Vísir - 13.05.1972, Síða 7

Vísir - 13.05.1972, Síða 7
Visir — Laugardagur 13. mai 1972 7 cTVLenningarmál Stefán Edelstein skrifar um tónlist: Vatn og eldur Sá fágæti atburður gerð- ist á síðustu tónleikum Sl, að einleikari með hljóm- sveitinni var hvorki píanó- leikari né fiðluleikari. óbó- leikarinn Sidney Sutcliffe frá Bretlandi lék einleiks- hlutverkin í óbókonsertum eftir Alan Rawsthorne, brezkt tónskáld, og Domenico Cimarosa. Sutcliffe er feikigóður óbóleik- ari, sem getur módelerað hljóð- færið allt frá finum grönnum tóni i breiðan og saddan tón. Lék hann áf mikilli snilli og við fádæma góðar undirtektir áheyrenda. Bohdan Wodiczko Tónsmið Rawslhornes er ekki sérlega áhugaverð, mjög hefð- bundinn „modernismi”, en þó i heild áheyrileg. Cimarosa virtist falla betur að eyrum tónleika- gesta. Á undan þessum tveimur verk- um var fluttur konsert i d-moll eftir Vivaldi/Bach. Var þetta einn af hinum mörgu konsertum Vivaldis, sem meistari Bach hafði umskrifað. Einhverjir kunna að hafa undrazt, hve mikill framúrstefnumaður þessi Bach hafi verið miðað við þá tima, sem hann var uppi á, þvi þarna var sneiðin þykkt smurð: Básúnur, horn, fagott, trompet, hörpur og meira að segja slagverk. Þetta var sýnilega handbragð einhvers annars en Bachs, einhver heldur ósmekklegur, deli sem gleymzt hefur að nefna i efnisskránni. Var þetta i einu og öllu óþverraleg út- setning, og hefði verið nær að jazza eða poppa barokkmeistar- ana almennilega i staðinn fyrir þennan vanskapnað. Eftir hlé kom vatn og eldur: Gosbrunnar Rómaborgar eftir Respighi og Eldfuglinn eftir Stravinsky. Bæði verkin voru eins og sniðin fyrir stjórnanda kvölds- ins, Bohdan Wodiczko. Hin róm- antiska gosbrunnatónsmið er prýðilegt verkefni handa Sí, hér verða stjórnandi og hljómsveit að beita sér vel, ef ekki á að verða úr vatnsgutl. Tókst flutningur vel. Eldfuglinn er þannig verk, að það hlýtur að hrifa jafnvel ómúsikalskan mann. Það er synd, að við getum ekki flutt þessa stór- kostlegu balletta Stravinskýs á sviði hér. En með góðu hug- myndaflugi er hægt að imynda sér dansinn, hver hlustandi fyrir sig. Flutningur slikra verka er bezta æfing, sem hugsazt getur fyrir Sl, og hér gerir hún ótrúlega Sidney Sutcliffe. góða hluti. Wodiczko er hér einnig i essinu sinu, harður glæsileiki Stravinskýs, snarpir rýtmar og impúlsivar sprengingar komust vel til skila. Ef marka má undirtektir áheyrenda vilja þeir meira af sliku, meiri Stravinský, Bartók og önnur „klassisk” tónskáld 20. aldarinnar. Nauðungaruppboð sem auglýst var í 68. 70. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs 1971 á Langagerði 118, þingl. eign Einars Gunnars Ásgeirssonar fer fram eftir kröfu Jóhanns Ragnarssonar hrl. á eigninni sjáifri, miðvikudag 17. mai 1972, kl. 16.00. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var f 68.70. og 71. tbl. Lögbirtingablaðs 1971 á hluta i Mosgerði 11, þingl. eign Eiinar Þórðardóttur fer fram eftir kröfu Jóhanns Ragnarssonar hrl., á eigninni sjálfri, miðvikudag 17. mai 1972, kl. 16.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð annað og siðasta á Gcitlandi 17, þingl. eign Hilmars Stein- grímssonar fer fram á eigninni sjáifri, miðvikudag 17. mai 1972, kl. 13.30. Borgarfógetaembættið i Reykjavik. Nauðungaruppboð sem auglýst var I 8.9. og 12. tbl. Lögbirtingablaðs 1971 á C- götu 1, Blesugróf, þingl. eign Þorfinns óia Tryggvasonar fer fram eftir kröfu Jóns E. Ragnarssonar hdl., á eigninni sjáifri, miðvikudag 17. mai 1972, kl. 15.30. Borgarfógetaembættið I Reykja vik. Nauðungaruppboð sem augiýst var i 49. 50. 52.tölubiaði Lögbirtingablaðsins 1971 á eigninni Vikurbraut 11, Grindavik þingiesin eign Emelíu Böðvarsdóttur og Valgerðar Lárusdóttur fer fram eftir kröfu Landsbanka tslands á eigninni sjáifri miðviku- daginn 17. 5. 1972 kl. 5.00 e.h. Sýslumaðurinn I Gullbringu- og Kjósarsýsiu • Stefán Edelstein skrifar um tónlist: ímyndunarafl oa vandvirkni Oft fer svo, að svokallað- ir „smærri” tónlistarvið- burðir drukkna i flóði stórra tónleika. Litlu við- burðirnir verða í kyrrþey, án auglýsinga. Yfirleitt á það líka bezt við. Slíkir tón- leikar gera ekki tilkall til annars en vera þeim til ánægju sem eru við þá riðnir. En stundum kemur það fyrir að „smáviðburð- ur" verðskuldar meiri at- hygli en svokallaður „stór- viðburður" vegna þess að hann sýnir nýjar leiðir eða erá annan hátt merkilegur frá menningarlegu eða uppeldislegu sjónarmiði. Kirkjutónleika sem haldn- ir voru i kirju óháða safn- aðarins á sunnudag má tvimæla- laust telja til slikra atburða. Hér var ekki flutt stórverk, enginn þekktur kór söng og at- vinnuhljóðfæraleikarar komu ekki heldur fram. Flytjendur voru barnakór Hliðaskóla, stúlknakór skólans, hljóðfæra- leikarar úr hópi nemenda i Tón- listarskólanum, en orgelleikari var Elinborg Loftsdóttir. Stjórn- endur voru Guðrún Þor steinsdóttir sem stjórnaði barna- kórnumlogGuðmundur Emilsson sem stjórnaði stúlknakórnum og hljóðfæraleikurum. Auk þeirra komu fram einsöngvarar úr hópi nemenda i stúlknakórnum og kennara við Hliðaskóla. Guðrún Þorsteinsdóttir hefur unnið mikið og gott starf með barnakór sinum i Hliðaskóla, og söng kórinn ágætlega. Guðmundur Emilsson er tón- listarkennari við unglingadeildir Hliðaskóla og austur á Laugar- vatni þar sem hann kennir við ýmsa skóla. Hann afsannar þá hefðbundu skoðun að tónlist og söngur sé nánast aukagrein i skyldunámsskólunum sem eng- inn nemandi hafi gaman af. Hitt sannar hann: að það eru vinnu- brögð kennarans, hvernig hlut- irnir eru framkvæmdir, sem ákvarða hvernig nemendur taka við efninu, hvort þeir afneita þvi sem leiðinlegu eða hvort þeir fást til að leggja tima og vinnu i tón- listiná. Guðmundi Emilssyni virðist hafa tekizt það sem maður býst sizt við: að skapa lifandi áhuga nemenda i unglingadeildum á tónlist og fá ennfremur kennara skólans til samstarfs við þá i tón listarflutningi. Til að koma sliku i kring verða menn að vera hug- sjónamenn, gæddir imyndunar- afli og gera háar kröfur, og þeir verða að vera færir tónlistar- menn. Guðmundur fer ekki troðnar slóðir. Verkefnaval var næsta óvenjulegt fyrir skólakór: mið- aldatónlist, klassisk tónlist, nú- timatónlist og negrasálmar (i út setningu stjórnandans) auk tveggja frumsaminna laga. Kór- inn og einsöngvarar stóðu sig með mikilli prýði, stúlkurnar sungu hreint, músikalskt, með skýrum textaframburði, og allt utanað, latinu sem islenzku. Þeir sem sáu nokkra unglinga úr Hliðaskólanum flytja „hljóð- smiði” eftir sjálfa sig i „Stund- inni okkar” i sjónvarpinu fyrir nokkrum vikum munu ekki undr- ast. Hér var sami kennari að verki. Meðan til eru hugmyndarikir og vandvirkir tónlistarkennarar sem koma nemendum unglinga- stigsins i snertingu við tónlist og kenna þeim að leggja að sér til að öðlast hlutdeild i henni — á með- an er enn von til þess að tónlist verði ekki óvinsælasta skóla- greinin til frambúðar. Breiðholtsprestakall Séra Páll Pálsson umsækjandi Breiðholts- prestakalls heldur guðsþjónustu i Bú- staðakirkju, sunnudaginn 14. mai kl. 11 fyrir hádegi. Safnaðarnefnd. SKOLATANNLÆKNAR Nokkra tannlækna vantar frá l.september 1972 til starfa við tannlækningar i barna- skólum Reykjavikur. Vinnutimi og launa- kjör samkv. samningi Reykjavikurborgar við skölatannlækna. Nánari upplýsingar gefur yfirskólatannlæknir, simi 25709. Umsóknir sendist skrifstofu Heilsu- verndarstöðvarinnar Barónsstig 47 Reykjavik fyrir 31. þ.m. Heilsuverndarstöð Reykjavikur. D AUGfflég hvili ' fc H. ® með gleraugumfni IWilr Austurstræti 20. Sími 14456

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.