Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 20
vísm
Mánudagur 10. apríl 1972
¥
Ottasleginn
innbrotsþjófur
— þjófabjallan kvað
við hótt, og þjófurinn
tók til fótanna
Þjófabjöllukerfi virka þannig,
aö ef einhvcr áreitir þetta undar-
lega kerfi, þá kvcður það við svo
hátt, að einungis mjög tauga-
sterkum mönnum er vært í næsta
nágrenni við það, þegar þaö lætur
sem verst.
Það fór þvi illa fyrir ungum
manni, sem aðfararnótt sunnu-
dagsins ætlaði að krækja sér i
ofboðlitinn glaðning. Hann braut
rúðu i skartgripaverzlun við
Laugaveginn, ætlaði sér þar inn
að stela.
En varla var rúðan hrunin
niður úr karminum, þegar
fjárans glymskrattinn sem
búðareigandinn hafði komið þar
fyrir, fór að hringja af þvilikum
grenjandi havaða, að taugar
þjófsins brustu. Ifann lagði á
flótta upp Laugavginn eins og
fætur toguðu.
En lögreglan heyrði bjöllu-
gargið. Og var eins og ævinlega
komin á vettvang þegar i stað. Og
ungur löggi brá undir sig betri
fætinum og hljóp uppi þjófinn,
svo skammt hafði hann borið
undan.
—GG.
BÍLL RANN
NÆR YFIR
ÖKUMANN
— en stöðvaðist og
rann til baka
Bifreið lenti nokkuð illa saman
við Ijósastaur á Akureyri á
laugardaginn.
Vildi 'áreksturinn þannig til, að
ungur piltur, nýlega orðinn 17
ára, og nýlega búinn að fá sér
ökuréttindi, ók norður Gefiunar-
veg.
Missti pilturinn allt i einu vald á
bilnum þótt færi væri ágætt og
skyggni gott. Lenti billinn á ljósa-
staur, og skemmdust báðir illa,
bill og staur. Pilturinn sem ók,
hentist út úr bilnum við skellinn,
og lenti undir honum. Hefði
hugsanlega getað farið illa, ef
billinn hefði ekki séð að sér. Er
hann var i þann veginn að renna
yfir piltinn, stöðvaðist hann allt i
einu.og rann siðan aftur á bak, frá
drengnum ' þar sem hann lá. Stðð
ökumaðurinn ungi siðan upp
ómeiddur, en staurinn mun illa á
sig kominn.
— GG.
A þriðja
hundrað
miðar
pantaðir
Skáksambandi t slands berast-i
pantanir frá erlendum aðilum"
^þrátt fyrir allan cfann
Tsambandi við heimsmeistara--f
einvigið. A þriðja hundrað að-Ý
göngumiðar hafa veriö pant-+
aðir, mestmegnis frá Bret--f
landi. T
—HH. |
POLSTJARNAN DREGIN
LOGANDI TIL HAFNAR
í KEFLAVÍK í MORGUN
Eldur kom upp í Pól-
stjörnunni frá Keflavík,
er hún var komin skammt
frá landi í morgun, á leið
á veiðar.
Skipstjórinn á Pól-
stjörnunni, Högni Felix-
son brá við hart, og snéri
við, og skömmu síðar bar
Keflvíking frá Keflavík
að, en hann vareinnig ný-
látinn úr höfn á leið til
fiskjar.
Keflvikingur tók Pólstjörnuna
i tog og dró hana til hafnar aftur
á meðan skipverjar á Pólstjörn-
unni börðust við eldinn.
Þegar til hafnar kom, en þaö
var um klukkan átta þrjátiu i
morgun, voru fjórir slökkviliðs-
bilar til reiðu og um klukkan
hálf ellefu i morgun, hafði
slökkviliðinu tekizt að komast
fyrir eldinn. Varð að rjúfa gat á
vélarhús bátsins til aö komast
fyrir eldinn, en aö öðru leyti
þurfti ekki að raska við neinu að
utanverðu.
Skemmdir munu hafa orðið
talsvert miklar i vélarrými
skipsins, en sem betur fer
einangra hann þar inni.
Pólstjarnan er 70-80 tonna
bátur, tréskip gerð út af Sjö-
stjörnunni, Keflavik — GG
breiddist eldurinn ekkert út um
bátinn. skipverium tókst að
Slökkviliðsmenn ráðast til atlögu við eldinn I bátnum I morgun. (Ljósm. Visis MG)
BANN VIÐ AÐ NOTA
HAFIÐ FYRIR
RUSLAHAUG?
— alþjóðleg mengunarróðstefna hófst í
morgun í Reykjavík
Meira en hundraö fulltrúar frá
80 þjóðum munu fjalla um gerð
samkomulags um bann viö að
setja eiturefni frá skipum f hafið
á ráðstefnu, sem hófst á Hótel
Loftleiöum I morgun. Munu full-
trúarnir þinga hér I vikutlma.
Verður samkomulagið lagt fyrir
mengunarráðstefnu I Stokkhólmi
I vor.
Við opnun ráðstefnunnar I
morgun flutti Einar Agústsson
utanrikisráðherra og Vladimir
Baum starfsmaður Sameinuðu
þjóðanna ræður.
tslenzka sendinefndin hjá Sam-
einuðu þjóðunum og utanrikis-
ráðuneytið hafa undirbúið ráð-
stefnuna. —SB—
TROLLIN FARIN
AÐ VEIÐA BÁTA
— munaði minnstu að illa fœri hjá
Vestmannaeyjabát við innsiglinguna
Litlu munaði að illa færi fyrir
Lundanum VE f innsiglingunni i
Vestmannaeyjahöfn í nótt.
Talið er, að báturinn hafi lent I
trolli fyrir utan höfnina. Botninn
h-rotnaöi og bátinn rak en bátar
komu til aðstoöar og náðu honum
inn. t morgun var veriö aö dæla
úr bátnum við bryggjuna.
Ekki er vitað með vissu hvernig
stóð á trollinu á þessum staö, þeg-
ar Visir haföi samband viö Vest-
mannaeyjar i morgun. Möguleiki
er talinn á, að það hafi rekiö fyrir
innsiglinguna.
—SB —
Réðust ó strœtóstjóra
— þrír piltar vildu hefna þess að vera
visað úr vagninum
Bilstjóri einn hjá SVR var á
laugardagskvöldiö að aka sinum
strætisvagni. Komu þá þrir ungir
menn i vagninn til hans og létu
dólgslega, enda ölvaðir nokkuö.
Var fyrirferðin i piltunum loks
þvilik, að vagnstjórinn varð að
vikja þeim úr vagninum.
Ungir menn eru stoltir. Og
þessir þrir voru svo særðir vegna
þessarar meðferðar vagnstjórans
á þeim, að þeir sóru að hefna.
Klukkan rúmlega eitt um
nóttina sátu þeir svo fyrir vagn-
stjóranum og réðust þrir á hann
einan. Börðu þeir hann nokkuð,
eða svona á meðan kjarkur entist.
Er þeir voru í burtu, kærði
vagnstjórinn, og lögreglan náði
tveimur piltanna fljótlega.
Vagnstjórinn var tilsvert
pústraður. Sprungið fyrir á auga-
brún, og einhverja fleiri áverka
hlaut hann. —GG.
Guðinn brillíantín mœtti
til leiksýningar í Laugunum
,,fíg er handviss um að leiksýning
okkar hefði ekki notið þeirrar að-
sóknar, sem raun varð á, hefði
hún farið fram á venjulegu leik-
sviði fyrir venjulegum áhorf-
endasal. Þaö, aö sýna lcikritið ,,A
rúinsjó" úti i miðri Laugardals-
laug hefur áreiöanlega vakið
mesta athygli á leikflutningi okk-
ar llamrahliðarskólanema,"
sagði Kudolf AdolTsson, einn leik-
endanna er Visir vakti hann- af
værum hlundi i morgun til að
spyrja hann hvernig til tókst með
leiksýninguna i gærkveldi.
,,Ég er svo nývaknaður, að ég
er ekki búinn að kanna heilsufaé
mitt eftir volkið i lauginni,”
sagði Rudolf ennfremur. „Mér
varð svo sem ekkert tiltakanlega
kalt. Það kom svo afbragðs veður
akkúrat um leið og við hófum
leikinn. — Verst að það sóðaveð-
ur, sem hafði verið fram að þvi
skuli hafa fælt fjölda frá þvi að
koma til sýningarinnar. Ég er
ekki i neinum vafa um að svo hafi
verið. Þó megum við gera okkur
ánægða með aðsóknina. Það
komu éitthvað um 500 manns til
að horfa á okkur."
Hvernig þeim kom til hugar, að
sýna leikritið úti i miðri sund-
laug?
„Það atvikaðist þannig, að einn
kennarinn vildi spauga svolitið,
þegar hann heyrði að við ætluðum
að sýna leikritið „Á rúmsjó". —
Nú já, og ætlið þið að sýna það úti
i einhverri sundlauginni, spurði
hann. Og við tókum hann auðvit-
að á orðinu”.
Þeir voru fimm, piltarnir,
sem léku i leikritinu. Hudolf
telur litlar likur á þvi,
að nokkur þeirra hætti sér
lengra út á leiklistarbrautina.
„En það var geysilega skemmti-
leg tilbreyting i þvi, að taka þátt i
þessu sprelli,” sagði hann.
„Borgar Garðarsson, sem annað-
ist leikstjórnina var lika svo hress
og skemmtilegur. Hann sýndi
okkur það mikinn áhuga, að hann
stakk af úr Iðnó i hléi frá Atóm-
stöðinni bara til að sjá hvernig
okkur gengi. Hann mætti i leik-
búningi Guðsins brilliantin”. —
—ÞJM
Atómvopn
á Víetnam?
— „Nixon tilbúinn", segir krossfarinn
Jack Anderson
Nixon Bandarikjaforseti er til-
búinn að beita kjarnorku-
vöpnum i Vietnam, ef innrás
Noröur-Vietnama eyðileggur þá
stefnu hans að kalla bandariska
liðiö heim segir blaðamaðurinn
Jack Anderson.
Anderson hefur látið mikið til
sin taka að undanförnu og staðið
á bak við margar helztu fréttir-l
nar, eins og Visir rakti á laugar-|
dag. Anderson leggur áherzlu á,J
að kjarnorkuvopnum verði ein-
ungis beitt sem algerri neyðar-
ráðstöfun, ef Nixon telji sigi
annars muni þurfa að auka liðið)
fyrir forsetakosningarnar i'
haust. —HH.