Vísir - 03.01.1972, Side 1
iWwsNÍ^SiSBr aafi Á
f^^TBSPa tes* w.
áúfM Mklt
I JHr i ^
/F '*v-:'-
i >■«
, :::"
w
;. Mánudagur 3. janúar 1972. — 1. tbl.
■■■■■nBUMHÍ
fertd w',ídim’^^aÍS®^^w5»aá2í3j^
Bærinn að Ferjukoti
eins og á eyju
— mestu flóð sem menn muna i Borgarfirði
Hundruö þúsunda tjón varð
vegna flóða og vegaskemmda á
vestanverðu landinu um áramót
in. Tjónið varð mest í Borgar-
firðí. í neðanverðum Borgar-
firði urðu ein mestu flóð,
sem menn muna þar um slóðir.
Aðfaranótt gamiámsdags rigndi
mikið og var hiýtt og vatnavextir
á öllu landinu. Hvítá fiæddj yfir
bakika sína og lokaðist Vesturlands-
vegrtr fyrir vestan Ferjukot og á
Hvítárvöllum. Urðu bíiar að fara
upp Borgarfjörðinn til að komast
fyrir þann farartálma. Bjarnardalsá
flæddj yfir Vesturiandsveg í Dals-
mynni í Norðurárdal Rann fylling
frá brúnni þar og er ekki ijóst enn
hvort hún er löskuð. Töluvert skarð
kom þar í veginn, sem ekki er far-
ið að eiga við ennþá samkvæmt
upplýsingum Hjörleifs Ólafssonar
á Vegamálaskrifstofunni. Þá fór
fyiling á Vesturlandsvegi við
Reykjadalsá I Miðdölum, Dalasýslu.
í uppsveitum Borgarfjarðar sóp-
aðist vegurinn bunt fyrir neðan
Skorradalsvatn og stíflan í vatninu
bilaði. .* •
Þegar flóðið varö í Hvítá var
stórstraumsflæði og fyiiur I sjón-
um þannig. að vatnið náð; ekki
framrás
Hjörleifur Óiafsson sagði, að
vegaskemmdirnar hefðu valdið
ferðafólkj óþægindum en ekki
hafði hann frétt af hrakningum
vegna flóðanna. ,,Margt smátt gerir
eitt stó-rt', sagði Hjörleifur sem
segir tjón vegna flóðanna nema
hundruðum þúsunda
Lögreglan á Akranési sagð; að
ekkí hefði orðið vart teljandi ó-
þæginda vegna flóðanna nema
mjólkurflutningum frá Borgamesi
seinkaði á gamlársdag.
„Það er ekkert gaman í flóðum,"
sagð; Þórdís Fjeldsted húsfreyjan í
Ferjukoti í viðtali við Vísi í morg
un. ,,Húsið hér er gamalt og stend-
ur nærri ánni og vatnið rennur
inn í kjallarann. Við verðum hér
eins og á eyju en vatnið fellur
beggja megin við, og maður kemst
hvorki fram né aftur“.
Þórdís sagði, að einangrunin
hefði aðeins staðið yfir á gamlárs-
dag og fram á nýársdag ,,Þá kom-
ust bílar yfir. Þetta var óskaplega
mikið flóð“. Þórdís sagði að gert
hefð; verið við veginn í gærmorgun
oð umferða hafizt aftur með eðlileg
um hætti. Hún tók undir það, að
þetta flóð hefði verið með þeim
mestu, sem menn muna eftir í
Borgarfirðinum. — SB
Andrés og Siggi sixpensari í VISI
„Væ strákar — ég held svei
mér að gaman verðj að vera í
Vísi f framtíðinni" sagði hann
Andrés önd, er hann leit inn tdl
okkar hér í morgun að óska
gleðilegs nýárs — og viö tókum
hann á orðinu Geröum samning
við Drésa, og eftirleiðis verður
hann á hverjum degi í Vísi að
segja frá ævintýr-um sínum.
Allir þekkja nokkuö til And-
résar andar. Það var Ameríkan-
inn Walt Disney, sem skapaði
þessa heiðursönd ásamt meö
mörgum fleirj úrvalspersónum,
sem einnig skreyta Vfsi með
Andrési. Og Andrésar-mynda
sögur birtast nú um al.lan heim
! dagblöðum og vikuritum —
frá og með deginum í dag í Visi
líka.
Siggi sixpensari, einhver vlð-
frægasti Englendingur sem um
getur — gerði fræga ferð til ís-
lands um helgina Og við fórum
eins að við hann og Andrés —
buðum honum fastan sess í Vísi,
og viti menn! Kappinn sló til, og
ætlar eftirleiðis að reyta af sér
brandara fyrir Vísislesendur
Sigga þekkja aliir — þótt þeir
kannski vildu síður hafa hann
alla daga inni ! stássstofu Hon-
um lætur bezt að hanga framan
við sjónvarpið með bjórgias i
hendi, hafandi stærðar vindil f
trantinum og lappimar uppi á
sófaborðj og sixpensarann dreg-
inn niður á nef — ef hann
stendur þá ekki fyrir slagsmá'l-
um úti á næstu krá ...
Englendingar kalla Sigga
.,Andy Capp“, en það er einhver
fyndnastj og frægasti teifcnari
Englands, sem skapað; hann,
Reginald Smythe. Siggi hóf feril
sinn í því fræga, enska dagblaði
Daily Mirror. eftir strið en nú
kemur hann daglega víða við —
þar á meðal í Vísi.
SJÓNVARPSÞÁTTUR KOM
í Vie FYRIR STÓRSl YS
— lögreglan rannsakar sprenginguna á Laugateigi
Geysimikil sprenging
kvað við á Laugateigi á
gamlárskvöld, svo að
gatan nötraði og hús-
hristust eins og í jarð-
skjálfta. Brotnuðu um
40 rúður í gluggum 8
nærliggjandi húsa.
„Við 'hjónin sátum inni f stofu
að hortfa á sjónvarpið, þegar
þessi ósköp dundu ytfir, og héld
um við fyrst, að húsið væri að
hrynja“, sagði Eyjóltfúr Þor-
steinsson, húsasmiíðameistari. er
býr aö Laugateigi 34.
„Þegar ég kom út og sá gap-
andi gluggana í húsi Sigurðar
Markans, nágranna mfns, hélt ég
fyrst, að það hetfði orðið spreng
ing innanhúss hjá honum“.
„Við lágum bæði hjónin í in-
flúensu, þegar þetta kom ... já,
eins og þruma úr heiðskiru
lofti'S sagði Siigurður Markan
að Laugaiteigi 28.
1 fyrstu áttaöi fólk sig efcki
á því, hvaða hætta hatfði vofiað
yfir því. Sprengihvellum er fólk
ekki óvant á gamlársikvöld, en
þessi þórduna var svo mikil, að
fólk var meira undrandi en
hrætt, þegar hún reið ytfir.
,^em betur fer var enginn á
ferli á götunni, þegar þetta gerð
ist — sennilega allir inni að
horfa á sjónvarpið — ©Ua hefði
hlotizt af stórsilys og Hklega
mannsbani", sagði Haukur
Bjarnason rannsóknarlögreglu-
maður, sem hefur með hendi
rannsókn á sprengingunni.
Á móts við hús nr. 28 fannst
í götunoi hola, sem komið hafði
í malbikið við sprenginguna. —
Út frá hennd lágu sprungur í mal
bikinu. — Greinileigt er á öilu,
að þarna hefur verið notað öfl-
ugt sprengiefni á borð við dína
miít, en ekkert spor hefur fund
izt, sem bent gæti til þess, hver
þama hefur verið að verki
Sprengingin varð um kl. 23.30,
en þá var suðaustan vindur, og
horfði til Vandræða hjá þvf fólki
þar sem rúður höfðu brotnað úr
gluggum og vindurinn næddi
inn.
„Ég átti eitthvað af plasti, er
hasgt var að setja fyrir glugga
og lögregian kom með eina 100
fermetra til viðbótar frá borg-
inni“, sagði Eyjó'lfur Þo.rsteins
son, húsasmíðameistari.
Nágrannar hjálpuðust að við að
setja fyrir rúðulausa gluggana
undir leiðsögn Eyjölfs og flleiri
iaghentna manna. — „Við vor-
um að til Mukkan langt gengin
í þrjú um nóttina“, sagði Eyj-
ólfur.
Heimilistryggingar bæta ekki
fólkinu við Laugateig tjón
þess — nema þeirra, sem keypt
hafa sér glertryggingar sérstak-
lega. Ef hins vegar hefðist uppi
á sprengjuvaldinum og hann
kynni að reynast unglingur, væri
hugsanlegt að heimi'listrygging
foreldra hans eða þeirra mimdi
bæta tjónið. — GP
Hásetanum tryggð 8 þúsund króna hækkun
— bátaflotinn stóðvast ekki
Eyjólfur Þorsteinsson, húsasmíðameistari við hús sitt, en þar
brotnuðu flestallar rúður sem snúa að götunni. Ljosm. BB.
■ Samningar tókust milli út
gerðarmanna og undir- og yf
irmanna á bátaflotanum á
gamlársdag, eftir að sátta-
fundur hafði staðið samfellt
talsvert á annan sólarhring.
Það kemur því ekki til neinn
ar stöðvunar bátaflotans, en
eins og skýrt hefur verið frá
samþykktu útgerðarmenn á
fundi á sínum tíma, að láta
bátana ekki hefja róðra, fyrr
en þessir samningar lægju
fyrir.
Að því er Jón Sigurðsson, for- j
maður Sjómannafélags Reykjavíkur
sagði í viðtali við Visi í morgun
eru mikilvægustu atriöi þessara
nýju samninga, að kauptrygging há
seta hækkar nú í um 28 þús. kr.
með fatapeningum eða í rúm 30
þús. með vísitöluálagi, sem nú er
8.37%. Áður var þessi upphæð um
22 þús. kr. Þá eru ákvæði um það,
að nýtt tryggingartímabil skuli hefj
ast, þegar bátar taka upp línu á
vetrarvertfð og hefja róðra með
net. Áður kom það oft fyrir, að
léleg Mnuvertíð rýrði þann hlut, sem
siómenn hefðu ellegar haft á neta-
veiðum.
Ingólfur Stefánsson hjá^ Far-
manna- og fiskimannasambandinu
sagðj Vísi, að grunnkaupstrygging
sfcipstjóra og 1. stýrimanns hækk-
aði nú í 34.772 kr. 1. vélstjóra í
39.120 kr. og 2 stýrimanns og 2.
vélstjóra í 32.600. Ofian á þetta
bætist nú vísitalan 8.37%.
Þá var sú breyting gerð á trygg-
ingamálum bátasjómanna, að slas-
ist þeir á fyrstu dögum ráðningar-
tíma fá þeir greidd laun í hálfan
mánuð. Eftir hálfa mánuðinn fá
þeir aðeins greidd laun eftir raun-
verulegum vinnutíma um borð. þar
til þeir hafa unnið 2 mánuði, þegar
þeir fá aukalega greitt.
Þetta samkomulag verður vænt-
anlega ekkj lagt fyrir félagsfundi
fyrr en nýtt fisfcverö hefur verið
ákveðið, væntanlega í þessari viku.
- VJ