Vísir - 26.02.1972, Blaðsíða 6

Vísir - 26.02.1972, Blaðsíða 6
6 Visir. Laugardagur 26. febrúar 1972. vísm Útgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjáasson Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Sköli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 22. Simar 15610 11660 Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 11660 Ritstjórn: Siöumúla 14. Simi 11660 (5 línuri Askriftargjald kr. 225 á mánuöi inranlands i lausasölu kr. 15.00 eintakiö. Blaöaprent hf. Sjálfdautt samkomulag í orðsendingu rikisstjórnar íslands til rikisstjórna \ Bretlands og Vestur-Þýzkalands um útfærslu land- y helginnar felst ekki bein uppsögn samkomulagsins í frá 1961. í stað þess segir i hinni nýju orðsendingu: / „...að nú hafi verið náð að fullu tilgangi og mark- ) miði orðsendinganna frá 1961 um að visa tilteknum \ ágreiningsatriðum til dómsúrlausnar. Rikisstjórn (( íslands telur, að ákvæði orðsendinganna eigi ekki / lengur við og að íslendingar séu þess vegna ekki ) bundnir af þeim”. \ Þetta hófsamlega orðalag er árangur hins algera ( samkomulags, sem náðist um landhelgismálið á al- / þingi 15. febrúar. Þá slökuðu bæði stjórn og stjórn- ) arandstaða á sérsjónarmiðum sinum til þess að al- \ ger þjóðareining næðist og alþingi gæti sjálft ákveð- ( ið með 60 atkvæðum gegn engu, að landhelgin yrði ( 50 milur 1. september á þessu ári. Með hinni nýju / orðsendingu er rikisstjórnin þvi raunar aðeins að ) flytja áfram skilaboð um ákvörðun alþingis. ( Nýja orðsendingin ber þess merki, að fram- ( kvæmd útfærslunnar hefur verið sveigð inn á dipló- / matiskari og skynsamlegri braut. í þvi felst mesti ) kosturinn við hið algera samkomulag islenzku \ stjórnmálaflokkanna i málinu.Hinar diplómatisku ( leiðir, eru yfirleitt skynsamlegri en einstefna, eins / og kom fram hjá Norðurlandaráði, þegar það sam-) þykkti stuðning við sérstakan rétt strandrikja, en \) samþykkti hins vegar ekki stuðning við einhliða (\ aðgerðir i landhelgismálum. (i Samkomulagið i orðsendingunum frá 1961 fól i sér / yfirlýsingu íslendinga um, að áfram yrði haldið á ) braut útfærslunnar. Samkomulagið tryggði Bretum \ og Vestur-Þjóðverjum viss réttindi um takmarkað- f1 an tima. Þau réttindi hafa siðan fallið úr gildi. Jafn- / framt hefur það gerzt, að þorri rikja heims hefur) tekið upp 12 milna eða stærri landhelgi. Þess vegna l verður ekki séð, að um slika landhf Igi þurfi að vera ( sérstakt samkomulag i einu tilviki en ekki öðrum. / í nýjuorðsendingunni er lýst yfir þeirri von ,,...að ) sem verða má, leiða til hagfelldrar lausnar á þeim ) vandamálum, sem hér er um að ræða”. Dyrunum ( til samkomulags er þar með haldið opnum, enda ( væri æskilegast, að viðræðurnar leiddu til nýs sam- / komulags, sem tæki við af hinu gamla. ) Nú reynir á mannasiði rikisstjórna Bretlands og (( Vestur-Þýzkalands. Þær hafa þvi miður reynt að // hefna þess i Efnahagsbandalaginu, sem hallaðist i)) landhelgismálinu, og stuðlað að hinu óaðgengilega \ og allt að þvi ruddalega tilboði bandalagsins um ( viðskiptasamning við Island. Þessar stjórnir verða ( að lita i kringum sig og taka eftir þvi, að meira en / önnur hver þjóð heimsins er nú hlynnt 50 milna eða) stærri landhelgi og að þessum þjóðum fer mjög ört \\ fjölgandi. Þróunin hefur sinn gang, þótt menn berji(( höfðinu við steininn. (í Ilatriö risti djúpt, og Bengalir áttu harma aö hefna. Myndin sýnir misþyrmingu á Biharimönnum, sem sjálfstæðisherinn hafði tekið til fanga. „Gerum þetto að landi betlara og hóra" Þúsundir bengalskra kvenna í þrœlabúðum Jaja Kans — nú útskúfaðar eins og holdsveikir á miðöldum ' Bangladess — PEJ llatriö ristir djúpt i Bangla- dess. 1 borgarastyrjöldinni hjálp- uöu menn i Bihariþjóöernis- minnihlutanum her Vestur- Pakistana gegn meirihluta ibúa Austur-Pakistans. Þeir gengu ekki siður en Vestur-Pakistanir fram i morðum, ránum ognauðg unum. Bengalir hafa hefnt sin meö þvi að myrða marga Bihari- menn eftir stríðið og væntanlega mikiu fleiri cn fréttir herma frá. Eitt af alvarlegri viðfangsefnum stjórnarinnar i hinu nýja Bangla- dessriki er mál þeirra þúsunda kvenna, sem Vestur-Pakistanir og Bihari-menn nauðguöu á valdaskeiöi sfn. Margar hroðalegar frásagnir eru um ofbeldi „Rasakaranna”, sveitanna, sem Bihari-menn stofnuðu til að aðstoða her Jaja Kans. Ótalinn fjöldi kvenna og barnungra stúlkna var fórnar- lömb þeirra. Margar myrtu þeir. „Ætti ég kannski aö senda menn mina til Vestur-Pakistan eftir kvenfólki? ” Svo spurði Tikka Kan hershöfðingi, þegar hann varði nauðganir manna sinna. Bihari- menn vildu vist ekki verða eftir- bátar vina sinna i her Tikka Kans. „Þetta er strið”, sagði hers- höfðinginn ennfremur. Hann tal- aði digurbarkalega löngum um að gera Austur-Pakistan að „landi betlara og hóra”, ef Bengalir létu ekki segjast. Fötin tekin, svo aö þær hengdu sig ekki. Eftirmaður Tikka Kans, Niasi hershöfðingi, sá, sem gafst upp i Dacca fyrir her Indverja, hafði mestan áhuga á menntuðum Bengalkonum. Sumir sögðu, að þetta kæmi til af menntunarleysi hershöfðingjans. Herinn hafði viða kvennabúðir, þar sem Bengalstúlkum var safnað sam- an. Með þær var farið sem kvik- fénað i flestu. 1 herbúðunum við flugvöllinn i höfuðborginni Dacca höfðu hernámsmenn búðir með fjögur þúsund konum. Þær voru gögn hermanna eftir pöntun. Edschas höfuðsmaður haföi sitt eigið kvennabúr, sex kornungur stúlkur. Hann lét klippa hár þeirra og taka öll föt frá þeim, svo að „þær gætu ekki hengt sig i Sari-klæðunum eða lokkum”. Margar stúlknanna i hórubúð- um hersins frömdu sjálfsmorð. Annar höfuðsmaður, Khalid, geymdi tólf ára stúlku, Rasiu að nafni, i fjóra mánuði nakta i ibúð sinni. Indverjar fundu i herbúöum viö Comilla, Dschessore og Hilli lik fjölda nakinna stúlkna. Þegar Indverjar og Bengalir höfðu unnið sigur sinn, sóttust skæruliðar Bengala, Mukti Bahini eftir lifi Bihari- manna. Skæruliðar voru stað- ráðnir i að koma fram hefndum með sams konar óhæfuverkum og hernámsliðið hafði áður framið gegn þeirra fólki. Eftir töluverð manndráp fyrstu dagana stöðvuðu Indverjar of- sóknirnar. Nýja stjórnin i imimim Umsjón: Haukur Helgason Bangladess krafðist þess, að skæruliöar afhentu byssur sinar. Mikill fjöldi þeirra hefur hlýtt þessum skipunum. Jafnframt söfnuðust Bihari- menn saman i sérstökum hverf- um eða búðum, skelfingu lostnir vegna hefndarþorsta Bengala. Inverski herinn varði Bihari menn þar fyrir ofsóknum skæru- liða. Eftir að stjórn Bangladess hefur tekið við herstjórn, hafa aftur frétzt dæmi um morð og of- beldisverk á hendur Biharimönn- um. Þó hefur stjórnin reynt eftir megni að hindra þetta, en ekki munu öll kurl komin til grafar i þeim efnum. Mörg hundruð frömdu sjálfsmorð eftir stríðið. Eftirlifandi fórnardýr nauðg- aranna eiga ekki sæla daga. Ekki færri en 200 þúsund og ef til vill mun fleiri Bengalkonum var nauðgað i striðinu. Margar þeirra urðu barnshafnadi. Mörg hundr- uð hafa framið sjálfsmorð, eftir að striðinu lauk. Fjölskyldur kvennanna og stúlknanna, sem margar eru börn að aldri, hafa oft hafnað þeim. I karlmannariki múhameðs- trúarmanna, þar sem konur ganga oft með andlitsblæjur, þykir ekki sómi, ef annar maður litur konu auga, i raunverulegri merkingu þess hugtaks. Hvað þá, ef kona hefur einhver mök við karlmann, viljandi eða nauðug. Þessar konur eru verr settar en holdsveikir voru fyrr á timum i Evrópu. Fáum hefur tekizt að fá fóstri eytt. Bandariskir læknar hafa þó komið til skjalanna til að aðstoða innfædda við það. Danskar fjölskyldur hafa boðizt til að taka sumar stúlknanna aö sér. Kaþólskar stofnanir og fleiri hafa rétt hjálparhönd. I Dacca og viðar er reynt að stofnsetja heimili fyrir þessar stúlkur, sem i landi þeirra teljast vist „afvega- leiddar”. Fagnandi skæruliðar Muhti Bahini. — Stjórnvöld knúðu þá til aö afhenda byssurnar.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.