Vísir - 27.10.1971, Side 13
V í S I R . Miðvikudagur 27. október 1971.
73
Verður opnunartími dagheimila lengdur?
„Viijum bæta þjónustuna
44
— Barnavinafélagib Sumargjöf vill lengja
opnunartima dagheimila vegna þeirra mæbra,
er vinnu sinnar vegna þurfa lengri opnunartima
T agt hefur verið til í félags-
málaráði, að opnunartími
dagheimila verði lengdur. — Nú
eru dagheimilin opin frá klukk-
an 8—5 á daginn. í tilmælum
frá Bamavinafélaginu Sumar-
gjöf er farið fram á fjárveitingu
til þess að hægt sé að hafa dag-
heimilin opin frá klukkan 7.30
á morgnana til klukkan 18.30
síðdegis. Gert er ráð fyrir, að
breytingin á opnunartíma verði
frá áramótum.
Bogi Sigurðsson framkvæmda
stjóri Sumargjafar sagði í við-
tali við Vísi, að það hefði komið
í ljós, að þörf væri á lengdum
opnunartíma. „Við gerðum könn
un hér meðal mæðra, sem eiga
börn á dagheimilunum, og það
kom f ljós, að þörf er á lengdum
opnunartíma.
Þó yrði ekkert barn lengur á
dagheimiiinu en 9 klukkustund-
ir í senn. Við viljum bæta þjön-
ustuna og því lagt til að vakt
verði höfð fyrir þær mæður, er
könnunin sýndi að þurfa að hafa
lengri opnunartíma vinnu sinnar
vegna“.
Bogi sagði, að það væri mikill
minnihlutr mæðra, sem eiga
böm á dagheimilum, sem teldu
sig þurfa lengri opnunartíma og
væru það helzt mæður, sem
ynnu í verzlunum.
Þegar væru frávik á opnunar-
tímanum þannig, að mæður geti
komið meö böm sín fyrir átta
og sótt þau eftir fimm á daginn
_ t . . .. f .
leikskólanna væri núna frá kl.
8—12 og frá kl. 13—17. Þó væri
höfð vakt á leikskólunum til kl.
12.30 og smáfrestur eftir fimm.
„Það er. ein á vakt til að skila
börnunum".
— Ég hef heyrt mæður kvarta
undan því, að starfsfólk liti þær
óhýru augá, ef það dregst að ná
„ í bornm a slaginu fimm t. d.?
— Er fyrirhuguð breyting" á .
„Það á ekki að vera Starfs-
opnunartíma leikskólanna?
„Ef breyting yrði á opnunar-
tíma leikskólanna yrði hún fal-
in í styttingu opnunartímans á
þá lund, að leikskólar yrðu ekkj
hafðir opnir á laugardögum. Það
skiptir öðru máli með leikskól-
ana en dagheimilin. Leikskól-
arnir eiga að vera fyrir alla og
nú er laugardagurinn alveg að
hverfa sem vinnudagur fólks, og
ef brevting verður á opnunar-
tímanum verður hann i þá átt,
að tíminn verður styttur".
Bogi sagði, að opnunartími
fólkið fær út á aukavakt annað
hvort borgun eða frí. Ég vona
að það sé ekki alvarlegt. Það
hefur verið reynt að útskýra
það fyrir starfsfólki aö það geta
komið tilfelli, þegar mæðurnar
geti ekki komið á réttum tíma.
Annars er viðmöt starfsfólks-
ins einstaklingsbundið. Einnig.
vill verða of mikill misbrestur
hjá sumum með áð ná í börn
sín og fólkið hjá okkur vill hafa
sinn vinnutíma eins og annað
fólk“. — SB
Nýtt dagheimili —
seinna skóladagheimili
TVTýtt dagheimili mun taka til
starfa í Reykjavík um ára-
mót. Er það við Selásblett og er
ætlað fyrir Árbæjarhverfið. —
Visir talaði við Svein Ragnars-
son félagsmálastjóra, sem sagði
að um lftið einbýlishús væri að
ræða.
„Við teljum að hagkvæmt sé
að reka þar dagheimili. Þrr er
góð lóð og húsið hentugt. Á að
reka þar dagheimili frá áramót-
um fyrir 15—20 börn og verður
þá fyrst og fremst um börn úr
Árbæjarhverfj að ræða. Síðar
þegar verður byggt dagheimili
þar, en við eigum næstu lóð,
sem á að vera undir dagheimili,
verður hægt að nota þetta hús
sem skóladagheimili en þaðan
eru ekki nema 100 metrar að
skóla". — SB
NÝTT!
FAIRLINE ELDHÚSIÐ
TRÉVERK FYRIR HÚS OG IBÚÐIR
Seljum FAIRLINE eldhús með og án tækja,
ennfremur fataskápa, inni- og útihurðir.
bf Hagkvæmt verð og greiðsluskilmálar.
jf Gerum teikningar og skipuleggjum eld-
hús og fataskápa og gerum fast bindandi
verðtilboð.
Komum í heimahús ef óskað er.
VERZLUNIN ÓÐINSTORG H.F.
BANKASTRÆTI9. — SÍMI 14275.
Járnsmiðir, vélstjórar
og aðstoðarmenn óskast.
Vélaverkstæði J. Hinriksson hf.
Skúlatúni 6. Sími 23520,
heimasími 35994.
Skrifstofumaður óskast
Rafveita Hafnarfjarðar óskar að ráða nú þeg-
ar reglusaman mann til bókhaldsstarfa.
Umsóknareyðublöð fást á afgreiðslu rafveit-
unnar.
Rafveita Hafnarf jarðar
SÍMASKRÁIN 1972
Simnotendur í Reykjavík, Seltjarnamesi,
Kópavogi, Garðahreppi og Hafnarfirði.
Vegna útgáfu nýrrar símaskrár eru símnot-
endur góðfúslega beðnir að senda breytingar
skriflega fyrir 1- nóv. n. k. til Bæjarsímans
auðkennt símaskráin.
Bæjarsíminn