Vísir - 12.05.1972, Síða 13
Visir Föstudagur 12. mai 1972.
13
JOHN WAYNE
var einn þeirra þriggja, sem
fóru með aðalhlutverkin i kvik-
mynd, sem nýverið var verið að
gera „vesturfrá”. Myndin ber
heitið „Komdu til Alaska”, og er
sagt, að það hafi verið kostað til
hennar jafnmörgum dollurum og
Bandaríkjamenn gáfu Rússum
fyrir Alaska árið 1867: 600 millj-
ónir islenzkra króna.
SOV ÉZK-ÍSLENZKA
VINATTUFÉLAGIÐ
er til i Moskvu. Það hélt nýverið
stjórnarfund i Vináttuhúsí
borgarinnar. Formaður félags-
ins, Sergei Stúdéntski, vara-
sjávarútvegsmálaráðherra
Sovétrikjanna, sagði þar fundar-
mönnum frá nýafstaðinni ís-
landsför sinni. A fundinum gerð-
ist það lika, að áhöfn fiskileitar-
og visindaskipsins Persei-3 var
tekin i félagið sem hópmeðlimur.
Heimahöfn skipsins er Múr-
mansk, en starfssvæði þess er
aðallega Atlanzhaf, og það leitar
oft hafnar á Islandi.
Striplingar auka
ferðamannastrauminn
Ferðamálaspekúlantar i Tyrk-
landi hafa nú fundið nýtt ráð til að
örva aðsókn ferðamanna inn i
landið. Hyggjast þeir nú setja upp
nektarnýlendur og telja, að það
verði til mikils yndisauka fyrir
erlenda gesti. Það væri kannski
athugandi fyrir Ferðamál-okkar
okkar að kanna möguleikana á
þessu hugmyndafóstri þeirra
Tyrkjanna, með ferðamanna-
strauminn i huga.
Dýragarður í bíl
Maður nokkur i Astraliu keypti
sér nýlega bil, sem ekki er i frá-
sögur færandi. En billinn var dá-
litið sérstæður og ekki eins og
venjulegir bilar eru yfirleitt, þvi
það var engu likara en dýragarð-
ar i Astraliu hefðu sett upp útibú i
þessum bil. 1 aftursætinu fann
manngarmurinn heljarmikla
eiturslöngu, og i vélinni hafði
rottukvikindi hreiðrað um sig!
Ekki fylgir það sögunni, hvort
maðurinn hélt áfram að safna
dýrategundum i bilinn og auka
tjöibreytnina, en eittfivað hefur
Ekið á Benediktu
prinsessu
Járnbrautarlest ók nýverið um
koll sjálfa Benediktu prinsessu.
Sem betur fer varð hún ekki fyrir
öðru hnjaski en þvi, að nælon-
sokkar hennar eyðilögðust. Það
var nefnilega aðeins um að ræða
leikfangalest á barnaleikvelli i
þessu tilviki.
TWIGGY
fyrrum ljósmyndafyrirsæta, en
nú kvikmyndastjarna eftir leik
sinn i söngvamyndinni „The Boy
Friend” er nú þegar tekin til við
að leika i annarri kvikmynd sinni.
Nafnhennarer „Gotta Sing Gotta
Dance” og er eins og nafnið bend-
ir til dans- og söngvamynd.
GIGI
stærsti köttur veraldar (vó 21
kiló), er dáinn, 12 ára að aldri. 1
siðustu viku hætti hann að geta
borðað, og á endanum varð eig-
andi hans, Anna Clark, Englandi,
að láta aflifa hann, Þegar Gigi
var upp á sitt bezta, fór frú Clark
oft og iðulega með hann i göngu-
ferðir. Þá var hún tilneydd að
hafa hann i bandi — hann var svo
gjarn á að elta uppi hundana, sem
á vegi þeirra urðu.
ANITA EKBERG
hefur mælt orð af vörum til blaða-
manna. 1 viðtali við þýzkan
blaðamann sagði hún: — Það
voru persónutöfrar minir, sem
gerðu mig fræga, ekki stærð
brjósta minna.
hann orðið hvumsa við.
Þóroddur Guðmundsson
formaður Fél. ísl. rit-
höfunda.
Þóroddur Guðmundsson var
kjörinn formaður i Félagi isl. rit-
höfunda á dögunum, en
Guðmundur Danielsson baðst
eindregið undan endurkjöri. Er-
lendur Jónsson er ritari, Jenna
Jensdóttir gjaldkeri og Ragnar
Þorsteinsson meðstjórnandi, en
auk þeirra á Indriði G. Þorsteins-
son sæti i stjórninni. Matthias
Johannessen flutti á fundinum
skýrslu um störf Rithöfundasam-
bands tslands. Samþykkt var að
gera dr. Richard Beck heiðurs-
félaga. Aðalfundarstörfum lauk
ekki á fundinum og var ákveðið
að boða til framhaldsaðalfundar.
Styrkið fátækar mæður
með kaupum mæðra-
blómsins
Mæðrastyrksnefnd hefur um
margra ára skeið haft 10 vikna
sumardvöl á sumri hverju fyrir 50
mæður, — þeim að kostnaðar-
lausu. Er hætt við, að margar
eldri konur mundu ella ekki eiga
kost á hvild á fögrum stað fjarri
amstri og áhyggjum. Er þetta eitt
af verkefnum nefndarinnar. A
sunnudaginn munu mæðrablómin
afhent sölubörnum I öllum barna-
skólum borgarinnar og i anddyri
Laugarásbiós og skrifstofu
nefndarinnar að Njálsgötu 3. An
efa munu allar fjölskyldur ljá
málefninu lið eins og um mörg
undanfarin ár.
Nýtt tækniþjónustufirma
Rétt fyrir áramót hóf starfsemi
sina i Reykjavik fyrirtækið
Stýring hf„ en stofnendur eru Leó
M. Jónsson, vélfræðingur og
Guðmundur Ingólfsson rekstrar-
tæknifræðingur. Fyrirtækið mun
bjóða þjónustu þeim, sem vilja
aukna og bætta hagræðingu og
skipulagningu fyrirtækja. Segja
stofnendur fyrirtækisins að oft
megi auka afköst iðnfyrirtækja
verulega með skipulagi fram-
leiðsluþátta, og hefur jafnvel
tekizt að tvöfalda framleiðslu-
magn án þess að vinnuálag
starfsmanna hafi aukizt. Þá
vinnur Stýring upp hvetjandi
launakerfi eða bónus til að nota
við framleiðslu. Skrifstofa fyrir-
tækisins er að Laugavegi 178.
Heppin, — prófin eru aö
baki hjá þeim
Meðan þessi kátu skólabörn frá
Kirkjubæjarklaustri voru að
slappa af eftir prófin i mikilli
Reykjavikurreisu, voru milli 15
og 16 þúsund Reykjavikurbörn og
unglingar að búa sig undir próf,
eða þá að taka próf. Eflaust munu
margir stynja þungan, þvi vart
getur meiri kross en blessuð
prófin. Ungmennin frá Kirkju-
bæjarklaustri voru 24 talsins og
komu i fylgd séra Sigurjóns
Einarssonar, sóknarprests og
formanns skólanefndarinnar.
Skoðuðu þau merkisstaði i
Reykjavik, Þjóöminjasafnið
m.a., Sædýrasafniö i Hafnafirði
og svo vildu þau fá að sjá, hvernig
dagblað yrði til, og skoðuðu
ritstjórn Visis og prentsmiðju
Blaðaprents. Hér fylgjast þau
með hvernig fyrirsögn verður til.
Vesturberg veröur nú
Vesturhólar.
Hús með númerin 201 til 223 við
Vesturberg i Breiðholti III munu
nú breyta um nafn. Framvegis
heitir gatan Vesturhólar með
númerin frá 1 til 23.
Bygginganefnd Reykjavikur-
borgar samþykkti tillögu, sem
fram kom frá Geirharði Þor-
steinssyni, arkitekt um þetta efni.
SLANK
PR0TRIM
losar yður við mörg kg. á
fáum dögum, meö þvi að það
sé drukkið hrært út i einu
glasi af mjólk eða un-
danrennu fyrir eða i stað
máltiðar.
Og um leið og þér grennið
yður nærið þér likamann á
nauðsynlegum efnum.
PRO TRIM-slanker sérlega
mettandi og nærandi.
Höfum einnig eggjahvitu-
auðugt styrkiefni fyrir
iþróttafólk.
'Sendist i póstkröfu.
Verð kr. 300,— hver dós.
Mánudaga, miðvikudaga og
föstudaga opið kl. 10.00
—20.30, þriðjudaga og
fimmtudaga frá kl. 5—20.30
— laugardaga kl. 10—16.30.
Heilsuræktarstofa Eddu —
Skipholti 21 (Nóatúns-
megin).