Vísir - 27.10.1971, Page 2
TINA TURNER:
??
MEST KYNÆSANDI
KONA í HEIMI“
MOSKYU -
LÍNAN
Stúlkurnar hér að ofan eru sov-
ézkar sýningarstúlkur, og eru
þarna að sýna nýju línuna frá
Mofikvu í tízkumálum.
E3ssrJ e.r annað að siá en að
sovézkar konur verði í vetur, sem
endranær, vel búnar undir að
mæta vetrinum, jafnt utan húss
sem innan.
Þessi leðurföt sem stúlkurnar
klæðast gefa a.m.k. ekkert eftir
fatnaði sem tízkuhúsin í París
og annars staðar hamast við að
kynna viðskiptavinum þessa haust
daga.
Hún er fjögurra barna
móðir, gift náunga sem
alla daga hrýtur á sitt
græna til klukkan fjögur
síðdegis, og söngur henn
ar er endalaus óður til ást
arinnar, og þegar hún
syngur, hlykkjast hennar
æsifagri kroppur eins og
felist tígrisdýr undir næf
urþunnum hispurskjóln-
um sem hún klæðist.
Tina Tumer heitir hún, og mað-
ur hennar, Ike, kallar hana „mestu
ástmey f heimi", og fólk f hljóm-
plötuiðnaði kallar hana „mest kyn
æsandi konu í heimi“. Hvað um
það, það verða alla vega að telj-
ast góð meðmæli með aðdráttar-
afli konunnar, þegar Mick Jagger
•••••••••••••••••••••••••
Heimsmet
í pípureykingum
ítalinn Giuseppe Manchini hef-
ur unnið heimsmeistaratitilinn í
pípureykingum. Tókst honum að
halda lifandi í einni pfpufyliingu
í tvær klukkustundir, 40 mfnútur
og 11 sekúndur.
Keppnin fór fram f bænum
Arona, en Manchini er frá borg-
inni Treviglio á Norður-Italfu.
Alls tóku þátt f heimsmeistara
keppninni 137 pípureykingamenn,
og þar af var talsverður fjöldi
kvenna.
Italinn Carlo Pavoni varð núm-
er tvö f keppninni.
Auk þátttakenda frá ítalfu
komu menn frá Sviss, Danmörku.
Frakklandi, Finnlandi, Júgóslavíu
og Póllandi til keppninnar.
73 ára ofurmenni
Læknir við Kalifornfuháskóla
heldur þvf fram að hann hafi kom-
izt á snoðir um tilvist 73 ára
gamals ofurmennis, sem hafi ár-
um saman farið eftir reglu um
lifnaðarhætti, sem hann sjálfur
setti saman í þeim tilgangi að
verða langlffur.
Þessi maður borðar aldrei
sjaldnar en 12 sinnum á dag og
hann hleypur 240 km á hverri
viku.
Dr. Jack Vilmore hefur rann-
sakað líkamlegt ástand þessa
manns, sem heitir Noel Johnson,
og segir hann að lfkamsburðir
hans séu eins og hjá táningi og
hjartað svo sterkt, að hann geti
auðveldlega hlaupið miluna á sex
og hálfri mfnútu.
Noel Johnson hefur ekki reykt
síðustu 20 árin, en hann borðar
aldrei sjaldnar en 12 sinnum á
dag, en aldrei mikið í einu og
sjaldan kjöt. Hann lætur það oft
eftir sér að drekka áfengi. „en
ég vil helzt borða grænmeti, svo
sem salatblöð, nokkrar sftrónu-
skífur, rúsínur eða döðlur".
hefur sagt um hana: „Konan sem
kenndi mér alit“.
Og Tina Turner syngur dag
hvern í bandarísku bílaborginni
Detroit. Hún hefur auk þess að
syngja á sviði næturklúbba, sung-
ið inn á margar plötur, heimsfræg
lög eins og „Working together",
sem er á samnefndri LP-hljóm-
skífu hennar, og svo albúmið
„Ike & Turner — Live in Paris“.
Þessl æsandi kona hefur lítt
ferðazt um heiminn, enn sem kom
ið er, en danskir ku nú reyna mik-
ið til aö fá hana norður hingað.
„Ástfangið fífl“
„A Fool in Love“ k^llast eitt-
hvert frægasta lagið sem Tina
þessi syngur, enda trónaði það
efst á amerfskum vinsældalistum
í heila sjö mánuði síðasta ár. Og
Tina lætur sér ekki nægja að
syngja þau lög sem samin eru
fyrir hana eina, heldur syngur
hún gamlar bítlalummur af þvílík
um innblæstri, að hár rísa á karl-
kyninu.
Þau Ike maöur hennar komu sér
upp sérstakri sýningu að fara
meö á næturklúbba, og varla nokk
ur lifandi sála 1 Detroit
slapp við að sjá æsandi, fáklædd-
an kropp Tinu á einhverju sviði,
eða heyra hana syngja „Let it be“
eftir McCartney.
Nú gengur orðrómur um að Tina
ætli að skilja við letingjann Ike.
Bönnuð í sautján löndum
Tina Turner fæddist 26. nóvem-
ber 1939. Hún er einkar sjálfstæð
kona, enda vinnur hún ein fyrir
auði þeirra Ike og barna þeirra
fjögurra. Hún ekur sjálf um í sín-
um Mercedes, ræktar sjálf græn-
meti á bak við hús þeirra í Ingle-
wood í Kalifomíu, þar sem þau
búa oftast, og Mick Jagger segir
að Tina hafi kennt sér hinar sér- j
stæðu lendasveiflur er hann við-
hefur er hann syngur á sviði.
Þau Tina og Mick Jagger hafa
bæði komið fram í kvikmynd, en
það var leikur og klæðaburður
Tinu í myndinni „Gimme Shelter"
sem orsakaði það, að kvikmynda-
eftirlit í sautján löndum settu
myndina á bannlistann hjá sér.
„Mér finnst sjálfri", segir Tina,
„þegar ég treð upp og syng að
nú gangi ég of langt og þá langar
mig mest til að stökkva burtu,
en það get ég ekki. Maður getur
víst ekki stoppað, þegar tnaður
sjálfur vill — eða er það?“
Tina Turner syngur bara. En hUn syngur þannlg og klæðir slg
þannig, að mynd sem hún kom fram í, var bönnuð í 17 löndum.