Vísir - 27.10.1971, Page 8
ö
V í S I R . Miðvikudagur 27. október 1971,
ísm
Ut^efandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jói»*s Kristiánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjómarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Bröttugötu 3b. Simar 15610, 11660
Afgiv.^la: Bröttugötu 3b. Sími 11660
Ritstjórn: Laugavegi 178. Sími 11660 (5 linur)
Áskriftargjald kr. 195 á mánuöi innanlands
í lausasölu kr. 12.00 eintakið.
Prentsmiðja Vísis — Edda hf.
Beinlausu nefin
Eftir stjórnarmyndunina var það almennt álit manna,
að forustumenn Framsóknarflokksins hefðu samið af
sér gagnvart forustumönnum Alþýðubandalagsins.
Öll atvinnumál þjóðarinnar, nema landbúnaðarmálin
féllu í hlut ráðherra Alþýðubandalagsins. Og mál-
efnasamningur stjórnarinnar reyndist að verulegu
leyti vera uppskrift úr stefnu Alþýðubandalagsins.
Þetta veiklyndi forustumanna Framsóknarflokks-
ins var skýrt á þann hátt, að flokkurinn yrði að fórna
töluverðu til að ná því langþráða marki að komast í
ríkisstjórn, ekki sízt þar sem flokkurinn hafði tapað
fylgi og einum þingmanni í kosningunum. Þegar
menn eru þannig úti í kuldanum og á undanhaldi, eru
þeir vitanlega mun meðfærilegri en ella.
Líklega hafa forystumenn Framsóknarflokksins
talið sig menn til að halda forustumönnum Alþýðu-
bandalagsins í skefjum í samstarfinu. En hinir síðar-
nefndu hafa haldið vel þeim undirtökum, sem þeir
náðu í upphafi- Þeir hafa ráðið ferðinni og haft ráð-
herra Framsóknarflokksins í eftirdragi.
Ríkisstjórnin hefur tekið upp stefnu Magnúsar
Kjartanssonar í Formósumálinu á vettvangi Samein-
uðu þjóðanna og á öll hinn vafasama heiður af því
að hafa tekið þátt í brottrekstri Formósuúrsamtökun-
um. Þótt ráðherrar Framsóknarflokksins hafi slegið
úr og í, þegar þeir hafa verið spurðir um hugsanlega
brottför varnarliðsins, þá verður það æ ljósara, að
ríkisstjórnin stefnir raunverulega að brottför þess,
undir leiðsögn Alþýðubandalagsráðherranna.
Utanríkisráðherra Framsóknarflokksins er mesta
fórnardýr undirtaka Alþýðubandalagsins. Hann hef-
ur nú orðið að sæta því, að tveir fyrrverandi ritstjór-
ar Þjóðviljans séu skipaðir til að halda í höndina á
honum í varnar- og öryggismálum landsins. Áður var
þess jafnan gætt, þótt vinstri stjómir sætu að völd-
um, að slíkum væri haldið utan við öryggismálin.
Alþýðu manna hefur að vonum orðið hverft við
þessi tíðindi. Menn láta ekki róast, þótt utanríkis-
ráðherra taki fram, að hann sé utanríkisráð'herra
þrátt fyrir allt. Menn láta heldur ekki róast, þótt
herflug og hersiglingar Sovétríkjanna við strendur
íslands hafi skyndilega lagzt niður við tilkomu hinn-
ar nýju íslenzku ríkisstjófnar. Og allra sízt róast
menn, er sovézk blöð segja okkur, að rússneski björn-
inn sé bara sætur bangsi, sem ekkert muni gera, þótt
varnarliðið fari.
Utanríkisráðherra hefur skýrt frá því, að hann
muni ekki segja af séi vegna þessa. En það má hon-
um eins og öðrum vera ljóst, að hann og flokksbræð-
ur hans í ríkisstjórninni hafa ekki staðizt ráðherrum
Albýðubar.dalagsins snúning. Stefnuföstu og sterku
mennirnir í stjórninni eru Lúðvík og Magnús Kjart-
ansson. Framsóknarmennirnir hafa hvorki bein í nef-
inu né pólitíska leikni til að ráða við þá-
lögregiuliðið á
glæpamönnum?
Nær allt
mála hjá
Spilltur lögregluþjónn, sem
jók mútutekjur sínar úr 4000
krónum upp í nærri 100 þús-
und á mánuði, segir: „Ég hef
aðeins þekkt einn óeinkennis-
búinn lögregluþjón (rann-
sóknarlögregluþjón), er ekki
þáði mútur. William Philips
sagði frá drjúgum tekjum
ferðargötum eða gangstéttum,
meðan byggt er, og í öðru lagi
eigi lögregluþjónar það tíl að á-
kæra verktaka um hvers konar
misferli, ef hann greiðir ekki
„venjulegar“ mútur. Það er á-
ætlað, aö mútur frá verktökum
kunni að nema upp að 100
milljónum króna á ári í New
York.
Aðalvitni rannsóknarnefndarinnar, hinn spillti lögregluþjónn
Williams Phillips.
sínum og annarra lögreglu-
þjóna af mútum, sem þeir
þágu frá spilavítum, vændis-
húsum, börum og veitinga-
húsum og löglegum og ólög-
legum byggingarverktökum.
100 milljónir á ári frá
verktökum
Phillips kom fyrir rannsókn-
arnefnd í New York borg, sem
um þessar mundir er aö fletta
ofan af spillingu innan lögreglu-
liðsins. Hann segir, að mútur í
svertingjahverfinu Harlem, þar
sem margt ólöglegt fer fram,
muni nema um 70 þúsund doll-
urum (rúmum sex milljónum
króna) á mánuði. Þessar greiðsl-
ur fara oft til allra lögreglu-
þjóna í einstökum lögreglu-
stöðvum i hverfinu í sameiningu,
og þeir skipta síðan fengnum
milli sín.
Samkvæmt frásögn bygging-
arverktaka eins er algengt, að
verktakar greiði lögregluþjón-
um mútur til að koma' í veg fyr-
ir, að lögreglan hrelli pá. I
fyrsta lagj segir verktakinn að
það borgi sig betur aö rétta
lögregluþjóni smáupphæð en áö
þurfa að fara eftir ströngum á-
kvæðum byggingarsamþykkta til
dæmis um að loka ekki um-
Reglulegar „skattgreiðsl
ur“ til lögreglusveit-
anna
Áðurnefndur Phillips komst
í greipar rannsóknarnefndarinn-
ar vegna mistaka sinna. Varð
hann eftir það njósnari nefnd-
arinnar og hafð; segulbands-
tæki innan klæða. Hann tíund-
aði fyrir nefndinni, hvað rann-
sóknarlögregluþjónar hefðu 1
mútutekjur í einstökum hverf-
um borgarinnar. Tekjurnar eru
Umsjón: Haukur Heigason
víðast hvar reglulegar og inn-
heimtár á vissum fresti. eins
konar „skattur“ til lögreglu-
manna. Spurning: Er þetta eftir
því sem þér bezt vitið um alla
borgina. Svar: Já, svona var
þetta gert og svona er það enn
alla leið upp. Spurning: Vitlð
þér, hversu mikið er greitt í
mútur í einstökum hverfum?
Svar: Ég veit um 90% eða
85% af reglulegum greiðslum.
sem renna til lögreglusveita
víðs vegar um borgina. Spurn-
ing: Jæja, hverjar eru þessar
greiðslur V fyrsta hverfi á Man-
hattan? Svar: Greiðslur f
fyrsta hverff nema þúsund doll-
urum (88 þúsund krónum) á
hvern lögregluþjón á mánuði.
Spurning: Og i 3. hverfj £ miðri
Manhattan? Svar: 400 til 500
dollarar (um 35.000—44.000 kr.X
Spurning: í 4. hverfi? Svar:
Um 400 dalir. Spuming: í 5.
hverfi? Svar: Um 800 dollarar
á mánuði ... og svo framvegis.
Spuming: Hvað um lögreglu-
stjórana I einstökum hverfum?
Svar: Þeir hafa umboðsmenn,
sem taka við greiðslunum.
Njósnarinn stofnsetti
spilavíti
Phillips réðist f þjónustu
rannsóknarnefndarinnar og
njósnaði um félaga sína. Meðal
annars setti hann á fót fjár-
hættuspilavíti f miðju Manhatt-
anhverfi. Hann tók á leigu bar
í 58. götu. Lögreglumenn í hverf
inu, sem ekki vissu, hver hann
var, tilkynntu honum fljótlega,
að hann yrði að leggja rúmar
200 þúsund krónur á mánuði til
lögreglusveitarinnar í hverfinu,
ef hann ætti að fá að halda
hinu ólöglega spilav’iti áfram.
Phillips nafngreindi marga lög-
regluþjóna f vitnisburði sfnum.
Að öðru leyti voru tekin á seg-
ulbandsspólu fjölmörg samtöl
hans við lögreglumenn um mút-
ur °g „sambönd" þeirra, unz
það fréttist að lokum í liðinu,
að hann væri spæjari og hann
varö að hætta.
Samkvæmt frásögn Phillips
eru tekjur 424 rannsóknarlög-
reglumanna f New York af mút-
um ekki undir 350—400 milljón-
um króna á ári. Hann þykist geta
fullyrt um upphæðir vegna þess
fyrirkomulags, að ákveðnar
reglulegar greiðslur renni til
lögregluliðsins frá ýmiss konar
ólöglegri starfsemi og fara
greiðslumar eftir þvf, hver starf
semin er á nokkuð „stærðfræði-
legan“ og reglubundinn hátt.
„Ekki þverfótar fyrir
spæjurum” rannsóknar-
manna
Aöalráðunautur nefndarinnar
segir að frásögn Phillips muni
hafa við rök að styðjast og hún
sé í fullu samræmi við aðrar
heimildir. Margir njósnarar
nefndarinnar hafa starfað í lög-
regluliðinu að undanfömu, eins
og kemur fram í ummælum eins
háttsetts lögreglumanns á seg-
ulbandsspólunni, þegar hann
segir, að nú verði „ekki þverfót-
að fyrir spæjurum og maður
veit ekki, hverjum má treysta
lengur".
Patrick Murphy lögreglustjóri
vill ekki viðurkenna, að spill-
ingin keyri jafnmikið um þver-
bak og vitnisburður Phillips ber
vitni um. Murphy tók þátt í
veizlu lögregluþjóna fyrir
nokkrum dögum og hældi lög-
regluliðinu í heild sinni á hverr
reipi. Murphy hefur þó sjálfur
beitt sér fyrir athugun á spill-
ingu í lögreglunni, sem margt
hefur leitt f Ijós og valdið
gremju margra lögregluþ;óna
„Það er verið að sverta okkur“
segja margir lögregluþiónar.
„Þetta er bragð Lindsays borg-
arstióra til að fá hvllj kjósenda.
Réttarhöldin eru ekki einu sinni
höfð leynileg heldur fyrir opn-
um dyrum, til að Lindsay geti
grætt á uppistandinu".