Vísir - 27.10.1971, Blaðsíða 3
*.I S I R . Miðvikudagur 27. október 197i.
.34
I MORGUN UTLÖNDI MORGUN UTLÖND f MORGUN UTLÖND í MORGUN UTLÖND
300 konur eru sugður
írsku lýðveldishemum
Æ
I
Þrjár i sjúkrahúsi með skotsár — tvær fá
langa fangelsisdóma, auk systranna, sem
féllu um helgina
Að minnsta kosti 300
konur hafa gengið í hinn ó-
löglega lýðveldisher í N-
Spasski fær ekkert lamb að
leika við
írlandi, og stjórnvöld segj
ast ekki efast um, að marg
ar kvennanna séu í
fremmstu víglfnu í barátt-
unni við hermenn og lög-
reglu.
Brezki herinn heldur því fram,
að systumar, sem þeir skutu til
bana um síðustu helgi, hafi verið
í bifreið, sem skotið hafi verið úr
á hermennina.
Þrjár aðrar konur liggja á sjúkra
húsi I Belfast með skotsár eftir að
hermenn höfðu skotið á flokka
skæruliða í borginni.
Tvær konur voru fyrir skömmu
dæmdar til langrar fengelsisvist-
ar, önnur I tólf ár, fyrír að hafa
komið fyrir sprengjum.
Lýðveldisherinn viðurkennir, að
konur hafi verið í því, sem hann
kallar starfseiningar, en lýðveldis-
menn leggja áherzlu á að þetta sé
engin nýlunda. Konur hafi alla tíö
barizt við hið karla gegn brezka
hernum.
Sprengjur sprungu við heimili
nfu lögregluþjóna í Belfast í nótt
að sögn brezka hersins. Kona særð
■
i Mary Ellen Meehan 30 ára, féll
fyrir kúlum Breta ..,
ist. Margar rúður brotnuðu og
hurðý- fuku af hjörunum. Allar
urðu '’sprengmgarnar um tvöleytið
að staöartíma.
Seint í gærkvöldi $ærðust
þrettán manns, þar af tveir aivar-
lega, þegar sprengja sprakk við
lögreglustöð 32 kílómetra frá Bel-
fast.
Eftir að brezku hermennirnir
felldu systurnar tvær um helgina,
lýsti lýðveldisherinn yfir því, aö
Umsjón Haukur Helgason
.. .ásamt systur sinni Dorothy
Maguire, 19 ára.
hann mundi hefna sín grimmllega á
brezka hernum. Um það leyti lýsti
Edward Kennedy öldungadeildar-
þingmaður yfir stuðningi sínum við
málstaö lýðveldissinna á Norður-
íflandi.
„Me<Ti ósigurinn“, segir Hump-
hrey.
íMinnka Banda
i ríkin nú fram-
lag til S.Þ.?
William Rogers utanríkisráö-
herra Bandaríkjanna segir að brott
vísun Formósu séu mikil mistök
se:., muni valda samtökum Samein
uðu þjóðanna tjóni og minnka fylgi
bandarísku þjóðarinnar við samtök
in. Hann gaf í skyn að ríkisstjórn
in mundi hugsanlega styðja tiliögur
á þingi um minnkun framlaga
Bandaríkjanna við Sameinuðu þjóð
irnar.
Margir bandarískir áhrifamenn
bar á meðal Hubert Humphrey
kalla úrslitin við atkvæöagreiðsl-
una í fyrri nótt mesta ósigur
Bandaríkjanna í sögu samtakanna.
Fischer búinn að
sigra Petrosjan
Vann þá niundu lika
Bandaríkj amaðurinn
Bobby Fischer hefur nú
sigrað í einvíginu við Tigr
an Petrosjan frá Sovétríkj
unum og tryggt sér rétt-
indi til að mæta heims-
meistaranum, Sovétmann-
inum Spasski, næsta ár. —
Fischer vann níundu skák-
ina í gær.
Með því hefur Fischer tryggt sér
BÓLUSETNING
VIÐ SYKURSÝKI?
Nýjar rannsóknir á orsökum syk
irsýki hafa skapað niöguleika til að
finna bóluefni við siúkdómnum. —
Þetta segja brezkir læknar, sem
teija að sjúkdómurinn sé oft og tíð-
um í sambandi við vírussýkingu.
Yfirleitt hefur verið litið svo á
að sykursýki komi fram þegar fram
leiðsla líkamans á insúlíni fari úr
skorðum. Enda þótti orsakanna
hafi verið leitað í hálfa öld, hefur
enn ekki tekizt að finna þær.
Nú telja brezkir læknar, sem
hafa rannsakaö sykursýki um langt
skeið að rannsóknir þeirra bendi
til þess, að sykursýki kunni að
stafa af vírus, svonefndum coksa-
ckie-vírus. Þessi vírus valdi truflun
á framleiðslu kirtla á insúlíni.
Sé svo ætti að vera unnt að
finna bóluefni innan tíðar.
jsex og hálfan vinning, en Petros-
jan hefur aðeins tvo og hálfan. —
Þetta er fjórði vinningur Fischers í
röð. Eftir fimm skákir voru þeir
jafnir með tvo og hálfan hvor, en
síðan hefur Fischer unnið fjórar
skákir.
Petrosjan var heimsmeistari frá
1963 til 1969. Hann er sagður
hafa ætlað sér að duga eða drep-
ast í skákinni í gær. Petrosjan
tefldi af hörku til vinnings, en
Fischer varðist áhlaupinu.
Áhorfendur í þéttskipuöu San
Marino-leikhúsinu í Buenos Aires
klöppuðu Fistíher lof £ lófa, þegar
Petrosjan gaf skákina eftir 46 leiki.
Fischer hafði hvítt og lék e2—e4
sem hann oftast gerir, en Petrosjan
svaraði með franskri vörn.
Þegar Rússinn gaf skákina,
hafði hann aðeins peö og biskup, en
Fischer hafði fimm peð og eitt
þeirra var að verða drottning.
Fischer er 28 ára, en Petrosjan
14 árum eldri.
Sovétmenn hafa ráöið löigum og
lofum í skákheiminum nær allt frá
stríðslokum þar til nú, að Fischer
skákar veldi þeirra.
Enn hefur ekki verið ákveðið
hvar emvígi þeirra Fisohers og
Spasskis um heimsmeistaratitilinn
skuli fara fram. - ... . -
BRETAR ENN
Á MÓTI EBE
Atkvæðagreiðsla á morgun
Úrslit skoðanakönnunar, sem
voru birt 1 London í morgun, sýna
að 49 af hverjum 100 eru andvíg-
ir aðild aö Efnahagsbandalaginu, en
30 af 100 eru henni fylgjandi.
21 af hverjum 100 er enn óákveð
•inn.
Skoðanakönnunin er gerð af
Harrisstofnuninni og hún sýmir
þrátt fyrir adstöðu almennings, að
fólk telur að Bretland muni ganga
í bandalagið.
Atkvcoðagreiðsla á þinginu á að
vera á morgun, og er töluverð
„spenna“ og óvissa um úrslit.
Aftur reynt
að fá tveggja-
Kína-lausn
Útvarpiö í Peking spáði því í
| morgun, að Bandaríkin og Japan
mundu enn á ný reyna að fá fram
I gengt svokallaðri tveggja Kína
lausn í Sameinuðu bjóóunum. Var
sagt, að stjórn Kína mundj vera
á verði gagnvart slíkum tilraunum.
| Ósigur Bandaríkjamanna og Jap
, ana á Allsherjarþinginu í fyrrinótt
i hefði sýnt að heimurinn óskaði eft
ir því að Kína yrði með i Samein-
iuðu þjóðunum, segir útvarpið. Þó
hafi nokkur riki verið því andvíg,
en þau lúti stjórn ríkisstjórna
Bandaríkjanna og Japans.
í meira en tuttugu ár hafi ba::da
rískar ríkisstjómir gert sitt ítr-
asta til að haida Kína utan Sam-
einuðu þióðanna. Útvarpið segir að
Nixon hafi rii«ð mörgum rfkis-
stjórnum bréf til að reyna að afla
fyigis fyrir tveggja-Kína-lausn, það
er að viðurkennd verði tvö ldnversk
ríki.