Vísir - 15.05.1972, Qupperneq 13
Vísir — Mánudagur 15. mai 1972
’VSk - '■$ * • æ^;t.; ■—mi!0&ssr ÆÞ
lur Simonarson: Ms&Á m
MMÉ$? te$Mm
HBoBHME
■
hér.
Létt hjó
Morton
vonn KR 6:1 ígœrkvöldi
Morton vann stórsigur 6-1
gegn hinu unga liði KR á
Laugardalsvellinum í gær-
kvöldi í síðasta og
skemmtilegasta ieik heim-
sóknarinnar — að vísu
verðskuldaður sigur en
alltof stór eftir gangi
leiksins, og vissulega hefðu
KR-ingar verðskuldað að
skora fleiri mörk. Hins
vegar var vörn liðsins eins
og hriplek fata og Morton
skoraði þvi jafnmörg mörk
i leiknum og i báðum fyrri
ieikjum sínum hér.
Leikurinn var bráðskemmti-
legur — sóknarleikur beggja liða,
talsvert á kostnað varnarinnar —
en KR-ingar fóru illa með nokkur
góðtækifæri, sem vissulega hefðu
getað puntað upp á lokatöluna.
Morton skoraði fyrsta markið
eftir 6 min. og var Gillies þar að
verki, en áður höfðu KR-ingar
sótt mjög. Og þeir héldu sókninni
áfram — á 20 min. tókst bakverði
Morton að bjarga á marklinu, og
nokkru siðar komst Gunnar
Gunnarsson frir að marki
Morton, lék á markvörðinn, en
tókst ekki að hitta i autt markið
frá vitateig. Þarna skall hurð
nærri hælum hjá atvinnumönnum
og á 30. min. var þeim gefið
mark. Halldóri Björnssyni urðu
þá á mikil mistök, þegar hann
ætlaði að spyrna frá og Chalmers
átti greiða leið að markinu.
Staðan i hálfleik var 2-0.
Og fljottt i siðari hálfleik
komust Morton-leikmennirnir i 3-
0. Enn var Chalmers á ferðinni —
fékk knöttinn i dauðafæri og
spyrnti, en knötturinn var senni-
. lega á leið framhjá, þegar Ólafur
Ólafsson bakvörður varð fyrir
honum og af honum hrökk hann
beint i markið.
KR-ingar létu ekki mótbyrinn á
sig fá — Björn Pétursson og
Sigurður Indriðason komust báðir
i góð færi, en allt kom fyrir ekki —
reynsluleysið var þeim greinilega
fjötur um fót.
Þegar 15. min voru af leik kom
mark leiksins — stórkostlegt
glæsimark. Knötturinn var gefinn
inn á vitateiginn — Steve
Chalmers stökk hærra en aðrir og
frá vitateigsbrúninni skallaöi
hann knöttinn efst i markhornið
fjær — hann lenti alveg i vinkli
stangar og þverslár marksins ó-
verjandi fyrir Magnús. Og enn
'fengu KR-ingar sin tækifæri. A 27.
min. gat Atli Þór hlaupið aleinn
með knöttinn að markinu, en það
var eins og hann væri hræddur —
og svo spyrnti hann framhjá mjög
hikandi. Þá spyrnti Björn
hörkuskoti yfir markið — en
loksins kom svo markið, sem lá i
loftinu og allir biðu eftir, Björn
fékk sendingu frá Herði Markan
utan af kanti — gat lagt fyrir sig
knöttinn og skoraði með lúmsku
skoti neðst i markhornið 4-1.
En leikmenn Morton höfðu ekki
sagt sitt siðasta orð. Osborne átti
hörkuskalla á mark, sem Magnús
varði, en hann hélt ekki
knettinum sem hrökk fyrir fætur
innherjans Masonoglétt var fyrir
hann að renna honum i autt
markið og á 33. min hljóp
Chalmers af sér hina hripleku
vörn KR og skoraði sjötta og
siðasta mark Skotanna i
heimsókninni — sjöunda mark
sitt af þeim tólf, sem liðið skoraði
ym&i
KTS* » ~
hiíir,
z.-
tufling
wilton
axminster
Vegna þess að í því felst ákveðið öryggi um þau eru þéttari) séu jafn langhærð teppi
gæði. Wilton gólfteppi eru þéttar ofin en borin saman.
önnur, t. d. tufting eða axminster-ofin teppi.
Binding þeirra og botn er sterkari og ullar-
magn í fermetra verður alltaf meira (af því ÞeSS vegna endilega WÍltOll-ofÍn gólfteppi
umboðsmenn
um allt land
ALAFOSS
ÞINGHOLTSSTRÆTI 2. SIMI 22091
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR 8.14