Vísir - 12.05.1972, Síða 9
Visir Föstudagur 12. mai 1972.
9
Skapgerð barns og velgengni
mótast fyrsta órið
I IIMIMl
H SÍÐAIM H
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Foreldrar geta hjálpað
börnum sínum til þess að
þeim gangi betur að
ganga hinn langa og
bugðótta veg lífsins. Það
hefur verið sannað, að
það hefur mjög slæm
áhrif á barn, ef það hefur
ekki nægt samband við
fullorðna, á meðan það er
enn á fyrstu árunum.
En langflestir foreldrar
hafa litla sem enga hug-
mynd um, hvað lítið barn
í raun og veru getur gert
og hvað virkilega fer
fram í því. Jafnvel þeir
foreldrar, sem hvað mest
og bezt fylgjast með því.
Flestir lita á ungbörn sem
eitthvað brothætt, sem ekki má
snerta og verður að fara mjög
varlega með. 1 augum sumra er
barn ekki annað en einhver
hlutur, sem verður að gefa að
borða og athuga að liði vel i
vöggunni sinni.
En ungbarn getur i rauninni
miklu meira en nokkur móðir
eða fabir getur imyndað sér.
Foreldrar geta hjálpað barni
sinu mikið með þvi hreint og
beint að „tala” við það og taka
eftir hinum ýmsu merkjum og
hreyfingum þess og reyna eftir
fremsta megni að svara þeim.
1 Danmörku hafa farið fram
ýmsar rannsóknir á ungbörnum
og meðferð þeirra, og sálfræð-
ingurinn Ruth Iversen komst að
þeirri niðurstöðu, að skapgerð
barnsins og velgengni þess siðar
á lifsleiðinni mótaðist fyrsta
æviárið.
Meira samband
Ruth Iversen mælir með
miklu meira og nánara sam-
bandi milli foreldranna og svo
aftur læknanna, sálfræðinganna
og jafnvel þeirra nemenda, sem
stunda nám i sálfræði. Fyrstu
tvö árin þarf sérstaklega að
fylgjast vel með börnunum,
táknum þeirra og merkjum og
öllu þvi, sem þau eru að reyna
að segja og gera.
Það hefði heldur áreiðanlega
ekki slæm áhrif, ef sálfræðingar
og foreldrar hefðu það mikið
samband, að þeir gætu komið
saman og rætt um framför og
þroska barnsins. Það gæti
komið sér mjög vel fyrir báða
aðila.
Og Ruth heldur áfram: Það
hefur góð áhrif á barnið, að
foreldrarnir umgangist það
mikið og að það finni sem oftast
einhverja snertingu, og það þarf
vist heldur ekki að fara mörgum
orðum um það, hve miklu betra
og skemmtilegra það er fyrir
foreldrana sjálfa.
Fyrsta brosið
og vísir að máli
Flestir eiga erfitt með að trúa
þvi, að ungbarn byrji að brosa,
meðan það er aðeins 4 vikna
gamalt. En Ruth Iversen heldur
þvi fram, að það eigi sér stað.
Barnið brosir oft, ef talað er við
það, og brosið sést bezt i kring-
um augun.
Og ekki er nóg með það, að
það brosi fjögurra vikna
heldur er strax kominn visir að
máli, er það er tveggja mánaða
gamalt. Barnið hlustar með
stórum undrunaraugum á fólkið
allt i kringum sig tala, og það
fer að mynda óskiljanleg hljóð.
Þess vegna er það svo mikil-
vægt að tala nógu mikið við það
á þessum aldri, löngu áður en
það fer að geta myndað rétt orð.
Mjög fljótt fer barnið að hafa
þörf fyrir einhvern fullorðinn,
einhvern sem það finnur frið og
öryggi hjá. Allir, jafnt fullorðnir
sem börn, hafa þörf fyrir „ein-
hvern til þess að halla sér að”.
Þess vegna er það hættulegt, að
barn umgangist stöðugt heilan
hóp af fólki, en komist aldrei i
fast og stöðugt samband við
eina manneskju.
Við þær mæður, sem ekki geta
sinnt börnum sinum sem skyldi,
þurfa að vinna úti allan daginn
eða annað, segir Ruth Iversen:
Þvi fleiri timum, sem þið eyðið
með börnum ykkar fyrsta árið,
þvi betur munið þið ná saman
seinna, og þvi nánara verður
sambandið einnig siðar meir.
Það nægir ekki, að barnið finni
ást og umhyggju, sem verður jú
vissulega að fyrirfinnast. Að
tala við barnið og láta það finna
snertingu er miklu betra en að
láta það hafa litrikt og fallegt
leikfang.
Og þar sem allar mæður og
allir feður óska þess að hafa
náið samband við börn sin,
veltur á miklu, að það sé nógu
strax eftir aö einstaklingurinn
liturdagsinsljós. -EA
Nú eru það snjáðar,
víðar gallabuxur
Sumartizkan er með hinu
fjörlegasta móti i ár, köflótt,
röndótt, og skærir litir. Þannig
vilja tizkufrömuðirnir hafa
stúlkurnar klæddar á götunum
i sumar. En Þjóðverjarnir eru
ekkert að hugsa um skæru
litina, er þeir koma með sinar
hugmyndir, nú eru það bara
khaki—buxur og buxur, sem
þeirkalla „yfir-allt”. Það ætti
eflaustekki að verða svo erfitt
að útvega sér svona buxur.
Leita aðeins vel inni i skáp hjá
afa og vita, hvort hann lumar
ekki á einhverjum gömlum frá
þvi fyrr á árum.
C/>
!>
hringiö, skrifið, komiö......
og fariö
í úrvalsferö
til Mallorca
FERÐASKR/FSTOFAN
URVAL
Eimskipafélagshúsinu simi 26900