Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 6

Vísir - 10.04.1972, Blaðsíða 6
6 VÍSIR. Mánudagur 10. april 1972. VÍSIR Otgefandi: Reykjaprent hf. Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson Ritstjóri: Jónas Kristjánsson Fréttastjófi: Jón Birgir Pétursson Ritstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 15610 86611 Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611 Ritstjóm: Siðumúla 14. Simi 86611 línur) Askriftargjald kr. 225 á mánuði inranlands i lausasölu kr. 15.00 eintakið. Blaðaprent hf. Ottinn við óþœgindin Algengur veikleiki manna er óttinn við að þurfa að horfast i augu við erfiðan sannleika. Þótt menn viti, að undan þvi verði ekki komizt, reyna margir að fresta þessu óþægilega andartaki eins lengi og hægt er. Með þessu geta þeir valdið sér og öðrum miklum vandamálum, eins og ljósast er af ótal dæmum um, að menn hafi veigrað sér við að takast á við fjárhagsvandamál sin i tæka tið. Þessi veikleiki getur einnig herjað á heilar rikis- stjórnir. Það er til dæmis tæplega sanngjarnt að gagnrýna rikisstjórn Islands fyrir að reyna að blekkja þjóðina i sambandi við verðhækkanir, öryggismál og ýmis önnur mál. Liklegra er, að þar sé um að ræða sjálfsblekkingu, ótta við að horfast i augu við erfiðan sannleika. Um þetta má taka ýmis dæmi. Rikisstjórnin hefur áreiðanlega ekki talið sig geta haldið leyndri fyrir fólki þeirri hækkun, sem um daginn varð á tóbaki og áfengi. Samt lét hún undir höfuð leggjast að tilkynna hækkunina samdægurs. Þar var á ferðinni ótti við óþægindi, ótti við óvin- sældir, ótti við gagnrýni eða skens i samtölum og einlæg löngun til að fresta þessum óþægindum, þótt ekki væri um nema einn dag. Ótrúlegt er, að rikisstjórnin hafi talið sig geta sannfært fólk um, að siminn hækkaði aðeins um 10% um daginn. Auðvitað hlaut að komast upp fyrr eða siðar, að hækkunin á simgjöldum ibúa Reykja- vikursvæðisins væri hvorki meira né minna en 60%. Það hlaut að komast upp i siðasta lagi, þegar menn færu að greiða nýju gjöldin. Og i rauninni komst þetta upp þegar á fyrsta degi. Rikisstjórnin lætur enn halda uppi málflutningi fyrir þeirri skoðun, að skattar muni ,,lækka á þorra manna”, eins og sagt var i forsiðufyrirsögn Timans um daginn. Vitanlega kemur i júni að þvi, að menn fá skattseðla sina, og i júli að þvi, að menn þurfa að fara að borga skattahækkanirnar. Þá reynir á þá töfralist rikisstjórnarinnar að láta greiða helmings hækkun rikisútgjalda með lægri sköttum. Svona töfralist flokkast ekki undir blekkingu, heldur sjálfsblekkingu. Menn hafa furðað sig á mörgum og misjöfnum túlkunum rikisstjórnarinnar á stefnu hennar i öryggismálunum. Það vekur athygli, að utanrikis- ráðherra hefur haft á takteinum fjórar túlkanir á þessari stefnu. Það vekur athygli, að nú eru i gangi þrjár túlkanir hjá rikisstjórninni, túlkun utanrikis- ráðherra, túlkun ráðherra Alþýðubandalagsins, og svo sérstök túlkun forsætisráðherra. Rikisstjórnin sér sjálf, að óþægindi verða ekki umflúin með þvi að yppta öxlum og visa i málefna- samning sinn, sem er i þessu efni eins óljós og verða má. En hún er að reyna að hafa alla góðasemlengst. Hún er að reyna að friða alla flokka og flokksbrot. Hún er að reyna að ýta vandamálinu á undan sér, þótt hún viti, að einhvern tima komi að skulda- dögunum, og þótt hún heyri, að menn láta ekki blekkjast. Undanbrögð hennar eru þvi fyrst og fremst sjálfsblekking. Þegar að skuldadögunum kemur, verður óttinn við óþægindin orðinn rikisstjórninni dýrasti veik- leikinn. Tebollar gömlu kvennanna Fallhlifahermennirnir drápu I Londonderry, en hlutverk þeirra er að hjálpa, eins og þeir gera hér. munu róða úrslitum Heath hefur rekið fleyg í báðar w fylkingar á Norður- Irlandi Norður-írland hefur breytzt. Ekki einúngis af því, að minna blóðhefur flotiðsíðustu daga. Þar flýturenn blóð. En Bretinn Heath kastaði teningunum og fór yfir ána. Hann hefur kallað yfir sig reiöi margra mótmælendatrúar- manna. Þeir eru nú háværastir. En honum hefur teki/t að reka fleyg i báðar fylkingar, og hver veit nema meirihlutinn báðum inegin hafi séð ljós? Heath gerði það eina, sem gat vakið vonir um björgun. Norður- Irar stóðu á barmi borgara- styrjaldar og höfðu rambað þar lengi. Atökin hörðnuðu og mann- vigin uxu. Stjórnvöld höföugertþá hörmulegu skyssu að heimila handtöku fólks ,,án dóms og laga”, ef það var grunað um græzku. Vafalaust sáu Bretar að minnsta kosti það ekki fyrir, en þáttinn um „Adam Strange” siðasta föstudagskvöld ætti að vera þessi staðreynd ljósari en fyrr, þvi að i reynd veita margir henni ekki athygli. Fáiö stúdentum ljósaperur til að fleygja i lögregluþjóna, sem þeir kunna að gera i bræði, óvitandi um, að þetta eru mannskæðar sprengjurog geta drepið menn og limlest, og þið fáið reiöa andstæö- inga stúdenta. Reiðir andstæð- ingar stúdenta munu heimta „hefndir”, harðvitugar lögreglu- aðgerðir gegn öllum slikum,mein- lausum sem öðrum. Pislarvottar verða til. Stúdentar svara. Ofgamenn meðal stúdenta fá þar öll völd. öfgamenn meðal and- stæðinga stúdenta fá öll völd þeim megin. Kannski sitja eftir ein- hverjir aumingjar og segja „Farið með gát” og láta hia á sig. Þetta þekkja nasistar og kom- Hún var stödd I búöinni, þegar sprengja henndarverkamanna sprakk. kaþóslkir litu á þessar aðferðir sem yfirlýsingu um kúgun. Lærdómur af „Adam Strange” IRA-hreyfingin fékk þar tæki- færi til að taka öll völd meðal ka- þólskra. Innan IRA urðu þeir öfgafyllstu allsráðandi. Alls staöar fæðast öfgar af öfgum. Aukin harka i viðskiptum við ka- þólska var olia á eldinn, efldi öfgamenn i IRA og vegna óhæfu- verka þeirra efldust öfgamennir- nir hinum megin. Þeim, sem sáu sjónvarps- múnistar alls staðar. Þetta er stafrófskver öfgamanna. Verða öfgamenn einangraðir ? A þetta er bent, þvi að oft má mikið læra af litlu, sem menn taka vel eftir, og fyrst og fremst af þvi, að þetta er eðli málsins i Norður-lrlandi. Þetta var hnútur- inn, sem Heath hjó á. Hann hefur sigrað i fyrstu lotu, ekki endan- lega, ekki til fulls. En vonir Ira eru bundnar þvi, að öfgamennir- nir veröi einangraðir báðum megin. Kannski hefur þessi gamla kona gefið þreyttum og köldum her- manni tebolla og vonandi lifir hún sár sin til að gera það aftur. Mótmælendur eru greinilega klofnir I afstöðu til aðgerða brezku stjórnarinnar. Brian Faulkner, sem var forsætis- ráðherra Norður-Irlands, og þvl i fararbroddi mótmælenda, mót- mælir Heath i orði en hvetur til friðsemdar I verki. ööru máli gegnir um mótmælenda- foringjana William Craig og séra Ian Paisley. Þeir búast til bar- daga, gegn kaþólskum, en ekki siður gegn Bretum, ef Heath stendur við fyrirheit sin. Þannig gætu öfgafullir mót- mælendur tekið upp raunveru- lega samkeppni við öfgafulla ka- þólikka I mannsmorðum, þar sem hinir síðarnefndu, öfgamennirnir i IRA, hafa mest gert. Fréttir bera einnig með sér, að IRA- hreyfingin er klofin, og nú er verið að reyna að lappa upp á hana. Meirihluti kaþólskra tekur tillögum Heaths með von um betri tima. Sagt er, að kaþólskar konur séu aftur farnar að færa brezkum hermönnum tebolla. 1 Norður-trlandi er ein milljón mótmælenda og hálf milljón kaþólskra. Heath hefur enn aðeins stigið fyrstu skrefin með þvi að vikja heimastjórn Norður- Irlands til hliðar, þar sem hún i reyndinni hafði verið tæki i hönd- um mótmælenda til að halda ka- þólska minnihlutanum niðri. Allt veltur á framhaldinu i stefnu Heaths og þvi, hvernig fylkingar- nar klofna. Framtið N-Irlands veltur á þvi, hve margir tebollar- nir verða, sem gömlu konurnar færa brezku hermönnunum á svölum nóttum. IIIIIIIIIIII Umsjón: Haukur Helgason

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.