Vísir - 15.05.1972, Blaðsíða 24
$ A T Jp
■ mmmSBm
Vísir — Mánudagur 15. mai 1972
Hass-sali handtekinn
Sláttur senn
að hefjast
Þaft eru margir farnir að slá
garöana sina, enda veitir ekki af,
grasiö sprettur i griö og erg. Aö
þvi er liafiiði Jónsson tjáöi okkur
i morgun, fer allshcrjar sláttur i i
hænum aö hefjast núna næstu
daga. Veröur þá þegar hafizt
handa við miðbæinn, en llafliði
tók þaö fram, að það væri beðið
eftir skólafólkinu.
Kvaö hann þá vera næstum
bjargarlausa án skólafólksins, og
sláttur gæti ekki hafizt að veru-
legu leyti fyrr en það væri komið
til vinnu.
En prófum fer nú senn að ljúka,
og eftir nokkra daga verður
skólafólkið farið að keppast við að
gera borgina fallegri.
Sláttur i fyrra hófst ekki fyrr en
siðast i mai, svo meiri vöxtur
virðist vera i grasinu núna. Enda
hefur veðrátta verið prýðis góð og
bændur keppast við aö bera á, þvi
þar hefst sláttur liklega um
miðjan júnimánuð.
Landspróf nœsta ár
það síðasta?
Um nokkurn tima hefur verið I
athugun að fella landsprófiö i nú-
verandi mynd niður. I.andsprófs-
nefnd lagði fyrir ráðuneyti, fyrir
um það bil einu og hálfu ári siöan,
tillögu varðandi breytinguna og
var upphaflega fyrirhugað að
landsprófið i vor yrði það siðasta.
Ekki hefur þó enn verið gert neitt
i málinu, en liklega verður lands-
próf næsta vors það siðasta.
Landsprófið verður þó ekki al-
gjörlega lagt niður, heldur sam-
einað gagnfræðaprófinu. Að loknu
skyldunámi hefðu nemendur þvi
Irjálst val um hvort þeir tækju
prófiö .,á einu ári eða tveimur.
Ennfremur gætu kennarar betur
fylgst með þvi hvort nemendur
eru hæfir undir framhaldsskóla-
nám.
En með þessari breytingu hyrfi
næstum allur stöðumunur. Allir
hefðu tækifæri til þess að taka
sama prófið og um leið sama
tækifæri til þess að halda lengra
áfram á námsbrautinni.
Töluvert hassmagn tekið við húsleit. Sent fró Kaupmannahöfn, og selt hér
Ströng áfengisgæzla á
dansleik i Stapa í Keflavík
á laugardagskvöld leiddi til
þess, að lögreglan komst á
slóö fíkniefnasala.
Fundust átta grömm af
hassi i fórum ungs manns á
dansleik í Stapa, sem leiddi
til þess að lögreglan hand-
tók þann, sem selt hafði
honum, og fann við húsleit
enn meira hass.
Ungi maðurinn, sem er
aðstoðarmaður hjá hljómsveit-
inni, er þarna lék fyrir dansi, fór
út af dansleiknum, en kom inn
aftur og þá með handtösku með
sér. Lögregluþjónar, sem gættu
dyra og vörðu það, að gestir hefðu
með sér áfengi inn á dansleikinn,
stöðvuöu piltinn til þess að ganga
úr skugga um, að ekkert áfengi
væri i töskunni.
Sáu þeir þá litinn böggul i tösk-
unni og var hann vafinn pappir,
en utan um voru vafðir pipu-
hreinsarar i stað snæris. Vaknaði
hjá þeim grunur, en þegar þeir
vildu skoða böggulinn nánar,
þreif ungi maðurinn hann úr
töskunni og varpaði honum til
kunningja sins, sem stóð þar hjá.
Sá tók þegar á rás, en lögreglan
brá jafnsnöggt við, og elti uppi
piltinn, sem varð handsamaður.
— í bögglinum reyndust vera 8 gr.
af hassi.
Við yfirheyrslur mun rótarinn
hafa viðurkennt að hafa keypt
hassið af manni i Reykjavik. Lög-
reglan i Reykjavik handtók
seljandann og gerði hjá honum
húsleit. Við þá leit fannst enn
meira hass heldur en tekið var af
lögreglunni á Keflavikurflugvelli.
Fikniefnasalinn viðurkenndi að
hafa fengið hassið sérstaklega
sent frá Kaupmannahöfn. Leikur
grunur á þvi, að hér sé um að
ræða smygl og dreifingu á hassi i
slikum mæli, að um hundruö þús-
unda kröna sé að tefla. En eitt kg.
af hassi nemur kr. 250.000,00 i
lausasöluá fikniefnamarkaðnum.
— Rótarinn hafði keypt af hass-
salanum lOgr. skammt á kr 2500.
gP
Krákustígar
um Kópavog
l>eir, sem leiö hafa átt suður i
llafnarfjörð um helgina, urðu að
fara ýmsa krákustiga um Kópa-
voginn fyrst, vegna malbikunar-
framkvæmda, sem hafnar eru i
Kópavogi og á Hafnarfjarðar-
vcginum.
Lögreglan i Kópavogi hefur átt
annrikt við umferðastjórn og
lciðsögn ökumanna i gegnum
þessar krókaleiðir. þrengslin á
llafnarfjarðarveginum meðan
þessar framkvæmdir standa yfir
valda einhverjum töfum á um-
ferðinni,enþóekki umtalsverðum,
nema rétt á mesta umferðartima
dagsins. -OP.
BANNA LÆKNUM AÐ
SÆKJA UM STÖÐUR
80 sjúkrahúslœknar hafa sagt upp
Um 80 sérfræðingar og aö-
sloöarlæknar hafa nú sagl upp
stiirfum sínum, 57 við rikis-
spítalana og 28 hjá Borgar-
spítalanum. <>g nú er liðiö á
annan inánuð frá þvi að siöasti
sáttafundur var haldinn með
sjúkrahúslæknum og heil-
brigðisstjórninni. Það hefur þvi
litið gerzt, er leyst gæti deiluna,
þvi ólíklegt er að þær bréfa-
skriftir, sem aðilar hafa ástund-
að undanfarið, verði til að leysa
hana.
Sjúkrahúsin hafa ekki horfið
að þv! ráði að auglýsa lausar
stöður, enda mun það tilgangs-
laust. Umsóknir hafa ekki einu
sinni borizt i þær stöður, sem
lausar eru nú þegar, enda hefur
Læknafélag Reykjavikur bann-
að meðlimum sinum að sækja
um stöður, þar til deilan hefur
leyzt. _VJ
Iðnaðarmaður að störfum á skrifstofu Skáksambandsins
Skáksambandið vítir Freystein
A aöalfundi Skáksambands is-
lands. sem haldinn var á laugar-
dag. bar þaö helzt til tiðinda að
samþykktar voru vitur á Frey-
stein Þorbergsson frá samband-
inu fyrir óvinveitt skrif um það og
serstaklega harmaðar þær árásir
sem forseti sambandsins Guð-
mundur G. Þórarinsson hefur
oröiö fyrir af völdum þessara
skrifa.
A þessum fundi voru ýmsar
ályktanir gerðar og Skáksam-
bandsmönnum þakkað farsæl
lausn einvigismálsins. Þá voru
samþykktar tillögur um róttækar
breytingar á skákstigakerfinu og
munu þær áður en langt um liður
koma til framkvæmda. Skáksam-
bandið mun á þessu ári i fram-
haldi af heimsmeistaraeinviginu
hafa námskeið fyrir skákdómara.
Sitthvað fleira var gert á þessum
aðalfúndi og umræður fjörugar.
Stjórnin fráfarandi var endurkos-
in með lófaklappi. Skáksamband
tslands hefur nú opnað skrifstofu
i sambandi við heirnsmeistara-
einvigið og er skrifstofan til húsa i
Norðurveri við Nóatún.
Verða að kjósa tvisvar
um háskólarektor
Magnús Már Lárusson endurkjörinn.
Magnús Már Lárusson
var í gær endurkjörinn
rektor Háskóla islands til
næstu tveggja ára. Guð-
laugur Þorvaldsson,
prófessor, var ívið sterkari
frambjóðandi en Marnús
Már samkvæmt prófkjöri,
sem fram fór á miðviku-
dag, gaf ekki kost á sér og
kom þannig i veg fyrir
harðar kosningar um
rektorsembættið, en þær
hefðu hugsanlega valdið
ófriði um starfið á eftir.
Einhver hópur háskólakennara
hefur þó augljóslega talið
rétt, aö ekki yrði sjálfkjörið i
þetta starf, sennilega til að þau
sjónarmið festust ekki i sessi að
rektor skuli hljóta endurkosningu
svo framarlega, sem hann gefur
kost á sér. Þessi hópur kennara
tók sig þvi saman um það að
stvðia Þór Vilhjálmsson
prófessor á móti Magnúsi Má.
A kjörskrá voru 96 (þar af 11
stúdentar) en atkvæði greiddu 78.
Þar sem enginn fékk hreinan
meirihluta i fyrstu umferð
kosninganna varð að kjósa
tvisvar.
I fyrri umferð urðu úrslitin
þessi: Magnús Már Lárusson
fékk 35 atkvæði, Þór Vilhjálmson,
fékk 23, Guðlaugur Þorvaldsson
4, Magnús Magnússon 3, og eitt
atkvæði fengu þeir Sigurður
Nordal, Sigurður Lindal, Gaukur
Jörundsson og Jónatan
Þórmundsson. — Auðir voru 7 og
ógildir 2
1 seinni umferð var kosið um
tvo efstu mennina úr fyrri umferð
og fóru kosningar þá þannig, að
Magnús Már Lárusson, fékk 46
atkvæði, en Þór Vilhjálmsson
fékk 25. Auðir og ógildir voru 7,-
VJ.