Vísir - 14.02.1972, Qupperneq 9
. / ,
Stefán Þórðarson sendir knöttinn i mark Vals — óvænt hörkuskot, sem Valsvörnin kom engum vörnum viö
Ljósm. BB
Frábær leikur Fram gegn Val
Það er ekki oft, sem
okkur iþróttafréttamenn
vantar lýsingarorð - en sem
það kom þó að þvi,
Þegar Fram sigraði Val
i 1. deildarkeppninni i
handknattleik i gær-
kvöldi með 12-10 sást sá
bezti handknattleikur,
ízlenzkt lið hefur
sýnt hér i Laugardals
höllinni — það var i einu
orði sagt frábær hand-
knattleikur, sem Fram
lék og það nægði auð-
vitað til sigurs gegn
Valsliði, sem þó lék
betur en áður i mótinu.
Ahorfendasvæðin voru þétt-
skipuð i gærkvöldi og það voru
ánægðir áhorfendur, sem sáu
þennan leik og spennandi var
hann frá upphafi til loka.
Tveir leikmenn áttu öðrum
fremur þátt i sigri Fram - Þor-
steinn Björnsson, sem nú lék i
r-
fyrsta skipti i marki i vetur, og
varði snilldarlega og Stefán
Þórðarson, ungur leikmaður, sem
var sá leikmaðurinn er leikur
Fram snérist um - afar leikinn,
örfhentur piltur.
Leikurinn var jafn i fyrstu, en
siðansigu Valsmeismámsaman
framúr. Þeir komust i 6-3, þegar
20 min. voru af leik og það var
Agúst ögmundsson, sem sýnt
hafði beztan leik Valsmanna.
tín þá varð mjög mikil
breyting hjá Fram. Karl
Benediktsson, þjálfari, setti Þor-
stein i markið og um leið kom
Stefán Þórðarson inn á. Varnar-
leikur Fram varð afar sterkur og
það, sem fór i gegn varöi Þor-
steinn. t leikhléi var staðan 6-5
fyrir Val - aöeins 11 mörk skoruð
og það gefur til kynna góðan
varnarleik beggja liða.
Fram vann tljótt upp þennan
mun með sama liði fyrst i sðari
hálfleik og eftir 10 min. var
staðan orðin 9-7 Fram i hag.
Agúst ögmundsson hafði þó ekki
sagt sitt síðasta orð fyrir Val og
tókst að jafna með tveimur
ágætum mörkum - en þá kom sá
kafli, sem gerði út úm leikinn:
Fram skoraði þrjú næstu mörk og
var þar einkum stórglæsilegt
mark Stefáns á 20. minútu.
Það er ánægjulegt að sjá jafn
góðan leik og Fram og Valur
sýndu I gærkvöldi og það rétt fyrir
Ólympiukeppnina á Spáni - leik-
menn liðanna eru komnir i góða
æfingu á réttum tima. Auk þeirra
Þorsteins og Stefáns voru lands-
liðsmenn Fram góðir - Axel stór-
hættulegur með sin skot, en hann
skoraði fimm mörk i leiknum - og
Björgvin og Sigurbergur afar lif-
andi i öllum leik sinum.
Hjá Val var Agúst beztur og
Stefán, Gunnsteinn og Ólafur
ágætir, þótt svo leikur þeirra
K.R. tókst enn að
krækja sér í stig
„Þessi er minn” er eins og Þor-
steinn Björnsson segi og mark-
varzla hans var frábær i gærkvöldi.
Enn tókst KR-ingum að kræk-
ja sér i stig i 1. deildarkeppninni
i handknattleik i gærkvöldi. Það
var gegn Viking, aö visu ekki
verðskuldað stig, en afar
þýðingarmikið, þar sem KR er
þar með úr allri fallhættu i
deildinni.
Vikingur var sterkari aðilinn i
þessari viðureign en eins og svo
oft áður var markvarzlan aðal-
orsök þess, aö liðið glataöi stigi.
A timabili þurftu KR-ingar
aðeins að hitta markið - þá var
mark - en Vikingar þurftu aö
hafa miklu meira fyrir sinum
mörkum, þvi Emil Karlsson átti
enn einn glæsileikinn i marki
KR.
Dómarar leiksins, Valur
Beneditsson og Kristófer
Magnússon, voru einnig góöir
við KR-inga og tvivegis á loka-
minútunni dæmdu þeir góð
mörk af Viking, vegna fljótfær-
ni, og gáfu liðinu i stað þess
aukaköst, sem ekki nýttust til
marka.
Vikingur hafði þrjú mörk yfir
i hálfleik 12-9, en um miðbik 1
siðari hálfleiks voru KR-ingar (
komnir tveimur mörkum yfir.
Þann mun vann Vikingur upp og
komst i 21-20, en Björn Péturs-
son skoraöi siöasta mark KR úr '
viti, þegar rúm minúta var eftir
af leiktimanum.
Mörk KR i leiknum skoruöu
Björn 8, Haukur 7, Hilmar 3,
Geir 2 og Bogi 1, en fyrir Viking
skoruðu Einar 6, Páll 5, Magnús
3, Guðjón 2, Stefán 2, Sigfús 2 og
Georg 1.
nægði ekki gegn Fram i þeim
ham, sem liðið var.
Mörk Fram i leiknum skoruðu
Axel 5, Björgvin Björgvinsson 3.
Stefán 2, Sigurður Einarsson 1 og
Pálmi Pálmason 1. Fyrir Val
skoruðu Agúst 5, Bergur 2, Gisli 2
(bæði viti) og Ólafur eitt.
Guöjón Magnússon.