukkan 18.15.
Sjáið TOPP-MENN brezkrar knattspyrnu: Peters — Chivers — Mullery — Coates
— Jennings og Mike England.
Gilzean
Forsala aðgöngumiða:
Reykjavík: Við Útvegsbankann í dag (þriðjudag) klukkan 1.30—4.30 Laugardal frá kl. 4.
Keflavík: Verzlunin Sportvík.
Verð aðgöngumiða:
Stúka 200,00 krónur
Stæði 150,00 krónur
Böm 50,00 krónur
Í.B.K.