Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 13

Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 13
VISIR. Mánudagur 10. apríl 1972 13 Það munaði mjóu í Hollywood um daginn. Öll borgin, hver einasti slúður- dálkahöfundur og hver einasta kerling í síðdegis- kaffi tútnuðu út af ánægju. Svoleifiis var, að Dean Martin, sá frægi leikari, söngvari, drykk- jurútur, kvennagull og margt fleira, fór út að borða. Og það gerði lika konan hans, hún Jeannie Martin. Þau fóru bæði að borða kvöldverð á frægum stað i kvikmyndaborginni, sem kallast „Chasens”. Það er nú ekkert, þetta fólk verður nefnilega lika að borða. Hitt var merkilegra, að þau Martins-hjón fóru ekki saman. Þau hafa varla verið saman i allan vetur eða lengur. Og Dean á kærustu sem er ung, spengileg og sexi og heitir sú Cathy Hawn. Stelpan fór með Dean að borða. Og Jeannie, eða frú Martin, sem leikarinn frægi er nú að reyna að fá til að skilja við sig út af þessari Cathy, fór að borða með manni sem hún hefur sofið hjá i allan vetur og hann heitir Frank Calcagnini. Þau Frank fóru á „Chasens” til að borða með fólki sem hélt veizlu þar til að fagna komu franska skiðakappans, Jean Claude Killy, til Hollywood. Pörin lentu sem betur fór sitt hvoru megin i borðsalnum. Sem betur fer. (Hefði reyndar verið gaman hefði fólkið lent i næsta nágrenni hvert við annað. Þá hefði sko aldeilis orðið fjör maður!) Nei. Þau sátu bara fjarri hvort öðru hjónin, og litu ekki einu sinni á hvort annað. Svo kláraði Dean Martin matinn sinn. Spurði Cathy kurteislega hvort hún vildi ábót. Nei, sagði hún. Og þá fóru þau bara. Hálftima siðar var Jeannie Martin lika orðin södd, og þá stóð hún upp, og sagði vini sinum, honum Frank, að hún vildi ómögulega meira. Svo fóru þau lika. Þegar það parið, sem siðar yfirgaf veitingastaðinn, kom út á götu, var fréttin af þessari merkilegu tilviljun flogin út um allan bæ. Og daginn eftir lásu menn i ein- hverju dagblaðinu, hvað Cathy hefði raunverulega fundizt um að sitja i sama veitingasal og kona elskhuga hennar. „Við hittumst sko ekki”, sagði Cathy, ,,og ég var svaka glöð að við gerðum það ekki. Samt held ég að þau hefðu ekkert farið að rifast eða slást, þótt við hefðum hittzt. En þetta var gasalega neyðarlegt, og sannarlega langar mann ekki að labba sig inn i sona- lagað aftur.” Og Frank, elskhugi frú Martin, eiginkonu leikarans fræga, sagði þetta:,,Við heyrðum að þau væru i veitingahúsinu og ég varð soldið Dean Martin og viðhaldiö Jeannie Martin og viðhaldið MUNAÐI MJÓU! hræddur. Hræddur af þvi ég hélt að vitneskjan um Dean þarna gæti komið Jeannie úr jafnvægi. En við hittum þau ekki Og við pössuöum okkur að biða viö borðið okkar þar til við fréttum að þau hefðu farið. Svakalegt maður”. CHARLES AZNAVOUR — franskur söngvari — á nú i vök að verjast. Geysimikil reiðialda hefur risið vegna þess, að hann lét þriggja ára gamla dóttur sina, Katia, vera með i harðgerðri hasarkvikmynd. Henni er i mynd inni rænt og misþyrmt af mann- ræningjunum. M.a. er brugðið reipi um háls henni og hún þannig dregin fram og aftur þar til hún æpir af kvölum. Mann- ræningjarnir halda höfði hennar lika undir iskaldri vatnsbunu þar til tennur litlu telpunnar heyrast glamra. Charles Aznavour viður- kennir, að hlutverkið hafi verið erfitt, en bætir við: — Við skýrð- um það út fyrir döttur minni, að þetta væri allt saman leikur, og hún skemmti sér afar vel. FRANK SINATRA ætlar að veitast það erfitt að draga sig i hlé frá skemmtana- iðnaðinum fyrir fullt og allt eins og hann hafði ætlað sér. Það er verið að undirbúa söngskemmtun hans i London, og nú er verið að undirbúa töku myndar með'hon- um i aðalhlutverki. „Litli prins- inn” verður heiti myndarinnar, en hana gera þeir sömu úrgarði og „My Fair Lady”. VANESSA REDGRAVE — ensk kvikmyndaleikkona — hefur neitað að vera viðstödd frumsýningu myndarinnar „Mary, Queen of Scots”, en i myndinni fer hún með aðalhlut- verkið. Drottningarmóðirin og Margrét prinsessa verða á meðal frumsýningargesta, en ekki Vanessa. — Kannski það komi til áf þvi, hversu ég er vinstrisinn- uð...., segir leikkonan. En hún segir ekki meir. HUSCAGNAVIKA 1972 8,- 17. APRÍL ÍÞRÓTTAHÖLLINNI í LAUGARDAL OPIN VIRKA DAGA KL. 16 - 22 LAUGARDAGA OG SUNNUDAGA KL. 14- 22 SÝNING Á HÚSGÖGNUM OG INNRÉTTINGUM, EFNI TIL HÚSGAGNA, ÁKLÆÐUM, GLUGGATJÖLDUM OG TEPPUM STERLING óskar eftir að ráða nokkra flugstjóra og aðstoðarflugmenn strax Þeir einir koma til greina, sem hafa eða hafa haft réttindi á DC 6B, Lockheed Electra eða Fokker Friendship (F-27). Skriflegar umsóknir ásamt hæfnisvottorðum og meðmælum sendist til: 5TERLING AIRWAYB^ Köbenhavns Lufthavn Syd 2791, Dragör, Danmark. Höfum opnað Viðgerðarverkstæði fyrir: Utanborðsmótora. Briggs og Stratton vélar. Sláttuvélar. Svo og allar gerðir minni véla. LEGGJUM ÁHEIIZLU Á GÓÐA ÞJÓNUSTU. VÉLARÖST H.F. Súðavog 28-30 Inng. frá Kænuvogi. Renault 6 TL "71 Til sölu nú þegar. Bifreiðin er vel með farin, snjódekk og sætacover fylgja. Til sýnis hjá Renault umboðinu. KIIISTINN GUÐNASON h.f. Klappastig 27 Simi 22675

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.