Vísir - 14.02.1972, Síða 13

Vísir - 14.02.1972, Síða 13
Vlsir. Mánudagur 14. febrúar 1972. 13 Omar á ekki I neinum erfiö- leikum meö aö finna sér dans- félaga, en ööru máli gegnir um leit hans aö kvenmanni, sem hann getur elskaö.. Eitt mesta kvennagullið en finnur ekki konuefni sér að skapi islenzkir kvikmyndahúsgestir þurfa ekki aö fara I neinar grafgötur meö baö, hver Omar Sharif er. Þann hlýlega.brúneyga Egypta, sem brætt hefur milljónir kvennahjarta, þekkjum viö úr myndunum „Ara blu Lawrence”, „Dr. Zhivago” og „Funny Girl”. Þessi margfrægi leikari hefur nú I hyggju, aö snúa baki viö kvik- myndavélunum. Omar, sem nú er 39 ára gamall, segir kvikmyndirnar hafa um of truflandi áhrif á einkallf sitt. Þess vegna sé ekki um annaö aö ræöa, en aö segja skiliö viö kvikmyndaleikinn. „Nú þrái ég mest aö geta snúiö mér heilum og óskiptum aö þeim þrem áhugamála minum, sem ég met ofar ööru”, segir leikarinn. Og þaö sem Omar Sharif metur ofar ööru er bridge, hestar og kvenfólk. Hann er þó ekki full- komlega sáttur viö allt þrennt. Hann hefur svo sem ekki yfir neinu aö kvarta varöandi bridgiö og hrossin, en ööru máli gegnir meö kvenfólkiö. Þetta mesta kvennagull kvikmyndanna siöan Rudolph Valentino var og hét, er óánægöur meö ástarmál sin. „Ég hef leitað ljósum logum aö þeirri kvenpersónu, sem getur orðiö mér allt,” segir hann, „Ég gæti fórnaö svo gott sem öllu fyrir hana. Hún mun lika fylla stórt tóm i lifi minu. Ég mundu vilja giftast henni og lifa langþráðu heimilislifi.” „En ég verð ekki ástfanginn viö fyrstu sýn,” heldur hann áfram. „Ég er ekki eins og fiðrildið, sem flýgur frá blómi til blóms. Mitt stærsta vandamál er allt kven- fólkiö, sem álitur mig vera stór- kostlegasta elskhuga veraldar- innar. Er ég gef mig aö kven- manni, sem mér likar^væntir hún ætið einhvers óskaplega æsandi af mér — einhvers óhugsandi.” „En....,” segir Omar vand- ræðalega, „ég er bara rétt eins og hver annar karlmaöur. Og þó ég kannski eigi eitthvaö — ja, hvaö eigum viö aö segja — veru- •lega æsandi i pokahorninu ein- staka sinnum, hvernig má þá samt ætlast til að ég geti gripið til siiks endalaust? Þaö er ekki endalaust um BINGO aö ræöa hjá mér fremur en öörum karl- mönnum.” Omar hefur ekkert samneyti átt viö eiginkonu sina, leikkonuna Faten Hamama, siöan áriö 1966. Hún býr í London ásamt 13 ára gömlum syni þeirra hjóna. Tourek heitir snáöinn. „Allt sem ég bið um er ást konu, sem elskar mig af öllu hjarta og ég dái takmarkalaust,” andvarpar Omar dreymandi. Og hann heldur áfram máli sinu: „Ég geri mér vissar hugmyndir um þaö, hvernig viö munum koma til meö aö lifa saman. Hún verður aö bera jafn mikla virðingu fyrir áhugamálum minum og ég fyrir hennar. Ég kysi lika helst, aö viö heföum sitt- hvort svefnherbergið. Þegar ég svo fæ áhuga á aö „ræöa viö hana” mundi ég einfaldlega banka uppá hjá henni og spyrja kurteislega, hvort ég megi ónáða hana stutta stund.” Kvikmyndaleikari umgengst stööugt fagrar kvikmyndaleik- konur. „Já, en I sannleika sagt eru þafer ekki svo áhugaveröar. Þær eru allar svo hrifnar af sjálfri sér aö þær eru ekki viö- mælandi. Ég hitti líka fjölda fagurra kvenna I bridge- heiminum, auövitaö, en ég gæti aldrei hugsaö me'r aö kvænast kven-bridgeleikara. Þaö yröi ábyggilega hræöilegt. Kvenfólk kann ekki aö spila bridge. Þaö er af þeirri ástæöu, sem ég spila aldrei bridge i félagi viö kven- mann.” En hvaö um kvenmann, sem hefur áhuga á hrossum? „Off,” hrópar Omar upp yfir sig. „Slikar konur eru jafnvel verri en bridee-SDÍlakonur. Ég gæti aldrei hrifizt af konu, sem lltur út eins og hross. Það fer alltaf þannig fyrir þeim, þú skilur”. Omar segist ekki taka kvik- myndaleik svo alvarlega. „Hvernig getur maöur tekiö leikaraskap alvarlega?” spyr hann — og lýsir þvl um leið yfir, aö hann taki ekki heldur alvar- lega þaö kvenfólk, sem dáir hann fyrir kvikmyndaleik hans. „Þaö kvenfólk dáist aö þeirri persónu, sem þaö heldur, aö ég sé, en er einungis aö dáöst aö þeim per- sónum, sem ég er aö strembast viö aö leika. Og þaö er ekki ég....” Og hvaö vill meistari Omar Sharif segja aö lokum? „Ég þarfnast kvenmanns, sem elskar mig eins og ég er I raun- inni. Þrátt fyrir reiðmennskuna alla og spilamennskuna, sem ég nýt innilega, er ég ekki nema hálfur maður án slikrar.konu. Til aö fylla þá hugmynd, sem ég hef gert mér um fullkomna hamingju verö ég aö finna þessa konu. Það aö hætta kvikmyndaleik er ef til vill fyrsta skref mitt til aö nálgast takmarkiö........” Omar spilar bridge baki brotnu, Fyrir frammistööu slna á þvl sviöi hefur hann öölast mikla frægö, jafnframt þeirri er hann á kvikmyndunum aö þakka..

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.