Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 12

Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 12
Ég fœ 10% af vmningnum sagði dómarinn brosandi — Björn Kristjánsson með 11 rétta og útkeyrslumaður hjá Kaaper fœrði út eftir seðli hans —Blessaður, maður gerir allt til að selja getraunaseðla fyrir Viking og þegar út- keyrslumaðurinn frá Kaaber kom með kaffi til min i búðina á mið- vikudag var ég ák- veðinn i að selja honum miða. Hann var að flýta sér og ég sagði við hann upp á grin — þú færir bara út eins og ég og ef þú vinnur fæ ég 10% af vinningnum. Og hann gerði það — ég las upp þau tákn, sem ég hafði sett á get- raunaseðil og siðan fyllti Jón sinn eins út. —betta sagöi Björn Krist- jánsson, hinn kunni lands- dómari i handknattleik og kaup- maöur i Mýrarbúöini, Mána- götu 18, þegar viö ræddum viö Björn Kristjánsson við dómarastörf i lands- leiknum á laugardag. hann i morgun, en á laugardag hringdi Björn i undirritaöann og sagðist vera með lOleiki rétta af þeim 11, sem þá voru fengin úrslit i. —Hvernig fór leikurinn milli Oxford og Portsmouth? bætti Björn þá viö, en úrslit i þeim leik lágu ekki fyrir fyrr en seint um kvöldið og viti menn — þaö var jafntefli I leiknum og Björn var meö kross á seöli sinumþar — sem sagt 11 réttir, og út- keyrslumaöurinn hjá Kaaber, hann Jón, var þvi einnig með 11 rétta og Björn hafði farið meö báða seðlana — ásamt þeim 120, sem han selur vikulega fyrir Viking i búö sinni — til getraun- anna. Viö höfðum samband við get- raunirnar rétt fyrir klukkan tiu i morgun og þá haföi enginn gefið sig fram — hvorki meö 11 eöa 12 rétta leiki á seöli — en rétt aöur en blaöiö fór i prentun höföum við aftur samband viö getraunirnar og þá höföu fimm tilkynnt aö þeir væru meö ellefu rétta — enginn meö 12 rétta. Ef fleiri verða ekki meö 11 rétta og engin með 12 má búast viö þvi aö fyrsti vinningurinn veröi milli 70 og 75 þúsund krónur — aö visu birt meö fyrirvara. —hsim. Tvísýnasta lokakeppni í tugi óra á Englandi Spennan í toppnum eykst stöðugt i ensku knattspy rnunni — öll efstu liðin unnu stórsigra á laugardaginn og fram- undan er skemmtilegasta lokakeppni, sem átt hefur sér stað i fjölmörg ár. Fjögur lið bítast um efsta sætið og þau eiga talsvert eftirað leika innbyrðis — nema Leeds, sem hefur tapað fæstum stigum, og á eftir léttari mótherja. En sigur Leeds er þó alls ekki í höfn — liðið á að- eins einn leik eftir á heimavelli, en þrjá á úti- völlum og það er aldrei auðvelt að sigra i 1. deild- inni ensku á útivöllum. Derby County heldur forustu sinni i deildinni með 54 stig eftir stórsigur i Sheffield gegn Unit- ed 4-0. Derby hefur leikið 39 leiki, eða einum meir en næstu lið, Leeds, sem hefur 53 stig, Liverpool og Manch. City, sem hafa 52 stig, og Derby á eftir að leika við Manch. Dity i Man- chester og Liverpool á heima- velli i siðustu umferöinni. Leeds vann stórsigur i Stoke 3-0 á laugardaginn, og Liverpool vann Coventry á laugardags- morgun i Liverpool 3-1 og Manch. City vann West Ham á heimavelli sinum siðar um dag- inn með sömu markatölu. En við skulum nú lita á úrslit-. in eins og þau voru á getrauna- seðlinum á laugardag. 1 Arsenal-Wolves 2-1 1 Chelsea-C.Palace 2-1 2 Huddersfield-lpswich 1-3 1 Leicester-Manch.Utd. 2-0 1 Liverpool-Coventry 3-1 1 Manch.City-West Ham 3-1 1 Nottm.For.-Newcastle 1-0 2 Sheff.Utd.-Derby 0-4 2 Southampton-Everton 0-1 2 Stoke-Leeds 0-3 X WBA-Tottenham 1-1 X Hull City-QPR 1-1 X Oxford-Portsmouth 2-2 Þarna er merkilegast, að Everton vinnur sinn fyrsta sigur á útivelli siðan i september 1970. Það var táningurinn Mike Buckley, sem skoraði þetta þýð- ingarmikla mark Everton. Sheff.Utd. byrjaði með mikl- um látum gegn Derby og á fyrstu 10 min. munaði sáralitlu aö liðið skoraði 2-3 mörk. En svo skoraði Gemmill fyrir Derby og leikurinn snérist alveg við. Dur- ban skoraði annað markið rétt á eftir og i siðari hálfleik skor- uðu Hector og O’Hare tvö mörk til viðbótar. Leeds var heppið að fá Stoke viku fyrir undanúrslitaleikinn milli Arsenal og Stoke, þvi leik- menn Stoke lögðu sig ekki i hættu i þessum leik. Leikurinn var þó ekki eins ójafn og mörkin gefa til kynna. Leikmenn Leeds þurftu að berjast fyrir sigri sin- um i roki og rigningu. Mike Jon- es skoraði tvivegis og Peter Lorimer eitt af sinum frægu þrumumörkum. Terry Cooper meiddist i leiknum og liggur nú á sjúkrahúsi — það kann að reynast mikið áfall fyrir Leeds og England , sem leikur lands- leik við Vestur-býzkaland i Evrópukeppni landsliða siðast i þessum mánuði. Rodney Marsh var maðurinn bakvið sigur Manch.City gegn West Ham. Hann skoraði tvi- vegis — fyrstu mörkin siðan hann var keyptur frá QPR fyrir 200 þúsund pund — og átti það þriðja, sem Colin Bell skoraði. Eina mark West Ham skoraði Hurst siðast i leiknum. Liverpool var i efsta sæti i 1. deild i fjórar klukkustundir eftir sigurinn gegn Coventry um morguninn. Þeir Keegan, Smith, vitaspyrna, og Toshack skoruðu mörk Liverpool. Úlfarnir voru mjög óheppnir að tapa fyrir Arsenal. Richards skoraði fyrir þá á l^min. og þeir höfðu yfirtökin i leiknum þar til langt var liðið á leiktimann, að Graham skoraöi mörk fyrir Arsenal á tveimur minútum — bæði með skalla. Hann kom nú að nýju i lið Arsenal — var sett- ur út þegar hann skoraði sjálfs- markið gegn Ajax i Evrópu- keppninni á dögunum. Nánar verður sagt frá leikjunum i blaðinu á morgun. — hsim. Ekkert óvœnt í körfunni! islandsmótið i körfu- knattleik hélt áfram um helgina eftir nokkurt hlé, og voru leiknir fimm leikir i 1. deild. Féllu stigin í öll- um leikjunum þeim megin sem búast mátti við, en at- hyglisverðustu úrslitin verða að teljast naumur sigur i R gegn HSK, og svo enn einn eins stigs sigur Valsmanna, sem sigruðu Þór nyrðra með 1 stigi, og skutust þar með aftur upp í 3. sæti i deildinni. Fyrsti leikurinn hér sunnan- lands fór fram á Nesinu á laugar- dagskvöld. KR lék við UMFS, og sigraði auðveldlega. Borgnesing- arnir héldu i við KR fram á 17. minútu fyrri hálfleiks, þegar 39-36 stóð fyrir KR. en i hálfleik mun- aði 10 stigum, 47-37, og fyrstu 10 minuturnar af siðari hálfleik jók KR muninn i 20 stig, 74-54. Loka- tölur leiksins urðu 95 stig gegn 79, KR i vil. A eftir léku 1R og HSK, og skeði það markvert, að HSK, sem utan eins leiks, getur varla talizt hafa sýnt sina réttu getu i vetur, voru yfir allan timann gegn Islands- meisturunum. 1 hálfleik hafði HSK 3 stig yfir, 42-39, og þegar aðeins voru um það bil 2 minútúr til leiksloka, hafði HSK 6 stig yfir. Heldur hafa körfuknattleiks- menn okkar þótt linir varnar- menn yfirleitt, svo að i sókn er varla mikil pressa á leikmönnum. Það kom þvi HSK-mönnum alveg úr jafnvægi þegar ÍRingar skelltu skyndilega á þá pressuvörn mik- illi, og hirtu ÍRingar boltann af þeim hvað eftir annað, með þeim árangri, að 1R sigraði með tveggja stiga mun, 75-73. A sunnudagskvöld voru IRingar aftur á ferðinni, og léku nú gegn UMFS. Það varð mjög ójöfn bar- átta, þvi IRingarnir voru greini- lega mun sterkari heldur en and- stæðingarnir frá Borgarnesi. Hættulegasti andstæðingur IRing- anna i þessum leik, sem og fleiri leikjum, var skapið i þeim sjálf- um, en þegar sá gállinn er á þeim félögum, liggur við að meiri orka fari i að skamma félagana, en að leika körfubolta. Þetta bráði þó af þeim, og i hálfleik var 15 stiga munur fyrir ÍR, 45-30. Borgnesingarnir áttu erfitt uppdráttar i siðari hálfleik, og skoruðu IRingar hvorki meira né minna en 65 stig þessar 20 minút- ur. Lauk leiknum með miklum yfirburðasigri 1R, 110-73. KRingar áttu ekki i miklum erfiðleikum með 1S i siðari leikn- um á sunnudagskvöld. Héldu þeir sinu vanalega striki, og höföu 19 stig yfir i hálfleik, 49-30. Sigruðu KRingar með 18 stiga mun, 94-76, og eru þvi enn á topp- inum með 24 stig, en næstir koma 1R með 20 stig og Valur með 14. Valur lék við Þór norður á Akureyri á laugardaginn, og sigr- aði með eins stigs mun. 65-64. Hafði Valur forystu á laugardag- inn, og sigraði með eins Valur lék við Þór norður á Akureyri á laugardaginn, og sigr- aði með eins stigs mun, 65-64. Hafði Valur forystu i leiknum all- an timann. fimm stig i hálfleik, og það var ekki fyrr en rétt undir lokin að Þór fór að sýna klærnar, en komst þó aldrei yfir. STUTTAR FRÉTTIR xxx Litla bikarkeppnin hófst á laugardaginn og voru tveir leikir háðir i meistaraflokki. Breiðablik kom á óvart og sigraði i Kefiavik — vann islandsmeistara ÍBK 2-1. Breiðablik lék gegn talsverðum vindi i fyrri hálfleik og skoraði þó tvö mörk gegn einu. i hléinu fór að snjóa og sást varla milli marka isiöari hálfleik og var mál manna að dómarinn hefði átt að hætta leiknum. Ekkert mark var þá skorað og Breiðablik var þvi sigurvegari i leiknum. Á Akra- nesi unnu heimamenn Hafnfirð- inga 2-0. Leik varaliðanna i Keflavik var frestað. xxx Fyrsta golfmót ársins var háð hjá Golfklúbbnum Ness á laugardag. Keppendur voru milli 20 og 30 og sigurvegari varð Pétur Björnsson, sem lék á pari, 35 iiöggum. Annar varð Jón Thorla- ciús með 39 högg og i 3.-4. sæti þeir Kjartan L. Páisson og Hreinn M. Jóhannsson með 41 högg. xxx Einn leikur var háður i Meistarakeppni KSl á iaugardag. Vestmannaeyingar unnu Viking 1-0. Úrslitaleikur keppninnar vcrður á laugardag i Keflavik, en þá mætast ÍBK og ÍBV. Vest- mannaeyingar hafa 4 stig eftir 3 leiki, en iBK 3 stig eftir 2 leiki, og Vikingur eitt stig eftir 3 leiki. xxx Ilaraldur Korneliusson var Reykjavikurmeistari i badminton um helgina — vann Óskar Guð- mundsson i mjög tvisýnum úr- slitaleik. Hann varð einnig meist- ari i tviliðaleik ásamt Steinari Petersen, en i tvenndarkeppni sigruðu Óskar og Jónina Niel- johniusdóttir. i dag fer fram á Melavellinum leikur i skólamótinu i knatt- spyrnu — undanúrslitaleikur milli Háskólans og Tjarnar- Menntaskólans. Leikurinn hefst ki. fimm. i hinum leiknum i undanúrslitum vann Mennta- skóiinn i Reykjavik Kennara- skólann með 5-4.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.