Vísir - 05.02.1972, Síða 3

Vísir - 05.02.1972, Síða 3
VÍSIR. Laugardagur 5. febrdar 1972. 3 Málarinn hvíldi sig á penslinum — og tók til við pennann — út kom barnaleikritið Glókollur „Mér fannst afskaplega gaman að skrifa þetta leikrit eftir ævintýrinu um Glókoll — við vorum i fimm mánuði i Suður-Frakklandi fyrir þremur árum, og þá greip mig allt i einu löngun til að skrifa leik upp úr þessu ævintýri”, sagði Magnús A. Arnason, listmálari og myndhöggvari, en hann er höfundur næsta barnaleikrits, sem Þjóðleik- húsiö frumsýnir 20. febrúar nk. Kona hans, Barbara Arnason listakona, gerði tjöld- in við leikritiö — en skrifaði það ekki — eins og misritaðist i Visi i gær. ,,Ég hafði svo gaman af að skrifa þetta — mér stóð þá alveg á sama um, hvort það yrði sýnt eða ekki — greip pennan- af þvi ég hafði ekki annað að gera þá stundina”, Glókollur er leikrit af fullri sýningarlengd, tekur um tvo tima að sýna, og undirleik annast fimm manna hljóm- sveit og kór. Magnús A. Arnason samdi sjálfur tónlistina við leikritið, og ballettmeistari Þjóðieik- hússins, ungur Búlgari, Vasil Tinterov að nafni, samdi ballett við þá tónlist. Ekki kvaðst Magnús hafa uppi áform um að skrifa fleiri leik- rit, ,,ég veit ekkert, hvað ég tek mér fyrir hendur i fram- tiðinni, en þetta hefur verið sérlega ánægjulegt. Og sam- vinnan verið mjög góð við leikstjórann, Benedikt Arna- son”. — GG. Hver ber ábyrgðina? Prófmál vegna inn- brots í bílasölu? ,,Ég held, að það hafi bara aldrei reynt á þetta fyrr, og þess vegna getur þetta orðið nokkurs konar prófmál”, sagði Ólafur B. Thors deildarstjóri hjá Almenn- um tryggingum i samtali við Visi. Umrætt mál er innbrotið i Bila- söluna Höfðatúni sem Visir skýrði frá fyrir stuttu. Þjófurinn brauzt inn, stal bil- lyklum og greip siðan farkostinn, sem stóð fyrir utan. Starfsmaður hjá öðru tryggingafélagi vildi hins vegar fullyrða að Bilasalan væri ábyrg, þar sem hún geymdi lyklana. Ólafur sagði, að fyrir nokkrum árum hefði verið brotizt inn i bila- verkstæði. Billyklum stolið og siðan bilnum sjálfum, sem þar var inni til viðgerðar. Þá hefði verkstæðið verið dæmt til að greiða skaðann. Svo væri bara eftir að vita, hvort það sama gilti um bilasölur, sem yrðu fyrir ásókn þjófa. En það mætti búast við, að tryggingafélögin væru litt áfjáð i að tryggja bílasölurnar gegn svona óhöppum. Tryggingafélögin virðast vera á öndverðum meiði i þessu máli, og veröur fróðlegt að fylgjast með framhaldinu. — SG. Læknar vilja opinbera rannsókn Eiturlyf jaákærurnar á læknastéttina hafa orðið til þess að Læknafélag Reykjavikur og Læknafélag Islands hafa óskað eftir opinberri rannsókn á ummælunum i fjölmiðlum að undanförnu. Hefur verið látið liggja að þvi, að ákveðnir. ónafngreindir iæknar, hafi sýnt misferli i starfi við ávisanir þeirra á ávana og fiknilyf. Saksóknari rikisins mun nú hafa fengið beiöni læknanna til meðferðar og mun á næstunni taka afstöðu til hennar. FLUGFREYJUDRAUMURINN: ÁHUGINN VAKNAÐUR jr AÐ NYJU Flugfreyjustarfið virðisl nú aftur vera orðið mjög eftir- sóknarvert meðal ungra meyja. Bæði flugfélögin auglýstu eftir flugfrcyjum ekki alls fyrir löngu og bárust þrisvar sinnum fleiri umsóknir en hægt var að sinna. Flugfélagiö þurfti að ráða 20-25 flugfreyjur og bárust 107 umsóknir. Loftleiðir þurftu á 05 að halda og fengu 200 umsóknir. P’yrir nokkrum árum var nokkur tregða i umsóknum um flugfreyjustörf en greinilegt er að nú hefur áhuginn vaknað aftur. _ cr. Eitrið í kring- um okkur eykst íslenzkur kokkteill vann silfur í Tokíó Annar barmeistaranna á Hotel Loftleiðum, Bjarni Guðjónsson gerði góða ferð alla leiðina til Tókió i Japan nýlega. Hann héít þangað með kokkteilinn sinn, Bahamas Special, og fékk að launum silfurverðlaun á 21. þingi albióðafélagskapar barþjóna. Sigurvegarinn kom frá Noregi. Virðast frændþjóðirnar þvi vel að sér i faginu. Sjaldan annað eins byggt i Hafnarfirði Núna um áramótin voru i smiðum 415 ibúðir i Hafnarfirði að sögn Friðþjófs Sigurðssonar, byggingafulltrfúa. 1 fyrra var verið að smiða 566 ibúöir þar syðra, þar af var lokið við 151 ibúð. Samkvæmt skýrslunni hefur aðeins einu sinni áður verið svo mikið um að vera I bygginga- iönaðinum i bænum, það var 1957. Eins og kunnugt er, er þaö Hafnarfjörður, sem bólgnar einna mest út þessi árin hvað ibúafjöldann áhrærir. Er skammt i þaö, aö Hafnarfjörður fari fram úr Kópavogi i þessu tilliti. Áfengisbölið rætt á ráðstefnu Um næstu helgi, dagana 5. og 6. febrúar, munu heilbrigöis- og tryggingaráðuneytiö, Félags- stofnun Reykjavikurborgar og Landssambandið gegn áfengis- bölinu gangast fyrir ráðstefnu um áfengismál. Ætlunin er, að þarna verði rætt á breiðum grundvelli, en umræður snúist um tvo megin- þætti: Fyrirbyggjandi aðgerðir, s.s. fræðslu, félagsleg störf og löggjöf, og svo i öðru lagi um drykkjusýki, lækningu og endur- næiingu drykkjusjúkra. Fram- sögumenn verða fjórir, en að erindum þeirra loknum verður starfað i umræðuhópum. Gúmmitékkafé til hjarta- verndar — Ásbjörn opnar veskið Tvær stórgjafir, sem heilbrigöis- og tryggingamálará herra breyta mjög aðstöðunni hjá þeim, sem berjast á sviöi hjarta- varna. Seðlabankinn gaf 1.5 millj. króna úr tékkasjóði, en það eru sektir, sem menn hafa orðiö aö inna af hendi vegna innistæðulausra ávisana. Þá gaf Asbjörn Olafsson 1.5 millji-, en féö er úr minmngar- sjóði Vigdisar Ketilsdóttur og Ólafs Asbjarnarsonar. Fenu skal variö til að kaupa tækjabúnaö, til að gera mögulegar opnar skurðaögerðir á hjarta hér á landi. Nýr ritstjóri Faxa 1 rúm 30 ár hefur Málfundafélagiö Faxi I Keflavik gefið út mánaðar- blaðið Faxa, -fréttir greinar og ýmislegt sem varðar Suöurnesja- búa öörum fremur. Allan þennan tima hefur Hallgrimur Th. Björnsson, yfirkennari, séðum að blaðið hefur birzt kaupendum reglulega þann 20. hvers mán. Nú hefur Hallgrimur látið af rit- stjórninni, en við tekur yngri maður, Magnús Gislason úr Garðinum. t siðasta blaöi eru Hallgrimi þökkuð óeigingjörn störf fyrir blaöið, en hinn nýji rit- stjóri boðinn velkominn til starfa. Það er kannski huggun að vita það, að eiturefnamagn i ýmsum fiskuin og dýrum i sjó hér við land cr þó svipað og hefur fundizt i sýnum.teknum fráöðrum hlutum Atlantshafsins. I Auslur—Græn- landsstrauminum hefur hins veg- ar fundizt mcsta magn eiturefnis i svifþörungum úthafa. Ný rannsókn segir, að loftstraumur frá iðnvæddum meginlöndum hafi aukið magn eiturefna i Atlantshafinu. Visi barst frétt frá Hafrann- sóknastofnunni, þar sem segir frá samvinnu stofnunarinnar við bandarisku haffræðistofnunina við könnun á magni ýmissa lif- rænna og ólifrænna eiturefna i Atlantshafi og lifverum þess. Þessi samvinna komst á sl. haust. Þá kom hingað dr. Harvey frá hafrannsóknastofnunni banda- risku, og ásamt islenzkum visindamönnum safnaði hann sýnum af sjávarlifverum út af Vestfjörðum i leiðangri rann- sóknaskipsins Bjarna Sæmunds- sonar. Dr. Harvey vinnur að rann- sóknum á D.D.T. og P.C.B., en næsta litlar upplýsingar hafa verið til um magn þessara efna i lifverum og fiskum úthafa, þvi að athygli visindamanna hefur fram að þessu einkum beinzt að inn- höfum og strandhöfum megin- landa. I greinargerð doktorsins, sem hann sendi Hafrannsóknastofn uninni, segir m.a., að magn eilur- efna i fiskum og dýrum hér við land sé stórum minna en finnst t.d. i Eystrasalti, sem er orðið all- mengað. Auk þess, sem rann sökuð voru sýni sjávarlifs hér við land, var einnig mælt magn D.D.T. og P.C.B. i silungum úr Mývatni, en i þeim fannst litið sem ekkert af þessum efnum. Telur doktorinn, að vegna þess hve eiturefni þessi finnist vitt og jafnt um Atlantshaf, þá muni þessi efni vera borin þangað með loftstraumnum frá iðnvæddum meginlöndum. Bendi hið mikla magn P.C.B. i svifþörungum úr Austur-Grænlandsstraumi sér- stakiega lil þess. Um það bil tveim vikum áður en svifþörungasýni þetta var tekið i september, barst mjög mistrað loft frá meginlandi Evrópu yfir norðanvert Atlans- haf. —SB— Smurbraudstofan BJÖRNÍNIM Njálsgata 49 Sími 15105 y/,\

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.