Vísir - 15.05.1972, Blaðsíða 3
Visir — Mánudagur 15. mai 1972
3
EIGIN AFURÐIR
SMAKKAST BEZT
Fjöldi fólks að setja kartöflur í garða um helgina
Þeir eru farnir að fara
með fjölskylduna í kart-
öflugarðinn og setja niður.
Nota kvöldstundirnar og
helgarnar. „Þetta erágætt
trimm", segja þeir.
Visimenn renndu upp að
kartöflugörðunum við Korpúlfs-
staði og hittu þar að máli nokkrar
fjölskyldur sem bogruðu við að
setja niður gullaugað eða annað
þvi um likt.
Það voru þó nokkuð margir
staddir þar upp frá og
gljáfægðar bifreiðir stóðu rétt
utan við garðana. Þeir segja lika
að manni smakkist bezt sá matur,
sem maður býr til sjálfur.
— Hvað setjiði mikið niður
hérna? spurðum við fyrstu hjónin
— Oh, svona eitthvað hálfan
poka.
— Og hvað búist þið þá við að
uppskera mikið?
— Já, það gæti farið upp i 10
poka, og þó', það er nú kannski
einum of djúpt i árinni tekið.
— Hafiði verið með garð hérna
áður?
— Nei, þetta er i fyrsta sinn,
sem við erum með garð hér. En
maður var að dunda við þetta i
sveitinni i gamla daga, svo það
ætti ekki að saka að prófa þetta
hér. Við erum að hugsa um að
rækta lika rófur og hvitkál auk
kartaflanna.
— Hér gæti jafnvel komið til
greina að við fengjum 4 poka upp,
sagði húsbóndinn fjölskyld-
unnar i næsta garði. — Það ætti að
duga fram að jólum, og jafnvel
lengur,-
— Hvað setjiði þá mikið niður?
— Ætli við setjum ekki niður
u* k;i Iro Oo miðað við
uppskeruna i fyrra, þá ætti þetta
að verða nokkuð svipað. Annars
fórum við ekki að setja niður fyrr
en i júni i fyrra, svo að þetta er
nokkuð fyrr núna. 1 fyrra var lika
veðurfar verra, votviðrasamt.
— Er ekki gifurleg aðsókn að
þessum görðum?
— Jú, jú, mikil ósköp. Plássið
er umsetið. Annars sitja þeir að
sjálfsögðu fyrir sem hafa verið
áður.
— Og hvaða tegund eruð þið
með hér?
— Þetta er nokkurs konar
afbrigði af gullauga, og ætli við
klárum þetta ekki bara i dag.
Þetta er það litið.
Og þar sem allir i kálgörðunum
vildu ljúka þvi sem fyrst að setja
niður, dugði ekki meira snakk né
tafir, en vonandi er að allir lands-
menn sem við það bjástra að
setja niður kartöflur hljóti góða
uppskeru að hausti.
—EA
Smóhýsin að Húsafelli
geysivinsœl meðal ferðafólks
„Það er allt að fyllast hjá mér i
suinar. Það er orðið fullbókað i
júli og ekki nema um vika eftir af
júni og ágústnánuðum”, sagði
Kristleifur Þorsteinsson i Húsa-
felli i samtaii við Visi á föstudag.
Hann hefur. að undanförnu
byggt fjölda smáhýsa, sem hann
leigir ferðafólki til lengri eða
skemmri tima. Húsin eru nú orðin
22, og þar af eru tvö, sem byggð
voru i vetur. Stærri húsin eru með
séreldhúsi og rúma 2-5 manns, en
minni húsin hafa aðgang að stóru
sameiginlegu eldhúsi. Undanfar-
in ár hafa pantanir ekki farið að
berast að ráði fyrr en i byrjun
júni, en nú er sem sagt allt að
verða fullt.
Kristleifur sagði, að það væru
mest fjölskyldur, sem sæktust
eftir að taka húsin á leigu. Flestir
leigja i viku, en þó sagði hann, að
sumir dveldu allt upp i þrjár vik-
ur i einu. Ekki kvaðst Kristleifur
búast við að stækka þetta hverfi
meira en það gæti komið til mála
að byggja annað á öðrum stað og
þá kannski i samvinnu við ein-
hver félagasamtök.
Þeir, sem þarna dvelja, geta
stundað sund og útreiðar auk
gönguferða. Auk þess ráðgerir
Kristleifur að koma upp barna-
leikvelli i sumar og jafnvel
barnagæzlu. Þaðeru eingöngu Is-
lendingar, sem hafa pantað húsin
i sumar. Hins vegar er þessi þjón-
usta fyrir hendi allt árið, og i vet-
ur hefur verið reytingur af gest-
um, þar á meðal hafa verið
nokkrir útlendingar. Fyrir þá,
sem vilja gista i tjöldum, eru
fyrir hendi ágæt tjaldstæði með
snyrtingu. Er greinilegt, að mikill
áhugi er meðal fólks að notfæra
sér þá þjónustu, sem boðið er upp
á þarna i Húsafelli. Væri sjálfsagt
leikur einn að koma upp svona
starfsemi viða um land.
— SG
EKKI MIKLAR
OSTÆTUR
— en smjörsalan stóreykst
islriidingar horða mun ininiia
af osli en nágrannaþjóðirnar á
Norðurlöndum, — en svipað og
Bretar. Arsneyzla okkar er eitt-
livað um 5 kiló á slðasla ári, og
er :i-l kilóuni ininni en hjá
Irændþióðuni okkar.
Kom þetta fram á fundi
Framleiðsluráðs landbúnaðar-
ins og Osta og smjörsölunnar
með mjólkursamlagsstjórum i
gærdag, þar sem rædd voru
markaðs- og framleiðslumál
mjólkuriðnaðarins.
Oskar Gunnarsson kvað ls-
lendinga kaupa smjör á svipuðu
verði og Norðurlandabúar, og
neyzla smjörs óx mjög á árinu
og varð um 7.7 kg.
Þróun mjólkurframleiðslunn-
ar i landinu á undanförnum ár-
um hefur verið með þeim hætti
að ostaframleiðslan mun i
áuknum mæli flytja norður til
mjólkurbúanna þar. Eru þau
enn sem komið er mörg litt við-
búin að taka við þessu nýja hlut-
verki sinu, en i undirbúningi er
nýbygging á Akureyri og ný
ostagerð á Húsavik.
tslenzkur ostur helur verið
fluttur utan, mest til Bandarikj-
anna, Sviþjóðar og Bretlands
litillega, en i tilraunaskyni til
Tékkóslóvakiu og Japan - JBP
Íslandsmeistari
annað árið í röð
Úrslit islandsmeistaramóts-
ins i sveitakeppni í bridge urðu
á þann veg, að sveit Hjalta
Elíassonar varö islands-
meistari annað árið i röð.
Eftir glæsilega byrjun i fyrstu
umferðum mótsins virtist sigur
Hjalta nær öruggur, en i næst-
siðustu umferðinni beið hann
ósigur i leiknum við sveit Arnar
Arnþórssonar, 6-14, sem var
\ i öðru sæti. — Hafði þá sveit
í Hjalta 66 st. en sveit Arnar 59
7 stig.
t siðustu umferðinni átti
Hjalti að etja við sveit Sævars
Magnússonar úr Hafnarfirði og
vann þann leik 16-4, en sveit
Arnar hlaut jafntefli i leik sin-
um við sveit Stefáns Guðjohn-
sens, 10-10.
Lokatölur urðu þær, að Hjalti
hlaut 82 st., Orn 69 st. og i 3. sæti
varð Jón Arason með 58 st.,
Stefán Guðjohnsen hlaut 41 st.,
Sævar 31 og Jakob R. Möller 13
stig. — GP.
MGMéghnh ,
með gleraugum frá IWli
Austurstræti 20. Sími 14456
þœgilegt
Bómullarblússur, röndóttar, doppóttar og
einlitar. — Finnsku Hans Metzen blússur-
nar með jap-sniðinu og skyrtublússur. —
Sifellt nýtt efni i siðbuxunum. — Sumar-
pils. — Stúdinublússur. — Stuttir og siðir
kjólar. — Kimonoheimasloppar.
Nýtt i hverri viku. (Kjólar teknir upp i
dag).
FANNÝ, TÍZKUVERZLUN UNGU KONUNNAR, Kirkjuhvoli Sími 12114
Umfram allt