Vísir - 26.02.1972, Blaðsíða 16

Vísir - 26.02.1972, Blaðsíða 16
vísm „Kem einhvern tíma seinna" Laugardagur 26. febrúar 1972. „Nei, ég varekki vitund skelkué, það þýðir ekkert að vera að fá taugaáfall, þótt einhverjir menn með undarlega kímnigáfu segi sprengju um borð í vél- inni. Ég frétti heldur ekki um hana frekar en aðrir farþegar, fyrr en um 10 minútum áðuren við lent- um hér á íslandi", sagði Britt Ekland, leikkona, sem var með TWA-þot- unni, sem lenti í Keflavik i gærkvöldi. „Ég er að fara til Los Angeles i fimm eða sex vikna fri.Sann- arlega þörf á að slaka ofurlitið á núna, og ég er i svo góðu skapi — þess vegna hafði þessi til- kynning engin áhrif á mig. Ég hef verið i London lengi að leika i kvikmynd sem heitir „The Boy”, drengurinn, leikstjórinn er Lionel Jeffrey — frægur enskur leikhúsmaöur”. — Komið til lslands áður? „Nei aldrei —-sannarlega hélt ég að hér væri allt á kafi i is!” Og leikkonan var klædd eins og heimskautafari, i loðfeld, sem sennilega hefur kostað árs- laun islenzks rikisstarfsmanns, og var varla, að grillti i laglegt brúðuandlit undan loðhúfunni. „Já, ég er að fara i þetta fri með vini minum, Adler, og vona sannarlega aö geta notið þess. Það væri annars upplagt að koma einhvern tima hingað i fri, það virðist vera eitthvað meira til hér en þessi grámóskulega flugstöð”. — Nokkru sinni séð ljótari stað? „Jú svo sannarlega. London i þoku og kolareyk! Og svo á maður ekki að horfa bara á hús- in og flugvélarnar og skýlin hér i kring. Sjáðu! ” Og Britt Ekland benti á keflviskan himininn: „Þetta er svo skandinaviskt! Alveg eins og i Sviþjóð, birtan hérna og svo virðist fremur hlýtt. Þú ættir bara að vita, hvað það getur orðið hræðilega kalt i Sviþjóð á veturna. Allt snjóhvitt dögum, vikum saman”. Britt Ekland var sem kunn- ugt er áður gift enska leikaran- um fræga, Peter Sellers, en hefur siöan þau skildu, sam- vizkulega haldið sig frá alvar- legum ástarævintýrum. Við spurðum hana, hver herramaðurinn væri, sem hún færi með i friið: Skuggalegur maður nokkur, með sitt flaks- andi hár, og snerisá sér gjarnan undan, þegar ljósmyndarinn „skaut” á hann. „Hann Adler, hann er bara vinur minn”, sagði leikkonan, og brosti blitt, sneri sér siðan að öryggisvörðum hersins i Kefla- vik og aðstoðaði þá við að fletta sundur fatabirgðum sinum i ferðatöskum. Þeir þurftu nefni- lega að leita af sér allan grun varðandi sprengjutil- kynninguna — og virtust svo sem ekkert hafa á móti þvi að aðstoða „bombuna” við að leita að bombunni. —GG ,Nei, ég hef aldrei áður lent i því, að tilkynnt væri um sprengju um borð í þotu hjá mér", þegar ég hef verið á flugi , sagði Theodore Lapadalis, flug- stjóri Jumbó-þotunnar frá TWA, sem lenti i Keflavík i gærkvöldi. „Ég fékk skeyti frá London, og i þvi stóð ekkert annað en að hFÍngt hefði verið i flugturninn á Heathrow og sagt, að sprengja væri i Boeing-þotu frá TWA, sem nýlega hefði farið i loftið — reyndar voru fjórar „Jumbó” þá nýlegar farnar frá London, allar frá TWA, og okkur var bara sagt, að við yrðum að lenda á næsta flugvelli þegar i stað”. - Heldurðu að um gabb hafi verið að ræða? „Fullyrði ekkert vitanlega, en mér er nær að halda það — það var vist hringt frá einhverju hóteli i London, og sá sem talaði hafði ekki fyrir þvi að segja til nafns — alveg eins og fyrir nokkrum árum, þegar ég var að fara á loft i New York — þá var hringt og tilkynnt um sprengju i minni vél. Sem betur fer vorum við ekki komnir upp, og þvi var bara leitaö i snarhasti þar á Kennedy-velli. Engin sprengja fannst sem betur fer”. Visir ræddi við Lapadalis flugstjóra á flugbrautinni undir stéli risafuglsins, og Lapadalis sagði „þreytandi” að vera i kuldanum þar — bauð okkur inri að ganga til bjórdrykkju þar á barnum á fyrsta farrými. Tóm gafst þó litið til svallsins, þvi um leið og flugstjórinn birt- ist i vélinni, vatt sér að honum stæðilegur Amerikani, hélt á handtösku sinni, benti á hana og fnæsti: Hvern... sjálfan á það að þýða að sprengja upp lásinn á dýrri tösku? Ég þoli ekki svonalagaða framkomu! „Get þvi miður ekkert gert núna”, sagði Lapadalis við manninn, „annað en að sam- hryggjast — ég er viss um að TWA mun bæta skaðann um leið og við lendum i Los Angeles”. „Mér er sama um fjárans töskuna”, æpti þá maðurinn, „en ég þoli ekki svona fram- komu skithæla við almennilegt fólk.” Og Lapadalis forðaði sér frá frekari orðadembu með þvi aö hefja hárri röddu fyrirlestur um ágæti Jumbó-þota viö Visis- menn: „Fyrir utan okkur, flug- mennina, þá er fjórtán manna starfslið um borð. Flugfreyjur, þjónar og sérstakur starfs- mannahaldari — og þið getið rétt imyndað ykkur, að þetta hefur verið dýr dagur hjá TWA, þegar fjórar svona þotur þurfa að lenda skyndilega, biða marga klukkutima i einhverri flugstöð, greiða vallargjöld og hugsanlega borga reiðum farþegum eitthvað sem þeim finnst þeir verði að fá bætt — það eru nefnilega ekki allir jafn- kurteisir og skilningsrikir og ungfrú Ekland þarna”, sagði flugstjórinn og kinkaði kolli til einu „bombunnar” um borð. Og svo klifraði Lapadalis upp i flugstjórnarklefann i turni þotunnar, gekk úr skugga um að farþegar væru komnir i sæti, og tilkynnti siðan, að vegna þessa leiðinlega atburðar væri far- þegunum boðið að sitja hvar sem þeir vildu i vélinni og panta að vild af barnum. —GG. — sagði Britt Ekland — ,,og stoppa þá lengur . . ." — Vísismaður rœddi við Britt Ekland í kulda og trekki á flugbrautarenda í Keflavík Gœti verið tímasprengja — froktinni hoidið eftir ó Keflavíkurflugvelli „Við höldum fraktinni, sem með „Juinbó-þotunni" var, eftir hér i Keflavik — sendum hana áfram til New York með I.oftleiðavél á inorgun”, sagði Pétur Guðmundsson flug- vallarstjóri Visi i gærkvöldi, „það er gert vegna þess — að þótt hermennirnir hafi leitað i farþegarými, farangri far- þega og frakt, þá hættum við ekki á að þeim hafi yfirsézt. Það var áætlað að flugvélin lenti i Los Angeles klukkan rúmlega 22, og hafi veriö um timasprengju að ræða, þá getur hún verið stillt á að springa fyrir 10 i kvöld”. Og það ætti varia að koma að sök. Kraktin, mest póstur að likindum, vegur tvö tonn, og þótt Loftleiðaþotur scu ekki þvilikir risafuglar sem Boeing 747, þá munar þær lítið um að innbyrða þessi tonn aukalega. —GG BrittEkland á Keflavfkurflugvelli: Loftið hér eins og ISviþjóð”. Dýr dagur hjó TWA — flugstjóri Boeing-þotunnor forinn oð „venjast" sprengjutilkynningum Thcodore Lapadalis flugstjóri i stjórnklefanum rétt fyrir brottför

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.