Vísir - 27.10.1971, Qupperneq 7
V ISI R . Mióvikudagur 27. október 1971.
7
cTWenningarmál
Gunnar Gunnarsson skrifar um kvikmyndir:
Af snillingi gert
Háskólabíó
Lftlendingurinn jrk'k'k
teikstjórn Luchino
Visconti
Framleiðandi: Dino de
Laurentiis
Aðalblutverk Marcello
Mastroianni
Myndin er gerð eftir sögu
Alberts Canius, Útlend-
ingnum“, sem til er í
islenzkri þýðingu.
„XJtlendingurinn" hlýtur að
hafa verið erfitt verk að kvik-
mynda. Og svo sem við er aö
búast af þeim gamla meistara,
Visconti, þá er mynd hans mik
ið lístaverk,
Kannski er þessi magn-
þrttngna saga Camus ekki leng
ur sérlega spennandi. Kannski
er beimspeki Camus bara eitt
hvað sam er liðtð sem kemur
okkur ekki beint við nú á
dögum. Skiptum okkur ekki af
þvi.
Andi Camus kemur svo ræki
lega til skila í þessari mynd
Viscontis, að aðdáunarvert er.
Kannski gamlir aðdáendur „Út-
lendingsins" sakni ögn að ekki
skuli meira gert úr samtali fang
ans við prestinn, er söguhetjan
bíður í dauðaklefanum eftir að
öxin sneiði hausinn frá öxlum,
en eiginlega skiptir það ekki
málj !i þessari kvikmynd.
Skrifstofumaöurinn Mersault,
er í góðum höndum hjá Mastroi
anni. Svo hæglátur, svo kæru-
iaus. svo utangátta og svo þessi
fjárans hiti, sem ætlar myndina
gegnum að bræða mann niður í
stólinn. Litimir, landslagsmynd-
irnar eru af snillingi gerðar, og
margar senur úr þessari rólegu
mynd gleymast seint.
Visconti stendur einn, óháður
og ósambærilegur við aðra kvik-
mynda'menn í listasögunni.
Sumir segja að hann hafi með
tímanum valdið vonbrigðum.
Það getur vel verið ég þekki
ekki a'ðrar myndir eftir hann en
„Hlébarðann". „Rocco og bræð
ur hans“, báðar gerðar um og
rétt eftir 1960, og svo þessa sem
Háskólabíó sýnir núna. sem er
ein nýjasta myndin hans, og ber
hún sannarlega ekki merki hnign
Visconti að filma.
unar þessa ítalska kvikmynda-
garps. Visconti er orðinn 65
ára að aldri, og var kominn
undir fertugt- er hann sneri sér
að kvikmyndinni en var áður
listagagnrýnandi.
Jafnframt kvikmyndaleikstjórn,
hefur hann unnið mikið að svið
setningu fyrir leikhús.
★★★★★ Frábær
★★★★ Ágæt
★★★ Góð
★★ Heldur slök
★ Léleg •' .
• Afleit
Meiningin er að gera það að
reglu aö veita mvndunum ein-
kunn Geta menn þá haft það
nokkuð til viömiðunar, hvort
þeir eigi að sjá fimmstjörnu
myndir eða einnar — þ. e. a.
s. enginn ætti að taka kvik-
myndagagnrýni á borö við þá
sem undirritaður iðkar mjög al-
varlega. Smekkur hvers manns
hlýtur að ráða, en ég vona baral
að minn smekkur liggi okki svo'
víðsfjarri smekk annarra manna,
að flestir geti ekki stuðzt viö
þessi skrif að einhverju marki.
Aðstoðarfram-
kvæmdastjóri
Kísiliðjan hf. við Mývatn óskar að ráða að-
stoðarframkvæmdastjóra við verksmiðju fé*
lagsins. Áskilin er sérþekking í fjármálaleg-
um rekstri fyrirtækja.
Umsóknir, er tilgreini menntun og starfs-
reynslu, sendist formanni stjórnar Kísiliðj-
unnar, Magnusi Jónssyni, bankastjóra, Eini-
mel 9, íydr 5. nóvember n.k.
” í uppliafi skyldi
endirinn skoöa”
SBS.ÍUT.BÍK. I
Stjórn styrkfarsjóðs
ísleifs Jakobssonar
auglýsir hér með eftir umsóknum um styrki
úr sjóðnum.
Tilgangur sjóðsins er að styrkja iðnaðarmenn
til að fullnuma sig erlendis í iðn sinni.
Umsóknir ber því að leggja inn á skrifstofu
Landssambands iðnaðarmanna, Lækjargötu
12 fyrir 15. nóvember n. k. ásamt sveinsbréfi
í löggiltri iðngrein og uppl- um fyrirhugað
framhaldsnám.
Sjóðstjórnin.
Óskum eftir stúlku
til afgreiðslustarfa. — Vaktavinna. — Uppl-
frá kl. 15—18 í dag og á morgun.
Söebechsverzlun, Búðargerði
KEFLAVÍK
Vantar blaðburðarbörn í Keflavík.
VÍSIR
Upplýsingar í afgreiðslunni. — Sími 1349.
ISLENZKANIÐNAÐ
VELJUMISLENZKT
Þakventlar
Kjöljárn JfgL
m
•:•:•:•
m
m
.W.‘
Kantjám
•:•:•:?
ÞAKRENNUR
.V.V.'AV.V.V.’.V.V.
mmtmm
v.v.v.